Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1990, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990.
Fréttir
Forseti íslands sæmir Gad Rausing
fálkaorðu.
Tetrapak-
eigandi fær
fálkaorðuna
Forseti íslands hefur sæmt sænska
fomleifafræðinginn Gad Rausing
hinni íslensku fálkaorðu fyrir fram-
lag hans til eflingar íslenskum fræð-
um við Oxfordháskóla.
Gad Rausing er einn aðaleigenda
fyrirtækisins Tetrapak sem fram-
leiðir meðal annars mjólkurfernur.
Hann beitti sér fyrir því á síðasta ári
að fyrirtækið legði fram 400 þúsund
sterlingspund eða 40 milljónir ís-
lenskra króna til að tryggja framtíð
kennarastóls í íslensku við Oxford-
háskóla. Staðan er kennd við Guð-
brand Vigfússon og mun framvegis
heita Vigfússon and Rausing Reader
in Ancient Icelandic Litterature and
Antiqities. -hlh
Sjálfstæðismenn:
Ekki prófkjör
á Norðurlandi
eystra
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Sjálfstæðismenn í Norðurlands-
kjördæmi eystra ákváðu um helgina
að viðhafa ekki prófkjör vegna kom-
andi alþingiskosninga.
Þetta var ákveðið á fundi kjör-
dæmisráðs flokksins á Akureyri og
þar var kosið í kjömefnd sem mun
gera tillögu um lista flokksins.
Hraðfrystihús Ólafsflarðar skuldar 500 miUjónir:
Kaupir KEA húsið?
Helgi Jónsscm, DV, Ólafsfirði:
Á hluthafafundi í Hraðfrystihúsi Ól-
afsfjarðar, sem haldinn var síðasta
miðvikudagskvöld, var því lýst yfir
að menn væru ekki reiðubúnir að
svo stöddu að taka tilboði Gunnars
Þórs Magnússonar í hlutabréf frysti-
hússins. Gunnar bauð 50 milljón
króna staðgreiðslu fyrir öll hlutabréf
frystihússins. Þetta þýðir að salan
er ekki útilokuð þrátt fyrir neitum
bæjarstjórnar og Hlutafjársjóðs og
má jafnvel búast við nýju tilboði frá
Gunnari. Ekki náðist í Gunnar vegna
þessa máls.
Kaupfélag Eyfirðinga hefur óskað
eftir viðræðum við stjórn H.Ó. með
það í huga að gera tilboð í hlutabréf-
in. Magnús Gauti Gautason kaup-
félagsstjóri segir að KEA vilji kynna
sér stöðu og rekstur frystihússins. Á
fyrrnefndum hluthafafundi kom
fram að á síðasta vetri hefði verið
leitað til fjölmargra aðila um kaup á
hlutafé en þeir flestir neitað, þar á
meða KEA og ýmis verkalýðsfélög.
DV hefur heimildir fyrir því að við-
ræður KEA um hugsanleg hlutafjár-
kaup séu mjög líklega á næstu dög-
um.
Bæjarstjórn Ólafsfjarðar hefur lýst
því yfir að lífsnauðsynlegt sé að
skapa frystihúsinu rekstrargrand-
völl og leita verði leiða til að það
verði áfram kjölfestan í atvinnulífi
bæjarins. Hins vegar á frystihúsið
sér ekki viðreisnar von við óbreyttar
aðstæður. Skuldir þess eru nú um
500 milljónir króna.
Hafnarvogin á Akranesi:
Tölvutækni tekin
upp við vigtunina
Siguröur Sverrisson, DV, Akranesi:
Nýr tölvubúnaður frá Pólstækni var
formlega tekinn í notkun á hafnar-
voginni á Akranesi fyrir stuttu. Um
leið vora gömlu vigtarhausamir fjar-
lægðir en sjálf vogin er hin sama og
áður.
Ársæll Valdimarsson á hafnarvog-
inni sagöi í samtali við DV að veruleg
þægindi yrðu samfara nýja tölvu-
vigtunarkerfmu. Hægt yrði að skrifa
Kjartan Guðjónsson, starfsmaður á hafnarvoginni á Akranesi, við nýja tölvu-
búnaðinn. DV-mynd Árni S. Árnason
út aflamagn hvers dags og síðar meir
yrði hægt að fá útprentun á afla
hvers einstaks báts yfir tiltekinn
tíma.
