Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1990, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1990, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 1990. Utlönd Geimf ararnir loksins komnir heim Sameinuðu þjóðimar lýsa innlimun Kuwait í írak ómerka: Sovésku geimfararnir, Anatoli Solovyov (til vinstri) og Alexander Bal- andin. Simamynd Reuter Tveir sovéskir geimfarar, Anatoli Solovyov og Alexander Balandin, sem dvalist hafa í Mir-geimstöðinni síðan í febrúar síðastliðnum, lentu heilu og höldnu á sléttum lýðveldisins Kazakhstan í gær. Á meöan geímfararn- ir voru í stöðinni bárust fregnir af því að þeir hefðu lent 1 mesta basli með geimskipið sitt. Á tímabili töldu margir að tæknileg vandamál kynnu að koma í veg fyrir að þeir ættu afturkvæmt til jaröar. En sem betur fer tókst að kippa því í liðinn og mennirnir eru nú aftur komnir með báöa fætur á jörðina. Mannskæður fellibylur Fellibylurinn Díana, sem gekk með offorsi yflr austurströnd Mexíkó í þessari viku, hefur kostað að minnsta kosti 23 lífið að sögn embætt- ismanna. Nítján fórnarlambanna drukknuðu nærri Huejutla, um 200 kíló- metra norðaustur af Mexíkóborg. Þar fylgdi gífurleg úrkoma Diönu og kváðust íbúar þessa hluta landsins aldrei hafa séð annað eins. Díana náöi strönd Mexíkó á þriðjudag. Þá var töluverður kraftur í henni og vindhraði allt að 150 kilómetrar á klukkustund. En skömmu síðar dró úr veðurofsanum. Verstu skemmdimar urðu í Hidalgo-fylki þar sem hundruð húsa skemmdust, sum eru gereyðilögð. Flóö fylgdu og í kjölfar hennar og uppskera skemmdist. Tvö hundmð þúsund manns misstu heimili sín. Bömin fórnarlömb glæpabylgjunnar Glæpaalda í New York í Bandaríkjunum hefur kostað fjögur saklaus börn lífið á rúmum hálfum mánuði. Alls hafa sjö böm, þar af fjögur undir tiu ára aidri, orðið fyrir skoti síöustu nítján daga og, eins og fyrr sagði, létust fjögur. Ljóst þykir að skotunum hafl alls ekki verið beint að börnunum heldur hafi þau lent mitt í skothríðinni. Einn þrettán ára drengur varð fyrir skoti þegar hann stöðvaði hjólið sitt til að horfa á tvo menn rífast úti á götu. Annar mannanna dró upp byssu og skaut á hinn. Drengurinn varð fyrir skoti en lifði af. í kjölfar vaxandi ofbeldis vilja margir embættismenn í New York heröa reglur um byssukaup og skráningu skotvopna í borginni. En lögregla segir að öflug skotvopn sé auðvelt að kaupa á svörtum markaði. „Eitt sinn var það svo að fólk barðist með hnefunum en nú grípur það til byss- unnar,“ sagöi talsmaður lögreglunnar í borginni. Uppreisnarmenn ákærðir Abu Bakr, leiðtogi uppreisnarmanna á Trinidad og Tobago, gefur sig á vald lögreglu. Simamynd Reuter Rúmlega eitt hundrað uppreisnarmenn, sem tóku forsætisráðherra og 46 aðra embættismenn Trinidad og Tobago fanga í síðasta mánuði, voru í gær ákærðir fyrir ýmis brot, aiit frá því að bera vopn til landráðs. Ekki er vitað hvenær réttarhöldin yfir þeim hefjast. Auk þess voru lagðar fram ákærur á hendur 114 öðrum uppreisnarmönnum að þeim fjarverandi. Margir uppreisnarmannanna geta átt dauðadóm yfir höfði sér verði þeir fundnir sekir. Uppreisnarmennirnir réðust inn í þing Trínidad og Tobago í síðasta mánuði og tóku marga embættismenn í gíslingu. Þeir sökuðu stjórnina um spillingu og morð. Gislarnir voru látnir lausir á miðvikudag og skömmu síðar voru margir uppreisnarmannanna handteknir. Tugir látast í röstum í S-Afríku Að minnsta kosti 33 hafa látist í róstum í suður-afrísku borginni Port Elizabeth síðustu þrjá daga. Yfirvöld hafa ákveðið að senda liðsafla til aö aöstoða lögregluna í borginni aö halda uppi lögum og reglu, Miklar skemmdir hafa orðið á verslunarhúsnæöi og heimilum. Róstumar hófust á mánudaginn þegar lögregla beitti táragasi til að tvístra mannfjölda sem komiö hafði saman til að mótmæla hækkun á leigu. Mótmælendurnir reistu vegatálma í borginni til að loka af norður- hluta hennar þar sem fólk af blönduðum kynstofni býr. Auknir liðsf lutn- ingar íraka suður á bóginn - neyðarfundir Arabarikja og utanríkisráðherra NATO boðaðir Kuwaisk börn i bíl foreldra sinna rétt eftir aö