Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1990, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1990.
13
Lesendur
tefón Guöbjartsson, faðirinn í forræðismá
A«ffi ctiillrn þetta*^
. Rami
)ómsmálaráðnneytið með beiðni móðunnnar. grskvÖVái0 •
st hvort fjallað verður um málið
Éu er á leid til landsins
QU Vl “ BW" feneið tækifæri til aö ræða v!
W . .nskirbamsinserualveBOtviræö f/er alveg fariCiað spöa ÍJ
nsson, aöstoðarmaður
rerra, sagði við DV að
,-inna i forræðismálinu
Hildar Ólafsdóttur um
á forsjá dóttur hennar.
ður að taka ákvörðun
rleitt beri að taka málið
‘ sagði Sigurður í sam-
iefö til landsins en get
fÁ'S’JSS.
nsfSSíSgiJS
'ulHnissíSft£5«
Það þarf enginn
íÚeySfunvissum aö stúlkan muni
sSfoÆ^s
við þau.
6g\u föVtótta™ðhoUrfJfari Lð koma
sgasÆS.--~s{
legurfráSpáni.
„Lofsvert þegar fjölmiðlar fylgja málum effir eins og DV hefur gert I svokölluðu forsjármáli," segir bréfritari ni.a.
Forræðismálin og frumkvæði DV
Elínborg Brynjólfsdóttir hringdi:
Ég vil fyrir mitt leyti láta þaö koma
fram hversu Dagblaðið Vísir hefur
staðið sig vel í því að kynna fólki og
upplýsa það hroðalega misrétti og
óréttlæti sem hefur viðgengist í mál-
efnum skilnaðarbarna og þeirra
barna sem foreldrar togast á um for-
ræði á. Ég held að DV hafi haft þarna
algjört frumkvæði. Og má þá geta
þess máls sem hæst hefur borðið
undanfarið, litlu stúlkunnar sem
kom hingað frá Spáni og hefði verið
send út aftur ef ekki hefði verið haf-
in umræða um málið í íjölmiðlum.
Ef DV hefði ekki tekið á málinu
eins og það gerði í upphafl hefði
áreiðanlega ýmislegt farið öðruvisi í
þessu viðkvæma en því miður alls
ekki einstæða máli. Það er lofsvert
þegar fjölmiðlar láta ekki rannsókn
niður falla og fylgja málum eftir. Það
er allt of oft sem það er ekki gert og
fyrsta frétt látin nsegja vegna þess
að ekki þykir taka því að vera með
„gamlar fréttir" eins og það er oft
kallað.
Þessu sérstaka máli virðist þó ekki
lokið að fullu, því miður, vegna þess
að nú-hefur það komið í ljós að faðir-
inn er kominn til landsins og krefst
þess að fá að ræða við telpuna eins-
lega og við vitum öll til hvers svoleiö-
is samtal getur leitt. Nefnilega þess
að barnið gangist inn á, eftir fortölur
mannsins, að fara með honum til
hins fjarlæga lands. Með því væri
máliö komið heilan hring og gæti
þess vegna byrjað alveg upp á nýtt.
Þess vegna er það skylda fjölmiðla,
ekki síst DV sem hefur staðið ein-
staklega vel að málum, að fylgjast
grannt með hverju fram vindur.
Fólki verður varla rótt fyrr en það
veit hvernig þessu máh lyktar fyrir
barnið sem er áreiðanlega löngu búið
að fá meira en nóg af togstreitunni
og sálarkvölunum.
Fríar tannviðgerðir afbrotamanna:
Hvað um fómarlömbin?
Sigrún Bergþórsdóttir skrifar:
Nú hefur verið birt álit umboðs-
manns Alþingis, að fangar eigi rétt
á ókeypis tannviðgerðum, burtséð
frá því hvort tennur þeirra hafi
verið í óhirðu árum saman á meöan
þeir voru frjálsir ferða sinna.
En hvað um fómarlömbin, sem
þessir menn hafa jafnvel slegiö úr
tennur, eða em örkumla og
óvinnufær eftir aðgerðir þessara
sömu manna? - Hver er réttur
þeirra? Það er kannski ráð að ör-
kumla náungann þegar allt er kom-
ið í óefni með tannheilsuna?
