Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Blaðsíða 26
34
FÖSTUÐÁGUR 9. FEBRÚAR 1990.
Andlát
Elin Helga Magnúsdóttir, Sólvalla-
götu 17, Reykjavík, lést 8. febrúar á
heimili sínu.
Krístjana Ingimundardóttir, Garö-
vangi, Garði, andaðist að morgni 8.
febrúar á Sjúkrahúsinu í Keflavík.
Sigurgeir Tómasson málari lést í
Landspítalanum 2. febrúar.
Jarðarfarir
Valdimar Einarsson, Skólabraut 2,
Grindavik, verður jarðsunginn frá
Grindavíkurkirkju laugardaginn 10.
febrúar kl. 14.
Einar Stefónsson rafeindavirkja-
meistari, Smáratúni 5, Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkur-
kirkju laugardaginn 10. janúar kl. 14.
Guðný Tómasdóttir lést 2. febrúar.
Hún fæddist á Læk í Leirár- og Mela-
hreppi 11. nóvember 1912. Hún var
dóttir Tómasar Ingimarssonar og
Guðrúnar Hallsteinsdóttur. Guðný
giftist Sigurþóri Narfasyni en hann
lést árið 1982. Þau hjónin eignuðust
tvö böm. Útfór Guðnýjar verður gerð
frá Akraneskirkju í dag kl. 13.30.
Garðar Óskarsson lést 30. janúar.
Hann fæddist 27. júlí 1927 í Reykja-
vík. Foreldrar hans voru Óskar Jón-
asson og Magnea Ólafsdóttir. Garðar
starfaði lengst af við vélgæslu í skip-
um. Árið 1972 byggði hann sér eigið
verkstæði þar sem hann vann að
ýmsum viðgerðum. Eftirlifandi eig-
inkona hans er Guðrún Magnús-
dóttir. Þau hjónin eignuðust fimm
börn.
Útför Garðars veröur gerð frá Foss-
vogskirkju í dag kl. 13.30.
Margrét Hallgrímsdóttir lést 31. jan-
úar. Hún fæddist í Hafnarfirði 12.
janúar 1920, dóttir hjónanna Hall-
gríms Jónssonar og Jónínu Jóns-
dóttur. Margrét giftist Guðjóni Klem-
enzsyni, en hann lést árið 1987. Þau
hjónin eignuðust fimm böm og eru
fjögur á lífi. Útfor Margrétar verður
gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 15.
Ólafur Tryggvason, Túnbrekku 7,
Ólafsvík, verður jarðsunginn frá Ól-
afsvíkurkirkju laugardaginn 10. fe-
brúar kl. 14. Jarðsett verður að
Hellnum sama dag. Sætaferðir frá
BSÍ kl. 9.
Oddur Friðriksson rafvirkjameistari,
Smiðjugötu lla, ísafirði, sem lést 1.
febrúar, verður jarðsunginn frá ísa-
fjarðarkapellu laugardaginn 10. fe-
brúar.
Útför Ólafs Inga Þórðarsonar mjólk-
urfræðings, Borgarbraut 45, Borgar-
nesi, verður gerð frá Borgames-
kirkju laugardaginn 10. febrúar kl.
14. Bílferð verður frá BSÍ kl. 11.
Ný herrafataverslun í
Fákafeni
Ný herrafataverslun var opnuö í byrjun
febrúar aö Fákafeni 11 og ber hún nafniö
„Herrafataverslun Birgis" en eigendur
eru Birgir Georgsson, sem veriö hefur
verslunarstjóri í Herraríki undanfarin 5
ár, og Guörún Bjömsdóttir sem hefur
verið innkaupastjóri fatnaðar hjá KRON
og Mikiagarði undanfarin 3 ár. A boðstól-
um eru herrafatnaður frá m.a. Gant,
Webmore, Camel og Chris Martin. Auk
þess peysur, skyrtur, bindi, sokkar og
flest það sem karlmanninn vanhagar inn.
Lögð verður áhersla á persónuiega þjón-
ustu. Aðkoma að Fákafeni er úr Skeif-
unni og einnig frá Skeiðarvogi. Næg bíla-
staeði em við verslunina og er síminn
31170.
Innilegasta þakklœti sendi ég öllum sem
glöddu mig með heimsókn sinni, gjöfum
og skeytum á áttrœðisafmœli mínu, 3. jan-
úar sl. Guði blessi ykkur öll.
Kær kveðja.
ÞORBJÖRG HALLDÓRSDÓTTIR
Bakkavegi 1, Þórshöfn
URVAL - með eitthvað handa
öllum.
Úrval tímarit fyrir alla
Afmæli dv
Jómnn Bjamadóttir
Jómnn Bjamadóttir, fyrrv. ljós-
móðir, Freyjugötu 1, Reykjavík, er
niutíuáraídag.
