Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1990, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1990.
13
Lesendur
Lýðræðisleg barna-
verndaryfirvöld?
Einar Ingvi Magnússon skrifar:
Hugsjónin um réttarríkið hefur
m.a. verið helsta baráttumál borg-
aralegra afla gegn sósíalistum. Nú
eru kosningar sveitarstjórna fram-
undan og eins og vant er eru ýmis
þjóðfélagsmál í deiglunni. Ekki má
gleyma að einnig fara menn að huga
að frambjóðendum á þing þegar þar
að kemur og væntanlegir frambjóð-
endur farnir að huga að stöðu sinni.
Barnaverndarnefndin í Reykjavík
hefur verið tahn vinna undir merkj-
um lýðræðis og eiga að vernda frið-
helgi einstaklingsfrelsis. Sjálfstæðis-
stefnan berst líka fyrir friðhelgi
einkalífs og fjölskyldunnar, virðingu
fyrir einstaklingunum og segir að
fjölskyldan sé hornsteinn þjóðfélags-
ins. - En hvers vegna er þá allt í einu
farið aö bera þarna á afskiptum ríkis-
valdsins af hagsmunum fjölskyld-
unnar? - Mér finnst sem þarna sé
nú starfað í hrópandi andstöðu við
hj ugsj ónir sj álfstæðisstefnunnar.
Nýlega flúði kona land með börnin
sín tvö, vegna afskipta barnavernd-
aryfirvalda. Aðrar hafa misst börnin
fyrir það eitt að þurfa að leggjast inn
á sjúkrahús, á meðan enn aðrar hafa
veriö settar í farbann.
í staðinn fyrir- að styðja einstakl-
inga er gripið til þeirra róttæku að-
gerða að taka börnin af heimilum.
Nú ber að geta þess að meirihluti
nefndarmanna er í Sjálfstæðis-
flokknum, en vinnur að mínu mati í
blóra við stefnu flokksins. - Jafnvel
málgagn sjálfstæðishugsjónarinnar,
Morgunblaðiö, sem hefur auglýst sig
sem málgagn allra landsmanna,
virðir að vettugi starfshætti barnar-
verndarnefnda þótt þeir líkist starfs-
aðferðum sósíalista.
Eftirfarandi tilvitnun er tekin úr
ályktun eins barnaverndarnefndar-
fundar: „Bamaverndarnefnd telur
ekki ástæðu til aö fresta ákvörðun í
því skyni að hjónin geti leitað áhts
annarra sérfræðinga." - Með öðrum
orðum vill nefndin ekki að þessi til-
teknu hjón fái að leita til hlutlausra
aöila.
Þetta tiltekna mál hefur snúist á
þá leið að hugsanlega verða þessi
hjón að leita út fyrir landsteinana
eftir áhti annarra sérfræðinga. -
Þannig er fólki gert erfitt fyrir við
að leita réttar síns í réttarríkinu á
íslandi, árið 1990.
Að sjálfstæðismenn skuli standa á
bak við slíkt athæfi og það sem ég tel
að e.t.v. megi flokka undir skerðingu
á mannréttindum, finnst mér furðu-
legt. - Þau vinnubrögð yfirlýstra
sjálfstæðismanna eru ekki th þess
fallin að vekja traust hjá almenningi
og thvonandi kjósendum.
Raunir lögreglunnar í Stykkishólmi
Lúðvíg Eggertsson skrifar:
Harmsögu lögreglunnar í Stykkis-
hólmi hefur borið á góma í sjónvarpi
æ ofan í æ síðustu misserin. - Hana
skortir alla aðstöðu, segir þar, og þá
fyrst og fremst vatnssalerni.
í því sambandi má minnast þess
að í Stykkishólmi var frá síðustu öld
fangahús en það stóð tómt aha sína
tíð, utan einu sinni er aðkomumaður
að sunnan fékk þar inni í örskamm-
an tíma.
Vatnsleysi hefur bagað Hólmara
eins lengi og menn muna. Rennandi
vatn í húsum eða vatnssalerni var
þar ekki að finna fram til allra síð-
ustu ára. - Menn sóttu drykkjarvatn
í brunna og höfðu frumstæðan út-
búnað í náðhúsum. Hólmarar kom-
ust þó af - bæði án lögreglu og án
vatnssalerna. Og Stykkishólmur var
með meiri menningarbrag en önnur
þorp á íslandi.
Hér er lagt th að lögreglan í Stykk-
ishólmi verði flutt th Reykjavíkur og
bætt við liðssafnað þar sem skortir
að sögn mannafla og ekkert annað.
Það er trú mín að lögreglan í
Reykjavík myndi batna við liðsmenn
utan af landi, sem hafa kynnst
vandamálum dreifbýhs - og sjá th-
gang í öðru en því að aka dýrum bíl-
um um götur og torg.
AUKABLAÐ
HLJÓMTÆKI
DV-hljómtækí, 16 síðna aukablað um hljóm-
tækí, fýlgír DV á morgun. í DV-hljómtækjum
verður sagt frá þeím hljómtækjum sem á mark-
aðnum eru og skýrð út {yrir lesendum hín mís-
munandí gæði hljómtækja, þ.e.a.s. magnara,
plötuspilara, hátalara, útvarps og geíslaspilara.
HLJÓMTÆKI - Á MORGUN
9» Alternatorar
Startarar
Ótalgerðirog tilheyrandi varahlutir.
Hagstætt verð. 12 mán.ábyrgð.
BERG ”
I 5A, SÍMI: 91-8 47 88
GIGTARFÉLAG ÍSLANDS
ÁRMÚLI 5 — 108 REYKJAVÍK
Slmi: 91-30760
Aðalfundur
Aðalfundur Gitarfélags Islands árið 1990 verður
haldinn laugardaginn 10. mars nk. kl. 14 í sal Hjúkr-
unarfélags íslands að Suðurlandsbraut 22, inngangur
bakvið (lyfta). Að loknum aðalfundarstörfum mun
Jón Þorsteinsson læknir, Þóra Árnadóttir hjúkrunar-
fræðingur, Anna Sveinbjörnsdóttir iðjuþjálfi og Erna
Jóna Arnþórsdóttir sjúkraþjálfari segja frá norrænu
þingi heilbrigðisstétta í Kaupmannahöfn í nóvember
1989. Á fundinum verða seldar kaffiveitingar.
Stjórnin
9. leikvika - 3. mars 1990
Vinningsröðín: 211-112-212-X21
3.171.124- kr.
0 voru med 12 rétta - og fær hver: 0- kr. á röð
6 voru með 11 rétta - og fær hver: 84.752- kr. á röð
Fjórfaldur pottur
LUKKULÍNAN s. 991002
Vinningstölur laugardaginn
3. mars ’90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 9 279.600
2. <TÆ 4 109.315
3. 4af 5 256 2.946
4. 3af 5 4.405 399
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.465.431 kr.
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002