Dagblaðið Vísir - DV - 26.09.1990, Síða 12
12
MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990.
Spumingin
Lesendur
Hvað er það skemmtileg-
asta sem þú gerir?
Tannlæknakostnaður óviðráðanlegur:
Árni Geir Geirsson nemi: Það er nú
erfitt að svara því. Það er svo margt.
T.d. að æfa íþróttir.
Jón Helgi Geirsson nemi: Ýmislegt.
Stunda íþróttir og hlusta á þunga-
rokk t.d.
Þóra Lilja húsmóðir: Ferðast og
skemmta mér.
Valgarð Blöndal: Að spila bridds er
eitt af mörgu.
Bessi A. Sveinsson nemi: Ég veit það
ekki. Eigum við ekki að segja aö
borðan góðan mat.
Jóhannes Gunnarsson verkamaður:
Nú veit ég ekki. Það er svo margt.
Ferðast með fjölskylduna er eitt af
því.
Frír í f angelsum?
Verða fangar látnir sitja í fyrirrúmi um frian tannlæknakostnað? er spurt í
bréfinu.
Nýtt álver á
Norðurlandi
Gunnar Þórarinsson skrifar:
Umræður um nýtt álver hafa verið
á blaðsíðum dagblaðanna og í um-
ræðum í sjónvarpi og útvarpi. Frá
mínu sjónarmiði ætti ekki mengun
að valda skepnum miklum óþægind-
um lengur þegar fiárbúskapur fer
svo gott sem að heyra fortíðinni til.
Álver í Eyjafirði er því ágæt hug-
mynd og ætti ekki að skaða lífs-
hagsmuni fólks né fénaðar þar
nyrðra. Sömu sögu er að segja um
Austfirðina.
Á höfuðborgarsvæöinu er allt að
yfirfyllast af alls konar iönrekstri og
næg atvinna er alla jafna fyrir fiölda
fólks í Álverinu. Þar vinna 6-700
manns. Svo er einnig um mannafla-
aukningu að ræða hjá verktökunum
á Keflavíkurflugvelli þar sem vinnu-
afl skiptir tugum hundraða. Útgerðin
í kringum Keflavíkúrsvæðið er lítil
nema hjá Miðnesi, þar sem allt er í
fullum gangi, enda vel rekið fyrir-
tæki, að sögn.
Ég kem þessu á framfæri í þeirri
von að fólk úti á landi fái eitthvað
til sín og byggðajafnvægi verði eðli-
legt. Það væri kannski ekki svo galið
eftir allt að alþingismenn leituðu eft-
ir samþykki þingsins til þess að
kaupa eigur fólks á landsbyggðinni
og allir flyttu svo hingað á höfuð-
borgarsvæðið. Ég held nú annars að
heilbrigð sjónarmið verði að fara að
komast að á íslandi en ekki pólitísk
hringavitleysa eins og hún hefur
verst leikið landsmenn undanfarin
ár.
Olíuleit með gervitungli:
Tökum tilboðinu
Ólafur hringdi:
Ég vil eindregið hvetja íslenska
ráðamenn og þá jafnframt sveitar-
stjómarmenn sem hafa verið í um-
ræðunni vegna hugsanlegrar olíu-
leitar við.Axarfiörð til að taka tilboð-
inu sem borist hefur frá Svíþjóð um
að kanna þetta til fullnustu með að-
stoð gervitungls. - Það er sænskt fyr-
irtæki sem býður aöstoð sína og er
kostnaðurinn við hana sagður vera
um 10% af því sem gerist með hefð-
bundnum hætti.
Með þessari aðferö má búast við
að loks fáist úr því skoriö hvort hér
er um olíu aö ræða eða ekki. Það
hafa lengi verið uppi hugmyndir um
að láta kanna þetta í áfongum og
mörg sýni hafa þegar verið tekin, en
ekkert út úr þeim komið. - Nú er
tækifæriö og úr því að ríkisstjómin
hefur þegar fiallað um málið væri
ekki úr vegi að við fengjum að heyra
hver niðurstaða hennar var.
Ef ekki verður tekin ákvöröun um
þetta mikilvæga verkefni hvað úr
hveiju eram við sennilega búin aö
missa af tækifærinu til ódýrari könn-
-unar í bráð. Og þá fer að koma að
því sem marga hefur grunað, að ein-
hveijir innlendir aðilar standi sér-
staklega í veginum fyrir rannsókn-
um á olíuleit hér viö eða á íslandi.
Tómas Tómasson skrifar:
Það er mikið rætt þessa dagana um
hin ýmsu álit sem umboðsmaður
Alþingis hefur sent frá sér um mál-
efni borgaranna og þá helst þeirra
sem hafa haft sig mest í frammi við
að sækja á um bætur frá kerfinu.
Þessu illvíga og staðnaða kerfi sem
við höfum þó Sjálf búið til og viljum
sennilega, þrátt fyrir allt, halda svo
til óbreyttu. Það sýnir sig a.m.k. í
hveijum þingkosningunum á fætur
öðrum. Það eru alltaf sömu mennim-
ir sem eru kosnir og jafnframt sömu
flokkarnir. Nýir flokkar, sem koma
á vettvang, eiga erfitt uppdráttar hjá
okkur, utan Kvennalistinn, sem er
sér fyrirbæri í stjórnmálum heims-
ins, að ég held.