Til þessa hafa aflatölur og vigtanir
verið færðar inn í sérstakar bækur
en Ársæll sagði það myndi nú leggj-
ast af innan tíðar. Til að byrja með
yrði þó stuðst við bækurnar áfram
en um leiö og menn væru búnir að
læra til fulls á nýja tölvukerfið yrðu
þær lagðar til hliðar.
Álverið hækkar fast-
eignaverð í Vogum
Vogar: fasteignir hækka í verði.
„Fasteignaverð hefur hækkað hér
í Vogum. Það er augljóst,“ sagði Jó-
hanna Reynisdóttir, sveitarstjóri í
Vatnsleysustrandarhreppi, í samtali
viö DV. Jóhanna sagði að engar fast-
eignir hefðu verið seldar í Vogum á
undanfornum mánuðum en tilboð
sem húseigendum bærust væru
merkjanlega hærri og hagstæðari en
verið hefði. Hins vegar hefðu margir
ákveðið að draga það að selja hús sín
í trausti þess að verðið hækkaði enn
meir.
„Eftirspurn eftir fasteignum hér í
Vogum hefur aukist en framboðið
minnkað,“ sagði Jóhanna.
Viðræður eru hafnar milli sveitar-
félaga á Suðurnesjum vegna skipt-
ingar tekna af væntanlegu álveri.
Önnur sveitarfélög á Suðurnesjum
hafa sýnt því áhuga að fá hlutdeild í
þeim tekjum veröi af byggingu ál-
versms.
„Þessar viðræður eru skammt á
veg komnar þar eð menn vita ekki
hvaða upphæðir er um að ræða,“
sagði Jóhanna. „Hitt er ljóst að við
teljum að Vatnsleysustrandarhrepp-
ur eigi að fá í sinn hlut öll þau gjöld
af álverinu sem sveitarstjórnarlög
kveða á um.“
-Pá
í dag mæ]ir Dagfari________________
Til varnar vesalingum
Gamalt fólk og guðhrætt hefur
löngum reynt að kenna börnum
sínum og barnabörnum að ljótt
væri að ráðast á rhinni máttar og
að góðir menn og velmeinandi ættu
að koma þeim til hjálpar sem stæðu
höllum fæti ef ódrengilega væri að
þeim vegið. Dagfara þykir nú nóg
komið af níði, óhróðri og árásum á
nokkra menn sem um þessar
mundir eiga í mestum erfiðleikum
allra manna hér á landi, sumir
myndu segja aö þeir ættu virkilega
bágt. Er hér átt við nokkra af ráð-
herrum landsins, grandvara menn
og orðvara sem mega ekki vamm
sitt vita þótt þeir hafi lent í pólitík
og eitthvað misjöfnum félagsskap
um stund. Vill Dagfari fyrir sitt
leyti bera hönd fyrir höfuð þessara
vesalinga þótt ekki væri nema af
þeirri ástæðu að honum finnst ekki
líklegt að aðrir verði til þess.
Hvað meinar t.d. einhver um-
boðsmaður með því að vera alltaf
að ráðast á ráðherra Alþýðubanda-
lagsins? Veit hann ekld hvað þeir
eiga erfitt heima fyrir? Sá góði
maður ætti að gera sér grein fyrir
því að heimilisböl þeirra er þyngra
en tárum taki. Alþýðubandalags-
fjölskyldan er í upplausn, flokkur-
inn skilinn að borði og sæng og
hatrömm forsjárdeila komin upp
um kjósendur hans en slíkar deilur
eru meðal viðkvæmustu mála eins
og allir vita. Við þessar aðstæður
heimtar þessi umboðsmaður að
Svavar og Steingrímur og jafnvel
Ólafur Ragnar fari að lögum eins
og ekkert sé. Umboðsmaðurinn
þykist hafa eitthvert umboð frá
Alþingi. Dagfari vill hér og nú
benda honum á að ekki hefur Ólaf-
ur Ragnar geflð honum eitt eða
neitt umboð frá Alþingi til að ávíta
hann og fyrrverandi ástvini hans í
Alþýöubandalaginu af þeirri ein-
fóldu ástæðu að Ólafur Ragnar hef-
ur ekkert umboð til að sitja á Al-
þingi. Hann er bara alls ekki þing-
maður.
