Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1990, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1,990. 15 Að halla réttu máli Öðru hverju skýtur upp kollin- um gamalkunnugt greppitrýn for- dóma og fáfræði. Það kemur síður að sök þegar í hlut eiga þeir sem augljóslega vita ekki betur og oftast gengur sæmilega að leiðrétta mis- skilning og missagnir undir slíkum kringumstæðum. Hitt er sýnu verra þegar menn, sem miðla fróðleik og skoðunum til almennings, eru svo bhndaðir af eigin fordómum að þeim er fyrir- munað annað en halla réttu máli og þá væntanlega oft gegn betri vitund. Það hlýtur að mega gera þá aug- ljósu kröfu til þeirra sem fjalla reglulega um kvikmyndir að þeir kynni sér það sem satt er og rétt varðandi þau lög og reglur sem í gildi eru hér á landi og lúta að sýn- ingum og dreifmgu myndefnis. Sömuleiðis ætti þeim að vera ljóst að ákvæði laganna eru fyrst og fremst samin með velferð barna og ungmenna í huga en ekki í þeim tilgangi að „sortera" kvikmyndir ofan í fullorðið fólk. Allar upplýsingar um það hvern- ig staðið er að framkvæmd þessara laga liggja á lausu og eru fúslega veittar hvenær sem eftir er leitað, bæði hjá Kvikmyndaeftirliti ríkis- ins og öðrum aðilum sem málið varðar. Mildilega á málum haldið í smáeftirmála við umfjöllun um kvikmynd hér í blaðinu síðasthð- inn mánudag lætur skrifari pistils- ins, Gísh Einarsson, að því liggja að hér á landi sé starfandi voðalegt ritskoðunarapparat, þ.e. Kvik- myndaeftirhtið, sem banni og klippi kvikmyndir af miklum móð og gefur í skyn að landsmenn eigi þess þar af leiðandi ekki kost að KjaUarinn Auður Eydal forstöðumaður Kvikmynda- eftirlits ríkisins njóta þess besta sem framleitt er fyrir hvíta tjaldið í heiminum hverju sinni. Slík ummæli eru algjörlega úr lausu lofti gripin og auðvelt að sýna fram á með tölum um skoðaðar myndir og aldursmörk að hér á landi er mjög mildilega á málum haldið miðað við lönd í okkar heimshluta og klippingar eru ein- faldlega aldrei framkvæmdar af Kvikmyndaeftirliti ríkisins. Ég ætla ekki að leggja dóm á verk Chve Barkers, sem Gísh kallar „hstamann" enda þótt hann finni sjálfur ótal vankanta á kvikmynd hans, en þetta verk hans getur hver og einn, sem náð hefur 16 ára aldri, dæmt fyrir sjálfan sig. Óþarfa áhyggjur Það sem Gísla þótti sem sagt frétt- næmt var að þessi mynd var hvorki bönnuð né klippt en í sömu andrá hefur hann af því áhyggjur nokkr- ar að skoðunarmenn Kvikmynda- eftirhts ríkisins kunni ekki að greina á milli hrylhngs og ofbeldis. Af því tilefni er skylt að upplýsa að til þeirra trúnaðarstarfa, sem skoðun kvikmynda er, hefur menntamálaráðherra skipað hóp af mjög vel hæfu fólki með fjöl- breytilega menntun. Öll höfum við góða þekkingu á kvikmyndum, sögu þeirra og listfræði, auk þess að vera sérmenntuð á ýmsum sviö- um er varða velferö barna og ung- menna. Þá þurfum við að sjálf- sögðu að hafa mjög gott vald á tungumálum þar sem sjaldnast er búið að texta kvikmyndirnar þegar við skoðum þær. Það er því algjör óþarfi að halda að þessi hópur fólks geti ekki metið samkvæmt almennum viðhorfum og gildismati í okkar þjóðfélagi hvar sýning ofbeldis í kvikmynd- um er orðin með þeim hætti aö telj- ist brjóta i bága við ákvæði laga sem sett voru árið 1983 um bann við óhóflega grófum ofbeldismynd- um. Ákvæðum þessara laga hefur verið beitt af mikilli varfærni en setning þeirra hafði fyrst og fremst þau áhrif að aðstreymi slíkra mynda stórminnkaði hingað og til annarra landa þar sem svipuð lög- gjöf tók gildi um sama leyti. Mat og mikils- verðar upplýsingar Mikið er í húfi í dag þegar hol- skefla erlends myndefnis, harla misjafns að gæðum, steypist yfir börnin okkar aö kappkosta að byggja upp jákvætt viðhorf til starfsemi Kvikmyndaeftirlitsins og eyða gömlum fordómum um pipr- aðar kellingar sem sitji með gríðar- legt sax í höndum og klippi kvik- myndir í gríð og erg daginn út og inn. Slík ímynd er fjarri öllum sanni og hlægileg nú á tímum. Mat skoðunarmanna á kvik- myndum og aldursmörk, sem mið- uð eru við almenn viðhorf í okkar samfélagi, gefa foreldrum og for- ráðamönnum barna miklisverðar upplýsingar um kvikmyndina, hvort sem hún er sýnd í bíói eða dreift á myndbandamarkaði. Stjórnendum kvikmyndahúsa og myndbandaleiga er skylt að sjá til þess að börn hafi