Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.1990, Side 20
LAUGARDAGUR 9. JTJNÍ 1990.
nopr jwiíf. o qíioArrflrAnTiAri
Kvikmyndir
Warren Beatty og JackNicholson verða í sviðsljósinu í sumar. Báðir
hafa lagt mikið.undir í nýjustu myndum sínum, Dick Tracy sem Be-
atty leikstýrir, framleiðir og leikur aðalhlutverkiö og The Two Ja-
kes, sem Nicholson leikstýrir og leikur aðalhlutverkið í. Þessar tvær
myndir eiga margt sameiginlegt. Fyrst er að beðið hefur verið eftir
þeim í mörg ár. Þá eru Nicholson og Beatty fyrst og fremst þekktir
leikarar en hafa átt góðar og slæmar stundir bak við myndavélina. í
þriðja lagi er að báðir leika þeir leynilöggur í myndunum sem gerast
báðar fyrr á öldinni og leika persónur sem margir þekkja. Dick Tracy
hefur verið vinsæl teiknimyndapersóna og verður forvitnilegt að sjá
hvemig Beatty tekst upp í hlutverkinu. í The Two Jakes endurtekur
Nicholson eittþekktasta hlutverk sitt, leynilögguna Jake Gittes, sem
hann kynnti fyrir kvi kmyndahúsgestum í Chinatown. Báðum þessum
myndum er spáð góðu gengi á sumarvertíðinni vestanhafs.
Dick Tracy
Dick Tracy er nánast verk eins
manns, Warren Beatty. Hann leik-
stýrir myndinni, framleiöir hana
og leikur Tracy sjálfan. Þaö eru
fimm ár síðan hann tilkynnti að
Dick Tracy yröi sitt næsta verk-
efni. Réð hann til sín marga snjalla
kvikmyndamenn, meðal annars
hönnuðinn Richard Sylbert sem
segir að öll þessi ár hafi hann und-
ir stjóm Beattys verið að vinna að
myndinni.
„Til að ná fram sérstakri áferð
sem væri sem mest í líkingu við
hinn upprunalega Dick Tracy var
það einhver fyrsta ákvörðun Beat-
tys að nota aðeins þá sjö liti í mynd-
inni sem teiknarinn Chester Gould
hafði notað við gerð teiknimyndas-
eríu sinnar,“ segir Sylbert. „Tilað
mynda er allur gulur litur í mynd-
inni sams konar gulur litur og í
frakka Tracys og allur rauður Utur
í myndinni er eins. Gerir þetta þaö
að verkum að áferðin er sérstök."
Glenna Headley, sem leikur Tess
Tmehart, segir: „Égvar hálfpart-
inn hrædd þegar ég vissi um litina
og það get ég sagt að myndin er
öðravísi en allar myndlr sem ég
hef séð hingað til. Að mörgu leyti
gerir þessi einfalda litanoktun
myndina dásamlega."
Eins og gefur að skilja þurfd. Be-
atty að ná sér í góöan kvikmynda-
tökumann fyrir myndina og varla
hefur hann getað fimdið betri
mann en Vittorio Storraro sem á
að baki myndatökur við margar
stórmyndimar, má þar nefna
Apocalypse Now, Reds, The Last
Emperor og Tucker, svo að ein-
hverjar séu nefndar.
Storaro hefur sagt að til að fá lit-
ina til að pjóta sín í Dick Tracy
hafi hann notað lýsingu sem notuð
var í Þýskalandi á fjóröa áratugn-
um, mjög dramtíska.
Það em ekki bara litimir sem
eiga eftir að vekja athygh heldur
einnig það að persónur myndar-
innar sjást nær eingöngu 1 sömu
fötum og merkingar aUar em ein-
hæfar. Til dæmis ef bjórflaska sést
stendur aðeins Beer á miðanum og
á skilti á kaffihúsi stendur aðeins
Café.
Beatty og hönnuðurinn Sylbert
eyddu mörgum dögum í að stúdera
teiknimyndasögumar og meðal
þess sem þeir komust að var að
allir veggir eru Utlausir, því er það
að í myndinni em veggir nánast
Utlausir. Þá var ákveðið að bílamir
skildu ekki minna á neina sérstaka
tegund heldur vera eins og bílar frá
íjóröa áratugnum emhjá teiknur-
um.
Eins og sjá má af þessari upptaln-
ingu þá eiga áhorfendur ekki von
á kvikmynd sem sver sig í ætt við
einhverjar aðrar gangstermyndir.
