Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1990, Page 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 1990.
Útlönd
Ákærður fyrir fjöldamorð
Ástsjúkur kúbanskur flóttamað-
ur var í gær ákærður fyrir stærsta
fjöldamorðið í sögu Bandaríkj-
anna. Að sögn lögreglu hafði hinn
ákærði drukkið tvo bjóra, keypt
bensín fyrir um það bil dollara,
kveikt í næturklúbbnum og síðan
farið að hátta. Áttatíu og sjö manns
létu lífið í eldsvoðanum.
Að sögn lögreglunnar kvaðst
Kúbumaðurinn ekki hafa ætlað að
skaða neinn. Hann hefði misst
stjórn á sér eftir að vinkona hans
hefði liafhað honum en hún vann
á næturklúbbnum. Hún var ein
þeirra fimm sem komust lífs af.
Nágxannar hins ákærða bera hon-
uro vel söguna, hann hafi verið
rólegur og alltaf kurteis við ókunn-
uga.
Kúbumaðurinn Jutio Gonzales
sem viöurkennt hefur að hafa
kveikt i næturklúbb í New York.
Simamynd Reuter
Ráðherra segir af sér
Innanríkisráðherra Kólumbíu, Carlos Lemos Simmonds, hefur sagt af
sér vegna ágreinings um stefnu stjórnarinnar í baráttunni gegn eiturlyíja-
sölum. Sagði hann afsögn sina vera sigur fyrir hina valdamiklu kókaín-
sala landsins. Lemos, sem sagður var sá ráðherra sem haröast baröist
gegn kókainsölunum, sagði einnig að Barco forseti heföi ekki varið hann
gegn fullyrðlngum um að hann heföi átt þátt f að forsetaframbjóðandi
vinstri manna, Bemardo Jaramillo, var myrtur á fimmtudaginn. i tveggja
síöna bréfi til Bareo kvaðst Lemos ekki geta gegnt áfram embætti sínu
án stuðnings forsetans og stjórnarinnar.
Jaramillo var skotinn til bana af sextán ára byssumanni á flugvellinum
í Bogota. Stuttu fyrir morðið hafði Lemos sakað bandalag vinstri manna
um náin samskipti við ein af þrennum helstu skæruliðasamtökum Kól-
umbiu. Bandalagið og aörir stjórnarandstöðuflokkar sögðu að ásakanir
Lemos hefðu kallaö dauðadóm yfir Jaramillo.
Ivaita vill helming Trump-auðsins
Donatd og Ivana Trump á meöan allt lék I lyndl
Ivana Trump, eiginkona milljónamæringsins Donald Trump, hefur
farið fram á viö dómara aö hann lýsi yfir að hún eigi rétt á helmingi
auðæfa manns síns en talið er aö eignir hans nemí alls fimm milljörðum
dollara. Þrátt fyrir þessa ósk hennar segir lögfræðingur Ivönu að hún
sé ekki aö sækja um skilnað frá manni sínum.
Hjónabandsmál þeirra Trump-hjóna hafa verið mikið í fjölmiðlum síö-
ustu vikur en sagt er aö skiinaöur sé yfirvofandi vegna meints sambands
hans við unga fegurðardís. Hvorugt hjónanna hefur þó sótt um skilnaö.
Tugir látast í flóðum
Sextíu og niu manns hafa látist í flóðum i Kasmir-héraöi á Indlandi
síðustu daga, aö því er fram kom h)á lögreglu í héraöinu. Miklar rigning-
ar á sunnudag höföu í fór með sér aur- og gijótskriður. Nokkur fórnar-
lambanna létust þegar þau uröu fyrir skriðunum en önnur þegar flóðin
báru þau með sér. Rúmlega tvö hundruð manns hafa látist i flóðum og
rigningum f Kasmir- og Jammu-héruðum á Indlandi síðustu tvo mánuði.
Sláandi svipur
Hollenski leikarinn og fyrirsætan Donald Bonnema við mynd af hínum
fræga hollenska listmólara Vincent van Gogh í Amsterdam.
%. Símamynd Reuter
Þaö þykir undrum sæta hversu mikill svipur er með hollenska leikar-
anum Bonnema og hollenska listmálaranum Vincent van Gogh, eins og
sést á meðfylgjandi mynd. Þann 30. mars næstkomandi verður opnuö
viðamikii sýning i Van Gogh safninum í Amsterdam i tilefni þess að
hundrað ár eru liðin frá andláti hans. Van Gogh fyrirfór sér í Frakklandi
37 ára að aldri. Hann seldi aðeins eina mynd á listamannsferli sínum.
Leikarinn Bonnema er 36 ára. Rcutcr
A-Þýskaland:
Draugar úr
fortíðinni
Aðeins átta dögum eftir kosning-
arnar i Austur-Þýskalandi tilkynnti
Ibratúm Böhme, leiðtogi jafnaðar-
manna, aö hann tæki ekki sæti á
þingi fyrr en hann hefði verið hreins-
aður af ásökunum um njósnir á veg-
um öryggislögreglunnar. Samtímis
tilkynnti ríkissaksóknari að ákæra
um landráð á hendur Erich Honec-
ker, fyrrum leiðtoga Austur-Þýska-
Ibrahim Böhme, leiðtogi austur-þýskra jafnaðarmanna, ætlar að vikja úr
embætti þar til hann hefur verið hreinsaður af ásökunum um samvinnu við
öryggislögregluna. Simamynd Reuter
lands, og þriggja aðstoðarmanna
hans yrði látin falla niður og að einn
þeirra yrði látinn laus. Rannsóknum
á öðrum meintum glæpum félaganna
verður haldið áfram. Enn er sem
sagt eftir að gera upp viö drauga for-
tíðarinnar.
