Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1990, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 1990.
3
Fréttir
Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson:
Viðgerð langt á eftir áætlun
„Skipiö er enn í viögerð en sam-
kvæmt samningi átti aö afhenda þaö
5. maí síðastliðinn," sagði Vignir
Thoroddsen, aðstoöarforstjóri Haf-
rannsóknastofnunar. „Síðustu frétt-
ir eru þær að skipið verði tilbúið um
miðjan júlí.“
Það er Skipasmíðastöðin Þorgeir
og Ellert á Akranesi sem sér um við-
gerðir á skipinu.
„Við erum núna að hefja stofn-
mælingar á úthafsrækju en það eru
rannsóknir sem hafa verið gerðar á
hverju ári. Það er mjög alvarlegt ef
við getum ekki stundað þær nú. Eins
og málin standa vitum við ekki
hvernig við eigum að bjarga þessu
og er þetta því mikill skaði,“ sagði
Vignir.
Að hans sögn gáfu forráðamenn
Þorgeirs og Ellerts þær skýringar að
töfm kæmi til vegna þess að of seint
hefði verið gengið til samninga.
Einnig sögöu þeir að aukaverk hefðu
verið mikil.
Ekki reyndist unnt að fá staöfest-
ingu á því þar sem erfiðleikum var
bundið að ná tali af Jósef H. Þorgeirs-
syni, framkvæmdastjóra skipa-
smíðastöðvarinnar, þrátt fyrir end-
urteknar tilraunir.
„Verkáætlun var ekki rétt í upp-
hafi og aukaverk voru ekki nema um
5 prósent," sagði Vignir, „og þar að
auki var afhendingartíminn nefndur
í samningnum og engar athugasemd-
ir gerðar við undirritun hans.“
Akvæði í samningnum kveður á
um verulegar dagsektir ef skipið af-
hendist ekki á réttum tíma. Tillit er
þó tekið til annarra þátta.
Meðal þeirra viðgerða, sem ráð-
gerðar voru, var að skipta um spil-
kerfi í skipinu og innrétta nýja rann-
sóknarstofu í afturbyggingu. Einnig
átti að endurbyggja vélina og inn-
Ágúst Kárason „pabbi" Króka
krókódíls hefur játað að hafa flutt
dýrið til landsins.
DV-mynd Hjörvar Sigurjónsson
Neskaupstaöur:
málið til
saksóknara
Ágúst Kárason í Neskaupstað hef-
ur játaö við lögreglurannsókn að
hafa flutt til landsins krókódílinn
Króka. Lögreglurannsókn er lokið
og nú verður málið sent til ríkissak-
sóknara sem tekur ákvörðun um
hvort Ágúst verður ákærður vegna
þessa máls. Lög banna innflutning
sem þennan.
Yfirgnæfandi likur eru taldar á að
Króki sé dauður. Bæði er Norðfjarð-
ará mjög köld og eins er áin straum-
mikil vegna leysinga til fjalla. Hita-
stig árinnar er rétt yflr frostmarki,
eða ein til tvær gráður. Krókódílar
lifa í um 25 gráða heitu vatni. Ekki
er hægt að útiloka aö Króki hafi far-
iö úr ánni þegar hann fann hversu
köld hún er. Heimamenn telja litlar
líkur á að Króki finnist héðan af -
að minnsta kosti ekki lifandi.
rétta setustofu fyrir áhöfnina.
Það er ekki í fyrsta skipti að töf sem
þessi hendir en mörgum er það
minnisstætt er nýi flóabáturinn
Baldur var heilu ári á eftir áætlun
að komast á flot. Hann var smíðaður
hjá skipasmíðastöðinni. Á skipinu
voru einnig alvarlegir hönnunargall-
ar og það er mun þyngra en reiknað
hafði verið með í upphafi.
„Við fengum aldrei neinar skýring-
ar á töfinni,“ sagði Guðmundur Lár-
usson, framkvæmdastjóri Baldurs.
„Hann ristir dýpra og eyðir mun
meira eldsneyti en ráð var gert fyrir
og er því mun dýrari í rekstri fyrir
vikið. Hann kemur þó til með að
þjóna sínu hlutverki og við erum
ánægð með hann þrátt fyrir allt.“
-tlt
Bjartsýni og baráttuandi hefur
ætíð einkennt stóru stundirnar í
lífi og starfi íslensku þjóðarinnar.
Þegar miklir hagsmunir eru í húfi
stöndum við saman og fáum
miklu áorkað. Á þeirri hugmynd
grundvallast íslandsbréf.
íslandsbréf eru eignarhluti í sam-
eiginlegum sjóði sparifjáreigenda,
þar sem fjárfest er í ýmsum tegund-
um vel tryggðra verðbréfa. Með því
að eignast hlutdeild í sjóðnum geta
einstaklingar notið þess ávinnings
sem felst í því að dreifa fjárfesting-
um og njóta góðrar ávöxtunar.
Fæstir sparifjáreigendur hafa tíma,
þekkingu eða fjárráð til að notfæra
sér þá kosti sem felast í því að dreifa
fjárfestingum. íslandsbréf leysa
vandann.
íslandsbréf eru nánast fyrirhafn-
arlaus fjárfesting og henta vel
jafnt ungum sem öldnum hvort
sem um er að ræða háar eða lágar
upphæðir.
Reglubundinn sparnaður er mikil-
vægur. Þannig öðlast fólk skilning á
<
o
gildi sparnaðar og lærir að bera
virðingu fyrir verðmætum. Þótt
upphæðirnar séu ekki háar, er gott
aðvenjasig áað leggja hluta af tekj-
um sínum í örugga og arðbæra fjár-
festingu. Á nokkrum árum getur
þannig myndast álitlegur sjóður.
Dæmi:
Fermingarbarn fær íslandsbréf
að upphæð 20.000 krónur. Á
hverju ári leggur það fyrir svipaða
upphæð af sumarlaunum og
kaupir íslandsbréf. Tíu árum
síðar er sjóðurinn orðinn næstum
290.000 krónur að núvirði *
* Án innlausnargjalds, miöað viö að 8% árleg raun-
ávöxtun náist á sparnaðartimanum.
Sérfræðingar Landsbréfa h.f. sjá
um alla umsýslu, svo að eigendur
íslandsbréfa geta notið áhyggju-
lausrar ávöxtunar.
Leitið ráða hjá Landsbréfum h.f.
Komið og fáið nánari upplýsingar,
bæklinga og aðstoð hjá ráð-
gjöfum okkar og umboðsaðilum í
útibúum Landsbanka íslands og
Samvinnubankans um land allt.
1*
LANDSBRÉF H.F.
Landsbankinn stendur með okkur
Suöurlandsbraut 24,108 Reykjavík, simi 606080
Lóggilt verðbrétafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi islands.
Allir landsmenn eeta
eignast
ÍSLANDSBRÉF
-sme