Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1990, Síða 11
)
ÞRIÐJUDAGUR 6. MARS 1990.
DV
11
Útlönd
Likud-flokkurinn í ísrael:
Setur fram
nýjar kröfur
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels og leiðtogi Likud-flokksins, fyrir
miðju, á leið á fund flokksfélaga sem haldinn var í gærkvöldi. Á þeim fundi
samþykktu Likud-menn að leggja fram frekari kröfur fyrir samþykkt sinni á
tiliögum Bandaríkjanna um viðræður ísralesmanna og Palestínumanna i
Kaíró. Lengst til hægri á myndinni er samgönguráðherrann, Moshe Katsav.
Símamynd Reuter
Likud-jlokkurinn í Israel, annar
stjórnarflokkanna, hefur lagt fram
nýjar kröfur fyrir samþykkt sinni á
tillögum Bandaríkj astj órnar um viö-
ræður fulltrúa Israelsstjórnar og
Palestínumanna um fyrirhugaðar
kosningar á herteknu svæðunum.
Meðal þess sem flokkurinn fer fram
á er að arabar, búsettir í austurhluta
Jerúsalem fái ekki að taka þátt í fyr-
irhuguðum kosningum til viðræðu-
nefndar Palestínumanna í friðarvið-
ræðum við ísraelsstjóm.
í morgun höfnuðu flokksfélagar í
Verkamannaflokknum, sem er hinn
stjórnarflokkurinn, þessum kröfum
Likud. Peres, leiðtogi Verkamanna-
flokksins, hefur boðað til fundar for-
ystu flokksins í dag þar sem tekið
verður til umfjöllunar hvort slíta eigi
stjómarsamstarfinu að því er fram
kom í fréttum útvarpsins í ísrael.
Likud-flokkurinn, sem er flokkur
Shamirs forsætisráðherra, sam-
þykkti á fundi sínum í gærkvöldi að
krefjast þess að Verkamannaflokk-
urinn falhst á ströng skilyrði fyrir
samþykkt ísraelsstjómar á tillögum
Bandaríkjanna. Meðal þeirra skil-
yrða, sem flokkurinn setur, er að
fuhtrúar Palestínumanna í Jerúsal-
em fái ekki að taka þátt í kosningum
á herteknu svæðunu og að fulltrúum
PLO, Frelsissamtaka Palestínu, sem
og þeim Palestínumönnum sem
sendir hafa verið í útlegð veröi mein-
að að taka þátt í öllum friðarviöræð-
um sem og framkvæmd friðartil-
lagna.
I tillögum Bandaríkjamanna, sem
Likud setur nú skilyrði fyrir sam-
þykkt á, er gert ráð fyrir aö fyrstu
undirbúningsviðræður fulltrúa Pa-
lestínumanna og ísraela fari fram í
Kaíró í Egyptalandi. I þeim viðræð-
um eiga fulltrúarnir að vinna að því
að ná samkomulagi um kosningar á
vesturbakkanum og Gazasvæðinu
um fulltrúa Palestínumanna í fyrir-
huguðum friðarviöræðum við ísrael.
Þær viðræður snúast svo áftur um
takmarkaða sjálfsstjórn Palestínu-
manna á herteknu svæðunum.
Verkamannaflokkurinn er hlynnt-
ur því aö arabar í austurhluta Jerú-
salem verði þáttakendur í Kaíróvið-
ræðunum. Þá styður flokkurinn
einnig þær kröfur araba að þeir fái
að taka þátt í kosningunum. I morg-1
un sagði Peres að Verkamannaflokk-
urinn gæti ekki fallist á að meina
Palestínumönnum í Jerúslalem þátt-
töku í friðarumleitunum. Flokkur-
inn hefur oft hótað því að slíta sam-
starfmu við Likud-flokkinn náist
ekki árangur í friðarumleitunum á
herteknu svæðunum.
Reuter
Óeirðir í kjölfar uppreisnar
I kjölfar uppreisnarinnar í Ciskei létu margir greipar sópa um verslanir i
bænum Mdatsantsane. Kveikt var í tugum verksmiðja, skrifstofa og verslana.
Simamynd ReutJU
Suður-afrísk yfirvöld sendu her-
menn til heimalandsins Ciskei í gær
til að bæla niður óeirðirnar þar sem
fylgdu í kjölfar uppreisnar hersins á
sunnudaginn. Yfirvöld gáfu í skyn
að þau myndu viðurkenna stjóm
uppreisnarmanna sem steyptu hin-
um óvinsæla forseta, Lennox Sebe,
af stóli. Sebe hafði verið við völd í
átján ár.
Leiðtogi uppreisnarmanna, Oupa
Gqozo, sagði að fyrsta hlutverk nýju
stjórnarinnar yrði að koma á lögum
og reglu í kjölfar uppreisnarinnar.
