Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1990, Síða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Rit&tjjórn - Auglysingar - Á: skrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 1990.
Átök 1 Eyjum:
Ætluðu að
henda lögg-
' unni í sjóinn
F.jórir ungir menn ætluðu að henda
lögreglumanni í höfnina í Vest-
mannaeyjum á sunnudagsmorgun.
Áður höfðu þeir hent ungum manni
í sjóinn. Lögreglan kom fyrst og
fremst til að aðstoða þann sem var í
sjónum. Fjórmenningarnir hindruðu
lögregluna í starfi. Og ekki bara þaö
heldur ætluðu þeir að henda honum
í höfnina. Lögreglumanninum tókst
að halda sér í lögreglubílinn og
sleppa þannig frá köldu baðinu.
Fjórmenningarnir tóku lykilinn úr
lögreglubílnum og hentu honum í
sjóinn. Lögreglumanninum tókst aö
komast að talstöð bílsins og kalla
eftir hjálp.
Eftir að liðsauki barst voru menn-
irnir fjórir handteknir og fluttir í
fangageymslur. Þrír þeirra hafa þeg-
ar játað en einn neitar allri aðild að
málinu. Þeir sem hafa játað eru nú
lausir úr fangageymslunni. í morgun
sat sá fjórði enn inni.
Ekki hefur komið fram hvers
vegna mennirnir höguðu sér svona.
Lögreglan í Vestmannaeyjum lítur
þetta mál mjög alvarlegum augum.
Mennirnir komu í veg fyrir að lög-
Ifcreglan hjálpaði manni, sem var í
sjónum, og eins gerðu mennirnir til-
raunir til að kasta lögreglumanni í
sjóinn.
-sme
Snjókoma á
Vestfjörðum
Snjór var í fjallatoppum víða á
Vestfjörðum í morgun. Snjór var
kominn niður að veginum á Breiða-
dalsheiði en heiðin er í 600 metra hæð
þar sem hæst er.
-sme
Keflavík:
Gaf sig fram
við lögregluna
Ökumaður á bifhjóli, sem lögreglan
í Keflavík reyndi að stöðva á Reykja-
nesbraut í gærkvöld, gaf sig fram
skömmu síðar. Lögreglunni hafði
ekki tekist að stöðva manninn.
Eftir að hann gaf sig fram játaði
hann að hafa ekið á 179 kílómetra
hraða. Hann hafði heldur ekki öku-
réttindi.
-sme
Kirkjubæjarhrossin
ekki á landsmót
•.Eg hef ákveðiðað veraekki með samkvæmt heimildum DV þá er Kii-kjubæjarhrossatma og er þetta hross, sem hafa fengið ebikunn til
og um ástæður þess vil ég sem ástæða þess óánægja hans með gífurlegt áfall fyrir mótið. Sigurður aðmæta,komaekkitilleiks,“ sagði
minnst segja,“ sagði Sigurður Har- starf hrossadómara undanfarið. sagðist hafa fyrirhugað að sýna Þórarinn Sólmundarson, starfs-
aldsson, hestamaður á Kirkjubæ í Mun hann algerlega hafa hafnað ræktunarhóp eins og hann hefur maður framkvæmdanefndar
Rangárvallahreppi, en ljóst er að því að leiða þau fyrír dómara Bún- gert á undanfömum landsmótum. landsmótsins.enmennhafamiklar
hin landsfrægu Kirkjubæjarhross aðarsambandsins. Þessar sýningar Sígurðar eru áhyggjur af því að fleiri fylgi for-
veröa ekki með á landsmóti hesta- Það þarf varla að taka fram því- landsfrægar og ávalit einn af há- dæmi Sigurðar.
