Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1990, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1990, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1990. 7 Sandkom Fréttir Byssumaður Þaðfréttistað ísíðustuviku hefði Víkinga- sveitin, þessi meðhetturnar, veriðkvöddút að götu einni í : Túnunumí Reyk.tavík. Hafðí verið ; hringt í sveítína vösku og tilkynnt að inni í húsi væri maður sem mund- aði byssu. Þar sem maður þessi viö- hafði tilþrifamiklar hreyiingar var talið vist að hætta værí á ferðum. Með þessar upplýsingar í farangrin- um eiga hettuklæddu vinir vorir að hafa farið á staðinn meö sama við- búnaðí og menn hafa orðið vitni að í vetur - þaðþýðir heldur ekki að taka neina sénsa þegar by ssumenn eru annars vegar. Víkingasveitarmenn ruddust inn í þetta ákveðna hús eftir forskriftinni og handsömuðu þar mann. Þegar til kom hafði sá enga byssu. Eftir smásamneður Víkinga- sveitarmanna við manninn kom hins vegar í ljós að hann hafði verið að étaharðfisk. Nágrannmn, sem hringdi á lögguna, heflir látið ímynd- unaraflið hlaupa með sig í gönur og séð ofsj ónir þegar manngrey ið var aðrifaúrroðinu. astralplanið Enskurmið- iherkominntil starfahjáSál- arrannsókna- félagiSuöur-;; nesja.Ermið- illinnekkialls óþekkturá Suðurnesjum þarsemhann hefur komið hingað oftsinnis áður. Miðillínn heldur 40 fúndi að þessu sinni og segir Víkurblaöið að allir miðartúr á miðilsfundina hafi selst upp á 25 mínútum. Munu kaupmenn í Keflavík hafa horft öfundaraugum að húsi því þar sem miðamir voru seldir en þar var lengi vel biöröð langt út á götu. „Þetta andlega" virð- ist vera góð söluvara þarna suðurfrá. Fljúgandi bréftígrar DVhefursagt Iráþvíaðfiár- málamaðuriim SvavarEgils- sonværiáleið ínn í Arnartlug ogþvíúthtfyrir meirihlutavöld ; hans þar .i b:e. með ákveðnum fyrirvörum þó. S va var hefúr af sum- um verið nefhdur pappírstígrisdýrið þar sem í kaupum og söium sem hann kemur nálægt séu oftar pappírar en ekki beinharðir peningar á ferðinni. Hvað sem þessari nafnbót líður var hún nú samt tilefni vangaveltna um nýtt nafn á Arnarflug ef Svavar fengi þar völdin. Vora menn sammála um aö félagið ætti þá að heita Flying Papertigers. Frostrósir í grein í Þjóð- viljanumum helginaer greinarstúfur ý þarsemtekinn erupphansk- innfyrirCastro ugfélagaog öandarikja- mönnumsend- ur tónninn. Þeir sem hafa orið vitni að þíðu undanfarinna missera í ríkj- um Austur-E vrópu verða hins vegar kannski hvumsa við að lesa greinina. Látum greinarhöfund, Gylfa Hersi, hafa orðiö (beint eftir Castro): „Hér skömmumst við okkar ekki fyrir að ræða um Lenin. Á sama tíma og sum- ir taka niður nafh hans af garða- og götuheitum og rífa niður styttur af Lenín, Marx ogEngels, reisum við þærogvið reisum þær ekki úr marm- ara, bronsi eða stáli. Við reisum þær raeð byltingarsinnaðri hegðun, hetju- lund og sæmd og hefjum á loft merki marx-leninisma, sósíalisma og kommúnisma." Amen. „Þannig ver Fidel Castrosösíalismann,‘' segir Gylfi og kynnir um leið nýja bók meö fjóram ræðum hans frá 30 ára af- mæh byltingarinnar. Sú á aideilis eftiraðrokseljast Umsjón: Haukur L Hauksson Bann við útflutningi á flöttum fiski: Við óskuðum eftir útflutningsbanninu - segir Dagbjartur Einarsson, formaður Sölusamtaka islenskra fiskframleiðenda Þeir söluaðilar, sem hafa verið að flytja út ferskan flattan ftsk frá ís- landi sem nú hefur verið sett bann á, halda því fram að bannið sé sett á til verndar Sölusamtökum íslenskra fiskframleiðenda. Þeir segja raunar að Sölusamtökin hafi óskað eftir þessu banni. Dagbjartur Einarsson, stjórnarformaður Sölusamtakanna, var spurður hvort þaö væri rétt að þeir hefðu