Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1990, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 1990.
5
Fréttir
Sháfertík fann hest sem var fastur í læk undir mannhæðarháum snjó:
Tíkinni að þakka
að klárinn fannst
- segir Guðmundur Kristjánsson, bóndi á Lýsuhóli
„Eg er meö fjögur hross. Þegar
aðeins þrjú komu heim fór ég að leita
þess fjóröa. Ég á shafertík, sem heit-
ir Stella, og hún fór með mér. Ég var
á traktor og hún hljóp með. Allt í
einu tók hún þveröfuga stefnu. Ég
hélt að hún hefði séð mink eða eitt-
hvað annað sem varð til þess að hún
hljóp hurt. Ég fór þangað sem ég taldi
víst að hestarnir hefðu verið. Ég leit-
aði þar en varð einskis var. Þegar
ég var á leið heim kom tíkin aftur.
Hún hljóp enn í sömu átt. Ég elti
hana og þar fann ég hestinn. Hann
var fastur í læk og um mannhæðar-
hár snjór ofan á honum. Hesturinn
hefði sennilega ekki fundist ef tíkin
hefði ekki fundið hann. Það sást ekki
til hans fyrr en komið var alveg að
honum,“ sagði Guðmundur Krist-
jánsson, bóndi á Lýsuhóh á Snæfells-
nesi.
Það var á sunnudagskvöld sem
Guðmundur fór ásamt tíkinni Stellu
að leita hestsins. Guðmundur segist
sannfærður að hesturinn hefði ekki
fundist svo fljótt nema vegna þess
að tíkin rann á lyktina.
„Hún hefur lengi verið einstaklega
þefvís. Þegar hún var „unghngur“
lék ég mér stundum að því að fela
mig. Hún hljóp aldrei beint að mér
heldur fór þannig að vindurinn stæði
frá mér að henni. Á sunnudagskvöld
bar einmitt þannig við að vindur stóð
frá hestinum og að þeim stað þar sem
hún breytti um stefnu. Það hefur
sennilega orðið th þess að hún fann
lyktina af hestinum."
Guðmundur fékk nágranna sína th
aðstoðar. Þeim tókst að moka hest-
inn úr snjónum. Hann var orðinn
talvert kaldur en náði sér fljótt.
iolungarvík:
Vinstrimenn
Helga Guðrún, DV, feafirði;
Vinstri menn í Bolungarvík
hafa tekið ákvörðun um sameíg-
inlegt framboð i sveitarstjórnar-
kosningunum í vor. Forsvars-
maður undirbúningsnefndar er
Kristinn H. Gunnarsson. En hver
er ástæðan fyrir sameiginlegum
lista núna?
„Þessi hugmynd um sameigin-
legt framboð, að mörgu leyti
óhkra aðila, er sprottin upp úr
samstarfi minnihlutans i bæjar
stjóm á þessu kjörtímabih. Það
samstarf hefur verið mjög gott
og menn hafa séö að við getum
unnið vel saman og myndað
heildstæðan hóp. í framhaldi af
því var ákveðið að skoða þennan
möguleika á síðastliðnu hausti og
við höfum borið þetta undir fleiri
til að kanna undirtektir. Þær hafa
verið rnjög góðar og þess vegna
varð niöurstaðan sú að ákveðið
var að fara formlega af stað.“
„Að þessu stendur fólk úr
mörgum áttum á hinu pólitíska
sviöi, en öll komum við að þessu
sem einstaklingar, ekki sem
flokksmenn. í hópnum er fólk úr
mínum röðum ásamt framsókn-
armönnum, óháöum, alþýðu-
flokksmönnum og jafhvel fyrr-
verandi sjálfstæðismönnum. Við
vonumst til að sem fleslir séu
okkur sammála um að þaö nauö-
syihegasta fyrir bæinn næstu ár
sé að hafa samstilltan hóp fólks
sem menn vita að geti unnið vel
saman og tekið ákvarðanir með
hagsmuni bæjarbúa í huga á heh-
brigðum grundvehi. Þetta er nú
hugmyndafræðin á bak viö þetta
framboö.“
Hvaöa menn eru að vinna að
þessu framboði, auk þín?
„Þeir sem starfað hafa að undir-
búningi eru m.a. Jón Guðbjarts-
son bæjarfulltrúi, Valdimar Guð-
mundsson lögreglumaður og
Sverrir Sigurðsson vörubílstjóri,“
sagði Kristinn H. Gumiarsson.
Guðmundur
Alþýðuflokkurinn í Kópavogi
hefur ákveðið framboðslista sinn
til sveitarstjórnarkosninganna.
