Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1990, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1990, Blaðsíða 26
34 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 1990. LífsstOI PAPRIKA I 'O CQ I 698 281 SVEPPIR DV kannar grænmetismarkaðinn: Verð á íslensku kartöflimum óstöðugt Kannaöar eru sömu tegundir grænmetis þessa vikuna og undan- fariö. Er helst að sjá aö sveppaverð hefur hækkað nokkuð eins og áætlað var í síðustu viku. Það er einnig eftir- tektarvert hversu misjafnt verð er á íslensku kartöflunum. Gullauga er nú að koma í verslanir en hingað til hefur ef til vill verið hægt að setja út á innlendu framleiðsluna vegna smæðar kartaflnanna. Stærðarmun- ur er merkjanlegur því gullaugaö er betur þroskað en þær kartöflur sem fyrst komu. Þetta gerir verðsaman- burð erfiðan enn sem komið er. Ef horft er fram hjá þessum atriðum er lægsta verð að finna í Fjarðarkaupi þar sem kílóið kostar einungis 40 krónur. Hæsta verð var að fmna í Hagkaupi en þar kostar kílóið nú 159 krónur. Það eru gullauga-kartöflur og nokkuð stærri en þær ódýrari. Tómatar fást í öllum verslunum eins og ávallt. Er lægsta verðið að fmna hjá versluninni Bónusi þar sem kílóið kostar 148 krónur. Hæst er verðið hjá Kjötstöðinni í Glæsibæ en þar er það á 250 krónur. Hjá Fjarðar- kaupi kostar sama magn 165 krónur, hjá Miklagarði 228 krónur og hjá Hagkaupi 239 krónur. Meðalverð er 206 krónur og munur milli hæsta og lægsta verðs 69%. Gúrkurnar er hægt aö kaupa fyrir 149 krónur kílóið hjá Bónusi og er það jafnframt lægsta verðið. Mikh- garður selur þær á 215 krónur, Fjarð- arkaup er krónu yfir og kosta gúrk- urnar þar 216 krónur, Hagkaup selur þær á 229 krónur og Kjötstöðin er með hæsta verðið en þar kosta gúrk- umar 245 krónur. 64% munur er á hæsta og lægsta verði og er meðal- verð 211 krónur sem er eilítið hærra en í síðustu viku. Verð á sveppum er misjafnt en sama er hægt að segja um útlit þeirra. Dýmstu sveppirnir eru frá Flúðum en þeir líta einnig mjög vel út. Munur á verði er mjög mikill. Þeir dýrustu era til í Kjötstöðinni en þar kosta þeir 640 krónur kílóið. Er verslunin með sveppi frá Flúðum á boðstólum. Ódýrastu sveppirnir eru til hjá Bónusi en þar kostar kílóið 247 krónur. Verðmunur er 159% en með- alverð er 433 krónur og var rúmlega 300 krónur í síðustu könnun. Mikh- garður selur sveppina á 288 krónur Verð á íslenskum kartöflum er mjög misjafnt en stærðarmunur gerir verð- samanburð erfiðan. og eru þeir á sérstöku tilboðsverði. Fjarðarkaup selur sína á 460 krónur og Hagkaup á 529 krónur en það eru einnig Flúðasveppir. Grænu vínberin eru ódýrust í Miklagarði og kosta þar 285 krónur. Fjarðarkaup er næstódýrast en þar er kílóið á 336 krónur. Hagkaup selur sín á 369 krónur og Kjötstöðin rekur lestina með 398 krónur kílóið. Meðal- verð er 347 krónur en munur milli hæsta og lægsta verðs er 40%. Bónus selur ekki vínber. Það er 148% munur á hæsta og lægsta verði á grænni papriku. Bón- us selur kílóið á 281 krónu en Kjöt- stöðin á 698 krónur. í Bónusverslun- unum eru paprikurnar