Hinir ýtnu og þeir sem þrautþekkja
kerfið virðast nú leita til hins nýja
umboðsmanns Alþingis og fá þá að
sjálfsögðu afgreiðslu samkvæmt því.
Eg á bágt með trúa því að hinn venju-
legi borgari geti gengið inn beint af
götunni og fengið leiðréttingu hjá
þessu nýja embætti. Hins vegar vil
ég alls ekki draga úr mikilvægi emb-
ættisins sjálfs eða vinnubrögöum
hins kunna lögmanns sem þarna
heldur um tauma. - Ég er aðeins að
segja að ekki má trúa því eins og
nýju neti að öll álit sem frá umboðs-
manni koma séu hin einu réttu og
þau eigi að afgreiða án umhugsunar.
Þannig er að mínu áliti farið um
álit frá umboðsmanni og hefur verið
birt nýlega um að fangelsisyfirvöld
leggi út fyrir tannlæknakostnaði
fanga. Þótt menn þurfi að sitja af sér
ákveðinn dóm, mislangan að vísu,
er það ekki rétlætismál að þeir fái
fríar tannviðgerðir. Rökin sem m.a.
eru sett fram, um að fangar séu svipt-
ir tekjumöguleikum um tíma og því
þyki rétt að ríkið leggi út fyrir þess-
um kostnaði, standast engan veginn.
Fá þeir sem eru atvinnulausir tíma-
bundið einhvern styrk hjá hinu opin-
bera vegna tannlæknakostnaðar?
Eða þeir sem hggja á sjúkrahúsi
tímabundið, jafnvel nokkra mánuði?
Ég held að hér sé farið út á hálan
ís þegar tannlæknaþjónusta er ann-
ars vegar svo dýr sem hún er og oft
óviðráðanleg venjulegum launþeg-
um. Þessi þjónusta þarfnast hins veg-
ar endurskoðunar með tilliti til þátt-
töku trygginga eins og önnur lækna-
þjónusta. En það er fortakslaust frá-
leitt að byija á því að bjóða föngum
fría tannlæknaþjónustu á meðan all-
ur almenningur, sem þó borgar brús-
ann, horfir á og nýtur einskis sjálfur.
Ekki lakur leik-
maður, Atli
R.V. skrifar:
Þetta á að vera svar til Rúnars Jóns
Árnasonar vegna skrifa hans í DV
6. sept. sl. - Á íþróttasíðu DV 30. ágúst
sl. var fyrirsögn um bikarúrslitaleik
Vals og KR „Þjófnaður" - og kallar
Rúnar það „afar ósmekklega fyrir-
sögn“ og spyr hann í framhaldi af
því hverju hafi verið stolið.
Rúnari finnst þessi fyrirsögn alveg
óskiljanleg og biður um skýringu.
Auðvitað er oft sagt, þegar lið vinnur
óverðskuldaðan sigur, að það hafi
„stolið sigrinum", samanber Argent-
ína-Brasiha í HM. - Að sjálfsögðu
tóku Valsmenn ekkert ófijálsri hendi
enda alls ekki meint á þann hátt.
í spurningu 3 spyr Rúnar „Hvað
var svona spennandi og hvers
vegna?“ Ég spyr á móti: Varst þú
ekki á leiknum? - Og þannig má
halda áfram og spyija.
í spurningu 5 kemur aö því sem fær
mig th að svara-Rúnari. Það er í sam-
bandi viö framkomu stuönings-
manna Vals í garð Afia. Rúnar segir
að ekkert hafi verið talað um fram-
komu stuðningsmanna KR í garð
Sævars. - Þar vil ég benda á (með
~ fuhri virðingu fyrir Sævari) að hann
sló eftirminnilega í boltann þar sem
hann gat ekki stöðvað hann á lögleg-
an hátt. Og fyrir vikið fékk hann
gult spjald. - Þessi hegðun þykir ekki
íþróttamannsleg.
Þegar Sævar fékk boltann eftir
þetta „úuðu“ stuðningsmenn KR-
inga á Sævar. Hins vegar kölluðu
áhangendur Vals „Út af með Atla“.
Hvers vegna? - Var ef til vill verið
að þakka honum samstarfið á undan-
fornum árum með slíku háttalagi? -
Ónei, þeir vom orðnir sárir og
svekktir og komnir með mikla eftir-
þanka enda ekki lakur leikmaður þar
á ferð.
Svo er það spurningin þar sem
Rúnar vlh meina að Valsáhangendur
klappi fyrir því að dómarinn hafi
meitt sig og þurft að yfirgefa völlinn.
- Þó svo að það væri þeim kannski
líkt held ég að klappið hafi nú í raun
þýtt annað enda voru það ekki ein-
ungis Valsáhangendur sem klöpp-
uðu. - Ef til vill í þakklætisskyni fyr-
ir alveg ágæta frammistöðu í leikn-
um. Ég vh svo taka fram að lokum
að bréf þetta er skrifað með fullri
virðingu fyrir Valsliðinu og ég segi:
Til hamingju með bikarinn.
Atli Eðvaldsson i „fulium skrúða".