Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1990, Side 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990.
Fréttir
Sjálfstæðisflokkurinn á Suðurlandi:
Eggert Haukdal ætlar
að verja þingsætið
- óvíst hvort fallið verður frá fyrirhuguðu prófkjöri
Arni Johnsen og Þorsteinn Pálsson að tafli. Þær raddir heyrast að Eggert Haukdal hafi um helgina leikið klók-
lega þegar hann bauðst til að vera í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi, á eftir skák-
mönnunum Árna og Þorsteini.
Sjálfstæðismenn á Suðurlandi búa
við sérstakt skipulag þar sem hver
sýsla í kjördæminu á eitt af fjórum
efstu sætum á framboðslista flokks-
ins kosningar eftir kosningar. Einn
viðmælenda DV sagði að kjördæma-
breytingin, sem gerð var 1959, hefði
ekki náö til sjálfstæðismanná á Suð-
urlandi. í Suðurlandskjördæmi eru
Árnessýsla, Rangárvallasýsla, Vest-
ur-Skaftafellssýsla og Vestmanna-
eyjar.
Ovænt staða er komin upp innan
flokksins á Suðurlandi. Búið var að
ákveöa að viðhafa prófkjör en nú
Fréttaljós
Sigurjón M. Egilsson
hefur Eggert Haukdal skrifað kjör-
dæmisráðinu bréf þar sem hann
býðst tU að taka þriðja sæti listans.
Ef fallist verður á þetta verður ekk-
ert af áður fyrirhuguðu prófkjöri.
Kjördæmisráðiö hefur verið kallað
saman til fundar næsta laugardag
þar sem ræða á þessu nýju stöðu.
Engin kjördæmisbreyting
Lengst af áttu Rangæingar, með
Ingólf Jónsson sem sinn mann, fyrsta
sæti á framboðslistanum. Vest-
mannaeyingar hafa oftast átt annað
sætiö, Ámesingar það þriðja og Vest-
ur-Skaftfellingar það fjórða.
Við kosningamar 1978 hætti Ingólf-
ur Jónsson á Alþingi. Rangæingar
héldu efsta sæti hstans með nýjum
manni, Eggert Haukdal. Vestmanna-
eyingar héldu sínu sæti. Þar var
einnig nýr maður, Guðmundur
Karlsson. Rangæingar áttu áfram
annað sæti og Vestur-Skaftfellingar
það fjórða.
Viö kosningamar 1979 urðu tals-
veröar breytingar á framboðslistan-
um. Eggert Haukdal var færður úr
fyrsta sæti. Hann undi því ekki held-
ur bauð fram sérstakan hsta, L-lista.
Eggert náði kjöri í kosningunum.
Steinþór Gestsson var í fyrsta sæti
D-hstans, Guðmundur Karlsson í
öðru og Sigurður Óskarsson, Hehu,
í þriðja sæti.
Við kosningarnar 1983 var viðhaft
prófkjör við val á hstann. Prófkjörið
var svæðaskipt. Þátttakendur urðu
að velja frambjóðendur úr öhum
hlutunum flóram. Þorsteinn Pálsson
sem fuhtrúi Rangæinga hreppti
fyrsta sæti. Óh Þ. Guðbjartsson varð
undir. Ami Johnsen hafði betur en
Guðmundur Karlsson og skipaði
annað sæti hstans. Eggert Haukdal
var í þriðja sæti og Siggeir Björns-
son, Holti í Kirkjubæjarhreppi, var í
íjórða sæti. Eggert og Siggeir vora
saman á L-hstanum í kosningunum
1979. Þeir vom að koma aftur til
Sjálfstæðisflokksins. Eggert var einn
af -stuðningsmönnum ríkissfjórnar
Gunnars Thoroddsen á árunum 1979
til 1983.
Eggert hafði betur en Árni
Við síðustu kosningar var ekki við-
haft prófkjör heldur var skoðana-
könnun innan kjördæmisráðsins.
