Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1990, Síða 4
4
MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 1990.
Fréttir
HeUti sýru á bíl
Kona í Breiöholti tilkyrmti til
lögreglunnar að sýru eða lak-
keyði hefði verið hellt á bíl henn-
ar á föstudag. Bíllinn er illa far-
inn eftir þessa meðferð og sums
• staðar skín í hert jámið.
Ekki heftir tekist að hafa uppi
á sökudólgnum en eiginmaður
konunnar liggur undir grun.
-GRS
Pörupiltar
teknir
í Öskjuhlíð
Nokkrir pörupiltar voru gripn-
ir af lögreglu á sunnudag. þegar
þeir óku um í mýrlendi í Öskju-
hlíðinni. Piltarnir, sem óku um á
Lada jeppa, unnu nokkur spjöll á
gróðri.
Rólegt í höfuð-
borginni
: Fjórir minni háttar árekstrar
urðu í bænum um helgina en
ekki er kunnugt um meiðsl á
fólki.
Fangageymslur lögreglunnar
voru fullnýttar en ölvun var þó
ekki með meira móti.
-GRS
Mikið um hraðakstur:
Einn tekinn
á 145 km
hraða
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
bar nokkuö á hraðakstri um helg-
ina. Einir þrjátíu 'ökumenn voru
stöðvaðir íýrir of hraðan akstur.
Á laugardagsmorgun mældist
ökuþór á 145 km hraða við Hvera-
gerði og mótorhjólakappi var
stöðvaður í Grimsnesi á sunnu-
dag á 129 km hraða.
I Þrastarskógi féll knattspyrnu-
mark ofan á stulku og slasaðist
hún eitthvað og á Þingvöilum féll
hestamaður af baki og var hann
fluttur með sjúkrabifreið tii
Reykjavíkur.
-GRS
- tók þátt í Arctic Open golfmótinu og gekk í það heilaga í Minjasafnskirkjunni
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þetta er búinn að vera ógleymanieg-
ur sólarhringur. Ég var að spila golf
til klukkan aö veröa fjögur í nótt og
síöan fórum við í kirkjuna um morg-
un og giftum okkur,“ sagði Neil Els-
ey, ritstjóri tímaritsins Golf Riu-
stradet Weekly, þegar Arctic Open
golfmótinu var slitið að Jaðri á Akur-
eyri á laugardagskvöld.
Ritstjórinn, sem hefur áður tekið
þátt í þessu móti, ákvað nú að slá
tvær flugur í heimsókn sinni tii ís-
lands að þessu sinni, taka þátt í mót-
inu og ganga að eiga unnustu sína,
Elisabeth Bateman. „Við vildum
gera þetta öðruvísi en á hefðbundinn
hátt heima, ekki vera með hundrað
gesti í veislu og þess háttar tilstand.
Jóhann Sigurðsson í London kom
með þá hugmynd að við skelltum
okkur til Akureyrar og ekki var
verra að íslenskur prestur í London
sem ætlaði einnig hingað til að taka
þátt í mótinu var tilbúinn til að sjá
um athöfnina. Lisa samþykkti þetta
strax, enda erum við búin að vera
saman í 6 ár og hún var ekkert á því
að láta mig sleppa. Athöfnin í kirkj-
unni var ákaflega skemmtileg og
veislan heima hjá Gunnari Sólnes á
eftir einnig, svo að þessi dagur er
búinn að vera sérstaklega skemmti-
legur og eftirminnilegur," sagði Neil
Elsey.
Neil Elsey og Elisabeth brúður hans koma úr Minjasafnskirkjunni á Akureyri.
DV-mynd gk
Vesturgata 7:
Snyrtiaðstaða
fyrir almenning
Nýlega var opnuð í miðbæ Reykja-
víkur, nánar tiltekið að Vesturgötu
7, snyrtiaðstaða sem ætluð er al-
menningi. „Það hefur oft verið kvart-
að undan því aö engin almennileg
aðstaða sé fyrir hendi en með þessu
er verið að reyna að bæta úr því,“
sagði Pétur Hannesson hjá Hreins-
unardeild Reykjavíkurborgar.
Aðstaðan er mjög góð. Auk al-
mennrar snyrtiaðstöðu er mögulegt
að sinna ungbörnum þar. Til að byrja
með verður opið á almennum versl-
unartíma á virkum dögum frá 9 til
18. Lokað verður á sunnudögum
fyrst um sinn.
-tlt
Snyrtiaðstaða hefur verið opnuð i
miðbænum. DV-mynd Brynjar Gauti
Ritstiórinn sló tvær
/
flugur í einu höggi
I dag mælir Dagfari
Opnar og lokaðar fréttir
Stöð tvö hefur ákveðið að opna aft-
ur fyrir fréttimar. Dagfari er
óhress með þessa ákvörðun. Hún
spillir fyrir honum kvöldinu. Dag-
fari hefur ekki afruglara og þarf
ekki að láta afrugla sig vegna þess
að Dagfari er ekki ruglaður. Meðan
Stöð tvö haföi lokað fyrir ff éttimar
losnaði Dagfari við að horfa á tvo
fréttatíma á hverju kvöldi og lét sér
nægja fréttirnar hjá RÚV. Það tak-
markaða fréttaleysi lifði Dagfari
ágætlega af vegna þess að fréttir
verða ekki fréttir fyrr en þær koma
í fréttatíma. Ef engir væru frétta-
tímamir llfði þessi þjóð góðu lífi
og vissi ekki betur en hún hefði það
bara bærilegt, takk.