En loforð uppreisnarleiðtogans um
að reyna að innhma Ciskei, eitt af tiu
suður-afrísku heimalöndunum, í
Suður-Afríku gengur þvert á ákvæði
kynþáttaaðskilnaðarstefnu suður-
afrískra yfirvalda um búsetu blökku-
manna á sérstökum svæöum.
Umbætur Suður-Afríkustjórnar-
innar og frelsi Nelsons Mandela hafa
virkaö sem kveikja á íbúa heima-
landanna sem nú fara fram á að fá
full borgararéttindi í stað þess að
vera annars flokks borgarar sem vís-
að er til sérstakra svæöa.
Gqozo sagði á fundi með frétta-
mönnum í gær að hann hefði hafið
viðræður við leiðtoga andstæðinga
kynþáttaaðskilnaðarstefnunnar og
væri það fyrsta skrefið í áttina að því
að ryðja braut fyrir innhmun heima-
landsins í Suður-Afríku.
Uppreisnarleiðtoginn kvaðst hafa
fengið fregnir um að fjórir hefðu beð-
ið bana í óeirðunum sem brutust út
í kjölfar uppreisnarinnar þegar tugir
þúsunda þyrptust út á götur og torg
til að fagna falli forsetans.
Reuter
Eiginkona Noriegas hershöföingja, Feiicidad Sieiro, á tati við aöstoöarut-
anrikisróðherra Kúbu, Miguel Brugueras, á laugardaginn. Frá Kúbu fór
hún ásamt dæirum sínum og dóttursyni til Dóminíska lýóveldisins.
Simamynd Reuter
Eiginkona Noriegas hershöfðingja, þrjár dætur þeirra hjóna og dóttur-
sonur komu til Dóminíska lýðveldisins á sunnudaginn. Tengdasonur
Noriega er frá Dómíníska lýðveldinu og er hann sonur fyrrverandi varnar-
málaráðherra landsins.
Fjölskyldu Noriega var leyft að fara frá Panama á fóstudaginn. Á laugar-
daginn kom fiölskyldan til Kúbu þar sem vel var tekið á móti henni. Fjöl-
skyldan var í hópi Panamabúa sem leituðu skjóls í sendiráði Kúbu í Pa-
namaborg stuttu eftir innrás Bandaríkjamanna í Panama 20. desember
síðasthðinn.
Fundust í snjóhúsi
Tveir franskir skíðamenn, sem saknað haföi verið í Ölpunum í sex
daga, fundust á laugardaginn í snjóhúsi sem þeir höfðu byggt. Skíðamenn-
irnir, sem eru hjón, höföu verið að renna sér í ómerktri brekku í hlíöum
Mont Blanc þegar óveður skall á. Veöurofsinn hamlaði leitarstarfi en
þegar rofa tók til á laugardaginn fundust hjónin. Þau voru flutt á sjúkra-
hús vegna ofkælingar.
„Kitnrásarjarðgöng“
Suóur-kóreskir hermenn rannsaka jarðgöngin írá Norður-Kóreu sem
Suður-Kóreumenn segja að hali verlð gerð til að hægt væri að gera
skyndiárás á Suður-Kóreu. Simamynd Reuter
Suður-kóresk yfirvöld tilkynntu um helgina fund jarðgaitga á hlut-
lausa svæðinu milh Norður og Suður-Kóreu. Segja suöur-kóresk yfirvöld
að göngin hafi náð 1,2 kílómetra suöur fyrir hlutlausa svæðið. Eru þetta
fióröu göngin sem finnast á svæðinu.
Er rarmsaka átti göngin sprakk jarösprengja. Nnkkrar jarösprengjur
höfðu þó verið fiarlægðar sem og aðrar hindranir.
Yfirvöld í Suður-Kóreu fullyrtu að Norður-Kóreumenn heföu getað sent
þrjátiu þúsund hermenn og fiölda herbíla gegnum göngin á innan við
klukkustund. Talið er að Norður-Kóreumenn hafi gert um tuttugu göng
undir landamærin.
Bannað að borga Kausnargjald
Patriziu Tacchella, sem er átta ára, var rænt í janúar síðastliðnum ná-
lægt Verona á ítalfu. SímamyndReuter
Með nýrri tilskipun ítalskra yfirvalda hefur foreldrum Patriziu Tacc-
hella, átta ára italskrar telpu, verið meinað að greiða lausnargjald eða
hefia samníngaviöræöur um frelsi hcnnar. Telpunni var rænt fyrir rúm-
um mánuði en að sögn föður hennar hafa mannræningjarnir enn ekki
krafist neins lausnargjalds. Patrizia er einn yngsti gísl í haldi mannræn-
ingja á Ítalíu.