Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1990.
5
Fréttir
Vistin um borð 1 Andra BA hefur staðið í 85 daga:
„Vid spilum enn bridge“
- sagði Ásmundur Þór Ólafsson, fyrsti stýrimaður
„Við erum búnir að pæla í gegnum
tvær myndbandaleigur í Dutch
Harbour, þær einu í bænum, og höf-
um séð allt sem þar er í boði. Þess
utan spilum við enn bridge og enn
meiri bridge," sagði Ásmundur Þór
Ólafsson, fyrsti stýrmaður á Andra
BA, í samtali við DV.
Skipið liggur enn fyrir utan höfn-
ina í Dutch Harbour á Unalaskaey
úti fyrir strönd Alaska. Þangað var
skipið komið um jól og skipveijar
hafa því beðið aðgerðalausir að
mestu í ríflega fjörtíu daga við Al-
aska.
Togarinn lagði upp í vesturferðina
frá Englandi 16. nóvember á síðasta
ári, sigldi um Panamaskurð, norður
með vesturströnd Ameríku og norð-
ur í Beringshaf. Úthaldið hjá áhöfn-
inni er því farið að nálgast þrjá mán-
uði.
„Ef við miðum við að hafa beðið
hér í meira en fjörtíu daga þá verð
Borgames:
Framkvæmdir
bæjarins í
lágmarki
Garöar Guöjónsson, DV, Vesturlandi:
Drög að fjárhagsáætlun Borgar-
ness gera ráð fyrir að framkvæmdir
verði í lágmarki og að engin ný lán
verði tekin á árinu. Fjárhagsáætlun
hefur verið lögð fram til fyrri um-
ræðu og búist við að hún verði af-
greidd í bæjarstjóm í lok mánaðar-
ins.
i.Við höfum verið í umfangsmikl-
um fjárfestingum á undanförnum
ámm og munum því einbeita okkur
að því að greiða skuldir á þessu ári,“
sagði Eyjólfur Torfi Geirsson, forseti
bæjarstjórnar, í samtali við DV. Eyj-
ólfur er bæjarfulltrúi Alþýðuflokks
sem myndar meirihluta ásamt Al-
þýðubandalagi og óháðum lista.
Aö sögn Eyjólfs hafa framkvæmdir
við íþróttavöll og fjárfestingar vegna
atvinnumála verið bæjarsjóði mjög
kostnaðarsamar á kjörtímabilinu.
Akureyri:
Góðar gjafir
til Háskólans
Gylfi Krisjánsson, DV, Akureyri:
Háskólanum á Akureyri hafa verið
færðar 450 þúsund krónur í bóka-
kaupasjóð að undanförnu. Akur-
eyrarbær gaf 250 þúsund og Útgerð-
arfélag Akureyringa 200 þúsund með
þeirri ósk að þeim peningum yrði
varið til kaupa á ritum vegna sjávar-
útvegsdeildar skólans.
Þá hafa skólanum borist fleiri gjaf-
ir: ritverk um botngróður við strend-
ur íslands, um hagfræði og skyldar-
greinar, jarðfræði, læknisfræði og
fleira.
Reykjanesbrautin:
Rúta rann út af
Rúta frá SBK í Keflavík rann út af
Reykjanesbrautinni í mikilli hálku í
fyrradag. Ökumaðurinn var að koma
að afleggjara viö Innri-Njarðvik og
þurfti að hemla við gatnamótin þegar
bíll kom þar að. Rútan rann út fyrir
vegkantinn í hálkunni. Engin slys
urðu á fólki og rútan skemmdist
ekki. Önnur rúta var síðan fengin tii
að draga hina aftur upp á veginn.
-ÓTT
Skipverjar á Andra BA hafa nú beðið eftir verkefnum i borð í skipinu i ríflega fjörtíu daga. Enn er ekkert ákveðið
um hvort eitthvað verður unnið um borð eða hvað verður gert við skipið.
ég að segja að ástandið um borð er
gott. Biðin er þó auðvitað þreytandi
og verst er þó að vita ekkert hvað
tekur við,“ sagði Ásmundur.
Síðustu daga hefur verið gott veður
við Dutch Harbour. Ásmundur sagöi
að skipveriun liði vel í blíðunni nú
eftir slæman veðrakafla í janúar.
Enn sem komið er reikna skipveriar
með að vinna sandkola um borð.
Vinnslubúnaðinum um borð var
breytt strax og ljóst var að ekki feng-
ist leyfi til að vinna þorsk. Vinna við
breytingarnar tók þó skamman tíma
og þá tók aðgerðaleysið aftur við.
Ásmundur sagði að ágætis veiði væri
á kolanum núna á miðunum við
Dutch Harbour og ekkert því til fyrir-
stööu um borð að hefja vinnslu.
„Við bíðum enn eftir græna ljósinu
að heiman. Ákvörðum um hvenær
verður byrjað að vinna hlýtur að
koma einhvern næstu daga. Við höf-
um mikið langlundargeð og getum
þess vegna verið hér einhverjar vik-
ur enn. Ég vildi hins vegar hafa svar
við spurningunni hvenær við erum
búnir að fá nóg,“ sagði Ásmundur.
Ragnar Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri útgerðar Andra BA,
sagði að enn væri ekki fullljóst hvort
ráðist yrði í vinnslu sándkola um
borð í skipinu. „Við eigum eftir að
ræða betur við lánardrottna okkar
um framhald málsins. Þá er enn ekki
útilokað að við fáum heimild tii að
vinna aðrar fisktegundir. Það hefur
ýmsum möguleikum verið velt upp
en engin niðurstaða er fengin enn,“
sagði Ragnar.
-GK
STÆRSTI
BRIDGEVIÐBURÐUR
ÁRSINS!
Flugleiðamótið í bridge er árlegur stórviðburður fyrir íslenska bridgespilara.
Mótið fer fram á Hótel Loftleiðum dagana 9.-12. februar.
Að venju heimsækja okkur erlendir stórspilarar og ber þar einna
hæst komu José Damiani, sem er forseti Evrópubridgesambandsins
en hann þykir einnig mjög fær spilari.
Aörir þekktir spilarar frá Frakklandi, Bandaríkjunum, Danmörku og
Svíþjóö veröa meðal gesta.
Forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson, mun setja mótið og
segja fyrstu sögnina.
Keppni á stórmóti Flugleiða skiptist í tvennt.
Fyrra mótið er tvímenningur og spilað veröur frá kl. 20 á föstudaginn
til um kl. 1 um nóttina - hafist aftur handa kl. 10 og spilaó fram að
kvöldmat en þá verður verðlaunaafhending.
Sveitakeppni verður spiluó sunnudaginn og mánudaginn og verður
spilað fyrri daginn frá 13 til 24 með matarhléi.
Á mánudaginn verður spilaö frá 15 til 22.30.
Selt verður inn á mótið og geta menn annaðhvort keypt sig inn fyrir
hvern dag fyrir sig eða á allt mótið í heild sinni.
Allir þekktustu spilarar íslendinga verða með á mótinu
og er þetta því mikill hvalreki á fjörur bridgeáhugamannsins.
Bridgesamband Islands