Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1990, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1990, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 1990. 35 Afmæli Ari Lárusson Ari Lárusson frá Heiði, Langanesi, Norður-Þingeyjarsýslu, nú til heim- ilis að Heiðarvegi 23A, Keflavík, er sjötugurídag. Ari fæddist á Heiði og ólst þar upp ásamt íjórtán systkinum og auk þess ólst frændi þeirra, Snorri Bergsson, upp með þeim systkinum. Ari flutti frá Heiði til Þórshafnar með konu sína og elsta son árið 1945. Þar settust þau aö í húsinu Brim- bakkasemþaubjugguíalltþartil síðastliðið sumar er þau fluttu til Keflavíkur. Ari fór snemma að stunda sjó- mennsku, bæði á vertíðum í Vest- mannaeyjum og á Þórshöfn, auk venjulegra bústarfa heima á Heiði. Útgerð stundaöi hann á Þórshöfn með bróður sínum, Jóni Trausta, og áttu þeir fyrst bát sem nefndist Leó og síðan annan stærri sem hét Andvari. Ari stundaði einnig tilfall- andi landvinnu á Þórshöfn, svo sem við uppbyggingu mannvirkja á her- stöðinni á Heiðarfjalli, fiskverkun, verkstjóm við síldarsöltun og salt- fisk, löggæslu og við hafnargerð. Síðast reri Ari og gerði út eigin bát, Baldvin ÞH frá Þórshöfn. Ari kvæntist þann 11. maí 1944 Nönnu Baldvinsdóttur. Nanna er dóttir Baldvins Jónatanssonar ,,skálda“ frá Húsavík og Elínóru Ágústu Símonardóttur og eru þau bæði látin. Ari og Nanna eignuðust þrettán börn og eru ellefu þeirra á lífi. Börnin eru: Baldvin Elís, f. 5. janúar 1945, dóttir hans er Ólöf Ás- dís en hennar móðir er Guðbjörg Hjaltalín og með Guðbjörgu Ingi- mundardóttur á Baldvin börnin Svein Ara, Auöun og Nönnu; Hilm- ar, f. 19. janúar 1946, kvæntur Ólöfu Sigríði Sigfúsdóttur og börn þeirra eru Brynja, Bragi og Karen og svo Ágúst en hann lést í vöggu; Guö- laugur, f. 14. mars 1947, kvæntur Snjólaugu A. Baldvinsdóttur og börn þeirra eru Baldvin Ari, Heimir og Þórunn; Sólrún, f. 7. september 1949, hennar dóttir er Eyrún hverr- ar faðir er Ármann Óskarsson, sam- býlismaður Sólrúnar er Anton H. Antonsson; Kolbrún, f. 6. september 1950, hún á soninn Heiöar með Þór- halli Stefánssyni, Kolbrún er gift Gísla Wium Kristinssyni og börn þeirra eru Nanna og Kristinn; Birg- ir, f. 12. september 1951, kvæntur Bjarneyju Siguijónsdóttur og dætur þeirra eru Nanna Bára og Dagný en áður átti Bjarney einn son, Sigurjón; Þóra, f. 25. janúar 1954, gift Val Ár- manni Gunnarssyni og börn þeirra em Thelma Rut, Hlynur Þór og Ari Lár; Þórdís, f. 15. apríl 1955, gift Óskari Sigurbirni Ingvarssyni; Björk, f. 31. ágúst 1956, hún á soninn Arnar með Bjarkari Adolfssyni; Reynir, f. 6. september 1957, hann á soninn Helga með Stefaníu Guð- mundsdóttur; Svanfríður, f. 8. júní 1959, hún á tvo syni, ísak Þór og Konráð, og faöir þeirra er Ragnar Einarsson; Helgi, f. 13. apríl 1948, og Ágúst, f. 11. nóvember 1952, en þeir