Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1990, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1990, Síða 9
J ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1990. Sovéskir embættismenn tæma kjörkassa í Moskvu í gær. Símamynd Reuter Stefnir í glæstan sigur umbótasinna Umbótasinnar, þar á meöal rót- tæki þingmaðurinn Boris Jeltsin, unnu sigur á harölínumönnum kommúnistaílokksins í kosningum í Moskvu, Leningrad og öðrum stórum borgum í þremur stærstu lýöveldum Sovétríkjanna en þær kosningar fóru fram á sunnudag. Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöð- um hefur fyrrum póhtískum föng- um, umbótasinnum og róttækling- um gengið mjög vel í þessum kosn- ingum og víða unnið rótgróna og íhaldssama kommúnista. Helstu leiðtogar kommúnistaflokksins unnu þó flestir sigur í sínum kjör- dæmum í þessum kosningum sem voru til þinga og sveitarstjóma í þremur stærstu lýðveldum Sovét- ríkjanna, Rússlandi, Hvíta Rúss- landi og Úkraínu. Á sunnudag fengu kjósendur í þessum lýðveldum - þar sem búa sjötíu prósent íbúa Sovétríkjanna - í fyrsta sinni að velja á milli fram- bjóðenda í þingsæti og sveitar- stjórnir. En flestir frambjóðendur eru þó félagar í kommúnista- flokknum þó umbótasamtök hafi einnig boðið fram. Umbótasinninn Boris Jeltsin vann öruggan sigur á keppinautum sínum í borginni Sverdlovs um sæti á rússneska þinginu og hlaut hann áttatíu pró- sent atkvæða. í Moskvu unnu rit- stjórinn Vladislav Starkov og Ser- gei Kovalyov, fyrrum póhtískur fangi, góðan sigur. Óopinberar tölur frá Leningrad benda til þess að frambjóðendur, sem nutu stuönings samtaka sem kalla sig „Lýðræðislegar kosningar 1990“ vinni sigur og muni hljóta meirihluta í borgarráði. Umbóta- sinnar í borginni, sem segjast fuh- vissir að hljóta 65 prósent fulltrúa í borgarráði, hafa heitið því að hefja þegar í stað gagnrýni á yflr- stjórn kommúnistaflokksins. í | Úkraínu gekk frambjóðendum ) Rukh, samtaka sem berjast fyrir | sjálfstæðu lýðveldi, mjög vel, eink- ; um í vesturhluta lýðveldisins þar j sem mikill áhugi er á stjórnmálum. Lokaniðurstöður liggja ekki fyrir fyrr en þann 14. þessa mánaðar en tölur hafa verið að berast frá kjör- dæmum alveg frá því á sunnudags- kvöld. Kjósendur í Rússlandi þurfa að greiða atkvæði aftur víða í lýð- veldinu þar sem kosningar voru ógildar eða enginn náði hreinum meirihluta. Kjörseðlar voru víða mjög flóknir og langir og reyndust kjósendum þungir í skauti. íbúar víðs vegar um Úkraínu og Hvíta Rússlandi þurfa einnig að kjósa á ný. Reuter •______________________________________9 _______________________________ Útlönd í sjálfsævisögu Jeltsins: Gorbatsjov eins og keisari „Ég sleppi þér aldrei aftur inn í pólítíkina.“ Með þessum kveðjuorð- um sendi Mikhail Gorbatsjov hinn opinskáa og litríka umbótasinna, Boris Jeltsin, í pólítíska útlegð árið 1987, útlegð sem varaði í eitt og hálft ár. Tveimur árum seinna var Jeltsin sviptur embætti flokksformanns í Moskvu og aukaaðild að stjórnmála- ráðinu. „Pólítískt séð var ég lík,“ skrifar Jeltsin um þennan tíma í bók sinni sem fjallar um valdatafhð innan Kremlarmúra. Bókin, sem enn hefur ekki verið gefin út í Sovétríkjunum, kemur á markaðinn á nokkrum stöð- um í Evrópu í þessari viku. Jeltsin er nú á ferðalagi í Evrópu til að kynna bók sína. Á fundi með fréttamönnum í Stokkhólmi í gærkvöldi sagði Jeltsin að nokkur stór sovésk útgáfufyrir- tæki hefðu haft samband við hann vegna bókarinnar. En þegar hann hefði neitað öllum tegundum ritskoð- unar hefðu þau dregið sig í hlé. Útgáfufyrirtæki í Riga í Lettlandi ætlar að gefa bókina út á rússnesku en henni verður bara