Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Side 2
2
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1990.
Fréttir
Hörkuátök á aðalfundi líknarfélagsins Konan:
Skjólstæðingar grátandi
úti á götu efftir fundinn
- ségir Sigríður Sumarliðadóttir, fyrrum stjórnarmaður Félags Hvítá bandsins
„Starfsmenn SÁÁ og áhangendur
þeirra yfirtóku með litlum atkvæða-
mun líknarfélagið Konan sem rekur
áfangastaðinn Dyngjuna fyrir konur
sem koma úr meðferð eftir ofneyslu
vimuefna og eiga um sárt að binda,"
sagði Kristín Snæfells Arnþórsdóttir,
fyrrum gjaldkeri líknarfélagsins, í
viðtali viö DV.
Tildrög málsins eru þau að á mið-
vikudagskvöld var haldinn aðalfund-
ur liknarfélagsins Konunnar. Fjórir
stjórnarmenn af fimm gáfu ekki kost
á sér til endurkjörs. Tveir listar voru
boðnir fram, annar af fráfarandi
stjóm en hinn frá nýju fólki. Þegar
kosningu lauk kom í ljós að fjórir af
„nýja listanum" höfðu náö kjöri í
stjórn en einn af lista stjómarinnar.
„Mætt með sprengilista“
„Smalað var á fundinn af þeirra
hálfu og var mætt með sprengilista.
Listi var látinn ganga mfili starfs-
fólks á sjúkrastöðinni Vogi og það
beðiö um að skrifa undir en það neit-
aði. Þeir sem vora í meirihluta á
fundinum hafa skrifað sig inn í líkn-
arfélagið á síðustu dögum og þar af
þrír samdægurs. Forstöðukona
Dyngjunnar, Jóhanna Jónsdóttir,
sem er fyrrverandi starfsmaður
SÁÁ, sagði starfi sínu lausu frá fostu-
degi 8. júní næstkomandi vegna
framboðs þessa þar sem hún hefur
áður orðið bitbein valdabaráttu á
borð við þessa. Skjólstæðingar
Dyngjunnar urðu þessari valdabar-
áttu að bráð og gleymdust í yfirgangi
sem virðist vera orðinn aðalsmerki
þessara félagssamtaka.
Einokun SÁÁ-manna virðist farin
að ráða ríkjum þar sem áfengismál
eru annars vegar. Vinnubrögð þessi
eru engan veginn í samræmi við
„Á móti yfirgangi
þessa fólks“
„Ég er ekki sammála vinnubrögð-
um þessa fólks,“ sagði Jóhanna Jóns-
dóttir, fyrram forstöðumaður Dyngj-
unnar, sem sagði af sér eftir að úr-
slit kosninganna lágu fyrir.
„Þau safna saman sjúklingum sín-
um til að skipa nýja stjóm. Ég er á
móti yfirgangi þessa fólks. Stjómin
getur sjálfsagt unnið gott starf en ég
get ekki unnið með henni.“
„Þetta fólk tengist okkur“
„Það er kvenfólk sem hefur staðið
í þessu og ég er nú ekki besti maður-
inn til að svara fyrir þetta," sagði
Þórarinn Tyrfingsson, formaður
- SÁÁ.
„Allt áhugafólk er SÁÁ-fólk. Þetta
fólk tengist okkur á einn eða annan
hátt hvora fylkinguna sem það kann
að styðja. En það er fjarri mér og
SÁÁ að skipta okkur af starfsem-
inni. Við eigum bara samstarf við
fólkið."
Forstöðukona Dyngjunnar, Jóhanna Jónsdóttir, fyrir utan meðferðarheimilið í gær. Hún sagði starfi sínu lausu
strax eftir aðalfundinn. DV-mynd GVA
þann boðskap sem SÁÁ stendur fyr-
ir. Var þetta upphlaup generalprufa
fyrir aðalfund SÁÁ sem verður hald-
inn næstkomandi laugardag?" sagöi
Kristín.
„Þessar ásakanir fráleitar“
„Þessar ásakanir era fráleitar.
Þetta hefur ekkert með starfsfólk
SÁÁ að gera,“ sagði Oddný Jakobs-
dóttir, deildarstjóri SÁÁ, en hún
hlaut flest atkvæði inn í stjórn félags-
ins.
„Það komu til mín konur og spurðu
hvort þær mættu stilla mér upp á
lista. Þetta eru konur sem hafa mikla
þekkingu á málunum og hafa kynnt
sér þau vel. Það er mikilvægt að nú
er að koma inn gott fólk sem hefur
innsæi í hlutina. Málið er það að
okkur er tilkynnt að fjórir fari úr
fimm manna stjóm og því er búinn
til listi. Fráfarandi stjóm bjó einnig
til lista. Öllum félögum er hollt að fá
nýtt blóð. Mér finnst þetta gott mál.
Það er eins í þessu félagi og öllum
öðrum. Þær konur sem báðu 'mig
að koma í stjórn hafa ugglaust
hvatt fólk til þess að mæta á fund-
inn.“
Grátandi sjúklingar
eftirfundinn
„Ég er undrandi á þessu,“ sagði
Sigríður Sumarliðadóttir, fyrrum
stjórnarmaður Félags Hvíta bands-
ins. Sá félagsskapur hefur stutt
dyggilega við bakið á líknarfélaginu.