En eftir þvl sem fréttatímum
ftölgar, fjölgar fréttunum að sama
skapi, og oftast eru fréttir ekkert
nema frásagnir af hörmungum,
gjaldþrotum, mótmælum og öðrum
erfiðleikum. Þetta er stanslaus
áþján og gerir menn svartsýna og
þunglynda og eykur bæði sorg og
sút meðal landsmanna. Það em
fréttirnar sem eru okkur lifandi að
drepa og draga allan mátt úr ís-
lendingum. Án þeirra væri hvergi
betra að vera en einmitt hér á
gamla Fróni.
Með því að Stöð tvö lokaði fyrir
sínar fréttir á kvöldin losnaði mað-
ur við það böl að horfa á tvo frétta-
tíma og þá dró úr bölsýninni. Hún
varð helmingi minni af því frétta-
tímarnir vom helmingi styttri.
Ástæðan fyrir því að Stöð tvö lok-
aði fréttatímanum var sú, að þeir
ætluöu að láta áskrifendur Stöðv-
árinnar búa við það böl eina, að
leyfa þeim að horfa á tvöfaldan
skammt af hörmungunum. Þeir
óttuöust samkeppni fleiri stööva og
hugðust bregðast þannig við sam-
keppninni að loka fyrir dagskrána
hjá sér, nema fyrir þá útvöldu sem
stóðu með Stöðinni í samkeppn-
inni.
Þaö þótt Dagfara mikil tilhtssemi
við þann hluta þjóðarinnar, sem
ekki á afmglara. Dagfari var
ánægður með að losna undan tvö-
fóldu böh.
En nú hefur Stöð tvö tilkynnt að
aftur verði opnað fyrir fréttimar.
Þeir segja að samkeppnin sé úr
sögunni og þriðja sjónvarpsstöðin
verði ekki stofnuð. Það er að vísu
mikil bót í máli að fréttatímarnir
verði ekki þrír, því það hefði senni-
lega riðið þjóðinni að fullu að
hlusta á sömu fréttirnar af sömu
hörmungunum þrisvar sinnum á
hveiju kvöldi. En á móti kemur að
nú verður aftur opnað fyrir tvö-
faldan skammt. Nú þarf Dagfari
aftur að setjast niður við sjón-
varpsstækið sitt klukkan hálfátta
og láta hella yfir sig hörmungum í
heilan klukkutíma á tveim stöðv-
um.
Þetta er óhugnanleg framtíðar-
sýn og þetta verður aukið álag á
alla þá sem telja sig þurfa að hlusta
og horfa á fréttir í hvert skipti sem
fréttir eru sagðar. Dagfari leggúr
til að einhveijir góðir menn taki
sig til og boði stofnun þriðju sjón-
varpsstöðvarinnar til þess að Stöð
tvö loki fyrir fréttirnar á nýjan leik.
Ef því má treysta að besta ráðið við
samkeppninni sé að draga úr dag-
skránni og loka fyrir fréttir hjá
Stöö tvö munu þeir Stöðvarmenn
væntanleg snarlega loka aftur þeg-
ar það spyrst að samkeppnin hafi
risið upp að nýju.
Ekki er loku fyrir það skotiö að
ef fréttist til nógu margra sjón-
varpsstöðva komi að því að RUV
loki einnig fréttunum hjá sér,
þannig að hræðslan við samkeppn-
ina geti orðiö til þess að fréttir
hverfi alveg út úr dagskránni og
menn geti lifað eðlilegu og slysa-
lausu lífi.
Dagfari hefur alltaf sagt að sam-
keppnin sé af hinu góða. Hún kallar
það best fram í hverjum manni.
Hún hafði sannarlega góð áhrif á
Stöð tvö sem harðlæsti fréttunum
um leið og spurðist til samkeppn-
innar. íslendingum létti stórlega,
bjartsýni jókst og umheimurinn
leit mun betur út, þegar ekkert
fréttist af hörmungunum nema hjá
RUV. Það lifnaði yfir samfélaginu.
Þeir hjá Stöð tvö verða að gera
sér grein fyrir því að vinsældir
þeirra aukast í réttu hlutfalli við
þá áhorfendur sem ekki eru með
afruglara. Eftir því sem dagskráin
styttist og fréttirnar eru harðlæstar
líður órugluðum og rugluðum ís-
lendingum mun skár og best væri
auðvitað ef þeir lokuðu dagskránni
að fullu og öllu. Þá væri ekkert
ónæði af tveim rásum eða marg-
földum fréttatímum um hörmung-
arástandið í landinu. Er virkilega
ekki nokkur von til þess að auka
samkeppnina til að þetta geti gerst?
Dagfari