Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1990, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 1990.
17
Iþróttir
k fyrir Keflvíkinga og skoraði 18 stig. Þetta var
r í Njarðvík annað kvöld.
ninn til Keflavíkur:
rmaður ÍBK
tspyrnumaðurinn sem leikur með Keflvík-
ugardagimi og spilaöi æfmgaleik með ÍBK
■r 25 ára gamall miðjumaður og kemur frá
fanasic, hann er mjög ílinkur leikmaður
i í sumar. Við erimi enn að svipast um eftir
i koma fékk sig ekki lausan þegar á reyndi
Rúnar Lúðvíksson, formaður knattspyrnu-
Undanúrslit úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik:
Njarðvík kastaðí
frá sér sigrinum
- Nökkvi tryggði Keflavík sigur 1 lokin, 83-82
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
Bikarmeistarar Njarðvíkinga köst-
uðu frá sér sigri gegn íslandsmeist-
urum Keflvíkinga í gærkvöldi þegar
félögin mættust í undanúrslitunum
um íslandsmeistaratitilinn í Kefla-
vík. Njarðvíkingar voru yfir, 76-81,
þegar aðeins ein mínúta var til leiks-
loka, og síðan 81-82 þegar þeir köst-
uðu boltanum beint út af 29 sekúnd-
um fyrir leikslok. Keflvíkingar nýttu
sér það og Nökkvi Már Jónsson skor-
aði sigurstig þeirra úr vítaskotum,
83-82, þegar sex sekúndur lifðu af
leiktímanum. Keflvíkingar hafa því
tekið forystu í einvígi nágrannanna,
en liðin mætast aftur í Njarðvík ann-
að kvöld.
„Þetta var mjög góður leikur og
spennandi. Við gáfumst aldrei upp,
höfðum alltaf trú á að við gætum
sigrað þó við værum undir. Síðari
leikurinn verður erfiður, en við ætl-
um að leggja þá aftur að velli og
mætum þá ákveðnir og grimmir til
leiks,“ sagði Guðjón Skúlason, lands-
liðsbakvörður Keflvíkinga, í samtali
við DV eftir leikinn.
Keflavík komst í 13-4 í byrjun en
síðan voru liðin yfir til skiptis, og í
hálfleik var Njarðvík yfir, 36-38.
Njarðvíkingar voru síðan yfir mest-
allan síðari hálfleikinn, mest 63-73,
en tvær þriggja stiga körfur Guðjóns
Skúlasonar voru Keflvíkingum dýr-
mætar á æsispennandi lokasprettin-
um.
„Við vorum klaufar undir lokin en
þetta var frábær leikur beggja liða.
Við komum grimmir í síðari leikinn
og ætlum að knýja fram þriðja leik-
inn - í kvöld var aðeins fyrri hálfleik-
ur,“ sagði Árni Lárusson, þjálfari
Njarðvíkinga.
Bæði lið sýndu góðan körfuknatt-
leik sem féll vel í kramið hjá rúmlega
eitt þúsund áhorfendum. Þau eru
mjög áþekk að styrkleika, Njarðvík-
ingar búa yfir meiri breidd en bar-
áttuvilji Keflvíkinga færði þeim sig-
urinn. Guðjón og Magnús Guðfmns-
son léku mjög vel með Keflavík, Fal-
ur Haiðarson og Nökkvi Már léku
einnig vel, Sandy Anderson hefur
hins vegar oftast verið betri. í liði
Njarðvíkinga var liðsheildin jöfn, ís-
ak Tómasson, Patrick Releford og
Helgi Rafnsson, sem gerði 15 stig í
síðari hálfleik, komust einna best frá
leiknum. Ástþór Ingason skoraði
einnig dýrmæt stig.
Stig Keflavíkur: Guðjón Skúlason
28, Magnús Guðfmnsson 18, Falur
Harðarson 13, Nökkvi Már Jónsson
10, Sigurður ingimundarson 6, Sandy
Anderson 6, Einar Einarsson 2.
Stig Njarðvíkur: Patrick Releford
19, Helgi Rafnsson 15, ísak Tómasson
14, Jóhannes Kristbjömsson 12, Teit-
ur Örlygsson 8, Ástþór Ingason 6,
Kristinn Einarsson 4, Friðrik Ragn-
arsson 4.
Helgi Bragason og Bergur Stein-
grímsson dæmdu leikinn og gerðu
sín mistök en þau bitnuðu á hvorugu
liðinu.
Arnór fékk ekki leyfi
- til að taka þátt 1 landsleiknum gegn Lúxemborg
• Amór Guðjohnsen.
