Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1990, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1990, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1990. UtLönd Nýjar skattatillögur í Bretlandi: Gætu reynst stjórn Thatcher skeinuhættar Nefskatturinn svokallaði gæti reynst stjórn Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, skeinuhættur og sumir teija jafnvel að hann geti ógnað leiðtogastöðu ráðherrans. Simamynd Reuter Síðast þegar nefskattur var lagð- ur á Breta gerðu bændurnir upp- reisn og fjármálaráðherrann var tekinn af lífi. Nú, sex hundruð árum síðar, leggur Margaret Thatcher forsætisráðherra svipaö- an skatt á þegna breska konung- dæmisins til að greiða fyrir þjón- ustu við almenning. Viðbrögðin við „samfélagsálögunum" eða nef- skattinum, eins og þessi gjöld eru kölluð í daglegu tali, eru harkaleg þó ekki séu þau eins blóðug og fyr- ir sex öldum. Aðeins er mánuður þar til skatt- urinn tekur gildi í Englandi og Wales en þegar hafa blossað upp harðorðar deilur milli ríkisstjórn- arinnar og staðaryfirvalda víðs vegar um land sem eiga að sjá til þess að nýju lögunum um álögurn- ar verði framfylgt. Átján bæjar- og borgarfulltrúar í einu kjördæmi sögðu sig úr íhaldsflokknum til að mótmæla skattinum. Jafnvel fulltrúar flokksins í suð- urhluta Englands, þar sem ríkis- stjómin hefur hingaö til getað treyst á að fá stuðning, hafa gagn- rýnt stjómina vegna skattsins. Og samkvæmt niðurstöðum skoðana- kannanna er nefskatturinn helsta hitamál meðal breskra kjósenda í dag. „Stríð á hendur almenningi“ Nokkrir félagar í íhaldsflokknum hittu Thatcher að máh í síðustu viku til að gera henni ljósa reiði sína vegna skattsins sem þeir óttast að kunni að valda því að flokkurinn tapi næstu kosningum sem fyrir- hugaðar em fyrir mitt ár 1992. Hinn hægri sinnaði þingmaður Tony Marlowe kallaði skattinn „póli- tíska eiturpillu" og sagði að stjóm- völd hefðu „lýst yfir stríði á hendur almenningi". Hann varaði við því að kjósendur kynnu að leita hefnda. Og dagblaðið Times, sem að öllu jöfnu er hallt undir íhalds- flokkinn, sagði að skatturinn gæti reynst stjórninni skeinuhættur í næstu kosningum. Á þingi hefur Thatcher mátt sæta gagnrýni bæði félaga í eigin flokki, sem óttast að missa þingsæti sín, sem og stjórnarandstæðinga. Einn- ig má heyra hvískur um að skattur- inn kunni að kpsta Thatchr leið- togaembættið í íhaldsflokknum ef andstaðan eykst mikið frá því sem nú er. Fastlega er búist við að í fyrirhuguðum sveitarstjómar- kosningum í maímánuði næstkom- andi þurfi flokkurinn að sætta sig við ósigur. Leggst á fjörutíu og tvær milljónir Breta Thatcher hefur lengi viljað stokka upp núgildandi skattakerfi, þar sem bæjar- eða borgarstjómir leggja skatt á íbúana á grundvelli eigna, og koma þess í stað á víð- tækara kerfi sem myndi leiða til hærri tekna ríkissjóðs. í kosninga- baráttunni árið 1987 lagði hún til að svokallaðar „samfélagsálögur“ yrðu lagðar á alla fullorðna Breta. Þessi tillaga forsætisráðherrans var samþykkt á þingi í janúar þrátt fyrir andstöðu margra. Samkvæmt tillögum Thatcher er gert ráð fyrir að allir átján ára og eldri greiði „ákveðið gjald fyrir þjónustu“ í sinni heimasveit. Samfélagsálögur forsætisráðherrans fengu fljótlega uppnefnið „nefskattur“. Skattur þessi mun ná til um fjörutíu og tveggja milljóna Breta. Thatcher réttlætir þessa gjald- töku á þeim forsendum að fleiri muni nú greiða fyrir þjónustu sem stendur öllum til boða. Hún hefur neitað að falla frá eöa breyta tillög- um sínum þó að gagnrýnin hafi oft verið hörð. Þeir sem eru andvígir skattinum segja að hann sé órétt- látur. „Hinir fátæku tapa mest þar sem álögurnar eru ekki lagðar á í samræmi við greiðslugetu,“ sagði talsmaður Verkamannaflokksins sem er í stjórnarandstöðu. 