Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1990, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1990, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1990. 15 Vissuð þið þetta um Jón Óttar? Vissuð þið að Jón Óttar lét byggja farsíma inn í annan skóinn, svona líkt og Smart spæjari forðum? Vissuð þið að forrík og vel þekkt kona bauð Jón Óttari 10 milljónir fyrir að giftast sér? Vissuð þið að hann gerði henni gagntilboð upp á 25 milljónir? Vissuð þið að Jón Óttar flaug á fyrsta farrými til Sidney í Ástralíu með 6 manna myndatökulið en sneri snarlega heim aftur því hann hafði gleymt hvað hann ætlaði að gera? Því miður get ég ekki nafngreint heimildarmenn fyrir þessu. Skilj- anlega, þar sem ég bjó þessar sögur til um leið og ég skrifaði þær. Tímamót á Stöð 2 Nú eru tímamót í lífi Stöðvar 2. Nýir aðilar hafa eignast meirihluta hlutabréfa. Einhvern veginn hefur umræðan á þessum tímamótum snúist meira eða minna um per- sónu Jóns Óttars Ragnarssonar, ljóst eða leynt rugl í rekstri stöðv- arinnar og tilraunir til að ræna banka. Skiljanlegt er að fólk hafi áhuga á persónu Jóns Óttars. Hann gnæf- ir upp úr hversdagsleikanum. En hinu má ekki gleyma, hvaða þýðingu frumherjastarf Jóns Ótt- ars, Hans Kristjáns Árnasonar og Ólafs H. Jónssonar hefur haft fyrir íslendinga. Margfalt betra sjónvarp Úrval sjónvarpsefnis hefur þre- faldast frá 1986 þegar Stöð 2 hóf göngu sína. Barnaefni í sjónvarpi er undan- tekningalítið með íslensku tali. Kjallaxiim Ólafur Hauksson blaðamaður Stöð 2 byrjaði á því og ríkissjón- varpið neyddist til að gera hið sama. íþróttaefni er gífurlega fjölbreytt. Þegar ríkissjónvarpið var eitt um hituna þekktist helst aðeins hand- bolti og fótbolti. Stöð 2 reið á vaðið í þessum efnum sem öðrum. Fréttatímar eru lengri og ítar- legri. Ríkissjónvarpið býður upp á tvo kvöldfréttatíma. Fréttastofa Stöðvar 2 hefur sýnt og sannað að hún er óháð stjómmálamönnum og veitir þeim það nauðsynlega aðhald sem dagblöðin fæst geta eða vilja. Þessi staða fréttastofu Stöðv- ar 2 hefur jafnframt styrkt aðra gagnrýna blaðamennsku, sérstak- lega hjá DV. Sjónvarp hefst fyrr á daginn en áður og því lýkur síðar, sérstaklega á Stöð 2. Þar er komið til móts við óskir fjölmargra sem vilja horfa á sjónvarp á öðrum tíma en ríkis- sjónvarpið skammtaði hér áður fyrr. Hefur bætt RÚV mest Ríkissjónvarpið hefur batnað með tilkomu Stöðvar 2. Það hefur verið knúið til að standa með myndarskap að innlendri dag- skrárgerð. Þar á meðal má nefna hina fimavinsælu spumingaþætti Ómars Ragnarssonar (áður en hann fór yfir á Stöð 2) og skemmti- þætti Hemma Gunn og Spaugstof- unnar. Vafalítiö hefur tilkoma Stöðvar 2 haft mest að segja fyrir ríkissjón- varpið. Samkeppnin hefur dregið úr stöðnun. Auglýsingadeild ríkis- sjónvarpsins breyttist úr afgreiðslu í þjónustudeild. Dregið hefur úr áhrifamætti útvarpsráðs. Sam- keppnin ræður meiru en pex í út- varpsráði. Landsbyggðinni er betur sinnt í sjónvarpi en nokkru sinni áður. Þar gerast líka fréttnæmir við- burðir, merkilegt nokk. Tvö stórvirki í dagskrárgerð standa upp úr. Það eru þættir Stöðvar 2 um Halldór Laxness og þátttaka ríkissjónvarpsins í þátta- röð um Nonna og Manna. Þökk sé samkeppninni. Hraður vöxtur Svona mætti lengi halda áfram. Ljóst er að Jón Óttar, Hans Kristján og Ólafur H. Jónsson eru fram- hverjarnir sem