Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1990, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1990, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 1990. Viðtaliö Fisktæknir ogviðskipta- fræðingur Nafa; Gísli Jón Kristjánsson Aldur: 31 érs Starf: Fiskmatsstjóri Ríkismats sjávarafurða „Starfiö felst í aö veita Rikismati sjávarafurða forstöðu. Þetta er fyrst og fremst eftirlitsstofnun sem fylgist með allri starfsemi í sjávarútveginum, sér um gæða- eftirlit og eftirlit raeð hreinlæti og búnaöí,“ segir Gísli Jón Krist- jánsson, nýskipaður fiskmats- stjóri. 15áratilsjós „Starfið leggst vel í mig, Ég er búinn að vera hjá stoftiuninni í þrjú ár og það hefur náðst góöur árangur í hreinlætis- og búnaðar- málum. Þrátt fyrir það eru mörg verkefhi framundan." Gísli er fæddur í Reykjavík en bjó lengst af í Kópavoginum. „Ég er alinn upp á sjómannsheimiii og fyrstu störf mín í sjávarútveg- inum voru þegar ég fór 15 ára gamali til sjós á síðutogara frá Akranesi. Eftir eitt sumar á sjónum tók landvinnslan við. Ég vann nokk- ur sumur í ísbiminum viö al- menna fiskvinnslu og við það vaknaði áhugi á fiskvinnslunni." Unniö i fiskvinnslu Gísli fór i Fiskvinnsluskólann og Flensborg í Hafnarfirði og út- skrifaðist sem fiskiðnaöarmaðu? árið 1979 og fisktæknir áriö 1981. „Með þessu námi starfaði ég í fiskvinnsiu, bæði í Barðanum í Kópavogi og svo eitt sumar hjá Hjálmi á Flateyri. Síðan venti ég minu kvæði í kross og fór í viðskiptafræðinám í Háskóla íslands. Ég skipti þá líka um starfsvettvang og vann á sumrin hjá Vífilfelli hf. þar sem ég kynntist rnálum er lúta aö við- skiptalífinu." Gísli útskrifaðist sem við- skiptafræðingur árið 1987 og var þá boðíð starf hjá Ríkismatinu. Þar hefur hann starfaö um þriggja ára skeið, lengst af sem forstöðumaöur eftirlitssviðs stofnunarinnar. Les um stjórnunarfræði „Helsta áhugamál mitt er sjáv- arútvegsmái í heild sinni. Auk þess hef ég gaman af bókalestri, sérstaklega bókum sem tengjast stjómunarfræðum. Fjölskyldan er einnig áhugamál mitt og mér finnst gott að eiga fri með henni og ferðast um. Ég ferð- ast að vfsu alltof iítið en þegar tækifærin gefast þá finnst mér það mjög gaman.“ Gísii segir að félagsstörfin snú- ist aö mestu um sjávarútveginn. A síöasta ári var hann formaöur Fagfélags fiskiðnaöarins og er endurskoðandi í Gæðastjómun- arfélagi íslands og meðlimur í Sfjórnunarfélagi ísiands. Kona Gisla er Sigríður B. Vil- hjálmsdóttir og búa þau hjónin, ásamt dóttur þeirra, Erlu Dóru, sem er fimm ára, í vesturbæ Reykjavíkur. -BÓl Fréttir Uttekt á tekjum fasteignasala: Sá hæsti með 1,2 milljónir í tekjur Miðað við áiagt útsvar á tekjur ársins 1989 haíði Sverrir.Kristinsson fasteignasali að meðaitali rúmlega eina milljón króna í mánaðartekjur. Ef þær tekjur em framreiknaðar til verðlags í júlí 1990 var hann með jafngildi rúmlega 1,2 milijóna króna í tekjur á mánuði. Athygli vekur hve litlar tekjur sumir fasteignasalar gefa upp. Frið- rik Stefánsson í Þingholti rétt nær t.d. meðallaunum og Daníel Árnason er litlu hærri. Þá er greinilega áætlað á þrjá fasteignasala, Dan Wiium, Áma Stefánsson og Oskar Mikaels- son. Þeirra staða á þvi væntanlega eftir að breytast nokkuð. Þá verður að athuga að Jón Magnússon er nú þekktari sem lögfræðingur og tekjur hans og sjálfsagt