278 pund á mann Hver bæjar- og borgarstjórn setur skattamörk innan síns svæðis, rétt eins og var raunin með fyrri skatta- lög. Stjómvöld hafa sett meðaltals- mörk sem nema 278 pundum á hvern mann. Margir telja þetta meðaltal alltof lágt og vilja hafa það 370 pund. Svo háar upphæðir munu koma illa við pyngju milljóna kjós- enda og hefur stjórn Thatcer vísað slíkum hugmyndum alfarið á bug. Það sem eykur enn á gremju al- mennings er að í sumum auðug- ustu kjördaémum Bretlands verður skatturinn í lægra lagi. í West- minster í London, þar sem heimili forsætisráðherra, Downingstræti 10, er meðal annars, nema álögurn- ar 195 pundum. í Lambeth, hinum megin við ána Thames, nemur upp- hæðin hvorki meira né minna en 650 pundum. Skatturinn kemur til fram- kvæmda þann 1. næsta mánaðar í Englandi og Wales. í Skotlandi er þegar farið að framfylgja honum en þar nýtur hann fádæma lítillar hylli. Tíundi hver maður þar hefur enn neitað að greiða gjöld sín. Reuter I kjölfar þíðu austurs og vesturs: Hernaðarsérfræðingar ðttast framtíðina Sumir hernaðarsérfræðingar óttast að mikil fækkun í hefðbundnum herafla ríkja austurs og vesturs kunni að hafa í för með sér óæskilegar afleiðingar. Þeir óttast að hernaðartæki kunni aö verða seld til þróunar- landa lágu verði. Á þessari mynd má sjá B-2 sprengjuflugvél Bandaríkjanna, svokallaða torséða flugvél, en hún er mjög tæknilega fullkomin. Sérfræðingar telja næsta víst að framlög til framleiðslu á slikum vélum verði skorin niður bæði í sparnaðarskyni sem og í Ijósi minnkandi spennu i samskiptum Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Simamynd Reuter Hemaðarsérfræðingar óttast að mikil fækkun í hefðbundnum her- afla ríkja austurs og vesturs, sem nú er til umræðu í afvopnunarvið- ræðunum í Vínarborg, kunni að hafa í for með sér óæskilegar afleið- ingar fyrir staðbundin ágreinings- efni víðs vegar um heim. Þeir ótt- ast að hemaðartæki og tól ýmiss konar kunni að verða seld til þró- unarlanda lágu verði, þá ýmist lög- lega eða ólöglega, eða þá að óánægðir atvinnuhermenn noti tækifærið og hreinlega komi af stað átökum í heimshlutum þar sem óstöðugleiki ríkir fyrir. Ian McGregor, breskur vopnasér- fræðingur sem sérhæfir sig í vopn- um Varsjárbandalagsríkjanna, sagði að flestir hemaðarsérfræð- ingar sætu nú á sér og biðu þess hvað framtíðin bæri í skauti sér. „Margir í vopnasöluiðnaðinum bú- ast við aö verðlag lækki töluvert," sagði hann. Aukinn þrýstingur á vopnaiðnaöinn Slík verðþróun myndi hafa í fór með sér aukinn þrýsting á fyrir- tæki í vopnaiðnaöinum sem þegar horfast í augu við hugsanlega þurrð í gróðavænlegum kaup- og sölusamningum vopna. Kæmi mik- ið magn notaðra vopna á markað- inn kynni það að verða til þess að margir kaupendur hugsuðu sig tvisvar um áður en þeir legðu í að kaupa ný tæki. Aðildarríki Nato, Atlantshafs- bandalagsins, og Varsjárbanda- lagsins hafa samþykkt aö eyði- leggja þúsundir skriðdreka, her- bíla, byssna og flugvéla. En sér- fræðingar Nato segja að enn hafi ekki náðst samkomulag um ná- kvæma skilgreiningu orðsins „eyðilegging“ og að gloppur gætu myndast sem ríkisstjórnir og vopnasalar gætu nýtt sér. Jafnvel þó að samkomulag næðist um að gereyðfleggja skrið- dreka, vopn, flugvélar og stór- skotaliðstæki telja sumir sérfræð- ingar að það kunni enn að vera möguleiki fyrir hina harðsvíruð- ustu vopnasala að komast yfir her- tæki og -tól áður en þau eru eyði- lögð. „Hvorugur aðili getur staðfest fullkomlega að þetta afvopnunar- samkomulag verði haldið, það er einfaldlega of mikið af tækjum tU,“ sagði einn embættismaður hjá Nato. „Því miður verður ætíð til fólk sem er reiðubúið að nota sér það.“ Þrjátíu og fimm milljarða dollara árleg viðskipti Talið er að vopnasala og -kaup nemi alls þrjátíu og fimm milljörö- um dollara á ári hverju. „Enginn veit hversu mikið af því er ólögleg sala en sumir giska á að hún nemi fimm til tíu prósentum af heildar- fjárhæðinni," sagði Ian Anthony, vopnasérfræðingurt hjá SIPRI- stofnuninni í Stokkhólmi. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.