Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1990, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1990.
9
Utlönd
Það helsta, sem Austur-Þjóðverjar hafa að bjóða í hinu sameinaða Þýska-
landi, eru minjagripír. Þessum gripum fjölgaði að miklum mun þegar aust-
ur-þýski herinn skipti um búninga.
Evrópu, allt austur á sléttur Volgu
og í Póllandi og Tékkóslóvakíu skipta
Þjóðverjar hundruðum þúsunda.
Þetta er gamalt vandamál sem varð
ein helsta orsökin fyrir útþenslu-
stefnu Þjóðverja á valdatíma Hitlers.
Hins vegar munar miklu að nú
stendur efnahagur Þýskalands með
miklum blóma, í það minnsta í þeim
Simamynd Reuter
hluta sem þar til í gær hét Vestur-
Þýskaland.
Þýskaland er sterkasta iðnveldi
Evrópu og eitt hiö sterkasta í heimin-
um. Það verður því óhjákvæmilega
talið til stórvelda eftirleiöis þótt Þjóð-
verjar þurfi ekki lengur að teíla fram
óvígum her til að sanna mátt sinn.
NTB
Frökkum ekki sama um sameiningu Þýskalands:
Óttast ekki
þýska herinn
- Þjóðverjar ógna nágrönnum sínum aðeins á mörkuðunum
land og valdið þeim þungum búsifj-
um. Núna fagna Frakkar ekki sér-
staklega þótt Þýskaland sameinist á
ný. Stjóm Frakklands lætur þessa
nágranna sína að sjálfsögðu enga
ástæðu hafa til að efast um að sam-
bandið sé gott en franska þjóðin er
ekki öll á sama máli.
Frökkum er ekki sama
í nýlegri skoðanakönnun kom í ljós
að aðeins 37% Frakka telja samein-
ingu Þýskalands sérstakt gleðiefni.
Það er þó ekki af ótta við öflugan
þýskan her heldur óttast margir
Frakkar að Þjóðverjar fái fljótlega
yfirburðastöðu innan Evrópubanda-
lagsins. Þannig verði sameinað
Þýskaland óhjákvæmilega efnahags-
legt stórveldi í Evrópu þótt ríkið fari
ekki með ófriði á hendur nágrönnum
sínum.
Samanlagður herstyrkur Þýska-
lands verður minni en styrkur Vest-
ur-Þýskalands fyrir sameininguna.
Alls verða 370 þúsund hermenn und-
ir vopnum og enn um sinn munu
gilda takmarkanir á búnaði hersins.
Þjóðverjar geta ekki einu sinni sent
herinn út fyrir landamærin án þess
að bijóta gegn stjómarskrá landins.
Að síðari heimsstyrjöldinni lokinni
þótti sjálfsagt að þýska hernum yrði
haldið niðri til langframa. Það sama
átti að reyna eftir fyrri heimsstyrj-
öldina en mistókst meö hörmulegum
afleiðingum. Nú hefur hins vegar
komið fram gagnrýni á Þjóðverja fyr-
ir að sitja heima meðan önnur ríki
Vestur-Evrópu verða að halda úti
herliði við Persaflóa. Þjóðverjar
mega hvergi fara með her sinn, jafn-
vel þótt það sé í nafni Sameinuðu
þjóðanna.
Vilja ekki sýna herinn
Þjóöverjar eru yfirhöfuð á móti því
að herinn verði sendur gegn Saddam
Hussein og írökum. Hermennska er
mikið feimnismál í Þýskalandi og
hefur verið það allt frá stríðslokum.
Hernaðarandinn, sem þar ríkti á
Hitlerstímanum og fyrr, reyndist
þjóðinni dýrkeyptur. Þjóðverjar vilja
því halda sig frá öllum vígvöllum.
Bandamenn þeirra segja hins vegar
að þeir geti lagt sitt af mörkun eins
og aðrar vestrænar þjóðir til að
tryggja frið um olíulindirnar við
Pérsaflóa. Þjóðverjar eru mjög háðir
innflutningi á olíu og það mundi
muna um liðstyrk þeirra við flóann.
Þótt þýski herinn sé ekki stór þá er
hann þeim mun öflugri og að sögn
betur búinn en nokkur annar her í
heiminum.
í sameinuðu Þýskalandi verða íbú-
arnir 78 milljónir. Þýskaland verður
því næstfjölmennasta ríki Evrópu.
Aðeins Sovétríkin eru fjölmennari. Á
landakortinu er Þýskaland hins veg-
ar ekki tiltakanlega stórt. Þjóðverjar
verða þvi aðþrengdir með landrými
eins og svo oft áður í sögunni og þar
að auki búa ekki allir Þjóðverjar inn-
an landamæranna.
Gömiu vandamálin enn óleyst
Þýskir minnihlutahópar eru fjöl-
mennir í mörgum löndum Austur-
Sameinað Þýskaland er ekki her-
veldi og engar líkur eru að svo verði
í náinni framtíð. Nágrannarnir þurfa
ekki að óttast ásælni þrátt fyrir að
minningin ein um öflugt Þýskaland
veki einnig ótta um að þar komist
einhvern tíma á legg nýr Hitler.
Enginn veit þó hvað kann að gerast
í fjarlægri framtíð. „Nei,“ svaraði
gamall hershöfðingi frá Hitlerstím-
anum spurningunni um hvort þjóðir
heims þurfi að óttast nýjan þýskan
harðstjóra. „Ekki næstu 150 árin,“
bætti hann við.
