Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.1990, Síða 32
-1
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Rifstjórn - Auglýsingar ** Askrift - Dreiting: Simi
FOSTUDAGUR 9. FEBRUAR 1990.
Vopnafjörður:
Óborin kvíga
fær raflost
\ Ein óborin kvíga drapst þegar raf-
straumur lék um fjósið á Refsstöðum
í Vopnafirði fyrr í vikunni. Rafmagn
leiddi út frá þvottavél, sem þvær
mjaltatæki, og fór í öll rör og bása í
fjósinu.
Snorri Hallgrímsson, sem var að
störfum í fjósinu, sagðist hafa orðið
var við að eitthvað var aö þegar
hundurinn á bænum kom ýlfrandi
til hans inn í mjaltahús. í fyrstu hélt
Snorri að einhver kúnna hefði stigið
á hundinn en þegar hann leit inn í
fjósið sá hann að eitthvað var að.
Kýmar höfðu þá slitið af sér mjalta-
tækin í tryllingi. Þær stóðu eins utar-
lega í básunum og þær gátu með
bullandi niðurgang af hræðslu.
Snorri slökkti á mjaltavélunum og
hljóp inn í bæ eftir hjálp. Þegar Þórð-
ur Pálsson bóndi kom út sló hann
út rafmagnið. Þá kom í ljós að ein
óborin kvíga hafði drepist. Hinar
kýmar jöfnuðu sig að mestu eftir aö
þeim hafði verið gefið.
-gse
Birting:
Ekki með í
kosningunum
Skotmaður
dæmdur í
Sakadómi
LOKI
Þá sleppa rútukarlarnir við
skandinavíunámskeiðið!
Lóðsbáturtnn á Höfn fékk tóg í skrúfuna og fórst í stórsjó 1 Hornafjarðarósi:
Hélt að loðnuskipið
hvolfdist vfir mia
segir
sem
júlía Imsland, DV, Höfct, Homaftrði:
„Ein fyllan reis svo hátt að ég
hélt að Keflvíkingur ætlaði að
hvolfast yfir mig. Þá setti ég á fulla
ferð afturábak til að forða mér en
það var ólán mitt að tóg við akker-
isfestina á lóðsbátnum hafði farið
útbyrðis og ég bakkaði aUt í skrúf-
una. Báturinn missti afl en ég vissi
ekkert hvað hatði gerst,“ sagði
Sigfús Harðarson á lóðsbátnum frá
Höfti í Hornafirði í samtali við DV
í nótt. Hann lenti í miklum hrakn-
íngum við Hornafjarðarós i gær-
kvöldi þegar hann var ásamt félaga
sínum að lóðsa loðnuskipið Kefl-
víking úr höfn.
„Ég vissi reyndar ekki hvað haföi
gerst fyrr en ég kom um borð í
Keflvíking en þeir sáu að skrúfan
á lóðsinum var fuU af böndum,"
heldur Sigfús áfram.
Sigfús og Vignir höfðu flylgt Kefl-
vtkingi inn til Hafnar laust fyrir
kl. 18 þá um daginn, i sæmUegu
veðri. Þegar löndun úr loðnuskip-
inu var lokið á Höfn fylgdu þeir
honum út aftur á tíunda tímanum
í gærkvöldi. Þá var komið haröaút-
faU og verulega hafði versnað í sjó.
„Þegar við erum komnir þarna
ut fyrir þá er ég á eftir á Ióðsinum
en Vignir Júlíusson hafnsögumað-
ur um borð í Keflvíkingi. Ég ætlaði
að taka hafnsögumanninn yfir til
mín þarna fyrir utan ósinn. Það er
ekki hægt í ósnuum í svona hörð-
um útföUum. Við fórum út fyrir
Hvanney og út á Grynnsli. Þar er
alltaf sléttara og betra og oft gott
að komast miUi skipa.
Ég sé fljótlega að það eru helvíti
háreistir garðar sem koma og mér
líst ekkert á þetta. Það var orðin
svo mikil ferð á okkur austur með
faUinu að mér leist heldur ekkert
á að snúa við; tók frekar þann kost
að skýla mér við skipið og keyra
bara þétt upp að því. Það tókst viö
fyrsta brotið svo kom hvert brotið
af öðru á hlið á knmunginn þar tU
óhappið varð og tógið lenti í skrúf-
unni.