óskað eftir banninu. „Ég get svarað því játandi. Mikill meirihluti manna innan Sölusam- takanna vill ekki hafa þetta kerfi. Þaö er veriö að færa samkeppnisaðil- um okkar þetta upp í hendurnar en síðan keppa þeir við okkur á mörk- uðunum. Það er mjög neikvætt fyrir okkur. Ekki bara það að þeir séu aö bjóða þennan fisk sem íslenskan heldur geta þeir verið að bjóða allan sinn fisk sem íslenskan þegar þeir eru einu sinni komnir meö íslenskan fisk í hendurnar. Það komu menn frá okkur til eins aðila í Danmörku sem saltar fisk frá íslandi. Þeir viður- kenndu aö íslenski fiskurinn væri stærri og betri en annar fiskur sem þeir eru með. Þeir áttu birgðir af smáfiski og ef kaupendurnir vildu fá stóra saltfiskinn frá íslandi, sem „Lífið er saltfiskur," segir í góðri bók. Það á vissulega við nú þegar slegist er um hverjir mega flytja þessa dýrmætu vöru út. skortur er á, urðu þeir að kaupa ákveðið magn af smáfiskinum líka,“ sagði Dagbjartur. Hann sagöi þaö tómt kjaftæði að saltfiskframleiðendur innan Sölu- samtaka íslenskra fiskframleiðenda gætu ekki keppt í verði við þá sem eru aö flytja út flattan fisk. Þaðan af síöur sagðist hann taka undir það að sölukerfi SÍF væri staðnað. „Við höfum verið að gera ýmsar merkilegar breytingar á síðustu þremur til fiórum árum og höfum verið í stanslausri sókn á mörkuðun- um. Við erum orönir langstærsti söluaðilinn á saltfiskmarkaðnum og með hæsta verðið, enda með besta fiskinn," sagði Dagbjartur Einars- son. Hann sagði að varðandi útflutning- Bannið við útflutningi á flöttum fiski: Mun lækka fiskverð á fiskmörkuðunum inn á flöttum fiski til Danmerkur eða Englands væri það þannig að þeir aðilar erlendis, sem væru að salta þennan fisk, greiddu nokkuð hátt verð til íslensku útflytjendanna. Þeir fengju aftur á móti ekki hærra verð en Sölusamtökin í markaðslöndun- um. Þeir slyppu hins vegar alveg við þá tolla sem Sölusamtökin fengju á sinn saltfisk. I Danmörku fengju salt- endur alls konar styrki og fyrir- greiðslu. Þá væri það ekkert leyndar- mál aö margir vildu splundra Sölu- samtökunum og væru tilbúnir að greiða nokkuð fyrir það. Dagbjartur var spurður hvort Sölusamtökin myndu leggjast gegn því aö aðilar utan samtakanna fengju leyfi til að fullvinna saltfisk hér heima og flytja út sjálfir, fram hjá Sölusamtökunum? „Já, það er best að vera hreinskil- inn. Við myndum leggjast gegn því en það getur vel verið að þetta endi með því aö slíkt verði leyft. Við vilj- um hafa kerfið óbreytt og ég er viss um að yfir 90 prósent af framleiðend- um vilja hafa þetta svona, á einni hendi. Það eru örfáir menn sem eru að reyna að brjóta þetta niður. Við viljum hafa þetta einir og getum al- veg séð um þetta,“ sagði Dagbjartur Einarsson. -S.dór Sjómenn halda því fram að bannið við útflutningi á flöttum fiski, ööru- vísi en með flugi, sem sett var fyrir helgina, sé sett á til að lækka verð á fiski á fiskmörkuðunum hér á landi. Þeir sem flutt hafa út flattan fisk til frekari vinnslu erlendis hafa keypt megnið af honum á fiskmörkuðum. Þeir hafa getað greitt fyrir hann hátt verð vegna þess hve gott verð þeir fá fyrir hann ytra. „Það er ekki spurning að bannið mun verða til þess að fiskverð lækk- ar á mörkuðunum. Þeir sem hafa verið að flytja út flattan fisk hafa fengið svo gott verð erlendis að þeir hafa getað greitt toppverð hér heima. Ég get að sjálfsögðu ekki metið hversu stórt hlutfall af þeim fiski sem hér er keyptur hefur farið í þessa vinnslu en ég er viss um að það er umtalsvert magn,“ sagði Einar Sveinsson, framkvæmdastjóri Fisk- markaöarins í Hafnarfirði, er hann var inntur álits á þessu máli. „Ég þykist nú vita að menn séu ekki