ekki aðgang að myndefni, sé það ekki talið við þeirra hæfi, og hliðstæðar aðvaran- ir eiga að fylgja sjónvarpsefni. Þeir sem fjalla að staðaldri um kvikmyndir ættu þannig að gera það að reglu að láta upplýsingar um aldursmörk fylgja í pistlum sín- um. Við það yrðu þeir einungis áhugaverðari og slíkt væri sæmra en að láta úrelta fordóma stýra skrifunum. Auður Eydal Þeir sem fjalla að staðaldri um kvik- myndir ættu þannig að gera það að reglu að láta upplýsingar um aldurs- mörk fylgja í pistlum sínum. Hinir ósnertanlegu Stjórnvöld eru í viðræðum við Atlantsál um nýtt álver hér á landi, heilbrigðis- og vinnueftirlitið lokar lögreglustöð í Stykkishólmi vegna slæmra aðstæðna og hótar að loka skóla í Reykjavík því veggir séu ekki rykbundnir. Dr. Roth, forstjóri ísal, er að rækta tré við annan enda kerskál- anna og bæta og fegra umhverflð í kringum verksmiðjuna og gefur háar flárhæðir til ýmissa félaga- samtaka til að skapa sér hylli og vinsældir út á við - því ekki fær hann það innan verksmiðjunnar. Á meðan þessu framvindur eru starfsmenn í kerskálum íslenska álversins í Straumsvík að sligast undan gas- og rykmengun sem er það mikil að henni verður ekki lýst með orðum. Kjallariim Ragnar H. Ragnarsson varatrúnaðarmaður í kerskálunum hjá ísal „Það hlýtur að vera eitthvað mikið að þegar allir verstu sjúklingarnir koma frá einni og sömu deildinni.“ Spurningarog svör Það er ekki nema von að starfs- menn spyrji sem svo: Þora stjórn- völd ekki að taka á mengunarmál- um hjá ísal af ótta við að fæla Atl- antsálhópinn frá? Er heilbrigðis- og vinnueftirhtið gjörsamlega van- máttugt gagnvart Islenska álfélag- inu? - Eru ekki til nein íslensk lög sem ná yfir ísal? - Er náttúruunn- andinn og hinn mikli mannvinur, dr. Roth, bara enginn mannvinur þegar allt kemur til alls? Eftir síðustu mengunarmælingu, sem var gerð í byrjun júlí 1990, kom í ljós að gasmengun hefur tvöfald- ast í kerskálunum frá árinu 1989 og rykmengun að sama skapi. Þó nokkuð mörg sýni voru yfir hættu- mörkum og fór þó mælingin fram þegar ástandið var með skárra móti. Allir aðilar sem eiga hlut að máli eru sammála um að ástandið sé mjög slæmt. Allir eru sammála um að það þarf að gera eitthvað. En hvað er gert? Ekkert til aö hlífa starfsmönnum við þessari mengun „Eftir siðustu mengunarmælingu ... kom i Ijós að gasmengun hefur tvöfaldast i kerskálunum frá árinu 1989,“ segir greinarhöfundur m.a. þar til viðunandi lausn fæst og einu viöbrögðin sem við fáum frá stjórn- endum ísals eru svikin loforð. Viö sem störfum í kerskálunum þurfum engin mælitæki til að segja okkur hve mengunin er mikil. Við höfum líkama og heilsu sem mælir mengunina fyrir okkur. Þegar starfsmenn eiga erfitt með að halda sér vakandi þegar þeir koma heim úr vinnu og eru jafnþreyttir og þungir þegar þeir vakna morgun- inn eftir, eru með brjóstsviða,. eiga erfitt með andardrátt, eru meö kláða, slæmir í maga og stöðugan höfuðverk hlýtur að vera eitthvað meira en lítiö að. Allir úr kerskálunum Á vinnusvæði ísals er deild sem kölluð er Skjólgarður, þaö er verndaður vinnustaður fyrir starfsmenn sem hafa tapað heilsu sinni og þeir starfsmenn sem vinna þar eru allir úr kerskálunum. Þeir starfsmenn, sem koma verst út í læknisskoðun, eru allir úr kerskál- unum. Þeir starfsmenn sem þurfa að fara í sérstaka lungnaskoðun á Vífilsstöðum eru allir úr kerskál- unum. Það hlýtur að vera eitthvað mikið að þegar allir verstu sjúklingarnir koma frá einni og sömu deildinni. Við starfsmenn í kerskálunum er- um búnir að fá okkur fullsadda af þessu aðgerðaleysi stjórnvalda, heilbrigðis- og vinnueftirlitsins og stjórnenda ísals sem í engu vilja koma á móts við starfsmenn til að hlífa þeim við þessari mengun þar til viöunandi lausn finnst. Og á sama tíma og við fáum alltaf lélegra og lélegra hráefni til að vinna úr og mengunin versnar stöðugt fækka þeir mannskap og auka vinnuálagið á þeim sem eftir eru. Ég skora á stjórnvöld og heil- brigðisyfirvöld að taka á þessu máli og það strax. Ég skora á forstjórann okkar, dr. Roth, að hugsa aðeins minna um grasið fyrir utan verksmiðjuna og snúa sér meira að velferð starfs- manna sinna því að heilbrigður og ánægður starfsmaður skilar betri vinnu en lasinn og óánægður. Ragnar H. Ragnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.