létustbáðirungir. Systkini Ara voru fjórtán og eru tíu þeirra á lífi. Systkinin eru: Guð- laug; f. 13. maí 1906, hún er látin; Valgerður Margrét, f. 25. ágúst 1907; Lára, f. 12. desember 1908; Sæmund- ur, f. 12. maí 1910, hann er látinn; Þórdís, f. 7. júní 1911; Anna, f. 22. febrúar 1913, hún er látin; Bergþóra, f. 19. janúar 1915; Aðalbjörg, f. 22. október 1916; Jón Trausti, f. 12. sept- ember 1918, hann er látinn; Ari, f. 10. ágúst 1920; Ingimar, f. 3. apríl 1922; Einar, f. 24. júlí 1924; Þorgerð- ur, f. 5. maí 1927, og Bára, f. 28. jan- úar 1931. Foreldrar Ara voru Lárus Helgason, f. 22. apríl 1882, í Ásseli og Arnþrúður Sæmundsdóttir, Sæ mundssonar, bónda og hreppstjóra Ari Lárusson. á Heiði. Ari tekur á móti gestum í Félags- heimili Karlakórs Keflavíkur á af- mælisdaginn eftir klukkan 17.00. Sigríður Kolbeinsdóttir Sigríður Kolbeinsdóttir, Sólheimum 23, Reykjavík, er níræð í dag. Sigríð- ur er fædd í Æðey viö ísafiarðardjúp og ólst upp við ísfiarðardjúp. Hún var í Heyrnleysingjaskólanum í Reykjavík 1906-1916. Að námi loknu var hún vinnukona á Seyðisfirði og síðar í Reykjavík. Sigríður kynntist manni sínum í Heyrnleysingjaskól- anum. Þau giftust 1922 og hefur hún búið alla tið síðan í Reykjavík. Sig- ríður hefur verið húsmóðir allt sm hf, maður hennar lést 1944 en síðan þá hefur hún haldiö heimili með tveimur börnum sínum, Stefaníu og Grétari. Um langt árabil var heimih Sigríðar samkomustaður heyrnar- lausra þar sem þeir komu saman til skrafs og ráðagerða og ýmiss konar fagnaöa. Sigríður giftist 16. desemb- er 1922 Jóni Sigfússyni, f. 27. júlí 1891, d. 3. júlí 1944, bakara hjá Al- þýðubrauðgerðinni. Foreldrar Jóns voru Sigfús Jónsson, sjómaður í Rvík, og kona hans, Sigríður Jóns- dóttir. Börn Sigríðar og Jóns eru: Hahdóra, f. 2. janúar 1924, skrif- stofumaður, og á hún þrjú börn, þar af eitt fósturbarn; Stefanía, f. 4. maí 1926, iðnverkakona í Rvík, hún á eitt barn; og Grétar, f. 4. maí 1928, fyrrv. sjómaður í Rvík. Systkini Sig- ríðar eru: Rannveig, f. 15. október 1905, d. 31. maí 1951, og Bjarni, f. 28. ágúst 1907, d. 9. júní 1981, skósmiður og húsasmiöur í Rvík, kvæntur Ingi- björgu Guðmundsdóttur. Bjarni hét eftir bróður þeirra sem lést mjög ungur. Systur Sigríðar, samfeðra, eru: Dagbjört, f. 24. júní 1878, d. 20. febrúar 1959, gift Helga Kristjáni Jónssyni, f. 18. ágúst 1872, d. 8. maí 1950, útvegsbónda, og Sigurlín, f. 25. júní 1889, d. 20. júní 1970, gift Hin- riki Kristjáni Þórðarsyni, f. 17. júní 1874, d. 18. september 1920, sjó- manni. Foreldrar Sigríöar eru: Kolbeinn Elíasson, f. 1855, d. 1936, sjómaður í Ögri, og Guðmundína Matthíasdótt- ir, f. 23. september 1875, d. 20. maí 1967, verkakona. Halldóra Sigurðar- dóttir ljósmóðir tók Sigríði í fóstur nýfædda. Halldóra var ekkja Bald- vins Jónssonar, f. 14. desember 1844, d. 30. mars 1900, lengst af