fleiri aðila koma annars staðar frá en úr fasteignasöl- unni. í fyrri dálkinum eru sýndar skatt- skyldar tekjur á mánuði árið 1989. í seinni dálkinum eru þessar sömu tekjur sýndar framreiknaðar til verðlags í júlí 1990. Þá er miðað við hækkun framfærsluvísitölu sem nemur 15,55% frá nfeðaltali ársins 1989 til júlímánuðar 1990. Það verður að hafa í huga að tekjur þeirra fylgja ekki framfærsluvísitölu svo líklega era þeir ekki með lægri tekjur en framreiknunin sýnir. -PJ Tekjurá mán.'89í Áverðl.júlí þús. kr. '90íþús.kr. Sverrir Kristinsson, Eignamiðlun................. 1.051 1.214 Þórólfur Halldórsson, Eignamiðlun.................. 438 507 Jón Guðmundsson, Fasteignamarkaðurinn..... 384 444 Jón Magnússon, Skeifan............................. 367 424 Atli Vagnsson, Vagn E. Jónsson..................... 289 334 Dan V. S. Wiium', Kjöreign......................... 208 241 ÓskarMikaelsson', Huginn........................... 187 217 Árni E. Stefánsson', Gimli........................ 138 160 Daníel Árnason, Húseignirogskip.................... 135 156 Friðrik Stefánsson, Þingholt....................... 101 116 ' áætlað á viðkomandi : Aðalbláberá Ströndum Regína Thorarensen, DV, Gjögii Hjónin Sveinbjörg Magnúsdóttir og HaUur M. Magnússon, lögregluþjónn í Keflavík, hafa verið undanfama daga í sumarbústað Magnúsar, fóður Sveinbjargar á Skarði í Bjarnarfirði hér í Strandasýslu. Þau tíndu þrjá potta af aðalbláberj- um á miðvikudag, 8. ágúst, og eru berin stór og vel þroskuð. Ekki var þó mikið um aðalbláber þarna enda voraði seint hér í brekkum. Leiðrétting: ' Suðureyri - ekki Súðavík í frétt DV á fimmtudag um erfiðleika á Suðureyri skoluðust staðarnöfnin til. í fréttinni var verið að tala um erfiðleika á Suðureyri en ekki Súöa- þessari loftmynd sést hvar verið er að byggja inntaksstöð fyrir stöðvarhúsið sem er allt neðanjarðar. Fjær á myndinni má síðan sjá rofahús stöðvarinnar. Blönduvirkjun verður 150 megavött. DV-mynd Magnús Ólafsson vík. DV biðst velvirðingar á þessum mistökum. -pj GistingíMýrdal: Stutt í áhugaverða staði Páll Pétursson, DV, Vik í Mýrdal: Á bænum Höfðabrekku í Mýrdal reka hjónin Jóhannes Kristjánsson og Sólveig Sigurðardóttir feröaþjón- ustu bænda. Gistiaðstaða er á sérhæö á bænum og í sérhúsi með eldunar- aöstöðu. Að sögn Sólveigar hefur mikið verið að gera í gistingunni í allt sumar, bæði útlendir ferðamenn og íslendingar. Algengt er að pöntuð sé gisting með stuttum fyrirvara, nema útlendingamir sem panta oft á vetuma. Frá Höfðabrekku er stutt í áhugaverða staði, svo sem Dyrhóla- ey, Mýrdalsjökul og í bátsferðir frá " - Höfðabrekka í Mýrdal. DV-mynd Páll Vík til að skoða Reynisdranga. Sérstaða Höfðabrekku í ferðaþjón- ustunni er sú að þar era seld veiði- leyfi í tjömum sem era hjá bænum. Jóhannes sagði að í þessar tjarnir heföi verið sleppt silungi og laxi og er kvóti upp á fimm silunga innifal- inn í veiðileyfinu. Ef fleiri fiskar veiðast þarf að borga aukalega. Ef lax veiðist þá er hann bónus - ekki greitt fyrir laxinn. Mikið var að gera í veiðiskapnum þarna um verslunarmannahelgina. Margir gestir á fjölskylduhátíðinni í Vík komu til að veiða í góða veðrinu. Á bænum era leigðar veiðistangir. Stangaveiði i tjörn við Höfðabrekku. DV-mynd Páll

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.