Þaö voru stanslausar ágjafir og
okkur bar ört austur með strönd-
inni upp að austurfjörunni og lóös-
báturinn stjórnlaus og aflvana. Við
vorum fljótlega komnir austur fyr-
ir skerin, austan við ósinn og segja
má að skipverjar hafi verið á sein-
asta snúingi að ná mér áður en allt
rækí upp. Þeir köstuðu bjarghring
um borð til mín, Ég fór í hann,
stökk svo í sjóinn og var dreginn
um borð í skipið og það gekk aUt
mjögvel.“
Lóðsinn rak upp í Austurfjöruna
við Hornafjarðarós og eyðUagðist
þar. Gúmbáturinn úr lóðsbátnum
er fundinn og þilfarsplanka úr hon-
um var fariö að reka á fjörur i
morgun. Það er því Ijóst að lóðs-
báturinn fer ekki oftar á flot.
litlu mátti muna að Keflvíkingur
færi upp í íjöru á cftir lóðsbátnum.
Sigfús Haröarson taldi að skip-
verjar þar heföu sýnt mikið snar-
ræði við björgunina við afarerfiðar
aðstæður.
Fundur sem Birting hélt í gær-
kvöldi ákvað að félagið skuU ekki
hafa afskipti af borgarstjómarkosn-
ingunum. Fundurinn var haldinn í
framhaldi af þeirri ákvöröun Al-
þýðubandalagsfélags Reykjavíkur aö
bjóða fram G-Usta í komandi kosn-
ingum.
Það er því greinUegt að ekki verður
af neinu sameiginlegu framboði
minnihlutaflokka í Reykjavík. Ekki
er enn vitað hvort Alþýðiiflokkurinn
haldi sér við fyrri ákvörðun um að
bjóða ekki fram undir nafni flokks-
ins.
-sme
Öryggisvörðurinn fyrrverandi
sem hóf að skjóta úr byssu í kjallar-
aíbúð við Sogaveg í Reykjavík
snemma um morgun í ágúst, hefur
verið dæmdur í Sakadómi Reykja-
víkur. Maðurinn var dæmdur í fjög-
urra mánaða fangelsi skUorðsbundið
í þrjú ár. Skotvopnið var gert upp-
tækt.
r Hjörtur Aðalsteinsson sakadómari
kvað upp dóminn. -sme
Sleipnismenn:
Verkfall
á morgun
Það er oft fjör í lauginni. Krakkarnir virðast vel kunna að meta ný leiktæki sem búið er að setja
í Laugardalslaugina. Á myndinni virðist sem þetta séu stórir lakkrískonfektmolar, en svo mun alls
ekki vera. DV-mynd GVA
„Ég var með tveggja tíma sáttafund
á fimmtudag og hann var algerlega
árangurslaus. Sleipnismenn hafa
ekkert slegið af kröfum sínum opin-
berlega þótt þeir hafi rætt eitthvaö
um það ófornúega. Ég sé enga ástæðu
tíl aö boða sáttafund alveg á næst-
unni og því sé ég ekki betur en að tU
þessa fimm daga verkfalls komi sem
Sleipnismenn hafa boðað til frá og
með morgundeginum," sagði Guð-
laugur Þorvaldsson ríkissáttasemj-
ari í morgun um kjaradeUu Sleipnis-
manna.
Eins og áður hefur komið fram í
DV krefjast rútubUstjóramir í
Sleipni 100 prósent kauphækkunar.
Atvinnurekendur aftur á móti bjóöa
það sama og samið var um á hinum
almenna vinnumarkaði á dögunum.
Sleipnismenn munu ætla að boða
aftur verkfall þegar Norðurlanda-
þing hefst hér á landi í lok þessa
mánaðar. Þá koma tU landsins nokk-
ur hundruð eriendir þingfuUtrúar og
myndi verkfaU rútubílstjóra meðan
þinghald stendur valda miklum erf-
iðleikum. -S.dói
NÝJA
SENDIBÍLASTÖÐIN
68-5000
Uti að aka
í 40 ár
Þjóðar
SALIN
býr í Rás 2.
Nýtt númer:
68 60 90
FM 90,1 - útvarp með sál.