Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1990, Page 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 1990.
Menning
Háskólasöngur
Háskólakórinn undir stjóm Guðmundar
Óla Gunnarssonar hélt tónleika í Langholts-
kirkju síðastliðinn fostudag.
Efnisskráin, sem var mjög fjölbreytt, hófst
á lagi Emils Thoroddsen, Hver á sér fegra
fóðurland? Lagið var vel flutt og kom á óvart i
hve jafnvægi var gott í röddunum þegar haft
er í huga að flestir núverandi kórfélagar
hófu starf sitt í kómum á síðasta ári.
Þjóðlög í útsetningu Hjálmars H. Ragnars-
sonar, Stóðum tvö í túni, Út á djúpið hann
Oddur dró og Grafskrift vom þvínæst flutt
og hér skiluðu hnitmiðaðar hreyfingar
stjómandans sér í fáguðum og smekklegum
flutningi.
Haust í útsetningu Jónasar Tómassonar
eldrí, Ég veit... í úts. Atla Ingólfssonar, Móð-
ir mín í kví, kví í úts. Jakobs Hallgrímssonar
og Guð þeim launi í úts. Gunnars Reynis
Sveinssonar voru einnig vel flutt utan upp-
haf lagsins Ég veit... sem var óömggt og
fálmandi.
Trúarlegir söngvar
Þá komu bæði fegurstu og efnismestu lögin
sem flutt voru fyrir hlé, en það voru Gamalt
vers eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Heyr,
himna smiður eftir Þorkel Sigurbjörnson og
Tónlist
Áskell Másson
O sacrum convivium! eftir franska tónskáld-
ið Olivier Messiaen. Þessi fagra kirkjulega
tónlist naut sín vel í mikilli hijóman kirkj-
unnar. Geta má að hið erfiöa, en jafnframt
magnaða lag Messiaen var hér flutt án stuðn-
ings orgelsins sem telja verður kórnum til
tekna.
Síðasta verkið fyrir hlé var Vals fyrir tal-
kór og slagverk eftir austurrrísk-ameríska
tónskáldiö Ernst Toch. Eins og við mátti
búast byggist verkið aðallega á rymtmískum
hugmyndum og samhengislausum texta sem
oft verkar á skondinn hátt. Hér var hin ryt-
míska snerpa tæplega nóg og gott hefði verið
að láta slagverksleikara sjá um ásláttarhljóð-
færin svo úr þeim kæmi betri hljómur.
Þjóðlögin Ókindarkvæði, Blástjarnan,
Húmar aö og Tíminn líður í útsetningum
Áma Harðarsonar tóku við eftir hlé. Öll voru
þau mjög vel flutt en einkum það fyrsta og
síðasta.
Sapientía - um viskuna
Lög Ingunnar Bjarnadóttur, Vor og Um
glókoll og Sumartunglið í úts. Hróðmars Inga
Sigurbjörnssonar stóðu fyrir sínu sem e.k.
alþýðumúsík, en þá var komið að frumflutn-
ingi verksins Sapientia eftir Þorstein Hauks-
son. Verkið var sérstaklega samið fyrir Há-
skólakórinn fyrr á þessu ári. Það hefst á ein-
um mjög löngum tóni sem litaður er með
textanum, áherslum og styrkleikabreyting-
um. Smátt og smátt myndast tónfrymi sem
eru endurtekin í sífellu og mynda stöðugan
rytma. Gaman hefði verið að hafa íslenska
þýðingu á latneska textanum, en verkið var
engu að síður áhrifamikið og ber höfundin-
um gott vitni um öguð vinnubrögð.
Sute de Lorca eftir finnska tónskáldið
Einojuhani Rautavaara við texta Garcia
Lorca er skemmtilega skrifuð tónsmíð fyrir
raddir og var flutningur Háskólakórsins
einkar vandaður.
Úr útsæ rísa íslands fjöll eftir Pál ísólfsson
var kröftuglega sungið svo sem vera ber.
