Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1990. 25 Reykjavík fyrr og nú Hótel ísland Sú kynslóö, sem nú er að stíga fyrstu danssporin á skemmtistöö- um höfuðborgarinnar, lætur senni- lega ekki segja sér þaö að Hótel ísland hafi verið fullbyggt árið 1901, - hvað þá að húsið hafi brun- nið til kaldra kola árið 1944. En þá var Hótel ísland ekki í Ármúla 9 heldur Austurstræti 2 þar sem nú er hið margrómaða en viðsjárverða Hallærisplan. Pakkhús fyrir alþingishús Sunchenberg kaupmaður, sá er keypti Konungsverslunina í Reykjavík, lét reisa fyrsta húsið á þessari lóð árið 1786 og var það þá stærsta húsið í hinum nýbakaða kaupstað. Nú er þessa pakkhúss Sunchenbergs kaupmanns helst minnst fyrir þá sök að árið 1799, er Alþingi var flutt frá Þingvöllum Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson til Reykjavíkur, þótti dönsku stjórninni alveg gráupplagt að gera pakkhúsið að hvoru tveggja, al- þingishúsi og ráðhúsi í Reykjavík. Sú ráðagerð fórst þó fyrir og var húsið rifið skömmu eftir aldamótin 1800. Tengdafaðir forsetans Einar Jónsson, borgari, stúdent og verslunarstjóri Norðborgar- verslunar í Hafnarstræti, eignaðist lóðina 1820 og byggði þar íbúðarhús og síðan vörugeymsluhús. Einar var fóðurbróðir og tengdafaðir Jóns forseta en börn hans, auk Ingibjargar, konu Jóns, voru Ólaf- ur á Stað á Reykjanesi, faðir Þor- láks Ó. Johnson kaupmanns, séra Guðmundur í Arnarbæli og Jafet gullsmiður sem eignaðist húsin í Aðalstræti eftir lát föður síns 1839. Nils Jörgensen Jafet seldi húsin 1845 R. P. Tærg- esen kaupmanni sem varð fyrsti slökkviliðsstjóri Reykjavikur. En hann seldi síðan húsin Nils nokkr- um Jörgensen sem hóf þar veit- ingarekstur árið 1857. Jörgensen veitti í tveimur stofum og fór ekk- ert leynt með manngreinarálitið. Ljósmynd Þjóðminjasafnið Hafði hann syðri stofuna fyrir höfðingja og heldri menn en norð- urstofuna fyrir „hinn óæðri lýð“. Jörgensen mun hafa stofnað fyrsta íshúsið í Reykjavík eða öllu heldur ískjallarann sem var staö- settur í brekkunni sem nú er milli Tjarnargötu og Suðurgötu. Jörg- ensen varð fyrir sporvagni í Kaup- mannahöfn og lést 1875 en ekkja hans giftist aftur og hélt uppi veit- ingarekstrinum. DV-mynd GVA Hótel ísland í fullri stærð Var nú reist tvílyft álma meðfram Austurstræti árið 1882. 1894 var byggt hús í suður meðfram Veltu- sundi og ári síðar reist álma með- fram Vallarstrætinu en fullbyggt var Hótel ísland árið 1901, þá þrjár hæðir með lágu risi meðfram Áust- urstræti og Aðalstræti og fallegri turnbyggingu í norðvesturhorn- inu. í húsinu fullbúnu voru fimmtíu og átta herbergi, auk niðurgrafins kjallara, þar af fimm salir. Hótel ísland var nú stærsta hótelið í bæn- um og þar voru haldnir fínustu dansleikir bæjarins og ýmsar fjöl- mennar samkomur. Eins og gefur að skilja voru marg- ar vistarverur í svo geysistóru húsi en í „svínastíunni" svonefndu, sem var í einnar hæðar húsi við Austur- stræti, austan við aðalbygginguna, þótti oft æði sukksamt. Þar vandi m.a. komur sínar Þórður Alamala sem þeir Hannes Hafstein og Bertel E.Ó. Þorleifsson gerðu ódauðlegan í gamanvísunum um Þórð Mala- koff. Árið 1906 keyptu nokkrar góð- templarastúkur hótelið og ráku þar áfengislausan veitingarekstur en eins og geta má nærri dró þá held- ur betur úr fiörinu A. Rósenberg eignaðist hótelið árið 1928 og rak það þar til það brann árið 1944. Á árunum 1912-20 voru kvik- myndasýningar Nýja-Bíós í hús- inu. Þá voru verslanir á götuhæð- inni, m.a. Vöruhúsið og sölubúð Gefiunar. Árið 1942 lét þáverandi formaður menntamálaráös, Jónas frá Hriflu, setja upp málverkasýn- ingu í glugga Gefiunar. Þar voru sýnd „klessumálverk" sem svo voru nefnd í háðungarskyni. Hafði Jónas megna andúð á slíkum myndum og átti sýning þeirra að vera höfundunum til minnkunar. Það var þó álitamál hvorir færu betri för með sýningunni, Jónas eða málararnir. Hótel ísland brennur Er Hótel ísland brann, 2. febrúar 1944, var það annar mesti eldsvoði í sögu Reykjavíkur, næstur á eftir brunanum mikla í miðbænum árið 1915. Eldurinn kom upp að nóttu til á þriðja tímanum og magnaðist með ótrúlegum hraða. Fjörutíu og níu manns voru í húsinu, flestir í fasta- svefni. Það þótti því ganga krafta- verki næst að ekki skyldi fiöldi manns brenna þar inni. Einn maö- ur fórst þó í brunanum en margir björguðust með naumindum á síð- ustu stundu. Hótel ísland var þá annað stærsta hótel bæjarins og stærsta timburhúsið í Reykjavík. FERÐUMST UM ÍSLAND RÚTUDAGUR í UMFERÐARMIÐSTÖÐINNI í DAG Stærsta rútusýning á íslandi með um 40 rútum af öllum gerðum og stærðum. Nýjar rútur, antik rútur, háar, langar, litlar og stórar rútur, fjallabílar, torfærutröll. Yfirgripsmesta ferðakynning sem haldin hefur verið með um 30 aðilum er kynna ferðalög um okkar eigið land. Skemmtiatriði í allan dag: Brúðubíllinn mætir á staðinn fyrir börnin kl. 15.00, fallhlífarstökk Flugbjörgunarsveitarinnar kl. 14.00, lúðrasveit leikur kl. 10.00, harmóníkuleikur, rútusöngvar og ýmsar óvæntar uppákomur, ferðagetraunir með góðum vinningum í gangi allan daginn. Síðast en ekki síst ókeypis skoðunarferðir um Reykjavík allan daginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.