Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.1990, Side 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 1990.
Spurmngin
Manstu hvað lag íslands
í Evrópusöngva-
keppninni heitir?
Hannes Lárusson myndlistarmaður:
Jú, er það ekki Eitt lag enn?
Hildigunnur Kristinsdóttir, 9 ára:
Eitt lag enn.
Margrét Konráðsdóttir nemi: Það
heitirEitt lag enn
Skúlína Kristinsdóttir nemi: Eitt lítiö
lag, er það ekki? Nei annars, það
heitir Eitt lag enn.
Hilma Einarsdóttir nemi: Ég man það
ekki.
Harpa Kristin Einarsdóttir nemi: Eitt
lag enn.
Lesendur
Orðsending til
kjósenda landsins
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Ég veit að við kjósendur erum
allir sammála um að stjórnarfar á
íslandi er nú það versta sem við
höfum búið við í 70 ár og stafar það
mest af því að við erum með fimm
eða sex flokka á þingi, í stað þess
að hafa bara tvo flokka, vinstri og
hægri. Enda er ríkisstjórnin sundr-
uð og engin samstaða milli flokk-
anna, og vegna sundrungar koma
þeir engum góðum málum fram til
þjóðarinnar.
Þessu verðum við kjósendur að
breyta með því að kjósa bara tvö
öfl næst þegar kosið verður. Stein-
grímur Hermannsson á að segja af
sér. Flokkur hans er búinn að vera
lengst allra flokka á þingi. ísland
er að verða skuldugasta þjóð í
heimi og það er algjörlega Fram-
sóknarflokknum að kenna, hann
var alltaf að taka lán á hverju ári.
Nei, eina persónan á þessari öld,
sem mest gagn hefur gert þjóðinni,
er hinn elskulegi og sanni forseti.
Vigdís hefur gert þjóð okkar meira
gagn heldur en alhr frammámenn
þjóðarinnar til samans og minnist
ég þess helst þegar hún var í Asíu
og Afríku. Áður vissu þessar þjóðir
ekki að ísland væri til, svo og fleiri
þjóðir sem hún heimsótti sem nú
eru góöir viðskiptavinir okkar,
kaupa af okkur bæði landbúnaðar-
afurðir og sjávarafurðir.
Einn framsóknarmaður, sem ég
vil ekki missa af þingi, er Halldór
Ásgrímsson, enda hafa Austfirð-
ingar átt helstu þingmennina sem
setið hafa á Alþingi. Hahdór er
besti þingmaður á Alþingi í dag en
hann er bara í röngum flokki.
Kvenþjóðin í landinu á að taka
stjórn landsins í sínar hendur, það
er tími til kominn. Þið konur eigið
að afmá þetta karlaveldi. Þetta get-
ið þiö gert með því að kjósa
Kvennalistann, hann yrði þá næst-
stærsti flokkur landsins og ekki
yrði mynduð ríkisstjórn án þess
kræfa flokks.
Það eiga að fara fram kosningar
í vor og framsóknarmenn eiga að
vera heima það sem þeir eiga efir
ólifað. Kjósendur eiga ekki að gefa
þessum mönnum kost á því að
koma nálægt þingi, þangað hafa
þeir ekkert að gera. Annars er nóg
að hafa 30 menn á þingi.
Mér finnst að Davíð eigi að setj-
ast í stóhnn hans Steingríms því
hann er eini íslendingurinn sem
getur stjórnað þessum hólma. Dav-
íð hefur allt til brunns að bera sem
einn fulltrúi þarf, og hann er eini
íslendingurinn sem ég get ímyndað
mér aö geti tekið þetta að sér.
Jóhann telur Halldór vera í röngum
getur stjórnað landinu.
flokki og Davíð þann eina sem
Sólveig ráðleggur fólki að taka dúnsængina með í sólarlandaferðina.
Dúnsængin með
til Benidorm
Sólveig skrifar:
Ég var búin aö hlakka til að fara
úr svelhnu því ég á mjög örðugt með
gang.
Til Benidorm kom ég 19. mars. Það
var svo þröngt í vélinni að ég, sem er
í hæsta lagi eins og 12 ára tfl hnés-
ins, sat eins og í skrúfstykki en vin-
kona mín, sem er nýbúin að bijóta á
sér hægri hnéskelina, var svo lánsöm
að hún fékk gangpláss og gat því
smeygt fætinum þegar ekki var verið
að nota gangplássið.
Nú komum við hingað í besta veðri
og hótehð var fyrsta flokks og allur
aöbúnaður góður. Mér finnst bara
sport aö fara út með ruslið því ég get
hvort sem er ekki sofið eftir kl. 5 og
6 á morgnana.
En þá var ég svo heppin að ég út-
bjó mig eins og ég væri að fara í jökla-
ferð því á nóttunni verður maður að
kappklæða sig enda hafa margir
fengið flensu og jafnvel lungnabólgu.