Það getur svo sem vel verið að
Svavar og Steingrímur Sigfússon
hafi einhvem tímann mætt svefn-
litlir og gleraugnalausir í vinnuna
eftir pólitíska andvökunótt og lesið
einhveria lagatexta öðruvísi en
umboðsmaðurinn sem hefur ekki
einu sinni umboð frá Ólafi Ragn-
ari. En það má umboðsmaðurinn
vita að bæði svefn- og gleraugna-
lausir skilja þeir Svavar og Stein-
grímur lögin miklu betur en hann.
Af mikilli kurteisi hafa þeir báðir
orðaö það svo að úrskurðir um-
boðsmannsins byggðust bara á svo-
litlum misskilningi og ætti ekki að
þurfa aö hafa fleiri orð um það.
Þá sjaldan að mnboðsmaður Al-
þingis er til friðs og upp rennur
dagur án þess að hann kveði upp
úrskurð um lögbrot alþýðubanda-
lagsráðherranna er á vísan að róa
með árásir á þá úr annarri átt. Þá
heyrist skerandi kelhngavæl frá
einhveiju Jafnréttisráði sem flýgur
á þessa menn í illu fyrir það eitt
að ráða vini sína í vinnu. Ekkert
má nú. Hvemig er það eiginlega
með þetta Jafnréttisráð; á það enga
vini? Líklega ekki, eins og það
hegðar sér. En Dagfari heldur því
hiklaust fram að ef Jafnréttisráð,
sem á enga vini, ætti vini þá myndi
það ráða vini sína í vinnu og ætti
bara að hafa sig hægt gagnvart
Svavari og vinum hans.
Út yfir tekur þó þegar dómstólar
landsins, sem eiga víst að vera hlut-
lausir, ráðast eins og óargadýr á
Ólaf vesalinginn Ragnar, sjálfan
heimilisfóðurinn í Alþýðubanda-
laginu, í miðju skilnaðarmáhnu og
rífa í tætlur bestu verk hans. Fé-
lagsdómur gat alveg látið það ógert,
þegar svona stendur á, að dæma
Ólaf til að borga peninga sam-
kvæmt einhveijum samningi við
háskólamenn sem Ólafur sjálfur
sagði berum orðum fyrirfram að
væri vara tímamótasamningur og
minntist aldrei á að taka ætti mark
á að öðru leyti. Sýnir það hógværð
Ólafs og stillingu að hann lét sér
nægja að tala góðlátlega um „mis-
skilning" Félagsdóms.
En það er mikill misskilningur
til viðbótar við allan misskilning-
inn hjá umboðsmanni Alþingis,
Jafnréttisráði, Félagsdómi og jafn-
vel Hæstarétti að halda að þeir
komist upp með þaö að ráðast á
menn sem eiga í eríiðleikum heima
og heiman og eiga kannski skammt
eftir ólifað í pólitík eða a.m.k. í rík-
isstjórn. Menn sem berjast fyrir lífi
sínu geta gripið til ýmissa ráða og
þeir menn sem hér er haldið uppi
vömum fyrir hafa sýnt það að þeir
kunna ýmislegt fyrir sér.
Það er nú ekki mikill vandi að
gefa Jafnréttisráði og þessum um-
boðsmanni langt nef og það er bara
byijunin. Enginn getur ætlast til
þess að Ólafur Ragnar fari að veita
þessum aðilum fé á fjárlögum til
þess að eyðileggja allt fyrir honum.
Hann mun eiga auðvelt með að
útskýra að á tímum þjóðarsáttar
og niðurskurðar verða svona aðilar
að sitja hjá. Þá þýðir nú ekki mikið
fyrir Félagsdóm að derra sig við
menn sem hafa að vísu ekki umboð
til að sitja á Alþingi en geta barið
dóma hans í klessu með bráða-
birgðalögum eins og reynslan sýn-
ir. Og Hæstiréttur skyldi bara gá
að sér. Fóru þeir Svavar og Ólafur
Ragnar ekki létt með að taka
SturlumáUð úr höndum Hæstarétt-
ar og alUr muna hvemig fór fyrir
Magnúsi Thoroddsen. Nei, það
skyldi enginn leika sér að því að
ráöastáminnimáttar. Dagfari