seldar í stykkjatali og kostar hvert 37 krón- ur. Þessi tala er notuð til að reikna út kílóverð ásamt þyngd paprikunn- ar. Hagkaup selur paprikumar á 435 krónur kílóið, Mikligarður á 438 krónur og Fjaröarkaup á 445 krónur. Meðalverð er 460 krónur. Nokkuð er enn til af erlendu kart- öflunum þó að þær íslensku séu komnar. Verð á þeim er svipað og í síðustu viku, meðalverð 102 krónur á kílóið. Lægst er verðið hjá Bónusi, 87 krónur og 50 aurar. Hagkaup og Mikligarður selja kílóið á 99 krónur og 50 aura, Fjarðarkaup á 104 krónur og 50 aura og Kjötstöðin er með hæsta verðið en þar kosta kartöfl- urnar 120 krónur. Eins og áður hefur komið fram er verð á íslensku kartöflunum mjög misjafnt. Verðsamanburður er því nokkuð erfiður enn sem komið er. Bragðið ættijtó ekki að vera mjög frábrugðið. Ódýrustu kartöflurnar er að finna hjá Fjarðarkaupi þar sem þær kosta 40 krónur. í sömu verslun eru einnig fáanlegar íslenskar kart- öflur á 75 krónur og 94 krónur í lausu. Bónus selur sínar kartöflur á 70 krónur og er gullauga væntanlegt hjá þeim eftir helgi. Kílóið kostar 115 krónur í Miklagarði, 120 krónur í Kjötstöðinni og 159 krónur í Hag- kaupi. Meðalverð er 96 krónur. -tlt Sértilboð og afsláttur: Smjörlíki, melónur og margt fleira í Fjarðarkaupi er hægt að kaupa smjörlíki á lækkuðu verði. Kostar það nú 99 krónur en var áður 110 krónur. Merrild kaffi er á thboðs- verði og er pakkinn af Café Noir á 310 krónur en venjulega kaffið kostar 249 krónur. Snap Jacks kex til aö hafa með kaffinu er hægt að kaupa á 70 krónur. Hársnyrtivörur frá Su- ave kosta 239 krónur brúsinn. 3 kíló af Shine þvottaefni kosta 659 krónur. Hagkaup er með vikutilboð á ung- hænum og kostar kílóið af þeim 175 krónur. í eftirmat er tilvahð að fá sér gula melónu sem er hægt að fá á 99 krónur stykkið. Krakkar eru alltaf Smjörlíki er eitt af því sem er á lækkuðu verði að þessu sinni. Margt annað er einnig að finna á tilboðsverði. til í að fá sér kakó og kostar Nes- quick kakómalt 199 krónur (400 grömm). Pfannner eplasafi er ekki síðri kostur fyrir þann sem er þyrst- ur og kostar lítrinn af drykknum 75 krónur. Ef löngun er th að fá sér pastarétt í kvöldmatinn er mögulegt að fá í Miklagarði spaghetti með sósu frá Kraft á 179 krónur. Honig pasta er á 67 krónur pakkinn. Menn fá sér gjarnan salat með ítölskum réttum og ofan á þaö er hægt að nota Kraft dressing sem kostar 123 krónur. Rynkeby ávaxtasafi er á tilboðsverði og kostar 99 krónur. í Bónusi er mjólkin á lægra verði, eða 60 krónur. Smjörlíki er á 98 krón- ur og til að fá þvottinn hreinan eru 3 kíló afBlutex þvottaefni á 307 krón- ur. Margt annað er að finna á góðu verði, svo sem ódýrar rafhlöður og hársnyrtivörur. Kjötstöðin í Glæsibæ selur kökur frá Kuchen Meister á 99 krónur 'og Dan Cake Roulade á 199 krónur. Það er fint að fá sér te ef ekki er drukkið kaffi en 200 pokar af Basel Line te- pokum kosta 140 krónur og eru á 30% afslætti. -tit ífe Vínber Paprika Verð í krónum Jan. Fod. Mars AprA Mal Júnl Júll Agúst

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.