Kjartan, María, Friðrika og Bryndís
eru öll englar sem gera allt fyrir okk-
ur sem þau geta. Sama er að segja
um Spánverjana. Því segi ég, takið
með ykkur dúnsængina og peysu.
Niimbergáný?
Guðmundur Guðmundsson skrifar:
Eins og kunnugt er voru réttarhöld
mikfl á vegum bandamanna eftir lok
síðari heimsstyrjaldarinnar. Þar
komu margir nasistaleiðtogar fyrir
dóm en ekki þó nærri allir úr þeim
hópi. Sumir höfðu svipt sig lífi, t.d.
Adolf Hitler og Heinrich Himmler,
aðrir fallið, t.d. Reinhard Heydrich,
og enn aðrir sluppu. En líflátsdómar
voru kveðnir upp yfir ýmsum í
Núrnberg í októbermánuði 1946. í
þeim hópi voru m.a. Hermann Gör-
ing, Alfred Jodl, Wilhelm Keitel og
Emst Kaltenbmnner. Nokkrir voru
sýknaðir í Nurnberg, t.d. dr. Hjalmar
Schacht (1877-1970), hinn frægi íjár-
málasnfllingur Þjóðveija.
En því er þetta rifjaö upp hér, að
nú loks hafa Rússar viðurkennt
fjöldamorð á Pólveijum, sem þeir
höfðu áður haldið fram um áratuga-
skeið, að Þjóðveijar hefðu tekið af
lífi. Framkoma kommúnistaleiðtog-
anna í Rússlandi var annars hin sví-
virðilegasta. Rétt fyrir upphaf heims-
styrjaldarinnar síðari hétu Rússar
Pólveijum hernaðaraðstoð, ef á þá
yrði ráðist. Sömdu því næst við Þjóð-
veija um skiptingu póllands, réðust
því næst að baki Póiveijum inn í land
þeirra og frömdu síðan fjöldamorð
þau er áður getur. Sagnfræðingar
margir halda því raunar fram að það
séu ekki öll kurl komin til grafar.
En nú mun margur spyija: Er ekki
full þörf nýrra „Núrnberg" réttar-
halda? Sumir munu þó e.t.v. segja
að flestir séu þeir dauðir sem þarna
báru sökina. Ekki eru þó allir dauðir
sem þarna komu viö sögu og fjöl-
mörg dæmi eru þess að menn hafi
verið dregnir fyrir rétt vegna stríðs-
glæpa eftir íjöldamörg ár frá verkn-
aðinum, t.d. Adolf Eichmann o.fl.
Þegar sá er þetta ritar var ungur
maður á fjórða áratug þessarar aldar
kannaðist hann við tvo bændur í
sinni sveit er áttu sinn hundinn hvor.
Hundar þessir hétu Hitler og Stafln.
Báðir voru hundar þessir grimmir
en sá var munur þeirra að Hitler
réðst jafnan beint að fórnarlambinu
en Stafln úr launsátri.
Hver fann
umslagið?
Einn niðurbeygður hringdi:
Ég varð fyrir einstakri flfs-
reynslu fyrir um það bil einum og
hálfum mánuði og hef verið niður-
beygður maður síðan.
Svo er mál með vexti að þann 27.
febrúar fór ég með vinafólk mitt
suður á KeflavíkurflugvöU þar sem
það var á leið úr landi. Ég var beð-
inn fyrir 50.000 krónur sem voru í
venjulegu hvítu umslagi og taldi
ég mig hafa stungið umslaginu í
gamla venjulega skólatösku sem ég
er alltaf með.
Á leiðinni heim á Eiríksgötu kom
ég við í Rafhabúðinni í Hafnarfiröi
en milli kl. 18 og 19 sama dag finn
ég hvergi umslagið. Það er það eina
sem hefur horfið úr töskunni og
hefur ekki fundist. Ég skil töskuna
aldrei eftir í bílnum ef einhver
verðmæti eru í henni. Spurningin
er því sú hvort umslagið hefur dott-
ið þegar ég var að fara inn í bílinn
á Keflavíkurflugvelfl, við Rafha-
búðina í Hafnarfirði eða þegar ég
fór út úr bílnum á Eiríksgötunni.
Ég hef þá trú að enn sé til heiðar-
legt fólk en hafi heiöarleg mann-
eskja fundið umslagið var ekki
nokkur leið fyrir hana að koma því
til skfla þar sem það var ómerkt.
Mér hefur liðið mjög illa út af
þessu síðan ég uppgötvaði hvarfið
og því langar mig til aö biðja þann
sem hugsanlega hefur fundið um-
slagið, eða hvern þann sem getur
gefið mér upplýsingar um peninga-
umslagið, að hringja í mig í hs.
25628 eða vs. 22454.