Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1990, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 1990.
11
Utlönd
íbúar (átækrahverfis í Lima í Perú reyna að grípa matvæli sem kastað er
ofan af þaki verslunar. Greipar voru látnar sópa um matvælaverslanir i
mótmælaskyni við þreföldun brauðverðs og álíka hækkanir á öðrum mat-
vælum. Símamynd Reuter
Perú:
Gíf urlegum verð-
hækkunum mótmælt
íbúar fátækrahverfa í Lima í Perú
létu í gær greipar sópa um matvöru-
verslanir og réðust inn í nokkra
banka. Voru þeir að mótmæla þeim
gífurlegu verðhækkunum á matvæl-
um og bensíni sem nýr forseti lands-
ins, Alberto Fujimori, hefur fyrir-
skipað.
Þrátt fyrir mikinn viðbúnað lög-
reglu og hermanna segjast yfirvöld
búast við frekari óeirðum í kjölfar
morða á þremur mótmælendum sem
myrtir voru af hermönnum.
Efnahagsmálaráðherra Perú, Juan
Hurtado Miller, tilkynnti á miðviku-
daginn 3.100 prósenta hækkun á
bensínverði og gífurlegar hækkanir
á matvælum. Reyna á að fá fé með
þessum hætti í tóman ríkiskassann.
Á einni nóttu þrefaldaðist verð á
brauði, verð á núðlum fjórfaldaðist
og verð á gasi til eldunar hækkaði
tuttugu og flmmfalt.
Umferð um Perú lamaðist í gær þar
sem ökumenn almenningsvagna
neituðu að aka í mótmælaskyni við
hækkun bensínverðs.
Leiðtogar kirkjunnar hvöttu menn
til aö sýna stillingu en embættis-
menn kváðust óttast að skæruliöa-
samtökin í Perú myndu nota tæki-
færið og hvetja til frekari gripdeilda.
Reuter
Var sj árbandalagsríkin:
Bjartsýn um
Vínarsáttmála
Sovétríkin og bandalagsríki þeirra
í Varsjárbandalaginu sögðust í gær
bjartsýn á að samkomulag um fækk-
un hefðbundins herafla í Evrópu
lægi fyrir fljótlega. Nú standa yfir í
Vínarborg viðræður um fækkun
hefðbundins herafla í Evrópu og
kváðust fulltrúar ríkja Austur-Evr-
ópu bjartsýnir á að undirritun slíks
sáttmála gæti farið fram í nóvember.
En hvað sem því líður er ljóst að
enn á eftir að ganga frá ýmsum mál-
efnum. Ungverski utanríkisráðherr-
ann, sem og yfirmaður sendinefndar
sovésku samninganefndarinnar í
Vínarviðræðunum, sögðu í gær að
enn væri ágreiningur meðal hinna
sjö aðildarríkja Varsjárbandalagsins
um hvernig haga beri niðurskurði
vopnanna og hversu mikla fækkun
hvert ríki taki á sig.
Samninganefndir Varsjárbanda-
lagsins og Atlantshafsbandalagsins
reyna nú að ná samkomulagi í
grundvallaratriðum fyrir fyrirhug-
aðan leiðtogafund aðildarríkja
RÖSE, Ráðstefnunnar um öryggi og
samvinnu í Evrópu, í nóvember.
„Ég tel að raunhæfur möguleiki sé
á að samningur kunni að liggja fyrir
(í nóvember) þrátt fyrir knappan
tíma,“ sagði Oleg Grinevsky, einn'
helsti samningamaður Sovétmanna
í Vínarviðræðunum, í gær.
Ungverski utanríkisráðherrann
sagði að enn væri ágreiningur meðal
aðildarríkja Varsjárbandalagsins um
fækkun í samræmi við hugsanlegt
samkomulag í Vín. Stjórnarerind-
rekar segja að krafa Moskvustjórn-
arinnar sé sú að sovéskur herafli
verði ríflega þriðjungur af heildar-
herafla Austur-Evrópu eftir fækkun
í samræmi við Vínarsáttmála. Þetta
fellur hinum ríkjum Austur-Evrópu
ekki, segja stjórnarerindrekarnir.
Heimildarmenn segja að fulltrúar
aðildarríkja Varsjárbandalagsins
muni koma saman til fundar í Tékkó-
slóvakíu á næstu vikum til að ræða
þetta ágreiningsefni.
Reuter
Tímamótauppgötvun í læknisfræði:
Slökkt á krabba-
meinsgeni
Hiroto Naora, ástralskur prófessor, heldur á tilraunamús. Hópi visinda-
manna undir forystu Naora hefur tekist að stöðva vöxt krabbameins í til-
raunamúsum og snúið við vexti æxlverkandi gena i petrískál Simamynd Reuter
Vísindamenn í Ástralíu kváðust í
gær hafa í fyrsta sinni snúið við vexti
krabbameinsfrumu með því að
„slökkva á“ geninu sem orsakaði
sjúkdóminn. Vísindamennirnir segja
þetta tímamótauppgötvun á sviði
læknavísinda.
Prófessor Hiroto Naora við Ástr-
alska háskólann í Canberra sagði í
samtali við Reuter-fréttastofuna að
með því að beita nýrri erfðatækniað-
ferð, sem rannsóknarhópur á sínum
vegum hefði þróað, hefði vísinda-
mönnum tekist að snúa við vexti ill-
kynja æxlis. Vísindamennirnir
komu fyrir aöskotageni nærri æxl-
valdandi geni í petrískál, grunnri og
flatbotna plast- eða glerskál sem
einkum er notuð til gerla- eða frumu-
ræktunar. Lífefnahvati var notaður
til að virkja aðskotagenið sem aftur
leiddi til þess að „átök“ brutust út
milh genanna í skálinni. Þessum
átökum lauk með sigri „góða“ gens-
ins, aðskotagensins, sem gerði hið
æxlvaldandi gen óvirkt. Árangurinn
lét á sér standa og krabbameins-
frumumar breyttust snarlega og
urðu góðkynja. Vísindamennirnir
leggja áherslu á að genunum hafi
verið komið fyrir, hlið við hlið, í
petrískáhnni.
Naoro segir að aðferð þessari hafi
verið beitt á tilraunamýs en að frek-
ari rannsóknir standi nú yfir til að
kanna hvort krabbameinsfrumumar
í músunum hafi breyst í góðkynja
frumur. Hann kvaðst ekki sjá neitt
er mælti gegn því að þessari aðferð
yrði beitt til að hafa stjórn á krabba-
meinsfrumum í mönnum en áður en
slíkt gerðist yrðu frekari rannsóknir
að fara fram.
Reuter
okkur
ganga allir viimmgar út!
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002