Hvernig skyldi háttað tannvið-
gerðum fyrir langlegusjúklinga og
hver er aðstaða til tannaðgerða á
slysadeild? Það er vitað að það get-
ur skipt sköpum um að fólk haldi
tönnum sínum eftir slys ef það fær
hjálp strax.
Að endingu vil ég minnast á ann-
að mál. - Með stuttu millibili voru
framin tvö aíbrot hér á íslandi.
Bæði voru málin upplýst. Annar
afhrotamaðurinn fékk 8 ára dóm,
en hinn 14 ára dóm. - Hvernig
skyldi standa á þessum mismun
fyrir sams konar glæp? - Fleirum
en mér finnst þetta undarlegur
mismunur á dómum.
Listin að verja lágan kaupmátt
Hilmar J. Hauksson skrifar:
Hér á dögunum var stungið upp á
því i lesendabréfi að fálkaorðuna
bæri að festa á fremsta son þjóðar-
innar, þ.e.a.s. Ásmund Stefánsson,
forseta ASÍ. - Þetta eru orð í tíma
töluð, enda sjaldséðir slíkir „hrafn-
ar“. Að mínu viti er framlag Ás-
mundar til sögu verkalýðsbaráttu á
íslandi einstakt framtaik. Má segja
að frá honum sé ættað það sem kalla
mætti „Ásmundarlögmál".
Á sínum tíma öölaðist Northcote
Parkinson frægð og frama fyrir lög-
mál sem við hann er kennt. Ekki er
ólíklegt að Ásmundur feti í fótspor
hans. - Hér meðfylgjandi eru þau 10
boðorð sem „Ásmundarlögmálið"
gæti byggst á.
Ásmundarlögmálið:
1. Tryggðu sjálfan þig gegn lágum
launum með því að gerast forseti
verkalýðsfélags, formaður banka-
ráðs, sitja í launuðum nefndum
og taka þér fyrir hendur annað
sem gefur eitthvað í aðra hönd.
2. Notaöu hvert tækifæri til þess að
fjargviðrast út í önnur launþega-
samtök og óbilgirni þeirra, sér-
staklega ef þau hafa náð hagstæð-
ari samningum en þú og sem þínir
félagsmenn gætu notið góðs af.
3. Leggðu áherslu á það hversu verð-
bólga sé voðalegur vágestur en
minnstu ekki á dýrtíð.
4. Forðastu aö bera saman kaupmátt
taxtakaups þeirra stétta sem þú
hefur umboð fyrir og sambæri-
legra stétta í öðrum löndum (t.d.
fjölda vinnustunda miöað við verð
vöru og þjónustu). Berðu heldur
saman þá hæst launuðu og lægsta
taxtakaup, jafnvel þó að engir
vinni samkv. þeim taxta.
5. Hamraðu á því, ef þínir félagsmenn
kvarta yfir lágum launum, að tek-
ist hafi að verja kaupmáttinn.
6. Vertu alltaf með gnægð rauðra
penna til þess að búa til rauð strik.
7. Notaðu aldrei slagoröiö „samning-
ana í gildi“ um annað en þína eig-
in samninga.
8. Hvettu til setningar bráðabirgða-
laga ef líkur eru á því að önnur
launþegasamtök fái eitthvað um-
fram þína eigin félagsmenn.
Gættu þess að harma setningu
þeirra opinberlega.
9. Afþakkaðu allar kauphækkanir
sem vinnuveitendur bjóða að
fyrra bragði, jafnvel þó að þær
nemi allt að 4,5%.
10. Leitaðu eftir aiþjóðlegri viður-
kenningu sem sérfræðingur í að
búa til láglaunasvæði.
MEIRIHÁTTAR TILBOÐ!
Permanett og klipping á aðeins kr. 2.900.
Strípur og klipping frá kr. 1.900 og litur og
klipping frá kr. 1.900.
Ellilífeyrisþegar ath., permanett, klipping og lagning
aðeins kr. 3.400.
Pantið tíma í síma 31480
Hárgreiðslustofa Elsu
ÁRMÚLA 5
NÝK0MIÐ
Kjólar, þýskír og enskír.
Peysur, míkíð úrval.
Píls, eínlít og rósótt.
Jakkar, margír lítír.
Elísubúdin,
Skipbolti 5, s. 26250.
EINSTAKÍ Á ÍSLANDI
BLAÐSÍÐUR
FYRIR
Úrval
TÍMARIT FYRIR ALLA