Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1990, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990.
5
dv_____________________________________________________________________________________________Fréttir
Miklar flárfestingar vegna virkjana fyrir nýtt álver:
Orkuver fyrir hátt í
50 milljarða króna
Ljóst er að leggja þarf í gífurlegar
íjárfestingar hér á landi á næstu fjór-
um til finun árum ef hér verður reist
álver. Álverið sjálft verður greitt af
hinum erlendu eignaraðilum At-
lantsáls, Gránges, Hoogovens og Al-
umax. Á verðlagi dagsins í dag er
gert ráð fyrir að álverið kosti irni það
bil 50,8 miUjarða króna.
Kostnaður við orkuver vegna ál-
versins virðist vera svipaður ef allt
er tahð. Virðast orkuverin, sem
byggð verða, og tilheyrandi orku-
flutningslínur slaga hátt í 50 milij-
arða. Samanlögð inngjöf í íslenska
hagkerfið er því mn 100 miiljarðar
að frádregnum efniskostnaði erlend-
is frá. Þetta er töluvert meira en íjár-
lög íslenska ríkisins.
Kostnaöarverð upp
á 42 milljarða
Samkvæmt skýrslu Halldórs Jón-
atanssonar, forstjóra Landsvirkjun-
ar, fyrir síðasta aðalfund fyrirtækis-
ins, er talið að álverið þurfi afl upp
á 340 MW. Orkuþörfin er því í kring-
um 2.900 GWst.
Segir í skýrslu Halldórs: „Til að
mæta orkuþörf álversins hefur eink-
um verið rætt um stækkun Búrfells-
virkjunar og byggingu Fljótsdals-
virkjunar. Fjárfesting Landsvirkjun-
ar vegna þessara og annarra fram-
kvæmda í þágu hinnar nýju stóriðju
að meðtalinni Blönduvirkjun áætlast
á árunum 1990-1994 um 39.629 millj-
ónir króna alls á verðlagi í desemher
1989 og að meðtöldum vöxtrnn. Hlut-
aðeigandi mannaflaþörf áætlast 2888
ársverk." Þessi kostnaðartala fram-
reiknuð til dagsins í dag er 41.974
milljónir.
Þessi tala samanstendur af Blöndu-
virkjun upp á 12,5 milljarða, Nesja-
vöflum 1 & 2 upp á 2,4 milljarða,
stækkun Búrfells upp á 6,6 milljarða,
stækkun Kröflu upp á 1,5 milljarða
og Fljótsdalsvirkjun upp á 19,7 millj-
arða. Þá má ekki gleyma kostnaði
við að koma upp orkuöflunarkerfi
en hann er taflnn geta numið á milli
6 og 7 milljörðum á næstu árum.
Að sjálfsögðu er orkan, sem fæst
út úr þessum virkjunum, meiri en
sem nemur sölunni til álversins en
þetta er hins vegar sú virkjanaröð
sem Landsvirkjun er búin að leggja
til í tengslum við þessa orkusölu en
um leið þarf að huga að sölu til al-
menningsveitna.
Hér sést rafmagnssala Landsvirkj-
unar i þau 25 ár sem hún hefur ver-
ið til. Sést vel hve gífurleg viðbét
verður við orkusölu fyrirtækisins ef
selt verður til nýs álvers.
8,1 milljarður á ári
Það verður að segjast eins og er að
fjárfestingartölur vegna nýs álvers
eru dálítiö á reiki. Ekki þó tölurnar
vegna álversins sjálfs heldur vegna
orkuveranna. í skýrslu aðstoðarfor-
stjóra Landsvirkjunar, Jóhanns Más
Maríussonar, frá síðasta aðalfundi
kemur fram að Landsvirkjun áætlar
fjárfestingu sína á næstu fimm árum
um 8,2 milljarða á ári (framreiknað
á verðlag dagsins í dag samkvæmt
framfærsluvísitölu). Því til viðbótar
gerir Landsvirkjun ráð fyrir að „aðr-
ir í orkugeiranum" fjárfesti fyrir um
1060 milljónir á ári.
í samtali við Jóhann Má kom fram
að nýlegir útreikningar Landsvirkj-
unar sýndu að „núvirði“ virkjana
vegna álvers er um 28 milljarðar.
Jóhann sagði að nauðsynlegt væri
að færa tölurnar í þennan búning og
sagði hann að þessar tölur væru
meðal annars notaðar í orkuverðs-
samningum.
Nýjar virkjunarrannsóknir
Til að sjá væntanlegu álveri fyrir
nægilegri orku verður stækkun Búr-
fellsvirkjunar að geta ásamt Nesja-
vallarvirkjun tekið til starfa á fyrstu
mánuðum ársins 1994 og Fljótsdals-
virkjun verður að vera komin í gagn-
ið haustið 1994.
Þessar virkjanir eru nánast verk-
hannaðar en ef ákveðið verður að
ráðast í byggingu þeirra verður að
hanna aðra virkjunarkosti sem kost-
ar auðvitað sitt. Telja menn hjá
Landsvirkjun að gera verði nýtt átak
í virkjunarrannsóknum og gæti því
stóraukinn kostnaður orðið hjá rannsóknum að Þjórsársvæðinu og eru nefndar til minni virkjanir eins
Landsvirkjun vegna- þess. Er ætlun einnig að stöðum eins og Jökulsá í og Fjarðará í Seyðisfirði.
Landsvirkjunarmanna að beina Skagafirði og Skjálfandafljóti. Einnig -SMJ
Þessar virkjanir verður ráðist í ef ákveðið verður að reisa nýtt álver hér á iandi. Margir þessara kosta eru með
ódýrustu virkjanakostunum sem íslendingar eiga í dag en það er helst að Fljótsdalsvirkjun sé dýr enda ákvörðun
um byggingu hennar tekin fram hjá hagkvæmniáætlun Landsvirkjunar.
Orkuöflunarkostnaður vegna
Álverá
Kostnaöur: 50.800
Orkuþörf: 340 MW
12.500
NÝR OG STÆRRI
SVZUKI SWIFT
SUZUKISWIFT SEDAN er sérlega glæsi-
legur og rúmgóður fjölskyldubíll, þar
sem vel fer um farþegana og nægt rými
er fyrir farangur.
SUZUKI SWIFT SEDAN býðst með afl-
miklum 1,3 I og 1,6 I vélum, 5 gíra
handskiptingu eða sjálfskiptingu. Einn-
ig er hann fáanlegur með
sítengdu aldrifi.
SUZUKIBÍLAR HF.
SKEIFUNNI 17 ■ SÍMI 685100
• Til afgreiðslu strax.
• Komið og reynsluakið.
Verð frá kr. 783.000 stgr.
Opið mánud. - föstud. kl. 9-18.
Laugard. kl.13-16.
$SUZUKI
-V//A