Frakkar hafa í meira en öld haft
mikinn beyg af þýska hernum og
hafa haft fulla ástæðu til. Þrisvar
hafa Þjóðverjar ráðist inn í Frakk-
Helmut Kohl fær það hlutverk að
stýra Þýskalandi i það minnsta fram
yfir kosningarnar nú í desember og
allar líkur eru á að hann leiði flokk
sinn til sigurs þá.
í Bonn er róinn lífróður
- 400 milljónum króna varið til að undirbúa komu nýrra þingmanna
Á fimmtudaginn eiga þingmenn
frá héruðunum, sem þar til í gær
hétu Austur-Þýskaland, að koma
sér fyrir í Bonn og taka sæti á þingi
sem situr í það minnsta þar til kosið
verður að nýju í byrjun desember.
Yfirvöld í Bonn berjast fyrir því
harðri baráttu að borgin haldi
stööu sinni sem aðsetur fyrir ríkis-
stjórn og þing sameinaðs Þýska-
lands, rétt eins og hún hefur verið
allar götur frá árinu 1949.
Þetta er þó tæpur slagur og fyrsti
fundur þingsins, þar sem mæta
þingmenn frá öllu Þýskalandi,
verður haldinn í Berlín sem var
höfuðborg landsins allt til þess að
því var skipt upp í tvo hluta að síð-
ari heimsstyrjöldinni lokinni.
Bonn býður betur
Sagan segir því að Berlín skuh
vera höfuðborg og aðsetur æöstu
valdamanna ríkisins. í Bonn þykj-
ast menn hins vegar geta boðið
betur því borgin er rík og þar skort-
ir ekkert í glæsilegum byggingum
og þegar þingið kemur saman verð-
ur búið að útvega öllum þingmönn-
unum úr austri aðstöðu til að lifa
góðu lífi í Bonn.
Það breytir þó engu um að Berlín
verður höfuðborg ríkisins en þing-
inu gæti þó enn verið fundinn stað-
ur í Bonn. Á það er bent að sein-
asti maðurinn, sem bar titiUnn
Þýskalandskanslari, hélt til í Berl-
ín og hann hét Adolf Hitler.
Mörgum finnst sem það minni
óþægilega á liðna tíð ef Helmut
Kohl, hinn nýi kanslari yfir öllum
Þýskalandi, á að hafa aðsetur á
sama stað. í Bonn eru menn óþreyt-
andi við að minna á að saga Berlín-
ar er ekki öll glæsileg en í Bonn
hafa menn ekkert illt gert af sér.
Þeir eru 144 nýju þingmennirnir
sem koma til borgarinnar. Borgar-
stjórnin í Bonn hefur þegar variö
11 milljónum marka eða nær 400
milljónum íslenskra króna til að
undirbúa komu þingmannanna úr
austri. Þeir fá allir skrifstofur og
bústaöi til að dvelja í meðan þingið
situr. Þá hafa breytingar á þing-
salnum kostað miklar íjárhæðir.
Raðaðfrá hægri til vinstri
Salurinn var allur skipulagður
upp á nýtt, jafnvel þótt ekki sé enn
vitað með vissu hvort hann verður
notaður til frambúðar. Hann á að
taka 663 þingmenn í sæti í stað 519
áður. Þingmönnum verður skipað
eftir skoðunum frá hægri til
vinstri, rétt eins og á franska þing-
inu þar sem hugtökin hægri og
vinstri urðu til í stjórnmálunum.
íhaldsmönnum verða fengin sæti
lengst til hægri, þá frjálslyndum,
græningjum, jafnaðarmönnum og
yst til vinstri sitja þingmenn sem
áður fylgdu Kommúnistaflokki
Austur-Þýskalands að málum.
Þrátt fyrir mikinn auð í garði í
Bonn er þó vart til nægilega gott
íbúðarhúsnæði til að hýsa nýju
þingmennina. Það hefur verið leyst
með því að taka hótelherbergi á
leigu. Þau eru þó ekki öll jafnfín
Lothar de Maiziere, fyrrum forsætisráðherra Austur-Þýskalands, fær
besta bústaðinn i Bonn. Hann verður líka ráðherra i nýrri stjórn Helmut
Kohl. Simamynd Reuter
en eiga samt að vera nægilega
virðuleg fyrir fulltrúa á löggjafar-
samkomunni.
Enn hefur þingmönnunum ekki
verið skipað niður á hótel en þó er
talið fullvíst að Lothar de Maiziere,
fyrrum forsætisráðherra Austur-
Þýskalands, fái glæsilega íbúð á
ráðstefnuhóteli. Hann á að verða
ráðherra í nýrri ríkisstjórn Þýska-
lands.
Meðal annarra fulltrúa ríkir
nokkur spenna eftir að fá að sjá
íbúðirnar. Sumir hafa látið sér
detta í hug að þingmenn geti skipst
á um að dvelja í þeim fínustu þann-
ig að hver fái viku í senn.
Áður séð það svart
Þingmennirnir að austan verða
að greiða fyrir aðstöðuna sjálfír
eins og aðrir þingmenn. Þingfarar-
kaupið nær tvöfaldast þó frá því
sem var meðan þeir sátu á þingi
Austur-Þýskalands.
Að loknum kosningunum í byrj-
un desember á að vera búið að
leysa allan húsnæðisvanda. Á það
er bent að.húsnæðisvandinn nú sé
aðeins smámunir hjá því sem hann
var þegar þinghald hófst í Bonn
fyrir rúmum íjörutíu árum.
Þá reyndist salur náttúrugripa-
safnsins sá eini þar sem hægt var
að kalla þingið saman. Þar hófu
Vestur-Þjóðverjar löggjafarstörf
undir vökulum augum uppstopp-
aðra fíla, gíraffa og nashyrninga.
Reuter