Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1990, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1990, Síða 27
l'.lJipjUDAG.VH 27. MARS. ÍSÍUO. Lífsstni Neytendakönnun á þvottavélum: Fjórar með 100% meðmæli NEYTENDUR INNTIR EFTIR REYNSLU SINNI AF ÞVOTTAVÉLUM Aldurvélanna_________ _____________Bilað______ Hverniglíkarvélin? Þjónusta seljanda Tegund Fjöldi 0-5 ára 6-15 ára 16ára eldri Aldrei Tvisvar eöa oftar Mjög ánægðir Sæmilega ánægölr Óánægöir Mæltu með vél Mjög ánægðir Óánægöir AEG 256 45,1% 27,7% * 27,2% 60,9% 13,3% 97,5% 2,5% 98,0% 88,2% 2,2% Philco 195 48,4% 47,9% 3,7% 57,4% 22,6% 79,5% 13,6% 6,9% 75,5% 66,7% 11,5% Candy 170 32,7% 55,8% 11,5% 51,2% 22,4% 83,3% 12,8% 3,9% 80,0% 88,7% 1,4% Siemens 78 75,0% 23,7% 1,7% 85,9% 3,8% 91,9% 5,4% 2,7% 92,0% 80,0% 10,0% Völund 34 31,3% 65,6% 3,1% 55,9% 17,6% 93,3% 6,7% - 87,4% 81,3% - Zerowatt 25 60,0% 36,0% 4,0% 64,0% 12,0% 62,5% 33,3% 4,2% 66,7% 55,6% - Miele 23 87,0% 8,7% 4,3% 91,3% - 95,2% 4,8% - 95,2% 75,0% - Gen.Electric 20 45,0% 45,0% 9,0% 80,0% 10,0% 88,2% 11,8% - 100,0% 100,0% - Bára 14 76,9% 23,1% - 71,4% 7,1% 61,5% 30,8% 7,7% 78,6% 100,0% - Philips 15 60,0% 40,0% - 53,3% 33,3% 85,8% 7,1% 7,1% 78,6% 60,0% - ASEA 15 80,0% 20,0% - 80,0% - 93,3% 6,7% - 93,3% - - Westinghouse 15 21,4% 35,7% 42,9% 60,0% 13,3% 92,3% 7,7% - 100,0% 71,4% 14,3% Bauknecht 12 58,3% 41,7% - 75,0% - 72,7% 27,3% - 81,8% 100,0% - Electrolux 12 33,3% 58,3% 8,4% 41,7% 8,3% 87,5% 12,5% - 90,9% 83,3% - Ignis 11 - 54,5% 45,5% 18,2% 54,5% 80,0% - 20,0% 66,7% 20,0% 60,0% Eumenia 11 80,0% 20,0% - 100,0% - 100,0% - - 100,0% - - Zanussi 11 36,4% 63,6% - 63,6% - 90,9% 9,1% - 100,0% 100,0% - Allarvélar 46,5% 39,9% 13,7% 59,9% 16,4% 87,5% 9,7% 2,8% 86,5% 79,2% 5,3% Fjórar gerðir þvottavéla, General Electric, Westinghouse, Zanussi og Eumenia fá 100% meðmæli eigenda í könnun sem Neytendasamtökin gerðu á reynslu eigenda af þvottavél- um og birt er í nýjasta hefti Neyt- endablaðsins. Fimm aðrar tegundir fara yflr með- altalið í könnuninni en það eru AEG, Miele, ASEA, Siemens og Wölund sem allar fá meðmæli meira en 87-98% eigenda. 60% eigenda Ignis þvottavéla voru óánægðir með þjónustu seljenda og 20% þeirra voru óánægðir með þvottavélina en það var hæsta hlut- fall sem mældist í könnuninni. Könnunin náði til 1.174 heimila og kom í ljós að AEG er algengasta þvottavélin en hún var til á 256 heim- Fjórar gerðir þvottavéla með 100% meðmæli. ilum. Philco var til á 195 heimilum en Candy á 170. 59,9% vélanna höfðu' aldrei bilað en 11 vörumerki voru yfir þessu meðaltali og var Eumenia eina teg- undin sem aldrei hafði bilað en næst kom Miele með 91,3% sem aldrei höfðu bilað. Næst kom Siemens með 85,9%, þá Asea með 80% og General Electric með 80%. Bilanir voru algengastar í Ignis en 54,5% þeirra höfðu bilað tvisvar eða oftar en Ignis á hlutfallslega flestar vélar í elsta hópnum. Næsthæsta bil- anatíðni hafði Philips eða 33,3% en aðrar vélar sem fara yfir meðaltalið í þessum efnum eru Philco með 22,6%, Candy með 22,4% og Wölund með 17,6%. Nýrri þvottavélar eru flestar með stiglausa hitastillingu eða alls 50,8% af heildinni en 43,7% þeirra voru með stillanlegan vinduhraða. 