dreift í Eystra- saltslöndunum. í Sverdlovsk í Rúss- landi ætlar tímarit að sjá um prentun bókarinnar. Jeltsin segist hins vegar ekki gera ráð fyrir að bókin verði gefln út á næstunni í Moskvu. Aftur í sviðsljósið Jeltsin kom aftur fram á sjónarsvið stjórnmálanna. Var það í fyrsta sinn sem sovéskum stjórnmálamanni tókst að standa uppi í hárinu á æðstu ráðamönnum með aðstoð fólksins. Þessa dagana fer fram talning at- kvæða í þing- og sveitarstjórnar- kosningunum í þremur sovéskum lýðveldum, þar á meðal í Rússlandi þar sem Jeltsin var í framboði í borg- inni Sverdlovsk. Jeltsin hlaut áttatíu prósent atkvæða og kemst þar með á þing í Rússlandi. Er Jeltsin voru færðar fregnir af sigri umbótasinna sagði hann úrslitin myndu auðvelda Sovétstjórninni að hraða umbótum. í bókinni lýsir Jeltsin þekktum so- véskum stjórnmálamönnum og er Gorbatsjov þar í fararbroddi. í bók- inni eru einnig nákvæmar lýsingar á lífi hins almenna borgara í Sovét- ríkjunum og þeirra sem njóta sér- réttinda. En Jeltsin ver sig samtímis gegn ásökunum um að hann reyni að afla sér vinsælda á óprúttinn hátt. „Gorbatsjov eins og keisari“ Lýsing Jeltsins á Gorbatsjov þykir mjög frábrugðin þeirri mynd sem umheimurinn hefur af Sovétforset- anum sem hugprúðum, umbótasinn- uðum og ákveðnum stjórnmála- manni. „Það versta viö Gorbatsjov er að ákvarðanir hans eru ekki nógu vel úthugsaðar. Þetta eru bara slag- orð.“ Jeltsin segir Gorbatsjov óá- kveðinn og áhugalausan, hann hafi gaman af því að tala lengi og í kring- um hlutina, hann sé eins konar keis- ari sem óski eftir lýðhylli án þess að vera í nánum tengslum við fólkið. Jeltsin lýsir í smáatriðum hinum ótrúlega lúxus og forréttindum æðstu ráðamanna og heldur því fram að Gorbatsjov njóti þessa kerfis. Þyk- ist Jeltsin viss um að perestrojkan hefði ekki staðið í stað ef Gorbatsjov hefði ekki þurft að láta ýmislegt eftir sér hvað þetta varðar. En þrátt fyrir að Jeltsin hafi séð ástæðu til að skrifa að enginn vafi hafi leikið á að Gorbatsjov hataði hann ber Jeltsin virðingu fyrir brautryðjendastarfi Gorbatsjovs. „Hann heföi getað haldið áfram eins og Brésnjéf og Tsjernenko og látið hengja á sig stjörnur. En hann valdi aðra leið, hann byrjaði að klifra upp fjall sem maður getur ekki séð topp- inn á,“ skrifar Jeltsin. Jeltsin veit ekki um neinn sem í augnablikinu geti komið í stað Gor- batsjovs, hann sé sá eini sem geti komið í veg fyrir algjöra upplausn kommúnistaflokksins. Jeltsin minn- ist á orðróminn sem var á sveimi fyrr á þessu ári um að verið væri að reyna að bola Gorbatsjov burt úr embætti flokksleiðtoga: „Ég legg ekki trúnað á þennan orðróm en ef svo myndi fara mun ég berjast fyrir Gor- batsjov," skrifar umbótasinninn Jeltsin. Jeltsin hefur lofað að öllum tekjum af sölu bókar hans muni verða varið til baráttunnar gegn eyðni í Sovét- ríkjunum. NTB og Reuter Vegna hagstæðra samninga getum við nú boðið ótrúlegt kynning- arverð á glæsilegu nýju íbúðahóteli, rétt við ströndina miðsvæð- is í hinni eftirsóttu baðstrandarbyggð, Magaluf, skammt frá höfuðborginni Palma. Magaluf á Mallorca er staðurinn þar sem sjórinn, skemmtanalífið og sólskinið er eins og fólk vill hafa það. fyrir fyrstu 200 farþegana sem staðfesta bókanir í sumarferðirnar. Íslenskur fararstjóri, f jölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir. FLUGFEROIR SGLRRFLUG Vesturgötu 12, símar 15331 og 22100. Víð látum ekki jarðskjálftakíppí á okktir fá og höfum að sjálfsögðu opíð. Lnmxjnginn [MiiiiniiTTm LJOSMYNDAÞJONUSTAN HF LAUGAVEGI 178 - REVKJAVÍK - SÍMI 685811 liiimimynmmmiimmi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.