Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1990, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1990.
7
Fréttir
Sambandsmenn með tæp tvö tonn af gammatoxi:
Vilja selja eitrið
til þriðja heimsins
- þar sem notkun á efninu er bönnuð á Vesturlöndum utan íslands
Samband íslenskra samvinnufé-
laga íhugar nú aö flytja út um 1,8
tonn af gammatoxi, baðdufti sem
notaö hefur veriö til sauöfjárböðun-
ar, til einhvers þriðja heims ríkis þar
sem notkun á þessu efni hefur ekki
verið bönnuö. Ástæðan er sú aö
bændur hafa stórlega dregið úr notk-
un efnisins þó það hafi ekki verið
bannað af yfirvöldum hér.
Gammatox var notað hér til böðun-
ar, sótthreinsunar á útihúsum og til
aö eyða lús á hestum og kúm. Efnið
er að fimmtungi eiturefnið lindan en
það efni getur verið banvænt mönn-
um og dýrum. Efnið brotnar hægt
niður og hefur því getað valdið mikl-
um skaða þegar baðvatni var hellt.
Auk þess hefur efnið fundist í smjöri
sem gert hefur verið úr mjólk af
bæjum þar sem gammatox hefur ver-
ið notað til að eyða lús á kúm.
Að sögn Brynjólfs Sandholt yfir-
dýralæknis hefur notkun á efninu
minnkað á undanfórnum árum þar
sem ný stungulyf hafa komið á mark-
aðinn sem gera sama gagn og eyða
auk þess ormum í sauðfé. Við mæl-
ingar á sýnum af lambakjöti, sem
send voru út til Þýskalands árið 1988,
fundust engar leifar af lindan.
Eins og áður sagði hefur notkun
efnisins verið bönnuð víðast hvar á
Vesturlöndum. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Sambandi íslenskra sam-
vinnufélaga hafa það einkum veriö
hestamenn sem keypt hafa efnið að
undanfornu en þeir nota það til að
eyða lús. Vegna minni notkunar sit-
ur Sambandið uppi með um 1.775
kíló af gammatoxi sem geymt er í
læstum gám. Hugmyndir hafa verið
uppi innan fyrirtækisins um að losna
við efnið þar sem lítil von sé um að
það seljist. Líklegast er að efnið verði
selt til einhvers þróunarlands þar
sem notkun á gammatoxi hefur ekki
veriðbönnuð. -gse
Kaupmannahöfh:
íslendingar
skipuleggja
áfengis-
meðferð
Yfirvöld á Frederiksbergspítalan-
um í Kaupmannahöfn hafa ákveðið
að opna sérstaka göngudeild fyrir
áfengissjúklinga í tilraunaskyni þar
sem unnið verður eftir Minnesotaaö-
ferðinni í meðferð áfengissjúklinga.
Göngudeildarfyrirkomulagið mun
verða það sama og Betty Ford Clinic
í Bandaríkjunum notar. Er þetta í
fyrsta skipti sem opinber stofnun í
Danmörku opnar dymar fyrir
Minnesotaaðferðinni, sem þekkist
frá Vogi og Sogni og stunduð var á
Von Veritas stöðinni í Danmörku
áður en hún varð gjaldþrota. Fram
til þessa hefur Minnesotaaðferðin
sætt töluverðri gagnrýni í Dan-
mörku.
Niels Björum, yfirlæknir geðdeild-
ar spítalans, hefur skipulagt starf-
semi þessarar göngudeildar ásamt
tveimur íslenskum áfengisráðgjöf-
um, Gizuri I. Helgasyni og Guðrúnu
Ó. íslandi, sem unnu á Von Veritas.
Nokkur fjármögnun er eftir en leitað
hefur verið til ýmissa sjóða eftir íjár-
magni. Gangi fjármögnun göngu-
deildarstarfseminnar upp er ráðgert
að hefja starfsemina 1. maí. -hlh
' ■
■
Dagur jarðar var haldinn hátíðlegur á sunnudag og í tilefni þess var efnt til skemmtigöngu um Öskjuhlíð. Útsýnis-
húsið á öskjuhlið var opnað í tilefni dagsins og fólki gafst kostur á að virða fyrir sér útsýnið þaðan. Boðið var upp
á grillaðar pylsur og gosdrykki. DV-mynd BG
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 3 Allir
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 3-6 Ib
6 mán. uppsögn 4-7 Ib
12mán. uppsögn 4-8 Ib
18mán. uppsögn 15 Ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir ncma Ib
Sértékkareikningar 3 Allir
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6 mán. uppsögn 2.5-3.0 Lb.Bb,- Sb
Innlán meðsérkjörum 2.5-3 Lb.Bb,- Sb
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 7-7,25 Sb
Sterlingspund 13.6-14.25 Sb
Vestur-þýsk mörk 6.75-7.25 Sb
Danskarkrónur 10.5-11 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR {%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv) 13.0 13.75 Sb
Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgenqi
Almennskuldabréf 14 Allir
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgcngi Allir
, Hlaupareikningar(yfirdr.) 16.5-17,5 Bb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 7,5-8,25 Lb.Bb
Utlántilframleiðslu
Isl. krónur 13.75-14.25 Bb
SDR 10,95-11 Bb
Bandarikjadalir 10,15-10.25 Bb
Sterlingspund 15.85-17 Bb
Vestur-þýsk mörk 10-10.25 Allir nema Ib
Húsnæðislán 4.0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 26
MEÐALVEXTIR
óverðtr. april 90 18.7
Verðtr. april 90 7.9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala april 2859 stig
Lánskjaravisitala mars 2844 stig
Byggingavísitala april 535 stig
Byggingavisitala april 167.4 stig
Húsaleiguvísitala 1,8% hækkaði 1. april.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,817
Einingabréf 2 2.637
Einingabréf 3 3.170
Skammtimabréf 1.637
Lifeyrisbréf
Gengisbréf 2.112
Kjarabréf 4.769
Markbréf 2.541
Tekjubréf 1.953
Skyndibréf 1.428
Fjölþjóöabréf 1.270
Sjóðsbréf 1 2.318
Sjóðsbréf 2 1.739
Sjóðsbréf 3 1,620
Sjóðsbréf 4 1.371
Vaxtasjóðsbréf 1.6370
Valsjóðsbréf 1.5400
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 600 kr.
Eimskip 413 kr.
Flugleiðir 136 kr.
Hampiðjan '190 kr.
Hlutabréfasjóður 176 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 185 kr.
Skagstrendingur hf. 373 kr.
islandsbanki hf. 158 kr.
Eignfél. Verslunarb. 158 kr.
Olíufélagið hf. 415 kr.
Grandi hf. 162 kr.
Tollvörugeymslan hf. 120 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavixlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb = Útvegsbankinn,. Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast í DV á fimmtudögum.
Erum að taka upp glænýja sendingu af
frábærum tölvuleikjum fyrir ATARI, PC,
AMIGA, COMMANDORE 64, AMSTRAD,
og SPECTRUM.
Eigum einnig
mikið úrval af
fylgihlutum fyrir tölvur
Hafnarstræti 5, 2. hæð
s. 21860 - 624861