Fyrir kosningarnar játaði Wolf-
gang Schnur, leiðtogi Lýöræðisvakn-
ingar, á sig samvinnu við öryggislög-
regluna og sagði af sér embætti. Böh-
me neitar samvinnu við öryggislög-
regluna. Hann kvaðst í gær myndu
víkja úr embætti leiðtoga Jafnaðar-
mannaflokksins, sem hlaut næstflest
atkvæði í kosningúnum, og ekki taka
sæti á nýkjörnu þingi fyrr en hann
hefði verið hreinsaður af ásökunun-
um.
Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands,
sagöi í gær að tilraunum til stjórnar-
myndunar í Austur-Þýskalandi
myndi ekki seinka vegna ásakana
um samvinnu nýkjörinna þing-
manna við öryggislögregluna. Lot-
har de Maiziere, leiðtogi kristilegra
demókrata í Austur-Þýskalandi, sem
sigruöu í kosningunum, hefur einnig
verið sakaður um njósnir fyrir ör-
yggislögregluna. Hann segir ásakan-
irnar þvætting. De Maiziere er talinn
líklegur forsætisráðherra hvernig
svo sem stjómin kemur til meö að
líta út. Telur hann að stjórnarmynd-
un takist innan tveggja vikna.
Reuter
Ungverjaland:
Afgerandi forysta hægri manna
Lokaniðurstöður þingkosning-
anna í Ungverjalandi liggja ekki
fyrir fyrr en í næsta mánuði. Þrátt
fyrir það er ljóst hvert stefnir í
þessum fyrstu frjálsu kosningum í
landinu í nærfellt fimmtíu ár; ósig-
ur fyrir kommúnista og haröa bar-
áttu milli tveggja atkvæðamestu
flokkanna.
Þegar búið var að telja um áttatíu
prósent atkvæða í kosningu um
stjórnmálaflokka - kosiö er milli
einstakra frambjóðenda í hátt í tvö
hundruð einmenningskjördæmum
- var ljóst að Lýðræðislegur vett-
vangur hafði hlotið 24,50 prósent
fylgi en Bandalag frjálsra demó-
krata 21,18. Báðar eru þessar
stjórnmálahreyfingar taldar til
hægri eöa miðjuflokka. Valdhaf-
arnir, sem nú kalla sig Ungverska
jafnaðarmannaflokkinn, höfðu
hlotiö 10,65 prósent í gær en
Bændaflokkurinn 12,16 prósent.
Stærstu flokkarnir hafa útilokað
samvinnu við jafnaðarmanna-
flokkinn í komandi stjórn en sá
flokkur var settur á laggirnar þeg-
ar kommúnistaflokkurinn var
leystur upp. Nú þegar hafa hafist
stjórnarmyndunarþreifmgar en
líklegast er talið að samsteypu-
stjórn taki við völdum í Ungverja-
landi.
Kosningaþátttaka í kosningun-
um á sunnudag var um sextíu og
fjögur prósent. Kosið var til þrjú
hundruö áttatíu og sex sæta á þingi,
þar af eitt hundrað sjöíu og sex í
einmenningskjördæmum. Kosn-
ingar hafa ekki verið frjálsar í Ung-
verjalandi síðan í nóvembermán-
uði árið 1947. Síðari umferð kosn-
inganna þann 8. næsta mánaöar
mun skera endanlega úr um hver
verður sigurvegari.
Reuter
Suður-Afríka:
Skotið á mótmælendur
Átta manns létu lífið í blökku-
mannahverfi suður af Jóhannesar-
borg í gær og hundruð særðust er
lögregla skaut á mótmælendur sem
kröfðust lægri leigu og að endi yrði
bundinn á kynþáttaaðskilnaðar-
stefnu stjórnvalda.
Hverfiö varð að vígvelli í nokkra
klukkutíma er mótmælendur
kveiktu í vegatálmum til að stöðva
lögreglumenn á eftirlitsferð. Lög-
reglumenn svöruðu með því að beita
táragasi og skotvopnum til að dreifa
þúsundum mótmælenda en yfirvöld
á staðnum höfðu sagt göngu þeirra
ólöglega. Margir mótmælendanna
voru skotnir í bakið.
Ráðherra dóms og laga í Suður-
Afríku sagði í gær að lögreglan
myndi ekki hika við að grípa til að-
gerða gegn þeim sem brytu gegn
neyðarástandslögunum.
í Natalhéraði biðu aö minnsta kosti
fimmtán manns bana í innbyrðis
átökum stríðandi hópa blökku-
Mótmælendur í Suður-Afriku með félaga sinn sem varð fyrir skoti lögreglu-
manna’ Símamynd Reutei
manna, að því er lögregluyfirvöld til-
kynntu.
Frá því að blökkumannaleiðtoginn
Nelson Mandela var látinn laus í síð-
asta mánuöi hafa yfir tvö hundruð
og tuttugu manns látið lífið í pólitísk-
um óeirðum í Suður-Afríku. Taliö er
líklegt að árangur samningavið-
ræöna Mandela og samtaka hans,
Afríska þjóðarráðsins, við de Klerk
forseta sé kominn undir því hversu
vel samtökunum tekst að hafa hemil
á ofbeldinu í hverfum blökkumanna
og hversu fús yfirvöld eru til að
draga úr valdbeitingu lögreglunnar.
Reuter