Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1990, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990.
13
Lesendur
Forsjármál skilnaðarbama:
Hver gætir varðanna?
Ólöf skrifar:
Með árvissu millibili berast þjóð-
inni ömurlegar fréttir um afdrif rétt-
indamála og velferðarmála einstakra
barna sem tilteknum stjórnvöldum
er ætlað að leysa úr. Víst er að þar
grillir aðeins í toppinn á ísjaka því
flest viðkvæm einkamálefni, er börn
varða, koma aldrei til frásagnar í fjöl-
miðlum - jafnvel þótt í ljós hafi kom-
ið áralangt klúður opinberra úr-
lausnaraðila.
Margir telja að heppilegast sé að
láta þögnina lykja um slik afbrot
kerfisins gegn börnum því annað
gæti valdið enn meiri sársauka og
vanvirðu fyrir börnin og umhverfi
þeirra en þegar er orðið.
Undirskriftir 10 þúsund einstakl-
inga og á annað hundrað undirskrift-
ir reykvískra lögreglumanna benda
til þess að almenn tiltrú til stjórn-
valda, er annast eiga mannréttinda-
vörslu barna, sé ekki mikil. Vonandi
hefur sú athygli, sem forsjármál
einnar íslenskrar stúlku hefur vakið,
þau áhrif að athygli stjómvalda bein-
ist nú að þeirri nauðsyn sem ber til
að endurskoða þau lagaákvæði sem
virðast hindra eðlilegar úrlausnir á
mannréttindasviði barna og ungl-
inga.
Um 600 böm og ungmenni verða
árlega skilnaðarböm og við mörgum
þeirra blasir að stjómvöldum ber að
ákvarða búseturétt og forsjá. Ekkert
virðist fá varnað því aö til áhtaefna
komi en hægt er með lögum og bættri
lagaframkvæmd að tryggja að úr-
lausn slíkra álitamála skaði hvorki
liamið né umhverfi þess varanlega.
- Bætt og skýr lög gætu einnig fækk-
að álitamálum.
Þar er kjánalegt fyrirkomulag að
dómsmálaráðuneytið skuli fara með
einhliða alræði á réttindasviði skiln-
aðarbarna. Það er og furöulegt að
barnaverndaraðilum vítt um land
skuh vera selt sjálfdæmi um hvernig
þeir semji umsagnir fyrir ráðuneytið
eöa hvemig þeir efna til íhlutunar
um mál skilnaðarbarna og mál frá-
skilinna foreldra án þess að það leiði
til lausnar fyrir börnin.
Barnalögin þarfnast endurskoðun-
ar og það þurfa einnig störf og við-
miðunarþættir umsagnaraðila en
þeir hafa nú fátt eða ekkert við að
miða, þegar shk mál koma upp, ann-
að en eigin tilfinningar og geðþótta-
viðhorf. Afskipti barnaverndaraðila
af forsjármálum við núverandi að-
stæður hafa iðulega breyst í áralanga
martröö án lausnar og án nokkurs
tilgangs varðandi velferð barna. -
Eiga ekki dómstólar að tryggja
mannréttindi?
Framkvæmdanefnd verkamannabústaða:
Seint og síðar meir
E.S. skrifar:
Mig langar til að drepa á vinnu-
brögð lagfæringardeildar hjá Verka-
mannabústöðum í Reykjavík, vegna
seinagangs við afgreiðslu á því sem
lofað hefur veriö að lagfæra. Þetta
er orðiö með ólíkindum - og þó er
sífellt lofað og lofað. Ég hef lent í því
tvívegis að hafa þurft að bíða á annað
ár (bíð reyndar enn) eftir aö viðgerð-
armenn lagfæri það sem ábótavant
er.
í fyrra skiptið bjó ég og fjölskylda
mín í Breiðholti og þar kom fljótiega
í ljós að svalahurð ein var ónýt,
trekkur og hleyta komst hindrunar-
laust inn. Seint og síðar meir var
tekið mál af hurðinni en það tók svo
langan tíma að fá hurðina að gólífiaJ-
ir (parket) gúlpuðust upp og urðu
ónýtar vegna bleytu. - Hurð var svo
lagfærð smávegis til bráðabirgða á
meðan smíða átti aðra hurð.
