Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Side 9
9
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 1990.
Betty
Fried an
á íslandi
-75 árfrá þyí íslenskar konur fengur kosningarétt
Bettjf Friedan, bandaríski kven-
réttindafrömuöurinn, kemur til ís-
lands eftir rúma viku og mun hún
flytja fyrirlestra í tilefni þess aö liöin
eru 75 ár frá því að íslenskar konur
fengu kosningarétt. Þaö er Kvenrétt-
indafélag íslands sem bauð þessari
merku konu hingað og verður fyrsti
fyrirlestur hennar í Háskóla íslands
18. júní. Þá mun Friedan ávarpa há-
tíðarsamkomu í íslensku óperunni
19. júní, á hátíðardegi íslenskra
kvenna. Kvenréttindafélag íslands
stendur fyrir þeirri hátíð en auk þess
verður það með fund á Holiday Inn
hótelinu 21. júní þar sem Betty Fried-
an mun ennfremur flytja fyrirlestur
og svara fyrirspumum.
Betty Friedan hefur lengi staðið
framarlega í baráttunni fyrir endur-
bótum á bandarískri löggjöf um jafn-
réttis- og félagsmál. Hún hefur verið
gestaprófessor við ýmsa háskóla í
Bandaríkjunum og árið 1975 var hún
útnefnd sem húmanisti ársins og
hlaut jafnframt nafnbót heiðurs-
doktors við Smith College en þar
stundaði hún nám.
Betty Friedan er stofnandi og fyrsti
forseti kvenréttindasamtakanna
NOW í Bandaríkjunum (National
Organization of Women) og hefur
farið fyrirlestraferðir um Bandarík-
in og víða um lönd og álfur. Eftir
hana liggja þijár bækur, The Femin-
ine Mystique sem kom út árið 1963
og vakti mikla athygli enda veriö
skoðuð sem tímamótaverk og einn
helsti hvati að kvennahreyfingu nú-
tímans, It Changed my Life kom út
árið 1976 og ’82 kom út bókin The
Second Stage. Allar hafa þessar bæk-
ur verið þýddar á mörg tungumál.
Um þessar mundir er að koma út
fjórða bók hennar, The Fountain of
Age.
Betty Friedan er fædd í Peoria í
Illinois árið 1922. í för með henni
hingað til lands eru níu konur, sem
tóku sig saman um að fylgja henni á
eigin kostnað, einkum til að kynna
sér stöðu íslenskra kvenna á sviði
stjórnmála og sjá hvernig hér er stað-
ið að dagvistar- og skólamálum og
öörum atriðum er varða fjölskyldu-
og atvinnulíf. Meðal þessara kvenna
eru virtir fræðimenn og stjómendur
á sviði uppeldis- og heilbrigðismála
auk blaðakvenna. Þær hafa allar lát-
iö að sér kveða í baráttu fyrir jafn-
rétti og bættum aðstæðum kvenna
og barna vestanhafs.
Fyrirliði hópsins er Kathleen Bonk
en hún er framkvæmdastjóri fjöl-
miölastofnunar í Washington, Com-
munications Consortium Media
Center, sem sérhæfir sig í fjölmiðla-
og fræðslustarfsemi í þágu frjáls-
lyndra afla í Bandaríkjunum.
Betty Friedan hefur lengi staðið framarlega i baráttunni fyrir endurbótum
á bandariskri löggjöf um jafnréttis- og félagsmál.
Sumir iar
eru
betri en aðrir
Honda Accord EX 2,0 1990
kostar aðeins frá
kr. 1.290.000,00.
Þessi bíll er ríkulega útbúinn
og m.a. með aukabúnað eins
og rafdrifnar rúður, rafstýrða
spegla, hita í sætum,
vökvastýri/veltistýri,
samlæsingar, samlita stuðara,
útvarp/segulband og margt
fleira. Honda Accord er
margfaldur verðlaunabíll og
hlaut Gullna stýrið í
Þýskalandi. í ár var Honda
Accord kosinn bíll ársins í
sínum flokki í Bandaríkjunum
og þar var hann einnig mest
seldi bíllinn á síðasta ári.
Við bjóðum sérlega hagstæð
greiðslukjör þar sem aðeins
þarf að greiða 25% út og
afganginn á allt að 30 mánuð-
um.
Komið, sjáið og sannfærist að
hér er á ferðinni frábær bíll.
ÍHONDA
HONDA Á fSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, S-689900
(fefl
OPIÐ I DAG KL. 13-15