Annaö, sem væntanlegir áhorfend-
ur eiga eftir að taka eftir í Dick
Tracy, er förðunin sem mfkið var
lagt í þar sem og í Utameðferðinni
vfidi Warren Beatty fá einhverja
líkingu við persónumar í myndas-
eríunni. Hver gangster hefur sinn
svip og sín séreinkenni sem Beatty
vildi að héldu sér og áttu förðunar-
meistara margar andvökunætur
við að leysa mörg vandamál sem
komu upp á yfirborðið við förðun-
ina.
Þótt Dick Tracy sé fyrst og fremst
sakamálamynd þá er hún með léttu
yfirbragöi og nokkur lög hafa verið
samin til að krydda söguþráðinn
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
ogaðsjálfsögðusyngurMadonna |
einhver þeirra en hún leikur
skemmtikraftinn Brethaless Ma-
honey.
Þáttur Madonnu er ekki mikfil í
myndinni en það hefur ekki farið
fram hjá neinum sem fylgist með
að hún leikur í myndinni og hefur
samband hennar og Beatty auglýst
myndina fyrirfram upp.
Dick Tracy er óhemjudýr kvik-
myndoghefurekkertveriðtU ''
sparað. TU að standa undir sér
verður hún að vera meðal vinsæl-
ustu kvikmynda ársins. Þaö er val-
inn maður í hveiju rúmi og saman
hafa þeir Ustamenn sem koma ná-
lægt gerð myndarinnar 68 óskars-
tílnefningar á bakinu. Fyrir utan
Warren Beatty og Madonnu leika
í myndinni Glenna Headly, Mandy
Patinkin, Charles Duming og
Seyihour Cassel. Dick Tracy verö-
ur sýnd í Bíóborginni og BíóhöU-
inniíhaust. -HK
TheTwoJakes
Jack Nicholson leikur Jake Gittes í The Two Jakes og Harvey Keitel fasteignasala sem ekki er með allt á hreinu
i viöskiptum.
Fljótlega eftir að Chinatown sló
í gegn 1975 var fariö að ræða fram-
haldsmynd og handrit vom gerð
en ekkert varð úr kom þar margt
til meðal annars þaö að Roman
Polanski var gerður útlægur frá
Bandaríkjunum.
Hugmyndin hélt áfram að gæla
við menn, sérstaklega Robert Tow-
ne sem skrifaði uppmnalega hand-
ritið. Það var svo fyrir teimur ámm
að Jack Nicholson tók af aUan vafa
um framhaldið og ákvað um leið
að leikstýra sjálfur og leika aðal-
hlutverkið í The Two Jakes sem
er óbeint framhald af Chinatown.
The Two Jakes gerist á fimmta ára-
tugnum. Nicholson leikur leyni-
lögguna Jake Gittes. í þetta skiptið
er hann að rannsaka morðmál í Los
Angeles. Viö þá rannsókn upp-
götvar hann samband við fyrri at-
burði sem áttu sér stað í Chinatown
þótt ellefu ár séu síðan þeir at-
burðir gerðust.
Um persónuna Jake Gittes segir
Nicholson: „Jake hefur sitt lifi-
brauð af því að fylgjast með fólki
gera hluti sem það má ekki. Hann
hefur samt breyst frá því í Chin-
atown, enda hefur heU styijöld ver-
ið í miUitíðinni. Hann er nú með-
limur í golfklúbbi og á kæmstu og
klæðir sig skikkanlega.
Það sem Jack Nicholson og félag-
ar hans vUdu var að ná fram and-
rúmsloft sem tUheyrði kvikmynd-
um á fimmta áratugnum og er Nic-
holson ekkert að fela það að reynt
er að stæla lýsingu sem fylgdi saka-
málamyndum frá þessum árum.
The Two Jakes er þriðja kvik-
myndin sem Jack Nicholson leik-
stýrir. Áður hafði hann leikstýrt
Goin South og Drive, He Said, báð-
ar gerðar snemma á áttunda ára-
tugnum. Handritið gerir að sjálf-
sögðu Robert Towne og hefur það
lengi verið tilbúið.
Aðrir leikarar sem leika í The
Two Jakes era Harvey Keitel, Meg
TUly, Madeleine Stowe, Eli
Wallach, Ruben Blades, Frederick
Forrest, David Keith og Richard
Farnsworth, fríður hópur leikara
eins og sjá má af upptalningunni.
The Two Jakes verður frumsýnd í
Bandaríkjunum í byijun ágúst og
í Háskólabíói seinna á árinu.
-HK