Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1990, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1990, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1990. 5 Fréttir Hörkuárekstur varð á milli tveggja fólksbila á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar á ellefta tímanum á laugardagskvöldið. Tækjabíll slökkviliðsins var kvaddur á slysstað og þurfti að ná farþega úr aftursæti Ford Sierra bifreiðar með bílaklippum. Var talið að hann hafi mjaðmargrind- arbrotnað. Báðir ökumenn voru fluttir á slysadeild en þeir voru ekki mikið slasaðir. Annar bíllinn kastaðist á götuvita sem skekktist töluvert mikið. Annar bíl- anna ók suður Kringlumýrarbraut en hinn vestur Miklubrautina. Ökumenn greindi á um hvor fór yfir á rauðu Ijósi en vitni tóku af skarið og gátu skorið úr um vafaatriði. -ÓTT DV-mynd Jón Stefánsson Skattur af ráðherrabílum: Getur dregist í nokk- ur ár að ráðherr- ar borgi skattmn Staðgreiðsluskattur af afnotum af ráðherrabílunum var ekki tekinn af launum ráðherranna um þessi mán- aðamót þrátt fyrir úrskurð ríkis- skattstjóra um að það beri að gera. Ríkisskattstjóri hefur lýst því yfir að hann muni ekki aðhafast í málinu þar sem launadeildinni og ráðuneyt- unum sé fullkunnugt um afstöðu hans og hafi verið í marga mánuði. Launadeild fjármálaráðuneytisins lítur hins vegar svo á að þar sem hvert einstakt ráðuneyti hafi ekki gefið upp afnot ráðherranna af bílun- um með öðrum launakjörum beri henni ekki að draga skattinn af laun- um ráðherranna. Yfirmenn ráðu- neytanna, ráðherramir, hafa hins vegar rætt um þessi mál á nokkrum ríkisstjórnarfundum en ekki komist að neinni niðurstöðu. Það bendir því flest til þess eins og staðan er í dag að ráðherramir þurfi ekki að greiða skattinn fyrr en með álagningu gjalda í ágúst. Miðað við túlkun ríkis- skattstjóra munu ráðherrarnir fá bakreikning frá skattinum. Samkvæmt heimildum DV töldu sumir ráðherranna bifreiðahlunn- indi sín ekki fram, aðrir töldu fram hluta þeirra en enginn ráðherranna hefur tahð þessi hlunnindi fram eins og ætti gera samkvæmt túlkun ríkis- skattstjóra. Það má því búast viö að skattstjórar muni gera athugasemdir við framtöl ráöherranna þegar farið verður yfir þau í vor. Ef ráöherrarn- ir sætta sig ekki við álagningu sem byggð er á túlkun ríkisskattstjóra geta þeir kært hana til ríkisskatta- nefndar næsta haust. Það getur hðið langur tími áður en ríkisskattanefnd úrskurðar í máhnu þar sem nefndin er þekkt fyrir að vera lengi með mál til meðferðar. Það geta því jafnvel hðið nokkur ár áður en endanleg lausn á skattamáli ráðherranna hgg- urfyrir. -gse Dido og Aeneas í Langholtskirkju: Frumflutningur á þriggja alda óperu íslenska hjómsveitin, söngsveitin Hljómeyki, dansarar og einsöngvar- ar frumflytja í Langholtskirkju í kvöld óperuna Dido og Aeneas eftir enska tónskáldið Henry Purcell. Þessi ópera var samin árið 1689 og hefur æ síðan verið tahn mesta ópera eftir enskt tónskáld. Hún hefur þó ekki áður hljómað á íslandi og gerir það trúlega ekki aftur í bráö því sýn- ingin í kvöld er sú pina sem boðið verður upp á. Það er Sigurður Pálsson skáld sem leikstýrir verkinu en Guðmundur Emilsson stjórnar hjómsveitinni. Og það er meira en tónlist sem óperan býður upp á því inn í hana eru ofin mörg dansatriði. Höfundur dans- anna með uppfærslunni hér er Hlíf Svavarsdóttir. Með titilhutverkin tvö fara Elín Ósk Óskarsdóttir og Sigurður Braga- son. Auk þeirra taka fimm aðrir ein- söngvarar þátt í sýningunni og sex dansarar. Efni óperunnar er sótt í Aeneasar- kviðu eftir Virgii, höfuðskáld Róm- verja, og segir frá ástum Tróju- mannsins Aeneasar og Dido drottn- ingar af Karþagó. Þetta er því ástar- saga með miklum átökum eins og veraberíóperum. -GK Verölagseftirlit verkalýðsfélaganna: Margar ábendingar reynast rangar - allmargar kvartanir eru 1 skoðun „Svona mál eru að sjálfsögðu ekki afgreidd með neinu hraði. Það þarf að skoða vel hverja kvörtun og við höfum sent inn til Verðlagsstofnunar lista með ábendingum frá fólki þar sem það telur óeðlilega verðhækkan- ir hafa átt sér stað,“ sagði Leifur Guðjónsson sem veitir forstöðu verð- lagseftirhti verkalýðsfélaganna. Hann sagði að margir heildsalar væru nú að taka upp vörur sem hefðu verið pantaðar og greiddar í lok síðasta árs eftir síðasta gengissig- ið sem þá var framkvæmt. Þessar vörur hækka að sjálfsögðu í verði en margar ábendingar hefðu borist um slíkar veröhækkanir. Ýmsar aðrar ábendingar hefðu reynst réttar og enn aðrar væru í skoðun hjá Verðlagsstofnun. Þá eru Neytendasamtökin að skoða hækkun á iðgjöldum bifreiðatrygginga en samvinna er með verðlagseftirhti verkalýðsfélaganna og Neytenda- samtökunum. -S.dór Akureyri: Afsláttur af fasteigna- gjöldum íbúðarhúsnæðis Gylfi Kristjánsscm, DV, Akureyri: Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar verður til 2. umræöu og afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar í dag. Niðurstöðutölur fjárhagsáætlun- arinnar hafa lækkað um 50 milljónir frá fyrri umræðu. Launahður hefur lækkað um 6,34% frá áætlun í des- ember og reiknað er með 15% hækk- un á almennu verðlagi. Við umræðuna í dag leggur meiri- hluti bæjarstjómar til að óráðstöfuð- um tekjuafgangi Vatnsveitu Akur- eyrar verði varið til þess að veita á þessu ári afslátt af fasteignagjöldum íbúöarhúsnæðis sem nemur 8,5%. í áætluninni er gert fráð fyrir því að íjórða árið í röð nemi greiðslur lána hærri upphæð en nýjar lántök- ur. Rekstri er haldiö í skefjum og aldrei hefur meira fé verið varið til framkvæmda. Til nýbygginga verður varið 210 milljónum króna. 67 millj- ónir króna fara til Verkmenntaskól- ans, 33 milljónir til þjónustukjarna við hús aldraða við Víðilund og 19,5 milljónir til dagvistunar við Holta- vöh. Af öðmm stómm hðum má nefna að 40 milljónum verður varið til félagslegra íbúðarbygginga. Rúmin frá Kalifomíu eru nú komin aftur í 5 gerðum og tveimur litum - Ijósum og dökkum. Margir hafa beðið lengi eftir þessum rúmum og nú er best að koma strax því magnið er ekki mikið sem við fengum og tveir mánuðir þar til næsta sending kemur. Húsgagna höllin REYKJAVÍK Bildshöfða 20 Sími 68-11-99

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.