búnir aö gefast upp og það muni heyrast í þeim sem hafa staðið í þess- um útflutningi. En ef þetta bann verður að veruleika er engin spurn- ing að það mun lækka fiskverð á fisk- mörkuðunum. Ég hygg þó að fisk- verðslækkunin verði ekki umtals- verð. Sá fiskur, sem menn hafa verið að greiða fyrir 93 til 95 krónur kílóið, fari niður í svona 80 til 85 krónur kílóið. Þetta er að vísu bara mín spá, menn verða bara að bíða og sjá hve lækkunin verður mikil," sagði Ólaf- ur Þór Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Fiskmarkaðs Suðurnesja, í samtafi við DV. í fréttatilkynningu frá sjávarút- vegsráðuneytinu segir að Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins verði falið aö rannsaka enn frekar geymsluþol flatts fisks og muni reglugerðin, sem bannar útflutning- inn, verða endurskoðuð að lokinni þeirri rannsókn. -S.dór Akureyri: Hafna öllum tilboðunum Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Húsameistari Akureyrarbæjar hefur lagt til að öllum tilboðum í innréttingar í fiölbýlishúsiö Helgamagrastræti 53 verði hafn- að. Pjögur tilboð frá fyrirtækjum á Akureyri bárust í verkiö en eitt þeirra var di-egið til baka. Tiboðin voru á bilinu 74-80 milljónir króna. Það mun hafa ráðið afstöðu húsameistara til tilboðanna að þau voru ekki í samræmi við út- boösgögn hvað varðar skilatíma. Húsameistari lagði hins vegar til að leitað yrði eftir samningum viö bjóöendur á grundvelli tfi- boða þeirra og hefur bæjarráð samþykkt það. Verið að bjarga úr- eltu sölukerfi SÍF - við fengum of hátt verð fyrir fiskinn, segir Jón Ásbjömsson útflytjandi „Við höfum flutt út flattan fisk í tvö ár og það hefur aldrei borist kvörtun um að gæöin væru ekki fyrsta flokks. Þvert á móti höfum viö fengið algert toppverð vegna þess hve gott hráefnið er. Þess vegna er ástæðan, sem sjávarútvegsráðuneyt- ið ber fyrir sig við bannið á þessum útflutningi, að hráefnið sé ekki nógu gott, tylliástæða. Þaö sem sjávarút- vegsráðuneytið er að gera er ein- faldlega að bjarga Sölusamtökum ís- lenskra fiskframleiðenda. Þeirra sölukerfi er úrelt og er að riðlast vegna þess að við fengum mun hærra verð fyrir saltfisk í Suður-Evrópu en þeir. Nú fer verðið hækkandi þarna suður frá en SÍF er með fasta fyrir- fram gerða samninga og situr því fast,“ sagði Jón Ásbjörnsson, fiskút- flytjandi í samtali við DV. Á sunnudaginn komu saman 30 fiskútflytjendur og samþykktu mót- mæli gegn banni sjávarútvegsráöu- neytisins á útflutningi á flöttum fiski. Þeir fara einnig fram á að fá frest út þennan mánuð til þess að geta staðið við gerða samninga ytra. Jón Ásbjömsson sagði að útflyfi- endur biðu þess að Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra kæmi heim því þeir ætluðu að óska eftir því að hann veiti þeim leyfi til að flytja út fullunninn saltfisk. Sölu- samtök íslenskra fiskframleiöenda hafa einkaleyfi á þeim útflutningi. Jón sagðist ekki mundu hugsa til þess að flytja flattan fisk til Englands og salta hann þar ef hann fengi leyfi til að fullvinna hann hér heima og flytja hann út sjálfur. Hann sagði að menn hyndu miklar vonir við að Jón Baldvin ryfi þá einokun sem er á saltfiskútflutningum. „Við höfum fengið mun hetra verö fyrir saltfiskinn heldur en Sölusam- tökin. Þess vegna höfum við getað greitt hærra verð á fiskmörkuðunum hér heima. Það hefur svo orðið til þess að saltendum innan Sölusam- takanna hefur gengið ilia á fá fisk á því verði sem fyrirfram er búið að ákveða fyrir Sölusamtökin. Við höf- um því verið að riðla stöðnuðu einok- unarkerfi og það var ekki þolaö og bannið sett á,“ sagði Jón Ásbjöms- son. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.