Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Blaðsíða 52
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreífing: Simi 27022 Frjálst,óháð dagblað LAUGARDAGUR 9. JUNI 1990. Leit að dreng: Faldi sig í nálægu húsi • íá Tólf ára gamall drengur, sem var í sveit á bænum Leysingjastöðum í Húnaþingi, fannst heill á húfi á átt- unda tímanum í gærkvöldi eftir að mikil leit hafði staðið yflr í gær að honum. Drengurinn hafði falið sig í risi á mannlausu íbúðarhúsi á jörðinni síðan síðdegis á fimmtudag. Björgun- arsveitarmenn höfðu leitað nokkr- um sinnum í húsinu og uppi á lofti fyrr um daginn en ekki fundið dreng- inn. Það voru síðan tveir björgunar- sveitarmenn með stórt vasaljós sem fundu hann undir súð uppi í risi. Fjórar björgunarsveitir ásamt þyrlu og sporhundi voru þá við leit að drengnum í nágrannabyggðum. „Það eru allir mjög glaðir hér og ánægðir yfir því að drengurinn skuli vera kominn fram,“ sagði Hreinn Magnússon, bóndi að Leysingjastöð- um, í samtali við DV í gærkvöldi. Hreinn sagði að þetta uppátæki hefði komið á óvart því drengurinn hefði ávallt verið dagfarsprúður og honum hefði samið vel við aðra. Stráksa var strax gefið að borða þeg- ar hann fannst og var gert ráð fyrir að hann myndi fara heim með for- eldrum sínum til Reykjavíkur. Hann hafði verið í sveit á Leysingjastöðum síðan 20. maí síðastliðinn. -ÓTT Skipulagðri leit hætt Grafarvogshús- iðekkigengiðút „Þaö var ein milljón miða. Tvö hundruð þúsund miðar eru óseldir. Líkurnar á því að einhver hafi hent vinningsmiðanum aukast stöðugt. Þó er enn von um að miðinn sé óseld- ur. Húsið gæti þess vegna kpmið á síðasta miðann," sagði Birgir Ómars- son hjá Lukkutríói Björgunarsveit- anna. Lukkutríó hleypti af stað sprengi- miða í október 1989. Aðalvinningur er einbýlishús í Grafarvogi. Húsið v. (Sr hefur ekki gengið út enn. -sme LOKI Hvað er þetta, kann Guðjón ekki að snobba niður á við? Þrjár hryssur í mjog m w ■ um efeseyMii eevenffli wl0vll M wwlCII IM Lögreglan í Hafnarfirði lét í gær taka illa farin og vannærð hross frá eiganda þeirra. Þegar DV kom á vettvang himdu hrossin aumkun- arverð úti í homi, rétt áður en þau vora flutt burt. „Þau eru svo illa farin og veikburða að þau þora ekki að vera innan um önnur hross,“ sagði Sigurjón forðagæslu- maður á staðnum en hann hafði samband við lögiægluna. „í viku hefur eigandinn ekki komið hingað og síðan um mánaðamót hefur ekki verið stingandi strá í hlööunni." Bráðabirgðaráðstöfun var tekin í gær um að fiytja hrossin og gefa þeim fóður og húsaskjól. Bæjarfó- geti mun um helgina taka ákvörð- un um hvað verður gert við hrossin en saksóknara er að ákvarða um refsimál. Sigríöur Stefánsdóttir, eigandi hrossanna, var með 12 hross í hús- inu en fór nýlega raeð tvær fylfull- ar hryssur. „Af þeim sem eftir voru eru þtjú hross í þokkalegu ástandi, 0ögur trippi frekar rýr og þrjár hryssur í rojög slæinu ástandi. Þar af ein sem var nýbúin að kasta,“ sagði Steinn Steinsson héraðs- dýralæknir sem fcnginn var til að skoða hrossin. Már Pétursson, bæjarfógeti í Hafnarfiröi, sagði að lögreglan væri að rannsaka málið. „Ef vott- orð dýralæknis og annað taka af öll tvímæli um aö þetta sé brot á dýraverndunarlögum verður að taka hrossin og koma þeim í hús og haga. Ákvörðun um það veröur tekin nú um helgina. Að fá þeim hús og haga nu er aðeins bráða- birgðaráðstöfun. Lögreglustjóri getur, að fullnægðum tilteknum skilyröum, fargað hrossunum eða selt þau á uppboðssölu sem er mun mýkri ráðstöfun. Refsimál á hend- ur viðkomandi er alfarið i höndum saksóknara." Þegar konan kom í húsið fyrr í vetur haíði foröagæsiumaöur sam- band við lögregluna vegna þess hve hrossin voru rýr. Þá var konan lát- in kaupa hey. Búist var við því að hún mundi halda þvi áfram en hún bætti ekkert á. -pj Karl Tryggvason: Fann orsök Skipulagðri leit að Eggert Davíð Hallgéirssyni hefur verið hætt. Eins og kuimugt er sást síðast til hans við Hótel Búðir á Snæfellsnesi síðastliðið sunnudagskvöld. Björgunarsveitarmenn frá Ólafs- vík og Hellissandi ætla að leita í hell- um og skútum um helgina. Þeir munu fara yfir stórt svæði - og út fyrir það svæði sem leitað hefur ver- iðátilþessa. -sme ættgengs nýrna- sjúkdóms Svelt og illa haldin eru hrossin teymd úr stíunni síðdegis í gær. Taka varð hrossin af eigandanum sem ekki hafði komiö í sjö daga og í hlöðunni var ekki stingandi strá. Á myndinni sést eitt hrossið nýta sér tuggu sem það greip þegar það komst úr prísund. DV-mynd Brynjar Gauti Hópur vísindamanna undir stjóm Karls Tryggvasonar, prófessors við Uleáborgar háskóla í Finnlandi, hef- ur fundið gen sem orsakar Alports- sjúkdóminn sem er arfgengur nýma- sjúkdómur. Frá þessu er greint í nýjasta hefti Science sem er eitt virt- asta vísindatímarit heims. Alportssjúkdómurinn er ættgeng- ur og er tahð að einn af hverjum fimm þúsund Finnum beri erfðavísi sjúkdómsins. Með rannsóknum á átj- án ættum, sem báru sjúkdóminn, tókst Karh og samstarfsmönnum að finna tvær stökkbreytingar í genum sem orsaka sjúkdóminn. Karl Tryggvason hefur veriö bú- settur í Finnlandi frá 1967 og unnið þar að rannsóknar- og kennslustörf- um. Hann er giftur finnskri konu, Marja Terttu, og eiga þau þtjá syni. Karl er sonur Tryggva Steingríms- sonar bryta og konu hans, Ásu Karls- dóttur skrifstofumanns. -gse Veðrið á sunnudag og mánudag: Heitt fyrir austan A sunnudag og mánudag verð- ur hæg suðlæg eöa breytileg átt. Skýjað á Suðvestur- og Vestur- landi, dálítil súld öðm hveiju og um 8-11 stiga hiti en bjart veöur og allt að 18 stiga hiti um austan- vert landið og viða á Norður- landi. Þó verður þokuloft og mun svalara við norður- og austur- ströndina. 25050 SENDIBILASTOÐIN Hf opið um kvöld og helgar Faxafeni 2, Reykjan'k Hjallahrauni 15, Hafnarfíröi Kjúklingar sem bragð er að Opiö alla daga frá 11-22

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.