Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1990, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1990, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990. 9 Utlönd Forseti Suður-Afríku í bónarferð til Bandaríkjanna: De Klerk nær árangri í að rjúf a einangrunina - Bush hældi stjóminni fyrir hugrekki í kynþáttamálum George Bush Bandaríkjaforseti hældi F.W. de Klerk sérstaklega, þegar forsetarnir hittust í Hvíta húsinu í gær, fyrir kjark hans að víkja frá áratugagamalli aðskilnað- arstefnu kynþátta í landinu. De Klerk er fyrsti forseti Suður-Afríku sem heimsækir Bandaríkin frá því að núverandi stjórnarflokkur tók við völdum í Suður-Afríku. Tilgangur hans með Bandaríkja- ferðinni var fyrst og fremst sá að fá Bandaríkjamenn til að gefa eitt- hvað eftir af viðskiptabanninu sem gilt hefur síðustu ár á Suður-Afr- íku. Engar yfirlýsingar voru gefnar um það mál en Bush fór fögrum orðum um de Klerk og sagðist hafa trú á að aðskilnaðarstefnan yrði úr sögunni innan tíðar. „Það eitt er víst, í þeirri þróun sem nú er hafin í Suður-Afríku, að aðskilnað- arstefnan hlýtur að víkja,“ sagði Bush eftir fund forsetanna. Bush lofaði jafnframt að ráðfæra sig við bandamenn Bandaríkjanna í Evrópu varðandi frekari þróun í Suður-Afríku í átt til lýð'ræðis. Þetta þykir benda til að Bush hafi ekki tekið illa í að létta á viðskipta- banninu ef fleiri skref verða tekin í áttina að auknum réttindum svarta meirihlutans í Suður-Afr- iku. Eftir fundinn sagðist Pik Botha, utanríkisráðherra Suður-Afríku, bjartsýnn á að einangrun landsins væri senn á enda. „Við forsetinn erum báðir mjög ánægðir með F.W. de Klerk, forseti Suður-Afriku, þykir hafa náð áfanga í að rjúfa einangrun landsins í för sinni til Bandaríkjanna. Simamynd Reuter heimsóknina. Ég held að hér hafi ýmislegt komið fram sem ríkis- stjórnir Evrópulanda hafa verið að bíða eftir,“ sagði Botha. Ríki Evrópubandalagsins hafa fyrir löngu lýst því yfir að ekki komi til greina að ræða viðskipta- bannið á Suður-Afríku fyrr en „einhverjar vísbendingar koma fram um varanlegar breytingar í landinu". Bush er fyrsti leiðtoginn á Vest- urlöndum sem opinberlega viður- kennir að eitthvað þaö hafl nú gerst í Suður-Afríku sem réttlæti að stjórn hvíta minnihlutans þar verði tekin í sátt meðal ráðamanna í heiminum. Reuter Þýskaland: Ólæti unglinga aðvestaní Nokkur hundruð ungmenni frá Vestur-Berlin fóru með ólátum um Austur-Berlin í gær. Voru unglingamir með hávaða og köstuðu grjóti að vegfarendum. Einn lögreglumaður slasaðist. Lögreglan í Austur-Berlín sagði að um 500 hundruð unglingar heðu verið í hópnum. Þeir öbbuð- ust upp á vegfarendur og brutu rúður í nokkrum verslunum. Lögreglan sagöi að unglingarnir hefðu verið í mörgum smáum hópum. ADN, hin opinbera fféttastofa Austur-Þýskalands, sagði að kona af erlendu þjóðerni hefði fundist með höfuðáverka nærri gömlu landamærunum en lög- reglan vildi ekki staðfesta þá frétt viö Reuter. Eftir að lögreglan kom á svæðið bjuggu nokkrir unghngar um sig í auðum húsum en fyrir nóttina tókst að koma unglingunum út úr borginni og var allt með kyrr- um kjörum þar í nótt. Þessi