þau komust yfir landamæri íraks og Jórdaniu í gær. Símamynd Reuter Um fimmtíu þúsund íraskir her- menn voru í gær á leið suður í átt til Kuwait og fjöldi íraskra hermanna söfnuðust saman við landamæri ír- aks og Tyrklands, aö því er heimild- armenn í bandaríska varnarmála- ráðuneytinu sögðu. Ef hermennirnir, sem voru á leið suður á bóginn, sameinuðust þeim sem fyrir eru í Kuwait, yrði saman- lagður tjöldi íraskra hermanna þar hundrað og sjötíu þúsund, að sögn sömu heimildarmanna. Ekki er vitað hversu margir íraskir hermenn eru við landamæri Tyrklands. Tyrknesk yfirvöld hafa samþykkt að neita flutningaskipum aðgang að olíuleiðslu íraka sem hggur gegnum Tyrkland og framfylgja þar með við- skiptabanni Sameinuðu þjóðanna gegn írak. James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, heimsótti Tyrkland í gær til að tryggja hemaðarlegan stuðning ef írakar gerðu árás. Baker reyndi auk þess að fá samþykki fyrir aðild Tyrklands að fjölþjóöaher. Bandarískar sprengjuflugvélar hafa að undanfórnu veriö í Tyrklandi vegn heræfinga á vegum Atlants- hafsbandalagsins. Ráðgert var að tvö bandarísk sjúkraskip, sem hvort um sig hefur rými fyrir þúsund særða hermenn, myndu sigla í gær til Persaflóa, að þvi er kom fram í sjónvarpsfréttum í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Innlimun úrskurðuð ógild Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna úrskurðaði í gær innlimun Kuwait í írak ógilda og krafðist þess að íraski herinn færi þegar úr stað úr landinu. Á sama tíma hótuðu írakar aö beita efnavopnum ef á þá yrði ráðist. Þúsundir útlendinga eru innilok- aðir í írak og Kuwait. írösk yfirvöld tilkynntu bandaríska utanríkisráðu- neytinu í gær að flestir útlending-' anna í írak fengju ekki að fara úr landi. Búist við átakafundi Leiðtogar Arabaríkja munu reyna á fundi sínum í dag að finna frið- samlega lausn á Persaflóadeilunni og undankomuleið fyrir Saddam Hussein írakforseta. Þannig vonast þeir til að koma í veg fyrir átök við Persaflóa sem margir segja að séu nú næsta óhjákvæmileg. Yassin Taha Ramadan, varaforsæt- isráðherra íraks, sækir leiðtogafund Arabaríkja fyrir hönd Husseins. Leiðtogafundurinn átti að hefjast í gær en var frestað til dagsins i dag til að fulltrúar gætu sest niður og rætt ágreiningsefnin. Ljóst er að fundur þessi verður mikill átakafundur. Emírinn af Kuwait, sem Hussein steypti með innrás sinni í landið fyrir rúmri viku, mun sækja fundinn en írakar voru mjög andvígir því. Að minnsta kosti sautján af tuttugu og einum þjóðar- leiðtoga aðildarríkja Arababanda- lagsins hafa sagst munu sækja fund- inn sem verður haldinn í Egyptal- andi. Heimildarmenn segja að Egypta- land og Saudi-Arabía reyni nú að sannfæra hin aðildarríki Araba- bandalagsins um nauðsyn og rétt- mæti þess að setja á laggirnar herlið Arabaríkja sem ho^sanlega kynni síðar að taka stööu íraskra hersveita í Kuwait. Arabaríkin hafa gagnrýnt innrás íraka í Kuwait en hafa ekki enn sem komið er fallist á aðild þjóða sinna að fjölþjóðaherliði sem Banda- ríkin hafa komiö á laggimar. Ráðherrar NATO funda Utanríkisráðherrar aðildarríkja NATO, Atlantshafsbandalagsins, munu koma saman til neyðarfundar í dag og hélt Jón Baldin Hannibals- son utan í gær. Sameiginleg, hernað- arleg íhlutun NATO-ríkjanna virðist ekki í dæminu í þessu máli en banda- rísk stjórnvöld hafa farið fram á það við bandamenn sína að þeir styðji aðgerðir Bandaríkjanna gegn írak komi til þess. Bandaríkin hafa þegar sent fjögur þúsund hermenn til Saudi-Arabíu en Bush Bandaríkjaforseti segir að her- inn sé þar einungis til vamar og að beiðni saudi-arabíska konungsins. Stuöningur hinna aðildarríkja NATO er afar þýðingarmikill fyrir Bandaríkin, sérstaklega í ljósi þess að evrópsku NATO-ríkin eru mun nær Persaflóa en Bandaríkin. Reuter Mubarak Egyptalandsforseti tekur á móti Fahd, konungi Saudi-Arabíu, en leiðtogar flestra Arababandalagsríkjanna streymdu til Egyptalands í gær til að taka þátt i leiðtogafundi þeirra til að ræða ástandið fyrir botni Persa- flóa. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.