Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1990, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 1990.
13
Lesendur
Laxveiði 1 sjó:
Líka hafbeitarstöðvar
Trausti Bjarnason skrifar:
Stjórnendur Vogalax hrópa hátt
um þessar mundir um laxveiði í sjó,
hún standi stööinni bókstaflega fyrir
þrifum öll þessi ólöglega veiði í sjó
sem sé stunduð meðfram ströndinni
á öllum Suðurnesjum og víðar. Þeir
vitna réttilega í lög sem banna lax-
veiöi í sjó við strendur íslands enda
erum viö að berjast á alþjóðavett-
vangi gegn laxveiðum í sjó. - Þökk
sé Orra og félögum (ekki svo að skilja
að ég sé að mæla þessu bót).
En nú er komið að kjarna málsins.
Vogalaxmenn veiða nefnilega allan
lax sem þeir fá í sjó og hafa alltaf
gert. Það hefur nánast enginn lax
gengið upp í stöðina af sjálfsdáðum.
Það er girt fyrir víkina og síðan er
allt sem lendir fyrir innan girðing-
una háfað með bílkrana upp í stöð.
Hvernig ætia Vogalaxmenn að
ábyrgjast að sá lax, sem þeir veiða
þannig í sjó, sé allur frá þeim kominn
en ekki úr öðrum hafbeitarstöðvum
eöa laxveiðiám? - Hvað gerist þegar
lax úr t.d. lítilli laxveiðiá lendir
kannski í laxatorfu úr hafbeitarstöð,
og svo er háfað upp, úti í sjó? Fer
ekki eitthvað af þeim laxi með?
En Vogalaxmenn eru ekki einir um
þessa iðju. í Hraunsfirði á Snæfells-
nesi er nefnilega hafbeitarstöð við
brúna yfir Hraunsfjörð, sem er úti í
miðjum firði. Þar er allur lax veiddur
í sjó! Hvað um Lárós, sem er með
alls konar tilfæringar úti í sjó? Og
svona mætti halda lengi áfram að
telja upp fleiri og fleiri.
Þessi framkoma er til skammar
fyrir okkur íslendinga og er kannski
að eyðileggja okkar yndislegu lax-
veiðiár. Um þetta væri hægt að skrifa
langt mál, en nóg að sinni hér. - Að
endingu þetta: Orri og félagar; snúið
ykkur að þessari sjávarveiði. Stjórn-
málamenn; stöðvið þennan ósóma
strax. Stjórnendur hafbeitarstöðva;
hættið þessari sjávarveiði nú þegar,
þar sem hún er brot á landslögum,
og látið laxinn ganga eðlilega upp í
eldisstöðvarnar.
Um límúsínur
Kristinn Snæland skrifar:
Bjarni Pálmarsson, sá sem hefur
fengið rekstrarleyfi fyrir 5 límúsín
bifreiðar í Reykjavík, eyðir 60
dálksentímetrum í DV sl. mánudag
til að svara grein minni um límús-
ínleyfin, sem birtist í blaðinu hinn
27. júlí sl. - og það þótt hann telji
grein mína ekki svaraverða. Guð
hjálpi mér og lesendum DV ef
Bjarni hefði talið grein mína svara-
verða!
Að mínu mati snýst mál þetta um
þá skrýtnu ákvörðun Umsjónar-
nefndar leigubifreiða í Reykjavík
og nágrenni að samþykkja venju-
lega stóra Buick bifreið sem límús-
ín bifreið. Framleiðendur þessarar
bifreiðar og aðrir sem þekkja til
bifreiða kalla viðkomandi bifreið
ekki límúsín bifreið. Þess vegna er
nefndin að stuðla að viðskiptasvik-
um með því að heimila notkun
hennar í nafni þess fyrirtækis sem
auglýsir „B.P. Limousine þjónust-
an“.
Það skal tekið fram, að ég - og
mér virðist leigubílstjórar almennt
- ekki amast við því þótt Bjarni
fengi leyfi til reksturs fimm limous-
ine bifreiða, heldur framkvæmd-
inni sjálfri, þ.e.a.s. þeirri að heimila
honum rekstur fimm venjulegra
leigubifreiða undir nafninu „limo-
usine“. - Með því er aðeins verið
að fjölga venjulegum leigubifreið-
um um fimm, á sama tíma og al-
mennt er verið að reyna að fækka
í stéttinni.