Segja má að Guðmundur Óli hafi náð
undraverðum árangri með kómum á ekki
lengri tíma. Góður textaframburður og jafn-
vægi í röddum er þegar til staðar og verður
spennandi að fylgjast með frekari fágun
kórsins á næstu misserum.
Andlát
Sigríður Guðmundsdóttir, Hrafnistu,
Hafnarfirði, áður til heimilis í
Fellsmúla 11, lést í Vífilsstaðaspítala
sunnudaginn 25. mars.
Jarðarfarir
Þóra Carlsdóttir frá Stöðvarfirði,
Smáratúni 8, Keflavík, andaðist í
Sjúkrahúsi Keflavíkur laugardaginn
24. mars. Útförin fer fram frá Kefla-
víkurkirkju fóstudaginn 30. mars kl.
14.
Jens Friðrik Jóhannesson bifvéla-
virki, Brávallagötu 42, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Langholts-
kirkju fimmtudaginn 29. mars kl.
13.30.
Guðmundur Jónsson frá Steinsvaði,
sem andaðist 17. mars, verður jarð-
sunginn frá Kirkjubæjarkirkju mið-
vikudaginn 28. mars.
Guðný Jóhanna Jóhannsdóttir frá
Skálmardal verður jarðsungin frá
Hafnarfj aröarkirkj u miðvikudaginn
28. mars kl. 13.30.
Sveinbjörn K. Árnason lést 17. mars.
Hann fæddist í Ólafsvík 2. júlí 1904,
sonur hjónanna Ingibjargar Jóns-
dóttur og Áma Sveinbjömssonar.
Sveinbjöm starfaði í rúm 40 ár í
Haraldarbúð en árið 1959 keypti
hann Fatabúðina við Skólavörðustig
og rak hana fyrst ásamt eiginkonu
sinni og síðar með dætmm sínum
allt til enda ársins 1989. Hann giftist
Súsönnu M. Grímsdóttur en hún lést
árið 1987. Þau hjónin eignuðust þijár
dætur. Útför Sveinbjöms verður
gerð frá.Dómkirkjunni í dag kl. 15.
Haukur Þorleifsson lést 15. mars.
Hann fæddist á Hólum í Homafirði
31. desember 1903, sonur Þorleifs
Jónssonar og Sigurborgar Sigurðar-
dóttir. Haukur lauk stúdentsprófi
1928. Hann stundaði stærðfræði- og
hagfræðinám í Þýskalandi frá 1928
til 1932. Hann hóf störf í Búnaðar-
banka íslands síðla árs 1932, fyrst í
kreppulánasjóði en varð síðan aðal-
bókari bankans. Haukur var tví-
kvæntur. Fyrri kona hans var Ást-
hildur Gyða Egjlson en þau slitu
samvistum. Þau eignuðust 4 böm.
Síðari kona Hauks er Ásta Bjöms-
dóttir. Útfor hans verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.
Tilkynningar
Safnaðarfélag Ásprestakalls
verður með páskabingó í safnaðarheimil-
inu fimmtudaginn 29. mars nk. og hefst
það kl. 20.30. Allir velkomnir.
Hallgrímskirkja
Samvera aldraðra á miðvikudaginn, 28.
mars, kl. 14.30 í Safnaðarsalnum. Sr.
Karl Sigurbjömsson sýnir myndir frá
Ameríkudvöl.
Sókn til sigurs
Um næstu mánaðamót, helgina 31. mars
til 1. apríl, fer fram landssöfnun Krabba-
meinsfélags fslands undir kjörorðinu
„Sókn til sigurs" mn land allt. Kvenfélag-
ið Seltjöm sér um stjóm og skipulag söfn-
unarinnar á Seltjamamesi. Sjálfboðalið-
ar em beðnir að gefa sig fram í síma
611421 (Ema) og 612324 (Bára).
Félag eldri borgara
Göngu-Hrólfar hlaupa 1. apríl til ArgenÞ
ínu. Haldið upp á eins árs afmælið. Upp-'
lýsingar á skrifstofu eldri borgara.