Oft og mörgum sinnum hringdi ég
til að vita hvernig gengi. Loks, mörg-
um mánuðum seinna kom upp úr
dúmum að málið af hurðinni hafði
týnst! - Það var því ekki fyrr en um
það leyti sem ég var að flytja úr íbúð-
inni að ný svalahurð var sett upp.
í núverandi íbúð minni sem ég
keypti af Framkvæmdanefnd Verka-
mannabústaða, vestur á Grandavegi,
kom strax í ljós ónýt (undin) útidyra-
hurð. Fyrri eigandi var búinn aö fá
loforð um að sett yrði í ný útihurð.
Nú, einu ári og sjö mánuðum eftir
að ég flyt hingað, og eftir ótal, ótal
hringingar - auk bréfs - hefur ná-
kvæmlega ekkert verið gert í málun-
um annað en lofað, lofað. Talaö um
að koma þegar það henti hinu og
þessu verkefninu (fleiri verkefni á
svæðinu eru óunnin) og allt í þeim
dúr.
Eftir þessum vinnubrögðum að
dæma megum við í fjölskyldunni von
bráðar fara að moka snjó úr forstof-
unni eða þurrka upp polla, auk þess
aö búa við kulda og trekk sem fylgir
búsetu í húsi með ónýta hurð og þaö
nálægt sjó. - Fróðlegt væri aö vita
hvort fleiri en ég séu ekki orðnir
hvekktir á seinagangi og skipulags-
leysi þeirra sem um þessi mál eiga
að sjá.
Konur!
Komið og takið þátt í
spennandi starfi.
Efnahagsbandalagið
EB-hópurinn fundar í kvöld kl.
20 að Laugavegi 17.
Gestur fundarins verður
Vilhjálmur Egilsson.
Atvinnumál
Atvinnumálahópurfundar í kvöld
kl. 20.30 að Laugavegi 17
Kvennalistinn
Réttindaveitingar
í rafveituvirkjun
Með reglugerð nr. 102/1990 um löggiltar iðngrein-
ar, námssamninga, sveinspróf og meistararéttindi var
rafveituvirkjun löggilt sem iðngrein. Þeir sem hafa
unnið við dreifikerfi rafveitna geta sótt um réttindi í
iðninni. Umsóknareyðublöð ásamt upplýsingum fást
hjá menntamálaráðuneytinu, sími 609500, Rafiðnað-
arsambandi íslands, sími 681433 og Sambandi ís-
lenskra rafveitna, sími 621250.
Umsóknir sendist:
Menntamálaráðuneytinu
Sölvhólsgötu 4, 105 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið
SMÁAUGLÝSINGAR
OPW
MAnudaga - fóstudaga.
Laugardaga, 9.00 - 14.00
Sunnudaga. 18.00 - 22.00
DV
Þvarholti 11
s: 27022
Morðgátan flutt
Barnakonur skrifa:
Við erum hér nokkrar vinkonur
öskureiðar yfir því að Stöð 2 skuli
vera búin að færa Morðgátuna fram
til kl. 20 en það verður til þess að
útiloka okkur bamakonur frá því að
horfa á þennan vinsæla sjónvarps-
þátt.
Við erum með heimih og fullt af
börnum og við hlökkuðum alltaf til
að setjast niður eftir dagsins amstur
og horfa á kerlinguna leysa málin en
nú ætla þeir að meina okkur að njóta
þess. - Það var þeim líkt!
Við höfum alltaf verið að keppast
við að koma kvöldmatnum frá og
börnunum í rúmið og þótt við séum
duglegar, að okkar mati, tekst þetta
engan veginn og við náum þættinum
ekki kl. 8.
Við erum næstum vissar um að það
em fleiri en við sem eru á sama
máh og vonum við að þeir sem þarna
ráða hugsi sig um tvisvar - jafnvel
þrisvar - og færi Morðgátuna á sinn
stað eða aftar í dagskrána svo að við
getum tekið gleði okkar aftur. Það
yrði áreiðanlega vel þegið af mörg-
um.
