Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1990, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1990, Blaðsíða 24
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 1990. 4Pé4 Sviðsljós Straumar frá Snæfellsjökli? Iiðið frá Rifi sigr- aði í spumingakeppni Stefán Þór Sigurðsson, DV, HeHissandi: Undanfarna mánuði hefur staðið yfir spurningakeppni vinnustaða á rás 2, Rikisútvarpinu, sem hefur verið nefnd Stóra spurningin. Á mánudag, 19. mars, var svo úrslitakeppnin háð og voru þar mætt til leiks liö verslun- arinnar Virkisins á Rifi og innan- hússlagnadeild Pósts og síma á Ak- ureyri. Þessi tvö lið höíðu slegið út -**alla keppinauta sína og stóðu því tvö eftir. Það var ótrúlegur áhugi á þessari keppni hér fyrir vestan - á utanverðu Snæfellsnesi og fögnuður var mikill þegar keppendur verslunarinnar urðu sigurvegarar. Þau Sturla Fjeldsted og Kristín Þórðardóttir, eigendur Virkisins, voru þar í fyrir- svari. Velgengni þeirra var mikil og vilja sumir þakka hana göldrum eða straumum frá Snæfellsjökli, sem er víðfrægur um allan heim fyrir töfra- mátt sinn. Ekki mun þó minna verð- ur stuðningur harðsnúins stuðnings- liðs Virkisins. Sturla Fjeldsted - í símanum - og Kristín Þórðardóttir sigurvegarar í spurn- ingakeppni útvarpsins. Kristin var á árum áður fréttaritari DV vestra. DV-mynd Stefán Þór Þær fréttir hafa borist að einhver þekktasti söngvari Bandaríkjanna, Johnny Cash, muni heimsækja ísland og halda hér tónleika. Cash, sem er einn af þeim sem hægt er að segja um aö sé þjóðsaga i lifanda lifi, er nú á tónleikaferöalagi með þremur vinum sínum, allt þekktum söngvurum og leikurum. Þeir kalla sig The Highwaymen og er þetta í annað sinn sem ^heir koma sarnan. í fyrsta skipti héldu þeir í útlegð og tónleikahald 1985. Á myndinni sjáum við Stigamennina samankomna en þeir eru, taldir frá vinstri, Willie Nelson, 56 ára, Johnny Cash, 58 ára, Kris Kristofferson, 53 ára, og Waylon Jennings, 52 ára. Þessi kappar hafa nýverið sent frá sér plötu og eru að fylgja henni eftir með tónleikum. Nýlega var haldið innanhúss- mót í fótbolta þar sem þátttak- endur voru slökkvihðsmenn á suðvesturhorninu. Leikið var í Valsheimilinu og voru sex liö send til keppninnar. Keppt var um fallegan bikar sem Kraftur hf. gaf til mótsins. Eftir spennandi keppni end- aöi mótiö með sigri A-liðs Slökkviliðs Reykjavikur. í öðru sæti varð B-liö Slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli og í þriðja sæti varð B-lið Slökkviliðs Keflavíkur. Önnur lið í keppn- inni voru A-lið Slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli, lið frá slökkviliðinu í Keflavík og lið frá slökkviliðinu í Hafnarfirði. A-lið Reykjavíkur hafði nokkra yfirburði, og sigraði auðveldlega í sínum leikjum enda nokkrir þekktir núver- andi og fyrrverandi knatt- spymumenn í liðinu. Bergsveinn Alfonsson, fyrirliði A-liðs Slökkviliðs Reykjavikur, tekur við hinum glæsilega bikar úr hendi Erlings Helgasonar. Bak við þá stendur Erlingur Lúð- víksson, varðstjóri í Slökkviliði Reykjavíkur. Þrjú efstu liðin. í neðstu röö er A-lið Slökkviliðs Reykjavikur. Má þar sjá kunn andiit úr iþróttunum eins og Berg- svein Alfonsson, Pétur Arnþórsson, Stefán Halldórsson og Martein Geirsson. Fyrir aftan það er B-lið Keflavíkur- flugvallar og aftast B-lið Reykjavíkur. Slökkviliðs- menn í fótbolta náðu þér í Úrval MJnA - Úrvál á næsta blaðsölustað. Listin að klæöast ríkmannlega Loksins fá karlmennimir vísbendingu um hvernig þeir eigi að klæðast. Umbrotin á miðjum aldri Miðaldra fólk á við sín aldursvandamál að glíma, ekki siður en ungling- ar og öldurmenni. Kann konan á karlinn? Sagan sýnir okkur að gegnum aldirnar hafa konur verið lagnar að koma sinum málum fram með því að fara rétt að körlunum. Gunnhildur Hér segir frá ógæfusamri sál sem lést með voveiflegum hætti, ef ekki dularfullum, og fékk ekki frið eftir dauðann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.