Fyrirlestrar
Fyrirlestur á vegum
Alliance Francaise
Alliance Francaise býður upp á fýrirlest-
ur um franska málaralist á 19. öld mið-
vikudaginn 28. mars kl. 17 á bókasafni
Alliance Francaise, Vesturgötu 2. Fyrir-
lesturinn verður fluttur á frönsku af
Nathalie Jacqueminet, listfræðingi frá
Louvre listaskólanum.
Fundir
Kvenréttindafélag íslands
verður með fund á Hallveigarstöðum,
Túngötu 14, kjallara, miðvikudaginn 28.
mars kl. 18-22. Dagskrá: 1. réttindi sjúkl-
inga - Dögg Pálsdóttir, lögfræðingur í
Heilbrigðisráðuneytinu. 2. siðareglur
heilbrigðisstétta - Vilborg Ingólfsdóttir,
hjúkmnarfræðingur hjá Landlæknisem-
bættinu. 3. árekstrar laga og siðareglna
- Garðar Gíslason borgardómari. 4.
árekstrar siðareglna - Vilhjálmur Áma-
son siðfræðingur. Á boðstólum verður
léttur kvöldverður.
Tónleikar
Háskólatónleikar
Miðvikudaginn 28. mars kl. 12.30 munu
Hrönn Hafliðadóttir og Þóra Fríða Sæ-
mundsdóttir halda tónleika í Norræna
húsinu. Á efnisskránni era sönglög eftir
Gustav Mahler (1860-1911) við texta eftir
Ruckert og úr Des Knaben Wunderhom.
Tónleikar í Norræna húsinu
Tónlistarskólinn í Reykjavík heldur tón-
leika í Norræna húsinu kl. 20.30 miðviku-
daginn 28. mars nk. Tónleikamir era
fyrri hluti einsöngvaraprófs Sigurdrífar
Jónatansdóttur messósópran frá skól-
anum. Á efnisskránni era sönglög eftir
Mozart, Schumann, Granados, Mahler,
Jón Þórarinsson og Atla Heimi Sveins-
son. Lára Rafnsdóttir leikur með á píanó.
Sigurdríf hefur stundað nám við söng-
deild Tónlistarskólans frá 1981 og hefur
Ellsabet Erlingsdóttir verið kennari
hennar. Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
LOKAÐ
VEGNA JARÐARFARAR
Lokað vegna jarðarfarar Sveinbjörns Árnasonar
kaupmanns e. kl. 14 í dag.
S. Ármann Magnússon, heildverslun
Skútuvogi 12 J
Fólk og fyrirburðir
Þótt hún sé búsett á Englandi nýtur Karólína Lárus-
dóttir listmálari feikimikillar lýðhylli hér heima. Sýn-
ingar hennar seljast upp á augabragði, verk eftir hana
er að finna á ólíklegustu stöðum í bænum, þjóðkunnir
menn syngja henni lof og prís á opinberum vettvangi
og bráðókunnugt fólk finnur hjá sér hvöt til að hafa
samband við okkur blaðamenn og láta í ljós velþóknun
sína á myndum hennar.
Ég verð að játa að mér er ekki vel ljóst hvemig á
þessum vinsældum Karólínu stendur, því í verkum
hennar er ekki að finna neitt það sem hrífa ætti sæmi-
lega upplýstan listunnanda upp úr skónum. Og í sam-
anburði við marga íslenska listmálara er notkun henn-
ar á vatnslitum meira að segja fremur bragðdauf.
Ekki hefur listakonan heldur náð fullu valdi á dú-
kristu, ef marka má (uppselda) sýningu hennar í Ný-
höfn við Hafnarstræíi.
Þar að auki er hún alveg á skjön við íslenska mynd-
listarhefð, en eins og margir vita er yfirleitt erfitt að
fá íslendinga til að gefa gaum að list sem gengur út
frá öðrum forsendum en „íslenskum“.