Guðmundur Hilmarsson, DV, Lúxemborg:
Nú er ljóst að Arnór
Guðjohnsen le.kur ekki
með íslenska laudsliðinu í
knattspyrnu gogn Lúxem-
borg á morgun. Forráðamenn And-
erlecht neituðu Arnóri um leyfi til
að leika með landsliðinu vegna mik-
ilvægra leikja framundan.
Eyjólfur valinn
í stað Arnórs
Forráðamenn Anderlecht telja að
hættan á meiðslum sé fyrir hendi
eftir mikið álag að undanförnu. í
hans stað hefur verið kallað á Eyjólf
Sverrisson frá Stuttgart og tekur
hann sæti Arnórs í 16 manna lands-
liðshópnum.
Liðið æfði í gærkvöldi á aðalleik-
vangnum í Lúxemborg og tóku allir
landsliðsmennirnir þátt í æfmgunni
að undanskildum Gunnari Gislasyni
og Eyjólfi Sverrissyni sem báðir
koma til Lúxemborg í dag. Æfmgin
í gærkvöldi stóð yfir í rúman klukku-
tíma og í dag verður önnur æfing og
þá ætti að skýrast hvernig Bo Jo-
hansson, hinn nýi landsliðsþjálfari,
stillir upp íslenska liðinu en í því eru
sjö atvinnumenn.
„Býst fastlega við
að fá fleiri tækifæri“
- segir Ásgeir Sigurvinsson eftir brottvikningu Arie Haan
e Arie Haan, sem þjálfað hefur vestur-þýska
félagið Stuftgart frá 1997, var í gær rekinn
frá féiaginu. Stirt hefur verið á milli hans og
forseta tiösins á síðustu misserum og eftir
stjórnarfund í gærmorgun var ákveðið að
láta Haan taka poka sinn.
Forráðamenn vestur-þýska liðs-
ins Stuttgart, sem Ásgeir Sigur-
vinsson hefur leikið með undanfar-
in ár, ákváðu eftir stjórnarfund í
gærmorgun að reka þjálfara féiags-
ins, Holiendinginn Arie Haan. Á
síðustu vikum hefur verið stirt á
milli forseta Stuttgart og Arie Haan
og hafa þeir sent hvor öðrum kald-
ar kveðjur í íjölmiðlum í Vestur-
Þýskalandi.
Eftir stjórnarfundinn í gærmorg-
un var ákveðið að aðstoðarþjálfari
liðsins, Wiili Entenmann, tæki viö
þjálfarastöðinni af Arie Haan. Ent-
enmann hefm' veríð viö störf hjá
félaginu í sjö ár og er virtur meðal
leikmanna liðsins. Stuttgart tapaði
um helgina sínum fyrsta leik á
heimavelli í ár og þá fyrst fór veru-
lega að hitna undir stól Ario Haan
hjá félaginu. Belgískir flölmiðlar
sögðu frá því í gær að Arie Haan
hefði fyrir tíu dögurn átt viðræður
viö forráðamenn Mechelen og full-
yrtu þau aö Haan væri á leiöinni
til félagsins og tæki þjálfarastöðu
þegar keppnistímabilinu lyki í vor.
DV sló á þráðinn til Ásgeirs Sig-
urvinssonar í gærkvöldi og innti
hann eftir brottvikningu þjálfara
félagsins:
„Þetta kom mér frekar á óvart en
viö leikmennirnir fundum hvað lá
í loftinu þegar við mættum á æfmgu
í gærmorgun. Þetta bar mjög brátt
að en um helgina virtist allt vera í
góðu lagi. Að vísu hafa Arie Haan
og forseti liðsins verið að bítast 1
{jölmiðlum upp á siökastið en samt
sem áður kom mér þetta á óvart,"
sagði Ásgeir Sigurvinsson.
„Það hefur verið mjög gott sam-
band á milli okkar Willi Enten-
matin og ég býst fastlega við því
aö fá mun fleiri tækifæri undir
hans stjórn hjá félaginu. Enten-
mann er ólíkur Haan að mörgu
leyti og ég hef mikla trú á að hann
geri góða hluti hjá félaginu. Ég er
alveg ákveðinn að hætta að leika
með Stuttgart þegar keppnistíma-
bilinu lýkur í vor en hvað við tekur
er alveg óráðið. Ég er með ýmsa
möguleika i sigtinu og það gæti ailt
eins farið svo að ég tæki að mér
einiiver störf innan Stuttgart en
framtíðin mun leiða i ljós hvað
verður ofan á í þessum efnum. Eitt
er þó alveg víst. að ég verð hér úti
næstu 2-3 árin áður en ég kem al-
kominn heirn til íslands,“ sagði
Ásgeir Sigurvinsson.