b. á Strandseljum í Ögursókn. Föður- systir Sigríðar var Hildur, móðir Ehsabetar Hjaltadóttur, konu Ein- ars Guðfinnssonar útgeröarmanns. Föðurbróðir Sigríðar var Finnbogi, afi Baldvins Þ. Kristjánssonar, fé- lagsmálafulltrúa hjá Samvinnu- hreyfingunni. Kolbeinn var sonur Elíasar, skipasmiðs í Hnífsdal, bróð- ur Majasar, langafa Ingibjargar Haraldsdóttur rithöfundar og Gunnars Kristjánssonar, prests á Reynivöllum. Annar bróðir Elíasar var Pétur, langafi Gissurar, föður Hannesar Hólmsteins lektors. Þriðji bróðir Elíasar var Kristján, langafi Sigríður Kolbeinsdóttir. Gissurar, föður Hannesar Hólm- steins. Elías var sonur Eldjárns, b. í Barðsvík, Sigurðssonar. Móðir Eldjárns var Anna Snorradóttir, b. á Höfn í Sléttuhreppi, Einarssonar. Guömundína var dóttir Jónínu Jónsdóttur og Matthíasar á Skarði Jónssonar, b. á Skarði, Hösk- uldssonar, b. í Hattardal meiri, Hall- dórssonar. Sigríður tekur á móti gestum á afmælisdaginn í Félags- heimili heyrnleysingja á Klappar- stíg 28, Reykjavík, kl. 16-19. afmælið 10. ágúst 80 ára 50 ára Jóna Kristjánsdóttir, Karlsbraut 29, Dalvík. Böðvar Tómasson, Helgamagrastræti 49, Akureyri. Bj arni Nikulásson, Lyngheiði9, Selfossi. Ásmundur Sigurðsson, Túngötu 19, Keflavik. Jóhanna Garðarsdóttir, Selsvöhum 12, Grindavik. Jóhann Friðþórsson, Leirubakka 22, Reykjavík. Hahdór Valgarður Karlsson, 70 ára Rjúpufelh 35, Reykjavík. Rúnar Kristinn Jónsson, Þorlákur Gunnarsson, Yrsufelh 7, Reykjavík. Bakkárholti, Ölfusi. Hann verður að heiman á afmæhsdaginn en tek- ur á móti gestum að Hótel Ljósbrá, Hveragerði, laugardaginn 11. ágúst kl. 15.00 til 18.00. Aðalheiður S. Skaftadóttir, Háaleitisbraut 119, Reykjavík. 40 ára Róbert Óskarsson, Túnbrekku 16, Ólafsvík. Hjalti Gunnlaugsson, Lindargötu2, Siglufirði. Stefán Agnar Finnsson, 60 ára Hagaseli 4, Reykjavík. Jónas Haildórsson, Gránugötu 20, Siglufirði. Hjörtur Júlíusson, Vesturgötu 78B, Akranesi. Ingibjörg Svava Siglaugsdóttir, Arnarsíðu 10C, Akureyri. Þórir K. Bjarnason, Holtagerði 20, Kópavogi. Helena Banach, Engihjalla 25, Kópavogi. Ingunn Sigurjónsdóttir Hlíðar Ingunn Sigurjónsdóttir Hlíðar, fyrr- verandi hjúkrunarkona, Bakkaseh 14, Reykjavík, er áttatíu ára í dag. Ingunn fæddist á Akureyri en ólst upp á Dalvík. Hún lauk prófi frá Hjúkrunarskóla íslands 1940 og starfaði við hjúkrun á Landspítal- anum og Akureyrarspítala og viö bæjarhjúkrun Rauða krossins á Akureyri. Ingunn og Gunnar, maður henn- ar, stunduðu búskap að Krossum á Árskógsströnd nokkur ár. Þau flutt- ust svo til Vestmannaeyja þar sem Gunnar stundaði dýralækningar og önnur heilbrigöisstörf. Árið 1952 fluttust þau til Borgarness þar sem Gunnar var stöðvarstjóri Pósts og síma og Ingunn stundaði skóla- hjúkrun. Eftir lát Gunnars flutti Ingunn til Reykjavíkur og vann við hjúkrun aö Vífilsstöðum, Sjúkra- húsinu Sólheimum og síðast á