Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1990, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1990, Blaðsíða 3
MIDVIKUDAGUR 26. SEPTEMÖER Í990. 3 Fréttir Forsætisráðherra: Islenska sauðkindin nemur land í Kanada. DV-mynd: EJ íslenska sauðkindin: Hluturinn 250 þúsund Gylfi Krisqánsson, DV, Akureyri: „Hlutur háseta í fyrstu veiðiferð nýja Sólbaks, Útgerðarfélags Akur- eyringa sem áður hét Aðalvík og keyptur var frá Keílavík í sumar, nam um 250 þúsundum króna eftir 18 daga veiðiferð. Aflinn var frystur um borð og var landað 134 tonnum af frosnum fiski, mest karfa, og nam aflaverðmæti 22 milljónum króna. Einar Óskarsson hjá Útgerðarfé- lagi Akureyringa segir að aflabrögð togara félagsins að undanförnu hafi verið sæmileg en nokkuð misjöfn. Frystitogararnir tveir, Sólbakur nýi og Sléttbakur lönduöu samtals 343 tonnum, en síðustu landanir ísfisk- togaranna flmm sem félagið á voru frá 106 tonnum upp í 244 tonn. Aflinn hefur verið blandaður að undan- förnu, mest karfi og þorskur. Einar Óskarsson sagði að þorsk- kvóti ÚA sem eftir er að veiða næmi um 1800 tonnum, en heildarkvótinn sem eftir er nemur um 4000 þorsk- igildum. Úthlutaður kvóti til ÚA á árinu nemur um 15 þúsund þorskígildum en einnig hefur eitthvað verið keypt af kvóta á árinu. „Ég held að það sem eftir á að veiða fari langleiðina í það að nægja okkur fram undir jól miðað við eðlilegar aðstæður. Það verður reynt að stýra veiðunum þannig að þetta endist sem lengst,“ sagði Einar Óskarsson. Nefnd um nýtingu á Keflavíkur- fiugvelli Steingrímur Hermannsson forsæt- isráðherra hefur skipað sex manna nefnd til að kanna möguleika á frek- ari framtíðarnýtingu aðstöðu við Keflavíkurflugvöll. Er nefndinni fahð að athuga hvaða breytingar þurfi á fyrirkomulagi og aðstöðu við Keflavíkurflugvöll til að örva flugumferð og auðvelda hvers konar flutningsaðilum afnot af flug- vellinum og flugstöðinni. Verður þetta kannað sérstaklega með ís- lenska útflutningsaðila í huga. Þá er nefndinni falið að athuga hvaða er- lendir aðilar hafa áhuga á að nota Keflavíkurflugvöll fyrir starfsemi á sviði iðnaðar og þjónustu og kanna hvernig aðrar þjóðir hafa nýtt sér alþjóðlega flugvelli. Loks er nefnd- inni falið að athuga áhuga flutnings- aðila sem annast flutninga milli Evr- ópu, Jppans og Bandaríkjanna á að nota flugvöllinn sem birgðastöð og umskipunarhöfn. Stefnt er að lokum nefndarstarfs- ins fyrir 1. mars á næsta ári og þess vænst að samvinna verði höfð við Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja og fleiri hagsmunaaðila. Jóhann Einvarðsson alþingismað- urerformaöurnefndarinnar. -hlh Austurland: Halldór og Jónáfram Emil Thoiarensen, DV, Eskifirði: Framsóknarmenn í Austurlands- kjördæmi eru þessa dagana að ganga frá tfinefningum í forval sem fram fer meðal framsóknarmanna í lok mán- aðarins. Tíu efstu menn í forvalinu keppa síðan um sex efstu sætin. Kosn- ing milli þeirra fer fram á aukakjör- dæmisþingi framsóknarmanna sem fram fer í Hótel Valaskjálf á Egilsstöð- um laugardaginn 27. október. A fundi, sem haldinn var fyrir stuttu í stjórn kjördæmissambands framsóknarmanna á Austurlandi, lýstu þeir Halldór Ásgrímsson og Jón Kristjánsson, þingmenn Framsókn- arflokksins á Austurlandi, því báðir yfir að þeir gæfu kost á sér áfram, Hafidór í fyrsta sætið og Jón í annað. Orðrómur var á kreiki um að mjög væri lagt að Halldóri Ásgrímssyni að gefa kost á sér til framboðs í Reykjavík. Nemur land í Kanada Þó illa gangi í íslenskum búnaði hafa ekki allir misst trúna íslensku sauðkindina. Stefanía Sigurðardóttir, vestu íslensk kona, hefur keypt um 100 lenskar kindur og hyggst flytja með sér tfi Kanada. Þar rekur búgarð rétt utan við Toronto. Stefanía hyggst rækta þar íslensk íjárkynið og munu kindurnar eit hundrað verða fyrsti vísirinn að tjár stofni hennar. Það er ekki hvaö sís ullin á íslensku sauðkindinni se Stefanía horfir tfi. Kindurnar mun leggja í hann í næsta mánuði. Nfr, ' stærri °g kraftmeiri Daihatsu Charade Sedan er rúmgóður 5 manna fjölskyIdubílI meö sérstaklega stóra faraneurssevmslu (288 lítra) sem mjög auðvelt er að hlaða. Hann er búinn nýrri kraftmikilli 4ra strokka, 16 ventla 1.3 lítra, 90 hestafla vél með beinni innspýtingu. Þessi vél gerir bílinn bæði auðveldan og skemmtilegan í akstri hvort sem hann er með beinskiptingu eða sjálfskiptingu. Sparneytni og hagkvæmni í rekstri undirstrika svo kosti Charade Sedan sem hins fullkomna fjölskyldubíls. Ótrúlega hagstætt verð Daihatsu Charade Sedan SG 5 gíra kr.777.000 stgr. á götuna. Sjálfskiptur kr.839.000 stgr. á götuna. Komið og reynsluakið kraftmiklum Charade Sedan Brimborg hf. Faxafeni 8 • Sími 685870

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.