í rauninni eru verk Karólínu angi af breskum meiði,
launkímnum ýkjustíl Stanleys Spencers og sporgöngu-
manna hans annars vegar og varfærnislegri ljóðrænu
breskrar vatnslitalistar hins vegar.
Ein af vatnslitamyndum Karólínu á sýningunni í Ný-
höfn.
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
Hvorki bátar né hross
í verkum hennar fer lítið fyrir þekktu landslagi,
báta lætur hún alveg eiga sig, hross höfða sýnilega
ekki til hennar og blæbrigði íslenskrar birtu eru víðs
fiarri.
En þótt yfirbragð mynda hennar sé ekki sérstaklega
íslenskt, er eins og hún hafi náð að koma við einhvem
nostalgískan streng í brjóstum margra íslendinga á
miðjum aldri.
Myndir hennar eru kankvíslegar en um leið mátu-
lega óræðar frásagnir af fólki og fyrirburðum á árun-
um um og eftir stríð - sjálf er Karólína ekki fædd fyrr
en 1944 - og sýnir tilveru sem virðist í fastari skorðum
og þrungin meiri öryggiskennd en sú sem við búum
við í dag.
Sjálft fólkið er einhvern veginn traustlegra og áreið-
anlegra aö sjá en það fólk sem við mætum í nútíman-
um. Það gerir efnismikill fatnaðurinn, úlsterfrakkam-
ir og flauelskjólarnir, sem það íklæðist og okkur finnst
að hljóti að hafa verið vandaðri að gerð en nútímaföt.
Þetta er sömuleiðis fólk sem virðist ekki þekkja hug-
takið „firring“. Hvort sem það tekst á loft í gleði eða
lætur bugast af búksorgum, em vinir og vandamenn
jafnan nærri til að deila meö því kjörum.
Sennilega er það þessi notalega veraldarsýn með sínu
„gamaldags" yfirbragði sem höfðar svona sterkt til
íslendinga í lífsgæðakapphlaupi.
Sýningu Karólínu Lárasdóttur í Nýhöfn lýkur mið-
vikudagskvöldið 28. mars.
-ai.
Fjölimðlar
Margir kokkar
Það vora margir kokkar skrifaðir
fyrir fiölbreyttum matseðli í þættin-
um Svona sögur í Ríkissjónvarpinu
í gærkvöldi. Þarna voru reyndar
mættir á skjáinn dagskrárgeröar-
merm af dægurmáladeild útvarps-
ins. í hógværri sannfæringu um eig-
ið ágæti hafa þeir ákveðiö að troða
upp í sjónvarpinu með reglulegu
miliibili.
Þaðliggurviðaðmanniþykinóg
um hve fjölbreyttur þátturinn er þvi
það er ekki laust viö að stílbrot
my ndist þegar skotist er á milJi við-
fangsefna. Harmræn frásögn um
öriög eyðnisjúklings fór til dæmis
frekar illa í magann eftir að hafa
horftá tvo gamla sjómenn útskýra
meðhöndlun þorskhauss fyrir okk-
ur. Aö sjálfsögðu var frásögn sjúkl-
ingsins og konu hans eftirtektar-
verð enda hafði hún birst áður í einu
dagblaðanna.
Umgerð þáttarins er þó að mörgu
leyti forvitnileg og sérstaklega hefur
tekist vel til með grafíkina á milli
atriða.
Það var þungt yfir Bjarna Fel.
þegar hann loksins komst að meö
íþróttirnar enda sjálfsagt orðinn
langþreyttur á því að þurfa að líða
fyrir lélegar timasetningar annara.
íþróttaþátturinn er ekki langur en
eigi að síður er hann yfirleitt notaö-
ur til að stilla af dagskrána og því
umhugsunarlaust skoriö aftan af
honum.
Sem oftarfengu íþróttaaðdáendur
þvi aðeins reykinn af réttunum því
þó að Bjarni hafi keyrt þáttinn í
gegn af mikili hörku er ekki hægt
að sýna mikið á tæpum tuttugu mín-
útum. SigurðurM. Jónsson