Jórann er fædd að Geitabergi í
Svínadal í Borgarfirði. Hún lauk
ljósmæöraprófi árið 1922 og var ljós-
móðir H valfj arðarstrandaramdæm-
is 1922-’28. En starfaði sem ljósmóð-
ir á Akureyri á áranum 1929-’68.
Jórunn giftist þann 31.12.1936 Jóni
Elíasi Jónssyni, vélstjóra í Reykja-
vík og síðar á Akureyri, f. 12.6.1912,
d. 30.8.1942. Foreldrar hans voru
Jón Oddsson, verkamaður í Reykja-
vik, og Sigríður Sigurðardóttir frá
Ármúla.
Sonur Jórannar og Jóns er Bjarni,
f. 3.3.1937, kvæntur Kristínu Sig-
urðardóttur húsmóður, og eiga þau
tvö böm: Jórunni og Bjama.
Systkini Jórannar: Steinunn, f.
17.3.1895, látin, var gift Jóni Péturs-
syni, látinn; Jórann, f. 26.9.1898, d.
8.11. sama ár; Bjarni, f. 29.10.1901,
látinn, læknir, var kvæntur Regínu
Þórðardóttur leikkonu, látin; Sigríð-
ur, f. 20.6.1905, giftÞorkeliSveins-
syni, Björg, f. 26.1.1909, var gift Jón-
asi Ólafssyni, látinn.
Foreldrar Jórannar voru Bjarni
Bjamason, f. 4.1.1866, d. 31.12.1928,
hreppstjóri, oddviti, sýslunefndar-
maður og b. á Geitabergi í Svínadal,
og Sigríður Einarsdóttir húsfrú, f.
14.8.1866, d. 27.5.1955.
Bjami var sonur Bjama, b. í
Stóra-Botni í Hvaifirði, Helgasonar,
b. í Stóra-Botni, Erlingssonar, b. í
Stóra-Botni, Árnasonar.
Móðir Helga var Margrét Sveins-
dóttir. Móðir Bjama Helgasonar var
Steinunn Gísladóttir, b. á Miðsandi,
Sveinssonar, og Sigríðar Ámadótt-
ur.
Móðir Bjama á Geitabergi var
Jórunn Magnúsdóttir, b. á Þyrli,
Þorvaidssonar, Guðmundssonar.
MóðirMagnúsarvarÓlöfMagn- .
úsdóttir. Móðir Jórunnar frá Þyrli
var Elísa Eyjólfsdóttir, b. í Steins-
holti, Magnússonar, og Jórunnar
Erlingsdóttur.
Sigríður, móðir Jórunnar ljós-
móöur, var dóttir Einars, b. í Litla-
Botni í Hvalfirði, Ólafssonar, b. á
Efri-Brú í Grímsnesi og Svartagili í
Þingvallasveit, Jónssonar, b. á Búr-
felli, Vernharðssonar.
Móðir Einars var Ragnhildur
Beinteinsdóttir, b. á Breiðbólstað í
Jórunn Bjarnadóttir.
Ölfusi og lögréttumanns, Ingimund-
arsonar, og Vilborgar Halldórsdótt-
ur, biskups á Hólum, Brynjólfsson-
ar.
Móðir Sigríðar var Sigríður Helga-
dóttir, b. í Stóra Botni. Bjami Helga-
son, b. í Stóra Botni, og Sigríður
Helgadóttir vora systkini.
Jórann dvelur á sjúkrahúsi þessa
dagana.
Tilkyniiingar
Félag eldri borgara
Göngu-Hrólfur hittist nk. laugardag kl.
11 að Nóatúni 17. Opið hús í Goðheimum,
Sigtúni 3, í dag, fimmtudag, kl. 14 frjáls
spilamennska, kl. 19.30 félagsvist, kl. 21
dansað.
Húnvetningafélagið
Félagsvist spiluð á laugardag kl. 14 í
Húnabúð, Skeifunni 17. Allir velkomnir.
Félag Snæfellinga og
Hnappdæia í Reykjavík
Árshátíðin verður laugardaginn 10. fe-
brúar í Goðheimum, Sigtúni 3. Húsið
opnað ki. 18.30. Heitur veislumatur,
vönduð skemmtidagskrá. Miðasaia í Sig-
túni 3, fimmtudag 8. feb. frá kl. 16-18 og
fóstudag 9. feb. frá kl. 16-18. Nánari upp-
lýsingar í símum 611421, Ema, og 40308,
Emma.