Landakotspítala til ársins 1978. Hún býr nú hjá dóttur sinni og tengda- syni í Bakkaseh 14, Reykjavík. Þann 6. desember 1941 giftist Ing- unn Gunnari Hlíðar, f. 20. maí 1914, d. 22. desember 1957. Foreldrar hans voru Sigurður E. Hlíðar yfirdýra- læknir og Guðrún Luisa, fædd Finn- bogadóttir. Ingunn og Gunnar eignuðust fimm dætur. Þær eru: Guðrún Ingi- björg, f. 9. ágúst 1942, hjúkrunar- fræðingur, gift Jean Jensen raf- virkja og eiga þau fiögur börn; Brynja, f. 16. september 1943, hjúkr- unarfræðingur, gift Herði Árnasyni deildarstjóra og eiga þau fióra syni; Hildigunnur, f. 22. ágúst 1944, lyfia- fræðingur, gift Birgi Dagfinnssyni tannlækni og eiga þau þrjú börn; Jónína Vhborg, f. 10. mars 1946, húsmóðir að Sigmundarstöðum í Hálsasveit, gift Reyni Aðalsteins- syni tamningamanni og eiga þau sex börn, og Sigríður, f. 5. nóvember 1950, framhaldsskólakennari, gift Karh G. Jeppesen deildarstjóra og eiga þau tvær dætur. Foreldrar Ingunnar voru Sigurjón Baldvinsson smiður og Jónína S. Ingvarsdóttir og bjuggu þau í Ár- gerði viö Dalvík. Eftir lát móður sinnar var Ingunni komið í fóstur til Ingibjargar Baldvinsdóttur, föð- ursystur sinnar, og Þorsteins Jóns- Ingunn Sigurjónsdóttir Hlíðar. sonar, manns hennar, í Baldurs- hagaáDalvík. Ingunn tekur á móti gestum í fé- lagsheimih tannlækna í Síðumúla 35 á milli klukkan 16 og 19 á af- mælisdaginn. Sigurður Kristinn Haraldsson Sigurður Kristinn Haraldsson bif- vélavirki, Nýbýlavegi 32, Kópavogi, erfimmtugurídag. Sigurður fæddist í Reykjavík og er uppahnn í Miðtúninu en fluttist í Kópavogárið 1953.1959-1963 læröi hann bifvélavirkjun í Hafnarfirði hjá Hálfdáni Þorgeirssyni. Eigin bif- reiðaverkstæði stofnaði hann 1963 og rak það til 1979 er hann stofnaði SH bílaleiguna með eiginkonu sinni. Þann 28. desember 1969 giftist Sig- urður Vilborgu Pétursdóttur, f. 24. júh 1943. Vilborg er dóttir Oddnýjar G. Guðmundsdóttur og Péturs G. Steinssonar sem er látinn. Þau bjugguíReykjavík. Synir Sigurðar og Vilborgar eru tveir: Pétur S., f. 18. janúar 1961, börn hans eru Kristinn f. 7. ágúst 1985ogVilborgf. U.janúarl989; Haraldur K„ f. 10. júlí 1963, kona hans er Jóhanna Laufdal, f. 11. júlí 1967, og sonur þeirra er Siguröur Kristinn, f. 15. ágúst 1988. Sigurður á þrjú systkini. Þau eru: Helga, f. 30. október 1942, og á hún tvær dætur; Guðjón, f. 19. janúar 1947, og á hann tvær dætur; Guðný Sigurrós, f. 14. janúar 1954, og á hún þijúböm. Sigurður Kristinn Haraldsson. Faðir Sigurðar var Haraldur K. Guðjónsson, f. 9. apríl 1914, d. 7. október 1988, fyrrum bifreiðarstjóri hjá Hreyfli. Móðir Siguröar er Guðný Friðriksdóttir, f. 18. ágúst 1911, húsmóðir. Sigurður tekur á móti gestum í félagsheimih Lionsfólks í Kópavogi í Auðbrekku 25-27, Kópavogi, á af- mælisdaginn frá klukkan 17.00 til 19.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.