Það skal sérstaklega tekið fram,
að „eðalvagnar", fallegri, betri og
vandaðri en Buick Bjarna eru þeg-
ar á bifreiðastöðvum borgarinnar.
Þess vegna eru leyfin til Bjarna
með stóra ameríska dreka bara
rugl og umsjónarnefndinni til
skammar.
Bjarni heldur því fram að límúsín
bílar séu til í þremur stærðarflokk-
um. Látum sem það sé rétt, en þá
má bæta því við að allir bílar, sem
flokkast í þessa þrjá flokka, eru
raunverulegir límúsínbílar. Það er
Buickinn ekki.
í raun er það furðulegt að Bjarni
skuh vera að sperrast með þessa
„limousine" þjónustu þegar hann
segir sjálfur: „Það er einfaldlega
ekki hægt að nota stærri gerðir af
limúsínum hér á landi". - Það sem
hangir á spýtunni, að mínu mati,
er að Bjarni vilji fá leyfi til þess að
reka fimm stóra ameríska bíla og
geta með því verið bæði inni á al-
mennum markaði leigubifreiða og
í því sem hann kýs að kalla „limo-
usine“ þjónustu.
Því míður hefur umsjónamefnd-
in gengið til liðs við Bjarna í rugli
þessu og er með því að eyðileggja
trúnað sinn við leigubílstjóra.
Leigubílstjórar hafa þegar undir-
ritað mótmæli gegn þessu, enda
telja þeir leyfin til Bjarna stuðla
að upplausn í stéttinni. - Að lokum
vil ég bæta við, að grunnhygginn
er Bjarni þegar hann segir: „Allt
umtal er hin besta auglýsing." -
Staðreyndin er sú að með því að
reyna að selja rækju fyrir humar
verður maðurinn aðeins frægur af
endemum, og verði honum að góðu,
ef hann kýs sér það hlútskipti.
H agkvæmt kvikmyndasamstarf
Þorsteihn Jónsson, framkvæmdastj.
Kvikmyndasjóðs íslands, skrifar:
„Axel“ nokkur hringdi til DV 20.
júlí sl. og vildi setja upp merki stöðv-
unarskyldu og fannst ekki verjandi
af ráðherranum að samþykkja þetta
verkefni. Axel vill beita stöðvunar-
skyldunni á röngum stað. Gera verð-
ur upp á milli verkefna eftir því hvort
þau eru hagkvæm eða ekki. - Þarna
er um það að ræða að íslendingar fá
meira en þeir leggja fram.
1. Framlag íslendinga veröur hlut-
fallslega lægra heldur en framlag
hinna Norðurlandanna.
2. íslenska kvikmyndin nýtur kynn-
ingar sem við höfum að öðrum
kosti ekki efni á. Sú kynning verð-
ur stökkpallur fyrir hana og fleiri
íslenskar myndir á erlendum
markaði og skilar okkur hagnaði.
3. Þátttöku í verkefninu fylgir 30
milljón króna styrkur úr Norræna
kvikmynda- og sjónvarpssjóðn-
um.
4. Á móti íslenska framlaginu í
myndum hinna Norðurlandanna
eignast þeir hluta í dreifingarrétti
á þessum myndum sem getur skil-
að hagnaði. Það er happdrættis-
miði sem getur skilað stórum
vinningi því verkefnin, sem valin
eru, eru stærstu og metnaðar-
fyllstu verk sem sett eru í gang á
þessu ári á Norðurlöndunum.
Þegar á heildina er litið þurfa ís-
lendingar að leggja fram íjárhæð sem
er lægri en kostnaðarverð myndar
þeirra og fá í staðinn verðmæti sem
eru meiri en kostnaðarverð hennar.
- Niðurstaðan er því sú að þarna er
um góða ávöxtun þessara peninga
að ræða, auk þess sem við framleið-
um eina vandaða íslenska kvikmynd.
OKKARÁRLEGI
HEILDSÖLUMARKAÐUR
VERÐUR OPNAÐUR
ÁMORGUN
AÐ BÍLDSHÖFÐA 16
• Barnafatnaður
9 Karlmannafatnaður
9 o.íl. o.fl.
Opiðfrákl. 13.00-18.00 allavirka
daga, laugardaga frá
kl. 10.00-14.00.
ATH. Aðeins opið 2-3 vikur.
HNOÐRI HF.
EINSTAKT Á ÍSLANDI
Úrval
TÍMARIT FYRIR ALLA