Leikhús
Yfir 50 sýningar á
Ljósi heimsins
Leikfélag Reykjavikur er með fjögur
verkefni á fjölum Borgarleikhússins. Á
htla sviðinu eru komnar yfir 50 sýningar
á Ljósi heimsins og á stóra sviðinu er
Höll sumarlandsins, báðar sýningamar
unnar upp úr bók Halldórs Laxness,
Heimsijósi. Sýningum á Höll sumar-
landsins fer fækkandi. Nýlega var frum-
sýnt á stóra sviðinu Kjöt eftir Ólaf Hauk
Símonarson sem gerist bakatil í kjötbúð.
Bamaleikritið Töfrasprotinn gengur fyr-
ir fullu húsi hveija helgi. Æfmgar em
hafnar á nýju leikriti eför Sigurð Pálsson
sem heitir Hótel Þingveliir. Leikstjóri er
Hallmar Sigurðsson og er frumsýning
fyrirhuguð um miðjan mars.
Ný bílasala að Bíldshöfða
Ný bílasala var opnuð í byijun febrúar
undir nafninu Nýja bílasalan að Bílds-
höfða 8 þar sem Bifreiðaeftirlitið var áður
til húsa. Mjög góð aðstaða er fyrir bíla
bæði innandyra og utan og vel fer um
viðskiptavini í hinum vistlegu húsakynn-
Styrkjum úthlutað
úr Rannsóknasjóði
Krabbameinsfélagsins
Nýlega var í annað sinn úthlutað styrkj-
um úr Rannsóknasjóði Krabbameins-
félagsins sem stofnaður var í framhaldi
af Þjóðarátaki gegn krabbameini 1986 en
hlutverk sjóðsins er að efla rannsóknir á
krabbameini. Þeir sem hlutu styrk úr
sjóðnum að þessu sinni vom: Helgi Tóm-
asson, til rannsókna á sambandi notkun-
ar getnaðarvamarpillu og krabbameins
í brjósti, Hildur Harðardóttir, tii rann-
sókna á nýju einstofna mótefni gegn
um. Eigandi og aðalsölumaður er Sigþór
Guðmundsson sem áður var sölustjóri
Citroendeildar Globus hf. og síðustu árin
sölustjóri notaöra bíla hjá Jöfri hf. Opið
er virka daga kl. 10-19 og laugardaga kl.
10-17. Síminn er 673766.
krabbameinsfrumum, upprunnum frá
eggjastokkum, Jóhannes Bjömsson, til
rannsókna á lífhegðun, vefjaafbrigðum,
ónæmisvefjafræði og kjamsýmeiginleik-
um bijósksarkmeina, Kristrún Bene-
diktsdóttir, Bjami A. Ágnarsson, Guðjón
Baldursson og Jón Hrafnkelsson, til
rannsókna á sarkmeinum í mjúkvefjum
á íslandi. Samanlögð upphæð styrkjanna
var 1450 þúsund krónur. Tekjur sínar
hefur sjóðurinn einkum af húsaleigu á
jarðhæð Skógarhlíðar 8, auk vaxta af
stofnfé.
Fjölmiölar
í dagskrá sjónvarpsins er ekki
mikið eftir af því sjónvarpi sem ég
man fyrst eftir. Það er helst að á
mánudögum séu frekar sýnd betri
leikrit. Það hefur þó brugðist æ oftar
á undanfömum árum.
Stundum veit ég ekki lengur
hvaða dagur er þegar ég sit fyrir
framan sjónvarpið. Breskar nátt-
úrulifsmyndir og bandarískir gam-
anþættir virðast geta birst á skján-
um hvaða dag vikunnar sem er nú
oröiö.
í gærkvöldi fékk éghinsvegar
gamlan vin aö orna mér við. Þá birt-
ist Bengt Feldreich (eða þaö minnir
mig að kappinn heiti) á skjánum
meö nýjan hóp nóbelsverðlauna-
hafa. Þá vissi ég upp á hár að nú
voru jólin liðin og enn nokkrar vik-
urframaðbolludegi.
Það var notalegt að hlusta á Bengt
og spekingana. Flestura spurning-
unum höfðu aðrir spekingar svarað
á undanförnum árum. Sum svörin
vora keimlik svörum eldri nóbels-
hafa. Ekkert var gert til þess að telja
áhorfendum trú um annað. Samt
gripu spekingarnir smátt og smátt
athyglina og héldu henni.
Hápunkturinn komsíðanþegar
Bengt spurði spekingana um vís-
indalegt innsæi, eins og hann hefur
gert frá því ég var barn.
Þá vissi ég að sumt í veröldinni
breytist ekki þrátt fyrir allan hraö-
ann og hávaðann. Þó skyldi ég aldr-
ei segja aldrei; því hvar era nú sirk-
us Biily Smart og Vínartónieikarnir
ánýársdag?
Gunnar Smári Egilsson