Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1990, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 1990.
3
Fréttir
Stöðugleiki að færast yfir síldarkvótann:
90.000 tonnin eru
að festast í sessi
- tæpum 4.000 tonnum hent á síðustu vertíð
Hafrannsóknastofnun leggur til aö
veidd verði 90.000 tonn af íslenskri
sumargotssíld á árunum 1990 og 1991.
Þetta er sama magn og stofnunin
lagði tii að yrði veitt 1989 og virðist
þessi tala vera að festast nokkuð eft-
ir uppbyggingu á síldarstofnum sem
Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar, telur vera skýrasta
dæmið um verndarmátt stofnunar-
innar.
Á síðasta ári fékk 91 skip leyfi til
síldveiða og átti að veiða 97.000 tonn
sem var úthlutað. Alls var landað
97.270 tonnum af síld. Þá kom fram
í skýrslum skipanna að um 3.700
tonnum var sleppt á miðunum þann-
ig að veiðitölur fara upp í 101.000
tonn. Um 66% þessa aíla fóru í fryst-
ingu og söltun en 34% í bræðslu. Það
hlutfall, sem þá fór í bræðslu, er
miklu hærra en mörg undanfarin ár
en sem kunnugt er fæst þá mun
minna fyrir síldina þegar hún fer í
bræðslu.
Hafrannsóknastofnun bendir á að
frá því 1975, að veiðar hófust aftur
úr íslenska sumargotsstofninum,
hafi veiði verið stillt mjög í hóf og
hafi hún miðast við svokallaða kjör-
sókn.
Gert er ráð fyrir að hrygningar-
stofninn verði um 500.000 tonn árið
1990. Góðir árgangar hafa bæst í
stofninn að undanförnu og hefur
nýting hans verið miðuð viö það.
Haustið 1989 beindist veiðin einkum
að sterkum árgangi frá því 1983. Er
gert ráð fyrir að í ár veiðist mest úr
Þús.
tonn
100
80
60
40
20
Hér sést heildarafli árin 1975 og 1989 af íslensk'u sumargotssíldinni. Sést
að aflinn hefur stöðugt verið að aukast síðan veiðar voru leyfðar aftur 1975.
þessum árgangi. Einnig er gert ráð
fyrir að talsvert veiðist af 1986 ár-
ganginum.
Þá nefndi Jakob að menn biðu
spenntir eftir uppbyggingu stærsta
síldarstofns í heimi eða norsk-
íslensku síldarinnar. Sá stofn mun
nú vera um 1,5 milljónir tonna en
var um 10 milljónir tonna þegar best
létásíldarárunum. -SMJ,
Nýja skipið frá Portúgal, Haukafell,
við bryggju á Höfn. DV-mynd Ragnar
Höfn í Homafirði:
Nýtt fiskiskip
frá Portúgal
Júlia Imsland, DV, Hö&i:
Nýtt fiskiskip, Haukafell SF 111,
kom til Hornafjarðar í byrjun man-
aðarins og er Haukafell hf. á Höfn
eigandinn.
Skipið, sem er fyrst af þremur skip-
um sömu stærðar sem smíðuð eru
fyrir Hornflrðinga í Portúgal, er 150
tonn og kostaði 138 milljónir króna.
Haukafell er útbúið fyrir net, nót og
troll. í áhöfn eru níu manns og skip-
stjóri er Axel Jónsson.
Axel er mjög ánægður með nýja
skipið og sagði að heimferðin hefði
tekið sex sólarhringa og tvær
klukkustundir. Ganghraði er 9,5 til
10 mílur á klukkustund. Haukafell
fer á troll einhvern næstu daga.
Römmer
sútaug
Regína Thorarensen, DV, Gjögri:
Ég hitti Sólveigu Kristinsdóttur frá
Dröngum í mannfagnaði í Trékyllis-
vík sl. sunnudag vegna 100 ára ártíð-
ar ömmu hennar, Sólveigar Stefaníu
Benjamínsdóttur frá Seljanesi.
Sólveig er barnabarn Sólveigar
Stefaníu, ljósmóðir aö mennt og gift
heilsugæslulækninum á Akranesi,
Þóri Þórhallssyni. Þau voru að full-
klára sumarbústað sinn á Dröngum,
45 m2 að stærð. Römm er sú taug...
Sólveig er uppalin á Dröngum en það
er nyrsti bær í Árneshreppi en hefur
veriö mörg ár í eyði. Hún er dóttir
heiðurshjónanna Önnu Guðmunds-
dóttur og Kristins Jónssonar frá
Dröngum. Hún á 14 systkini.
Biluðum bílum VvAji
á a ð koma út fyrir
vegarbrún!
FRAMDRIFSBILL
Á UNDRAVERÐI
Lada Samara hefur alla kosti til aö bera sem
íslenskar aöstœöur krefjast af fólksbíl, í
utanbœjar- sem innanbœjar akstri. Þaö er ekki
aö ástœöulausu sem Lada Samara er
metsölubíll, því veröiö er hreint undur og ekki
spilla góö greiöslukjör.
Lada Samara 5 gíra frá kr. 495.886.- stgr
Lada Samara 4 gíra frá kr. 452.480.- stgr I
Opiö alla daga frá kl. 9—18 og laugardaga frá I
10-16. I
VERIÐ VELKOMIN í
BIFREIÐAR & LANDBUNAÐARVELAR
Suðurlandsbraut 14 107 Reykjavík, sími 38600 10 línur