Stuðningsmenn Eggerts börðust fyr-
ir því að hann fengi annað sæti og
Árni Johnsen þaö þriðja. Ámi var
ekki ánægður meö baráttu stuön-
ingsmanna Eggerts. Þrátt fyrir mót-
bámr hafði Eggert betur og lenti í
ööru sæti. Ámi náði ekki kjöri th
Alþingis. Sjálfstæðismenn vilja
kenna óvæntu framboði Borgara-
flokksins, með Óla Þ. Guðbjartsson
í fyrsta sæti, um hvernig fór.
Við næstu kosningar reikna sjálf-
stæöismenn með að fá þrjá þingmenn
kjörna. Eggert Haukdal hefur skrifað
kjördæmisráðinu bréf þar sem hann
býðst til að taka þriðja sæti hstans.
Kjördæmisráðið hefur áður ákveðið
að viðhafa prófkjör sem á aö fara
fram 27. október. Ef fallist veröur á
tillögu Eggerts verður ekkert af próf-
kjörinu.
Þess skal getið að Eggert var sam-
þykkur próíkjöri þegar það var
ákveðið á fundi fyrir um ári síðan.
Kjördæmisráðið á að ráða
„Samkvæmt okkar skipulagsregl-
um ákveður kjördæmisráð hstann,
stundum eftir prófkjör og stundum
aö undangengnum uppstilhngartil-
lögum. Hvorug þessara aðferða er
talin vera algild. Kjördæmisráðin
þurfa að meta aðstæður hverju sinni
og taka ákvarðanir um prófkjör eða
uppstillingu. Sú ábyrgö hvíhr fyrst
og fremst á kjördæmisráðinu. Þing-
mennirnir reyna að halda sér til hlés
í þeim ákvörðunum," sagði Þor-
steinn Pálsson, fyrsti þingmaöur
Suðurlands og formaöur Sjálfstæðis-
flokksins, þegar hann var spurður
hvort hann teldi eðhlegt aö falla fra
prófkjöri vegna bréfs Eggerts Hauk-
dals.
- Fæ ég'ekki þína persónulegu skoð-
un á þessu. Getur Eggert með þessu
erindi eignað sér þriðja sætið og þar
með útilokað aöra Rangæinga frá
sæti ofarlega á hstanum?
„Ég vh leyfa kjördæmisráðinu að
taka þá ákvörðun,“ sagði Þorsteinn
Pálsson.
Heimildir DV herma aö Eggert ótt-
ist að missa sæti Rangæinga. Hann
bar á móti því í DV í gær. Eggert
sagðist hafa tekið ákvörðun sína th
að koma í veg fyrir átök sem hann
sagði ahtaf fylgjá prófkjörum. Þor-
steinn Pálsson taldi þessa skýringu
Eggerts mjög eðhlega.
Þorsteinn sagði að sjálfstæöismenn
á Suðurlandi væru ekki einhuga um
hver ætti að skipa annað sæti listans
og hver það þriðja. Á fundi kjördæm-
isráðs næstkomandi laugardag ræðst
hvort prófkjör verður eða ekki. Einn
viðmælenda DV sagði að ef Eggert
næði fram vhja sínum næði hann að
forðast átök heima fyrir um sæti
Rangæinga ofarlega á hstanum og
þar með að eigna sér þingsætið.
Boöa rassíu meðal verktaka sem hafa meö höndum sprengiefni:
Ekki þarf að sækja um leyfi
fyrir bráðabirgðageymslum
„Það er ekki neitt strangt kerfi í
kringum eftirht með sprengiefni á
vinnustöðum. Það þarf ekki að sækja
um leyfi fyrir öhum sprengiefna-
geymslum, smáum sem stóram. Það
þarf reyndar leyfi fyrir staðsetningu
á fóstum sprengiefnageymslum en
það er ekki fóst thkynninga- eða leyf-
isskylda varöandi bráðabirgða-
geymslur og þess háttar," sagði Eyj-
ólfur Sæmundsson, forstöðumaður
Vinnuefirlits ríkisins, áður Öryggis-
eftirhts ríkisins, í samtali við DV.
Vinnueftirlitið hefur með höndum
viku námskeiö í meðferð sprengiefn-
is og prófar menn áður en þeir fá
pappír upp á að mega hafa sprengi-
efni með höndum.
Sprengjusérfræðingur Landhelgis-
gæslunnar sagði í DV í gær að með-
ferð sprengiefna væri í algerum
ólestri. Þá hefur komið fram aö engin
reglugerð er th sem kveður nánar á
um meðferð sprengiefnis, aðeins al-
menn ákvæði í lögum.