breyttu sjónvarpi á íslandi til hins betra. En vöxtur barnsins varð hraöari en nokkurn óraði fyrir. Enginn vafi leikur á því að teflt var á tæp- asta vað í fjármálum. Vafalítið hef- ur verið raglað og bruölað og rang- ar ákvarðanir teknar í fyrirtæki sem óx um mörg hundruð prósent á hverju ári. Ekki má heldur gleyma því að Stöð 2 hóf göngu sína á einhverjum mesta uppgangstíma í sögu þjóðar- innar. Þegar svo allt fór í mínus í þjóðarbúinu á tveimur mánuðum haustið 1988 var hraðinn á Stöð 2 of mikill. Fljótt að gleymast Það virðist auðvelt fyrir fólk, sem aldrei tekur áhættu, að setjast í dómarasæti og kjamsa á kjafta- gangi og öðru slúðri. Flestir eru fljótir að gleyma því sem vel hefur verið gert. Enginn efast hins vegar um að Stöð 2 er komin til að vera. Það sýnir trú nokkurra kaupsýslu- manna sem hafa fest fé í stöðinni. Með aðhaldi og skipulagningu ætti að vera hægt að ná endum saman. Meirihlutaeignina fengu kaup- sýslumennirnir ódýrt. Þeir yfir- tóku aðeins hluta af skuldunum. í staðinn fengu þeir fjölmiðil sem nær til rúmlega 90 prósenta íbúa landsins, með á milli 40 og 50 þús- und ákrifendur. Þetta er fjölmiðill sem nýtur trausts og velvildar. Kaldhæðni örlaganna Það er ákveðin kaldhæðni örlag- anna að ríkisútvarpið, sem best hefur notið þess að hafa þennan verðuga keppinaut, varð þess á endanum valdandi aö frumherj- arnir misstu meirihlutaeign sína í Stöð 2. Bandaríska fjölmiðlafyrirtækið NBC ætlaði að leggja nokkur hundruð milljónir í fyrirtækið gegn 10% eignarhluta. Arnar Páll Hauksson, fréttamaður RÚV, skrif- aði bréf í nafni þess, með ýmsum dylgjum um Stöð 2, sem varð til þess að NBC hætti við. Þá var tíminn orðinn of naumur fyrir eig- endurna til að leita að nýjum hlut- höfum. Stöð 2 hefði aldrei orðið til með góðri skipulagningu og varkárni í fjárfestingum milli kl. 9 og 5. Að- eins eldhugar gátu þetta. Þeir hlutu að reka sig á í leiðinni og óneitan- lega er spennandi að kjamsa á því. En leyfum þeim einnig að njóta sannmælis. Ólafur Hauksson „Fréttastofa Stöðvar 2 hefur sýnt og sannað að hún er óháð stjórnmála- mönnum og veitir þeim það nauðsyn- lega aðhald sem dagblöðin fæst geta eða vilja.“ Úrbætur í ferðamálum í hvert sinn sem leita þarf að týndum ferðamönnum hefst um- ræða um hálendisferðir og vanda- mál sem þeim fylgja. Það er löngu kominn tími til að setja lög og reglugerðir um ferðamál almennt. Þau eru víst í undirbúningi ogfjalla ég ekki um þau atriði hér. En það er líka löngu kominn tími til að setja sérstök lög eða reglugerðir um öryggismál ferðamanna á há- lendinu. Fáein orð þar um, enn einu sinni. Ráðgjöf - tilkynningaskylda — leit Það eru einkum þrjú atriði sem þarf að skoða til skjótra úrbóta í þessum geira ferðamálanna. Sumt á heima í reglugerð eða lögum, annað kostar skipulagsbreytingar og skylda vinnu: 1. Innlendir og erlendir ferðamenn eiga að geta fengið umsögn sér- fróðra manna um útbúnað og leiðaval - og ráðleggingar þegar við á. Til era samtök, skrifstofur björgunarsveita og upplýsinga- miðstöðvar sem geta sinnt þessu ef slíkt er skipulagt á einfaldan hátt. 2. Sumar hálendisferðir eru þess eðlis að tilkynningaskylda myndi bæta mikið úr. Með því er átt við að innlendum og er- lendum mönnum er skylt að til- kynna um ferðir sínar til aðila (t.d. miðstöðvar björgunarsveita eða lögreglu) ef þeir vilja tryggja sér hjálp, sé hennar þörf. Meira um þetta hér á eftir. 