tíðindi þykja ekki góþ fyr- ir framtíöina þegar aðeins rúm vika er þar til ríkin eiga að sam- einast. Reuter Hermdaraðgerðir ísraelshers fyrir morð á hermanni: Hæstiréttur bannar að hús verði brotin Vaxandi óróa gætir nú í ísrael eftir að arabar á Gazasvæðinu myrtu ísra- elskan hermann. Simamynd Reuter Hæstiréttur ísraels hefur úrskurð- að að ísraelsher hafl engan rétt til að brjóta niður byggingar í eigu Araba á Gazasvæðinu. Herinn hafði hótað aðgerðum af þessu tagi til að hefna fyrir hrottalegt morð á her- manni. Stórvirkar vinnuvélar á vegum hersins höfðu þegar verið sendar á vettvang og var búið að brjóta niður hús í Bureij-flóttamannabúðunum þegar boðin komu frá réttinum um að aðgerðirnar vörðuðu við stjórnar- skrá landins. Úrskurður réttarins er þó ekki vár- anlegur því búist er við að hann komi saman aftur í dag og ræði framhald málsins. Fastlega er gert ráð fyrir að herinn muni hefna fyrir dauða her- mannsins með einhverjum hætti og láti þá dómsúrskurði lönd og leið. Herinn hafði þegar tilkynnt að tíu verslanir, tíu íbúðarhús og bensín- stöð yrðu lög í rúst og var fólkið ekki varað vi'ð hvaða hús yrðu brotin. Hæstiréttur sagði að herinn mætti ekki grípa til þessara aðgerða nema láta eigendur húsanna vita áður. Herlög gilda á svæðinu og hefur her- inn því víðtæk völd til að ganga á eigur manna. Hermaðurinn hafði orðið fyrir steinkasti frá 200 manna hópi araba. Tókst þeim að rota hann og að því loknu var bensínu hellt yfir hann og kveikt í. Morðið hefur vakið mikla reiði í ísrael og hafa landsmenn kraf- ist hermdaraðgrða. Moshe Arens varnarmálaráðherra sagði að þegar yrði að grípa til rót- tækra aðgerða og láta araba vita að framferði sem þetta yrði ekki liðið. Laði Arens til að hernum yrðu gefin enn víðtækari völd til að halda uppi aga á herteknu svæðum ísraels. Reuter Vinningstölur laugardaginn 22. sept. /90 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 1 5.193.334 o íffié 4af5*Sjjáp 2 272.349 3. 4af5 128 7.340 4. 3af 5 4713 465 Heiidárvinningsupphæð þessa viku: 8.869.097 kr.j UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 Elmwood í Visconsin: Geimverur velkomnar íbúar í smábænum Elmwood í Vis- consin í Bandaríkjunum hafa ákveð- ið að bjóða allar geimverur velkomn- ar til bæjarins. Ferðamenn eru fáséð- ir á staðnum og þar er ekkert hótel. Á skilti við bæjarmörkin stendur hins vegar að allar geimverur séu velkomnar. Oft hafa borist sögur úr þessum bæ af heimsókn vera utan úr geimnum. Þetta byrjaði þegar lögreglumaður sagðist háfa orðið fyrir ásókn frá eld- kúlu og eftir það hafa margir fundið að ekki er allt með felldu í háloftun- um fyrir ofan Elmwood. Málið hefur meira að segja náð það langt að hugmyndir eru uppi um að byggja flughöfn fyrir geimskip á staðnum. Af framkvæmdum hefur þó ekki orðiö enn vegna fjárskorts. Reuter ÆTLAR ÞÚ AÐ LEGGJA SNJÓBRÆÐSLU FYRIR VETURINN? Nú er tækifærið Kagstætt verð og greiðsluskilmálar Faglegar ráðleggingar Útvegum menn til starfans ef með þarf V VATNSVIRKINN HF. ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966 Í^ÉÉI LVNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.