manna sem hefst á Vindheimamel- líkur sjónarsviptir verður að punktum mótsins. Sigurður sagðist hafa mætt á öll
um í Skagafirði í næstu viku. Kirkjubæjarhrossunum en rækt- „Það er vissulega slæmt ef landsmót frá upphafi og sagðist
Sigurður sagöist sem minnst vilja unarstarf Sigurðar hefur vakið at- Kirkjubæjarhrossin mæta ekki, hann eiga von á því að mæta þar
segja um ástæður þess að hann hygli um árabil. Það eru fáir sem óháð öðrum kynbótasýningum sjálfur að þessu sinni þó að hestar
myndi ekki mæta með hross sín en geta hugsað sér landsmót án mótsins. Það er áfall fyrir mótið ef hans verði ekki með í fór. -SMJ
Mikil leit 1 Reykjavík:
Sjö ára
strákur
svaf úti
ínótt
Mikil leit var gerð í nótt að sjö ára
dreng sem á heima í Álfheimum í
Reykjavík. Drengurinn fór að heim-
an í gærkvöld og ætlaði á mynd-
bandaleigu við Langholtsveg. Þegar
hann var ekki kominn heim um mið-
nætti höfðu foreldrar hans samband
við lögreglu. Mikil leit hófst þá að
drengnum.
Sporhundur kom til hjálpar um
klukkan þijú í nótt. Þrátt fyrir mikla
leit fannst drengurinn ekki. Það var
svo um klukkan hálfsex í morgun
að hann bankaöi upp á í húsi við
Kötlufell í Breiðholti. Hann bað
heimilisfólkið þar að hringja heim til
sín og láta vita af sér.
Drengurinn gaf þær skýringar að
hann hefði gengiö upp með Elliðaám
og upp Elliðaárdalinn. Hann segist
hafa sofið nálægt einhverjum
bóndabæ. Þegar hann vaknaði gekk
hann að nærliggjandi húsi og bað um
að hringt yrði heim til sín.
-sme
Engar hækkanir til háskólamanna
„Þetta er ekki spurning um lög-
fræði fyrst og fremst. Höfuðatriði
málsins er að ef þessar breytingar
koma til með að hafa áhrif á launa-
kerfið í landinu geta þær ekki komið
til framkvæmda. Það hefur verið
staðfest af fulltrúum allra hinna
stóru aðila vinnumarkaðarins að
þær breytingar, sem BHMR fengi,
myndu jafnskjótt ganga til annarra.
Það hefði tvennt í fór með sér. Ann-
ars vegar að verðbólgan færi af stað
á nýjan leik og hins vegar að BHMR
stæði í sömu sporum þegar sú hring-
rás væri hafinn. Ég held að það vilji
nú enginn," sagði Ólafur Ragnar
Grímsson íjármálaráðherra.
- Þið munuð þá ekki hleypa neinum
hækkunum til BHMR í gegn?
„Nei, þegar það liggur ljóst fyrir
að það mun valda röskun á almenn-
um vinnumarkaði."
-gse
Árlegur Jónsmessufagnaður norrænu vinafélaganna og Norræna hússins var haldinn aðfaranótt sunnudagsins
með tilkomumikilli brennu og tilheyrandi gleði. Veður var með besta móti og lögðu margir leið sína að Norræna
húsinu í Reykjavík. DV-mynd S
LOKI
Þaö er eins gott
að Vestmannaeyingar
séu vel syndir.
Veðrið á morgun:
Minnkandi
norðlæg átt
á landinu
Heldur minnkandi norðlæg átt
á landinu. Áfram má búast við
rigningu eða súld um allt norðan-
vert landið en heldur dregur þó
úr úrkomu. Á Suðvestur-, Suður-
og jafnvel sums staðar á Suðaust-
urlandi verður þurrt og víða létt-
skýjað.
SKUHUBIMR
25050
SENDIBÍLASTÖÐIN Hf
opið um kvöld og helgar
K&ntucky
Fried
Chicken
m\
Faxafeni 2, Reykjarík
Hjallahrauni 15, Hafnarfírði
Opið alla daga frá 11-22