Listinn er óbreyttur frá niður-
stöðu prótkjörs hvað varðar níu
efstu sætin. Guðraundur Odds-
son, skóiastjóri og bæjarstjómar-
fuhtrúi, er í l. sæti, Sigríöur Ein-
arsdóttir, bæjarstjómarfuhtrúi
og kennari, er í 2. sæti, Helga
Jónsdóttir fóstra er í 3. sæti og
Þórður Guðmundsson kennari er
í 4. sæti, -SMJ
Framkvæmdum við húsdýragarðinn í Laugardal miðar jafnt og þétt áfram en fyrirhugað er að opna garðinn um
miðjan mai. Menn voru í óða önn að hlaða gerði utan um beitarhólf þegar Ijósmyndara DV bar að garði. Það eru
ekki margir sem kunna orðið almennilega til verka við hleðslu sem þessa en til verksins voru fengnir garðyrkju-
DV-mynd GVA
Akureyri:
Gylfi Kriatjánsson, DV, Akureyri:
„Það er verið að skoða þessi
mál en engar ákvarðanir hafa
verið telrnar, svo ég viti, um
framboðsmál af hálfu flokksins
við kosningarnar í vor,“ segir
Árni Steinar Jóhannsson um
hugsanlegt framboð Þjóðar-
flokksins við bæjarstjórnarkosn-
ingamar í vor.
Það er helst að heyra að ekki
verði úr framboði Þjóðarflokks-
ins í vor og reyndar er ekki vitað
um framboð flokksins á neinum
stað viö kosningarnar sem frara-
undan eru. Það stefnir því í 5
framboðshsta á Akureyri, Sjálf-
stæðisflokks, Alþýðuflokks, Al-
þýðubandalags, Framsóknar-
flokks og Kvennalista, en ijórir
fyi-st töldu flokkarnr buðu fram
við kosningamar fyrir fjórum
árum.
Vatnsmagn í uppístöðulóni
Skeiðsfossvirkjunnar í Fljótum
er á þrotum og ef ekki hlánar í
tæka tíð verða dísilvéiarnar á
Siglufirði ræstar eför 10 daga.
Það kostai- sitt og mun hafa tals-
verð áhrif á Qárhag Raft’eitu
Siglufiarðar.
Vatnsforðinn í Gautastaöavatih
var um 30 gígalítrar í haust og
hefur sjaldan verið jafhmikill. Nú
hefur kaldur vetm- orðið til þess
að hann er kominn niður í 7 gíga-
lítra en í venjulegu ári hefur
vatnsforðinn enst vel fram í april.
: ; Skeiðsfossvirkjun fær um eitt
megavatt um byggðalínuna frá
Ólafsfirði en það dugar engan
veginn. Ef tíöarfar breytist ekki'
veröur þvi að grípa í disilinn á
Siglufirði þegar vatnsforðann
þrýtur.
menn, vanir slíkum verkum. Er ekki annað að sjá en þeir kunni til verka.
Strandlr:
Ekki gert út á
grásleppu í vor?
J
Horður Kristjánsson, DV, fsafirði:
„Mér sýnist að við munum ekki gera
út á grásleppuveiðar nú vegna þess
hvemig sölumöguleikum er háttað
og hvemig staðið er að þessu í dag.
Það er útilokað að ákveða lágmarks-
verð á grásleppuhrognum eins og í
fyrra. Við urðum að borga sjómönn-
um og útgerö samkvæmt því að tunn-
an væri seld á 1100 vþ-mörk, tæplega
40 þúsund krónur. Reyndin hins veg-
ar að það fást 5 til 600 mörk fyrir
tunnuna ef þá eitthvað fæst. Við er-
um því með mjög neikvæða stöðu og
það út af einhverju reglugerðará-
kvæði um að ekki mætti selja hrogn-
in á lægra verði úr landi en 1100
mörk á tunnuna sem enginn vill
borga. Þessu ætla þeir að halda
áfram núna, nema þeir lækka þetta
ofan í 900 mörk,“segir Gunnar Jó-
hannsson hjá Hlein á Hólmavík. Þeir
eiga 80 tunnur af óseldum grásleppu-
hrognum frá í fyrra og svipað ástand
er hjá kaupfélaginu, þó eigi það mun
meira magn.
Hann telur að það séu verksmiðj-
urnar erlendis sem pressi á aö hafa
þetta svona. Með svo háu lágmarks-
verði geri íslendingar eigin verk-
smiðjum ókleift að keppa á erlendum
mörkuðum. Erlendu verksmiðjurn-
ar snúi sér síðan til Kanadamanna
með hrognakaup á mun lægra verði.
„Þetta er bara skrípaleikur,“ segir
Gunnar. „Við þolum vel að keyra
Kanadamenn niður með því að gefa
verðið frjálst. Ég tel að við getum
selt tunnuna á 700 mörk“
Johnny Cash kemur í júní
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Bandaríski sveitasöngvarinn Jo-
hnny Cash kemur í tónleikaferð til
íslands í hyrjun júní og mun að öllum
líkindum halda þrenna tónleika hér
á landi - í Reykjavík og á Akureyri.
Það eru SAÁ og Körfuknattleiks-
samband íslands sem standa að
komu Cash hingað til lands.
SAAB96
Árgerð 1961 - sem nýr
Antik - 30 ára
Billinn var gerður upp 1980-1982 og hefur verið
notaður sem sýningarbill síðan. Kjöríð tækifæri fyrir
áhugamenn um fornbila að eignast stólpagrip, þann
eina sinnar tegundar á 1 slandi og þó viðar væri leitað.
Uppl. i sima 68155 á dagínn og 617214 á kvöldín.