Þess má geta að Willi Enten-
inann, sem nu tckur við Stuttgart-
liðinu, er læröur frá háskólanum i
Köln og tók á sínum tíma eitt hæsta
próf sem tekið hefur verið við há-
skólann. -JKS/ÞS/KB
Enskir
stúfar
m
Bobby Charlton,
fyrrum leikmaður
Manchester United og
núverandi stjórnar-
meðlimur hjá félaginu, hefur ver-
ið settur í þriggja mánaða bann
hjá knattspyrnusambandinu.
Bannið snýst um það að Charlton
fær enga miða á bikarúrslitaleiki
næstu árin í kjölfar þess að miðar
sem honum var úthlutað 1988,
lentu í höndum svartamarkaðs-
braskara.
John Lukic, markvörður Arse-
nal, sem á dögunum neitaði að
fara til QPR, þykir nú líklegur til
að verða seldur til sins gamla fé-
lags Leeds United fyrir 700 þús-
und sterlingspund fyrir lok þessa
tímabils. Howard Wilkinson,
stjóri Leeds United, reyndi fyrr í
vetur að kaupa Lukic sem spilaði
á sínum tíma 146 leiki fyrir Leeds
United.
Knattspyrnumenn ársins í Eng-
landi verða valdir um næstu
helgi. Líklegastir til aö hljóta út-
nefningu eru þrír leikmenn Li-
verpool, þeir John Barnes, Peter
Beardsley og Alan Hansen. Á
hæla þeim koma Des Walker og
Steve Hodge frá Nottingham For-
est og David Platt hjá Aston Villa.
Sama kvöld veröur besti ungi
leikmaöurinn kosinn og er talið
að sá titill fari til Matthew Le
Tissier hjá Southampton.
Kevin Wilson, leikmaður
Chelsea, hefur skrifað undir nýj-
an samning við félagið til tveggja
ára. Nafni hans Clive Wilson
heldur sínum málum í biðstöðu
og vonast jafnvel til að fara frá
Chelsea til að spreyta sig á megin-
landinu.
Peter Davenport hjá Middles-
borough mun að öllum líkindum
ganga til liðs við Sheffield Wed-
nesday fyrir 600 þúsund pund að
afloknu þessu keppnistímabili.
Stjóri Sheffield Wednesady er
Ron Atkinson sem keypti Da-
venport til Manchester United á
sínum tíma.
Milljónamæringurinn Sir Jack
Haywart mun á næstu dögum
ganga frá kaupunum á 2. deildar
liðinu Wolves. Sir Jack, sem stutt
hefur Úlfana frá blautu barns-
beini, sá Wolves tapa, 3-1, á úti-
velli fyrir Port Vale á laugardag,
sagði í kjölfarið að eftir þá
frammistöðu færi hann fram á
10% afslátt á kaupverðinu.
Steve Clark, skoski landsliðs-
bakvörðurinn hjá Chelsea, er nú
að öllum líkindum á heimleið til
Skotlands til að ganga til liös við
Glasgow Celtic. Þess má geta að
Clark var ekki í liði Chelsea, sem
vann Middlesborough í úrslitum
Zeta DS bikarkeppninnar á
sunnudag.
Andy Payton, framherji Hull City,
hefur bæst í hóp þeirra leik-
manna sem hafa orðið fyrir þeirri
óskemmtilegri reynslu að gleypa
tunguna í kappleik og vera hárs-
breidd frá dauða. Atvik þetta átti
sér stað í leik Oldham og Hull á
laugardainn þegar Payton lenti í
samstuði við Hall Worth, mark-
vörð Oldham. Að sögn forráða-
manna Hull City er líðan Pay tons
viðunandi og kappinn mun vera
á batavegi.
Tony Cottee hjá Everton er enn
á sölulista félagsins þrátt fyrir að
hafa skorað átta mörk í síðustu
níu leikjum. Cottee segir að hann
muni ákveða um frekari dvöl hjá
Everton að loknu þessu keppnis-
tímabih.
Colin Gibson, sem skoraði annað
marka Manchester United gegn
Southampton á laugardag, hefur
átt litlu láni að fagna að undan-
fórnu. Gibson hefur aðeins leikið
tvo leiki síðustu átján mánuði og
á þeim tíma gengist undir tvær
meiriháttar hnéaðgerðir.