- Er ekki bagalegt að ekki skuh
finnast reglugerð þar sem tíundað
er nákvæmlega hvernig meðferð á
sprengiefni skuh háttað?
„Auðvitað er það bagalegt. Þó sum-
um finnist nú nóg um reglugerða-
farganið þá eru alveg hverfandi
reglugerðir th um ýmis öryggismál-
hér á landi miðað við erlendis. Mönn-
um hefur ekki gefist ráðrúm th að
semja ítarlegar reglur um þessi mál
en það hefur verið á dagskrá lengi.
Það er hins vegar á vegum dóms-
málaráðuneytisins.
Geta ekki skotist
undan ábyrgð
- Er ekki erfitt og nánast ógerlegt
að framfylgja virku efirhti með með-
ferð sprengiefna ef engar reglur em
th að styðjast við?
„Það er erfltt en ekki ógerlegt."
- Geta menn, sem ekki fara alveg
eftir lögunum, ekki rifið kjaft þar
sem engar nákvæmar reglur em th?
„Jú, sjálfsagt geta þeir það. Arinars
hefur ekki verið tahn þörf á því hér
á landi að hafa reglugerðarbókstaf
yfir alla hluti. Máhð er að setning
reglugerðar um þessi mál hefur verið
skoðuð. Það var vinna í þá vem í
gangi fyrir þó nokkrum ámm en
engin lokaniðurstaöa varð úr þeirri
vinnu. Erlendis em mjög flóknar og
ítarlegar reglur um þessi mál. í Nor-
egi em th aö mynda þijú myndarleg
hefti með reglum um sprengiefni.
Annars vh ég taka skýrt fram að
ábyrgðin er hjá verktökum og öörum
slíkum fyrirtækjum. Þeir vita alveg
hvað em góðar og traustar aðferðir
í þessu sambandi. Það er engin
ábyrgð tekin af þessum mönnum þó
ekki sé th reglugerð. Þetta er kennt
á námskeiðum og frá því Vinnueftir-
htið tók við námskeiðunum hafa um
200 manns, sem em að vinna með
þessi efni úti í þjóðfélaginu, útskifast
frá okkur. í lögunum er almennt
ákvæði um að menn skuh gæta
fyhstu varúðar þannig að þeir geta
ekki skotið sér undan ábyrgð."
- Ef slys verður vegna ógæthegrar
meðferðar sprengiefnis geta menn
þá ekki smokrað sér undan ábyrgð
þar sem reglugerð finnst ekki?
„Jú, og menn reyna það ömgglega.
Reglugerðin væri þannig mjög th
bóta.“
Dínamít
í miðbænum
Eyjólfur sagði þessi mál almennt
vera að þróast th betri vegar. Hann
sagði að verstu skussamir hefðu ver-
ið teknir í gegn fyrir 4-5 árum.
„Verstu skussamir vom þá teknir
af lögreglunni fyrir ógæthega með-
ferð sprengiefnis við flutning. Menn
vom th dæmis teknir niðri í miðbæ
með dínamít í bílum þar sem þeir
vom í ónauðsynlegum flutningum á
efninu. Það lá hreinlega í bhunum
meðan mennirnir vom í pappírs-
stússi í tohinum og víðar. í einu th-
felh var komið að ólæstum bíl fullum
af sprengiefni í miðbænum. Þaö var
tekið mjög hart á þessu og skrifuðum
við lögreglustjóra erindi þar sem
þess var óskað að sprengiefnarétt-
indi þessara manna yrðu tekin af
þeim. Þessar aögerðir voru th mikhla
óþæginda fyrir viðkomandi menn og
komu á vissum aga.“
Rassía
Eyjólfur segir að á næstu vikum
hafi veriö ákveðið að gera rassíu hjá
verktökum og öðmm aöilum sem
hafa með sprengiefni að gera. Verður
öhum verktökum skrifað bréf og þeir
heimsóttir. „Þetta em viðbrögðin við
atburðum helgarinnar."
-hlh
Kristján Jónsson veiðivörður með
sprengiefnið sem hann fann.
DV-mynd S