Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Blaðsíða 27
 39 8S hnattsiglingu voru með sína skútu 60 mílum norð- ar, á fljóti við borgina Joao Pessoa, og höfðu það nyög gott. Við ákváðum því að finna þau. Það tókst og við þetta fljót dvöldumst við með þeim og leið vel fram á haust 1985. Um haustið var siglt. í norður áleið- is að Karíbahafinu. í borginni Sao Luis beið svo bréf eftir Magnúsi og Dóru að heiman. „Börnin var farið að lengja eftir að sjá okkur eftir eins árs fjarveru. Þarna var því ákveðið að fljúga heim í eins mánaðar jólafrí. Eftir áramótin og kuldaveður á ís- landi hélt hnattferðin áfram í hlýj- unni við Brasilíu í janúar árið 1986. Magnús og Dóra komu meðal annars við í hinu fagra landi Franska- Guyana í Suður-Ameríku. „Eftir að við höfðum verið tvo daga á eynni Grenada vildi svo skemmtilega til að Krían kom inn í höfnina - alla leið frá Afríku," segir Magnús. „Nokkru síðar héldum við til eyjar- innar Margarita sem tilheyrir Venesúela. Þar var mjög gott að vera, okkur líkaði vel við fólkið og verðlag- ið var hagstætt." Lífsglaðir Kyrrahafsbúar „í ágúst 1986 sigldum við um Panamaskurð. Þá varð í rauninni ekki aftur snúið með hnattferð. í Panamaborg ríkir peningagræðgi hjá hafnaryfirvöldum. Þar stoppuðum við lítið og sigldum áfram til eyjar- innar Taboga, lögðumst þar við akk- eri, sigldum svo um Perlueyjar og þaðan til Ekvadors, til hafnarinnar Manta. Þaðan fórum við að skoða hina geysifallegu Quito, eina af hæstu höfuðborgum heims, en hún hggur á miðbaug.“ : ■ mm ■ ■ ■■■ -: ■ ■ • ' .-■• ■ , Magnús Magnússon og Dóra Jónsdóttir í káetunni þar sem stýriö er. Þau lögöu að baki tæpar fjörutíu þúsund sjómílur í hnattferðinni. Blómin á borðinu eru frá barnabörnunum. DV-mynd GVA Dóra með hópi íslendinga sem hjónin hittu af tilviljun í Ástralíu. Landarnir sáu þjóðfánann á skútunni og spurðu á ensku hvort áhöfnin væri íslensk. Þeim var svarað á ensku. Þannig hófust kynni við Ástraliufarana. linjasafnið í Vanuatu - vatnið var orð- Næst var siglt 1 vestur til eyjaklas- ans Galapagos. „Þaðan lá lengsti leggurinn á leið okkar, til Marquesa- eyjaklasans - þrjú þúsund sjómílna vegalengd og 26 daga sighng. Þá urðu viss þáttaskil í ferðinni. Nú vorum við farin aö kynnast allt öðru fólki. Austar talaði fólk rómönsk tungu- mál en á Marquesa-eyjunum og vest- ar býr fólk af austurlenskum upp- runa. Við héldum nú til Papeete, höfuöborgar Tahítí, sigldum til Samóaeyja og konungsríkisins Tonga. Þessar eyjar eru allar geysi- lega fallegar og hreinleikinn er mik- ill. Fólkið er lífsglatt og elskulegt. Þarna vorum við að kynnast fólki af ýmsum þjóðflokkum þvert yfir allt Kyrrahafið. Þarna lærir maður að aðlagast mörgum mismunandi sið- um og kurteisisvenjum." Dagur ,,týndist" hjá mannætunum Síðla sumars 1987 komu Magnús og Dóra til Fiji - mannætueyjanna. Fiji er á 180. lengdargráðu. „Þar eru dagaskilin," segir Dóra. „Þarna týnd- um við heilum laugardegi. Viö kom- um að eynni á fóstudegi en þegar við sigldum inn var kominn sunnudag- ur. En við erum nú búin að fá þenn- an dag aftur,“ segir Dóra brosandi. „Á Fiji búa innfæddir og Indveriar sem Bretar fluttu frá Asíu á nýlendu- tímabilinu. Fólkið vill ekki blandast af trúarástæðum. Indverjunum hef- ur fjölgað meira en þeim innfæddu og þeir eru orðnir miklu fleiri. Það skapar ýmis vandamál og þama er mikið um uppreisnir,“ segja hjónin. „Viö sigldum svo til Vanuatueyja- klasans. Það er ekki langt síðan fólk- ið þar át óvini sína - þaö getur meira að segja verið að svo sé ennþá. Ferða- mönnum er ekki hleypt inn á svæði þar sem afskekktir þjóðflokkar búa. Á þjóðminjasafninu á Vanuatu skoð- uðum við mannætupotta. Þeir voru nú ekki bara upp á punt hér áöur fyrr. Þama var hrollvekjandi aö sjá ýmis mannætutæki og tól,“ segir Magnús. Frá Vanuatu sigldu þau til Nýju- Kaledóníu og þaðan til Brisbane í Ástralíu. Þar héldu þau jóhn 1987 hátíöleg í 30 stiga hita. I Ástralíu dvöldu þau á ýmsum stöðum við austurströndina fram í júlí 1988. Á þeim árstíma var hagstætt að sigla yfir Indlandshaflð og var lagt upp frá Darwin. Nú var siglt