„A aðalfundi sem ég sat í fyrra
vora 10-12 manns á fundi. Ég er mjög
undrandi á því að þetta góða fólk
skyldi ekki ná kosningu. Átakanleg-
ast var þó að sjá skjólstæðinga
Dyngjunnar falla saman og gráta úti
á götu þegar niðurstöður fundarins
lágu fyrir.“
-pj
Jón Gunnar
fer fram á
miskabætur
Lögfræðingur Jóns Gunnars Ottós-
sonar, fyrrum forstööumanns Rann-
sóknastöðvar Skógræktar ríkisins að
Mógilsá, hefur sent fjármála- og
landbúnaðarráðherra bréf þar sem
farið er fram á leiðréttingur vegna
ólögmæts brottreksturs.
Eins og komið hefur fram í DV tek-
ur uppsögn hans gildi 1. október en
ráðherra hefur gert honum að víkja
úr starfinu nú þegar.
f bréfinu segir að uppsögnin skaöi
persónu Jóns og stöðu hans sem vis-
indamanns. Farið er fram á yfirlýs-
ingu og miskabætur. Ekki er nefnd
nein upphæð í þessu sambandi. Ráð-
herram er gefin vika til að svara
bréfinu annars heldur málið áfram
fyrir dómstólum.
Starfsmenn rannsóknastöðvarinn-
ar hafa skrifað landbúnaðarráðherra
bréf. í því er óskað eftir fundi með
ráðherra á mánudag þar sem farið
verður fram á starfslok. Starfsmenn
viljaekkivinnaviðþessiskilyrði. -pj
Sigurgeir í
Lánasýsluna
Sigurgeir Jónsson, ráðuneytis-
stjóri íjármálaráðuneytisins, hefur
verið skipaður forstjóri Lánasýslu
ríkisins, sem ætlað er að sýsla með
öll lán ríkissjóðs. Sigurgeir er hag-
fræðingur og hefur verið ráðuneytis-
stjóri síðan í upphafi íjármálaráð-
herratíðarÞorsteinsPálssonar. -gse
Grétar Gunnarsson, skipverji á Stakkavik frá Eyrarbakka, (t.v.) og Pétur
Guðmundsson, uppboðshaldari á Faxamarkaði i Reykjavik, velta hér fyrir
sér hvort þeir ráði við hákarlinn sem Stakkavíkin kom með að iandi i
Reykjavík. Stakkavik kom meö 6 hákarla aö landi, auk 13 tonna af lúðu,
og verða þeir sendir norður í land og grafnir þar í jörðu að gömlum sið.
DV-mynd S
Lögreglurannsókn vegna laxa í höfninni í Eyjum:
Reif bátur net í
laxeldisbúrum?
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum;
ÍSNÓ í Vestmannaeyjum hefur farið
fram á rannsókn lögreglunnar í Eyj-
um vegna þess að lax slapp úr laxeld-
isbúrum fyrirtækisins við Klettsvík,
sennilega á miðvikudag. Umsjónar-
menn fyrirtækisins telja að bátur
hafi siglt á kvíamar og skrúfan á
honum rifið netin.
Lögreglan í Eyjum vinnur nú að
rannsókn málsins og biður þá sem
kynnu að hafa orðið varir við bát í
Klettsvík fyrri hluta vikunnar að
hafa samband sem fyrst. Talið er að
ÍSNÓ hafi orðið fyriV verulegu tjóni
vegna þessa atviks. Telja á laxa í
kvíunum aftur og í vetur varð fyrir-
tækið fyrir stjórtjóni þegar um 200
þúsund laxar sluppu þaðan í óveðr-
inu mikla 9.janúar.
Hins vegar voru þeir margir sem
gripu veiðistöngina í Vestmannaeyj-
um á fimmtudaginn þegar fréttist af
laxatorfu í höfninni. Nokkrum tókst
að veiða laxa sem voru allir frekar
smáir. Skýringin á þessari laxveiði í
höfninni er sú að laxar sluppu úr
laxeldisbúrum ísnó rétt utan við
höfnina.
Sumarferðir
ráðherranna
Sumarferðir ráðherranna eru nú
að hefjast. í gær vora fjórir þeirra
erlendis. Steingrimur Hermannsson
forsætisráðherra var farinn utan að
fylgjast með kosningunum í Búlgar-
íu. Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra er í Skotlandi þar sem
utanríkisráðherrafundur NÁTO er
haldinn. Óli Þ. Guðbjartsson dóms-
málaráðherra er á ráðstefnu í Tyrk-
landi og Svavar Gestsson er í sum-
pfríi en heldur fljótlega til Len-
ingrad þar sem hann verður í fylgd-
arhði forseta íslands í óopinberri
heimsókn hennar þangað.
Ráöherrarnir hafa verið tiltölulega
heppnir með veður nema hvað Jón
Baldvin hefur mátt þola rigningar-
skúrir og kalsaveður í Skotlandi.
-gse