3. Þrátt fyrir mjög aukna samvinnu þriggja aðskihnna björgunar- samtaka er þrískiptingin enn óþörf og aðstoð og þátttaka opin- berra aðila í störfum þeirra of lítil. Það á að endurskipuleggja allt björgunarstarfið og koma upp miðstöð (með þyrlu) á a.m.k. þremur stöðum á landinu. Meira uni þetta hér á eftir. KjaUarínn Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur Þessu gæti fylgt að menn gerðu grein fyrir því hvernig þeir era tryggðir og hvemig útbúnir. Leit eða aðstoð væri samt ókeypis og ekkert fé þyrfti að leggja fram. Reynslan sýnir að slíkt mismunar fólki gróflega. Tilkynningaskylda ætti að ná til ákveðinna fáfarinna og/eða erfiðra ferðasvæða, svo og mismunandi ferðahátta. Dæmi: jeppaleiðangur á Vatnajökul að vetri, klifurferð á Öræfajökul á öll- um árstímum, skíðaferð á Langjök- ul, ökuferð um Gæsavatnaleið (ekki þó hópferðir) og gönguferð úr Vonarskarði til Sigöldu um Jök- ulheima. Fjölfarnar gönguleiðir, venjuleg- ar fjallgöngur eða flestar klifur- ferðir, langflestir fjallvegir og rjúpnaveiðiferðir yrðu til dæmis „En það er löngu kominn tími til að setja sérstök lög eða reglugerðir um öryggismál ferðamanna á hálendinu.“ Bann er rangt Það er algjörlega ófært að banna tilteknar ferðir, vetrar- eða sumar- langt, eða loka landsvæðum. Ferðamennska er blanda af for- vitni, náttúruskoðun og ævintýra- þrá og hluti af mannréttindum nútímans. Með ráðgjöf og tilkynn- ingaskyldu er hægt að setja glanna- legustu tilraununum skorður. Reglugerð verður engu að síður að taka til ferðabanns ef aðstæður (t.d. snjóflóðahætta) eða annað (t.d. fáránlegur útbúnaður) útheimtir slíkt að mati sérfræðinga. En að öðra leyti er tilkynningaskyldan þannig að ferðamaður eða hópar láta vita um upphaf ferðar, leið eða varaleiðir og áætlaða komu úr ferð. undanþegnar skyldunni. Það tekur tíma að koma svona löguðu í gagn- ið og slíkt tengist auðvitað almennu skipulagi ferðamála í landinu. En bráðabirgðareglur dygðu í fyrstu. Enn betra björgunarstarf Með síaukinni samvinnu björg- unarsveita í landinu er starf þeirra að verða æ skilvirkara. Þrískipt- ingin (sögulega skilyrt), leifar af samkeppni og sú staðreynd að sveitimar verða að reiða sig nær alveg á sjálfboðastarf eru enn til óþurftar. Ein samtök, skipt eftir verkefnum og landsvæðum og þátt- taka hins opinbera í fjárfestingum, samstihtri þjálfun og rekstri er það sem koma skal. „Innlendir og erlendir ferðamenn eiga að geta fengið umsögn sérfróðra manna um útbúnað og leiðaval...“ segir í greininni. Björgunarstörfin verða alltaf borin uppi af sjálfboðaliðum en það þarf að endurskipuleggja kerfið. Þungamiðjan yrði að vera rekstur þriggja stórra þyrla (og einnar til vara) í Reykjavík, á Akureyri og miðsvæðis á Austurlandi og svo öflugra miðstöðva í tengslum viö þær. í öllum sýslum og þéttbýhsstöð- um ætti svo að vera ein miðstöð með einni verkefnaskiptri sveit (með björgunarbátum við sjávar- síðuna) en nú era slíkar miðstöðv- ar stundum of þétt og víða eru 2 eða jafnvel þijár samtakabundnar sveitir á sama stað. Nú þegar almannavamir verða sífellt betur skipulagðar er lag til að samræma starf þeirrar stjóm- unar- og skipulagseiningar sem Almannavamir ríkisins era og endurbyggðra björgunarsamtaka. Ari Trausti Guðmundsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.