Ótryggt ástand
Konráð Friðfinnsson skrifar:
Nú er flest með kyrmm kjömm við
Persaflóa. Nema hvað „bófaflokkar",
studdir af íraksstjóm, ganga eins og
grenjandi ljón um götur í Kúvæt og
ræna og rupla öllu steini léttara í
eigu „útlendinga". Sem sé; fyrirtaks
„fyrirstríðsástand“ hefur nú skapast
þarna.
Búast menn enda við að skálmöld
bijótist út á næstu mánuðum.
Bandaríkjamenn hafa sagt að sú víg-
öld muni standa stutt en þó valda
gífurlegu manntjóni skelU hún á.
Stutt, vegna þess að nú tala menn
um aö nota kjarnavopn.
Ríkisstjórn íslands hefur í hyggju
að veita aUt að tvö hundruð og fimm-
tíu mUljónir króna til aðstoðar vænt-
anlegu flóttafólki og til þeirra er
hjúkrunar þyrftu við. Þetta rökstyð-
ur stjómin með því að benda á að
íslendingar eru aðfiar að Atlands-
hafsbandalaginu og að þeir geti þar
af leiðandi ekki endalaust verið
„stikk frí“ útgjaldalega séð. Þeim
beri skylda til að láta eitthvert fé af
hendi rakna til bandalagsins, ein-
hvem tíma.
Sér í lagi á þetta við þegar þjóðir
sem standa utan við samkunduna
beina spjótum sínum að NATO-rikj-
um eins og tvímælalaust á sér stað í
dag. Undir þessa röksemdafærslu
ríkisstjómarinnar er hægt að taka.
Þótt ég sjálfur hafi ekki verið hlynnt-
ur vem okkar. í NATO breytir þaö
samt ekki því að hún er staðreynd.
Verði hins vegar af greiðslum
skulu menn þó gera sér eitt ljóst; að
þá eru íslendingar líka um leið orðn-
ir beinir þátttakendur í styijöld er
enginn veit hvernig endar. Ekki
óbeinir þátttakendur eins og vera
myndi ef þjóðin sem sUk væri ein-
ungis skráð sem NATO-þjóð, líkt og
verið hefur frá stríðslokum.
Annars er ástandið við Persaflóa
afar undarlegt, vægast sagt. Það virð-
ist sem báðir aðilar séu að reyna að
vinna tíma. En tíma til hvers, hlýtur
maður að spyrja sjálfan sig? Skortir
íraka kannski lengri tima til að fuU-
gera atómsprengju? Um þróun þess-
ara mála getur enginn maður spáð.
En gerist það sem reiknað er með að
gerist verður niðurstaðan aðeins ein,
stríð.
AUKABLAÐ
Tölvur og tölvubúnaður
Sér^takt aukablað um tölvur og tölvubúnað mun fylgja DV mið-
vikudaginn 3. október nk.
í blaðinu verður Qallað almennt um tölvutækni og tölvunotkun,
tölvur og hugbúnað á markaðnum fyrir einstaklinga og fyrirtæki
og auk þess notkun tölva á nýjum sviðum, svo sem við upplýs-
ingavinnslu, við skipulagningu sölustarfa, á sviði verkfræði, í arki-
tektúro.fl.
fjallað verður um hugbúnað til ýmissa verka, bæði nýjan hug-
búnað og þann sem verið hefur á markaðnum fram að þessu,
ýmis kerfi, jaðartæki og rekstrarvörur sem gera einstaklingum
og fyrirtækjum kleift að nýta tölvubúnað betur en áður, búnað
sem eykur öryggi í gagnavinnslu og meðferð gagna o.fl.
Einnig er ætlunin að Qalla nokkuðum menntunarmöguleika fólks
á tölvusviði, bæði framboð á námskeiðum og framhaldsmenntun.
Þeir auglýsendur, sem áhuga hafa á að auglýsa i þessu auka-
blaði, hafi samband við auglýsingadeild DV hið fyrsta. Vinsamleg-
ast athugið að skilafrestur auglýsinga í þetta aukablað er til
fimmtudagsins 27. september.
ATH.! Póstfaxnúmerið okkar er 27079 og auglýsingasíminn er
27022.
Auglýsingadeild