912 þvotta- vélum eða 86,9% fylgdi islenskur leiðarvísir. Fjórar tegundir skera sig úr að þessu leyti þ.e. Electrolux, Gen- eral Electric, Westinghouse og Zan- ussi en meira en helmingi þeirra fylgdi ekki íslenskur leiðarvísir. Ekki er vitað hvort vélarnar voru keyptar hér á landi eða erlendis. -Pá Saltfiskur er sælgæti: Sérstök saltfiskvika Sölusamband íslenskra fiskfram- leiðenda gengst fyrir sérstakri salt- fiskviku sem stendur til mánaða- móta og hófst í gær. Þessa daga munu margir færustu matreiðslumenn þjóðarinnar á nokkrum þekktum veitingahúsum bjóða fjölbreytta salt- fiskrétti sem ekki hafa sést á íslensk- um matseðlum áður. Kjörorð vik- unnar er: Saltfiskur er sælgæti. Sex veitingahús í Reykjavík taka þátt í saltfiskvikunni. Þau eru: Þrír frakkar, Naustið, Við Tjörnina, Hótel Saga, Múlakaffi og Lauga-ás. Þá kynnir veitingahúsið Fiðlarinn á þakinu á Akureyri íslenska saltfisk- inn þessa daga. Fjölbreytt úrval girnilegra saltfiskrétta verður í boði. Sömuleiðis verða vörukynningar í Miklagarði við Sund, Hagkaupi í Kringlunni og í Hagkaupi og KEA á Akureyri. Þar gefst almenningi kost- ur á að smakka á sýnishornum og Neytendur fá svör við spurningum um verkun, vinnslu og matreiðslu á saltfiski. Fjölmargar uppskriftir frá mörgum löndum munu liggja frammi í versl- ununum. Á síðasta ári voru flutt úr 56 þús- und tonn af saltfiski að verðmæti 10 milljarðar króna. Helstu markaðir eru í Suður-Evrópu. Þróun innan saltfiskiðnaðarins hefur verið ör á undanförnum árum og söltunarað- ferðir hafa breyst. Síðastliöið ár voru flutt út um 700 tonn af fiskréttum í neytendaumbúðum og standa vonir til þess að á þessu ári verði 1.500 tonn flutt út. Samband íslenskra fiskframleið- enda hvetur landsmenn til að láta eftir sér að prófa nýjungar í matar- gerð og velja um leið íslenskt hráefni sem er þekkt að gæðum um allan heim. -Pá Saltfiskur verður kynntur almenningi sérstaklega út vikuna sem hefur verið útnefnd sérstök saltfiskvika. Hitaveita Seltjamarness: Mælar í stað hemla - vilja draga úr vatnsnotkun Ákveðið hefur verið að setja upp mæla í stað hemla áður í dreifi- kerfl Hitaveitu Seltjarnarness. Haf- ist verður handa við verkið á næst- unni. „Þetta er gert fyrst og fremst til þess að reyna að draga úr heildar- vatnsnotkun á svæðinu," sagði Sig- urgeir Sigurðsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi, í samtali við DV. „Það hefur komið í ljós að heita vatnið er ekki óþrjótandi eins og menn hafa fram til þessa haldið. Mjög miklu hefur verið dælt úr holum Hitaveitunnar og dælingin er dýr. Viö vonumst til þess að notkunin jafnist út þannig að notk- unin verði minni á sumrin en ef til vill meiri á veturna." Sigurgeir kvaðst reikna með að breytingin yrði til þess að stórir neytendur greiddu meira en áður en heitir pottar við hús og upphit- aðar gangstéttar eru algengar á Seltjarnarnesi. Smærri neytendur ættu hins vegar að greiða minna eftir breytinguna en áður. Reiknað væri með sömu heildartekjum Hitaveitunnar þrátt fyrir minni vatnsnotkun. „Hitaveitan er vel stæð og það er reiknað með að hún geti vel tekið það á sig þó vatnsnotkun og þar með tekjur hennar minnki eitt- hvað.“ -Pó Lýsi lækkar blóðþrýsting Samkvæmt rannsóknum nor- skra lækna getur regluleg neysla lýsis lækkað blóöþrýsting. Þetta kemur fram í nýjasta hefti New England Journal of Medicine. Tilraunin fór þannig fram að 78 sjálfboðaliðum voru gefin 6 grömm af lýsi, daglega í sex vikur. Blóð- þrýstingur þátttakenda lækkaði að meðaltali um þrjú stig. Það kom einnig í ljós að inntaka lýsisins hafði engin áhrif á blóð- þrýsting þeirra sem neyttu að jafn- aði þriggja fiskmáltíða í viku hverri. Niðurstaðan varð því sú að lýsið hefði jákvæð áhrif á blóð- þrýsting þeirra sem ekki neyttu mikils fisks fyrir. Þessar niðurstöð- ur eru samhljóða niðurstöðum danskra rannsóknaraðila sem birt- ar voru á síðasta ári og sýndu já- kvæö áhrif lýsis á blóöþrýsting sykursýkisjúklinga. -Pá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.