til Balí í Indó- nesíu og þaðan til Jólaeyjar og Kók- oseyja í miðju Indlandshafl. „Um þær síðamefndu sagði maöur að væri einhvers staöar himnaríki á jörðu þá væri það á Kókoseyjum," segir Magnús. „Þama var ákaflega fallegt. Allt mjög tært og hreint. Eg vil nefna íbúana börn suðursins - fólk sem er laust við peningagræðgi. Það er ánægt ef þaö fær magafylli." í Tyrklandi sumarið 1989 Seint á árinu 1988 sigldi íslenska skútan af Indlandshafi inn á Rauöa hafið. „Þama er maður kominn í arabaheiminn. Þar er hin sterka múhameðstrú ríkjandi og þaö er svo furðulegt að eyþjóðimar í Kyrrahafi virðast vestrænni í háttum en arab- amir,“ segir Magnús. „En í Rauða- hafinu er indælis fólk og það vill allt fyrir mann gera.“ í gegnum Súesskurð sigldu hjónin f í desember og héldu jól á Kýpur. í janúar 1989 áttu þau kost á að fljúga til íslands. Tækifærið var gripið og heimsóttu þau böm sín og ættingja á Fróni ööm sinni í þessari hnattferð og dvöldu heima í þrjár vikur. Sum- arið 1989 voru þau nær eingöngu í Tyrklandi. „Þar er dýrðlegt að vera og fólkið er svo elskiflegt - geysilega fallegt land og tflkomumikið,“ segja þau nærri því í kór. „Þar er gott aö vera til,“ segir Magnús. „Um haustið fórum við tiltölulega hratt yfir Eyjahafið og komum við í Aþenu, það er nú líka heilög skylda." Um veturinn lá leiðin til Möltu. „Við ætluðum að stoppa stutt en líkaði svo vel að við ákváðum að halda til þar síðastliðinn vetur. Þar skilur fólk líka ensku - það vom viðbrigði eftir langan tíma,“ segir Dóra. Þann 25. mars síðastliðinn sigldi skútan til Túnis þar sem báturinn var tekinn upp og málaður. Þaðan var siglt áfram og vestur með strönd Alsírs og Marokkó og stoppað í spænska smáríkinu Ceuta, Ma- rokkómegin í Gíbraltarsundi. Nú voru hjónin næstum búin að loka „hringnum“. Hringnum lokað „Við lokuðum hringnum úti á sjó fyrir utan Villamora í Suður-Portú- gal. Það var nú ekkert haldið upp á það. Við tímdum ekki að stoppa í landi enda höfðum við góðan byr. Við smökkum aldrei áfengi úti á sjó þannig að það voru engin hátíðahöld þarna. Við héldum áfram til Lissabon og Bayona á Norður-Spáni og vorum nú á hraðferð. Við ætluðum að ná heim í byrjun júní. Öryggisins vegna fyllt- um við bátinn af olíu á vesturströnd írlands. Svo var stefnan sett beint á Reykjanesskagann. Við fengum mjög gott veöur fyrstu átta dagana en hlut- um að næla okkur í eina litla lægð, sem við og gerðum. Uppi viö strendur íslands mætti okkur svo bara logn.“ Það urðu svo miklir fagnaðarfundir þegar Magnús og Dóra sigldu inn í Reykjavíkurhöfn fyrir réttri viku. Fjarveran frá skyldfólkinu erfiðust Magnús og Dóra eru um sextugt og eiga fjögur uppkomin böm og níu barnaböm. Tvö þeirra fæddust á meðan afi og amma vom í siglingun- um. „Fjarveran frá fólkinu okkar var það erfiðasta við siglinguna. Okkur langaði alltaf að halda sambandi en póstmalin eru snúin. Stundum gát- um við þó gefið upp póststaði í lönd- um sem við ætluðum til eftir ákveð- inn tíma. En bréf era yfirleitt ekki geymd lengur en í einn mánuð á pósthúsum. Við eigum mörg bréf og myndir úti í heimi sem við fengum aldrei í hendurnar. Þetta var heil- mikið vandamál. Stundum hringd- um við en þá var þaö dýrt, ekki hægt að tala lengi, allt annar tími sólar- hringsins heima og víða var erfitt að ná sambandi yfirleitt. Þegar eitthvað barst að heiman var það lesið í bak og fyrir. Þegar DV kom lásum við meira aö segja smáauglýs- ingamar upp til agna - einkamálin og allt saman. Og svo var hjónaband- iö eiginlega í hættu ef viö höfðum ekki tvö blöð,“ segir Dóra hlæjandi. Efokkurlíkar ekki í landi... „Nú ætlum viö að athuga hvemig okkur fellur aö búa í landi aftur - kanna okkar gang,“ segir Magnús. „Það era viðbrigði aö fara úr bátn- um. En ég verð þó helst að hafa pláss þegar ég er í landi og vil hafa eitt- hvað fyrir stafni. Kannski mun okk- ur ekki líka vistin í landi. Þá höldum við bara áfram að sigla - það er ekk- ert því til fyrirstöðu. Á jörðinni er nóg til af löndum sem við eigum eftir að fara til,“ sagði Magnús. -ÓTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.