Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1990, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990.
Vidskipti
Jólasalan brást ekki
kaupmönnum í Reykjavík
- þetta voru mikil bókajól og metannríki í verslimum
Laugavegurinn í jólaösinni. Kaupmenn við Laugaveginn eru mjög ánægðir með söluna fyrir þessi jól og tala um
mikla aukningu. Þá var geysileg sala í Kringlunni eins og undanfarin ár. Almennt eru kaupmenn því ánægðir og
segja að jólasalan hafi ekki brugðist aö þessu sinni.
Jólasalan brást ekki kaupmönnum
í Reykjavík að þessu sinni. Svo virð-
ist sem meira hafi verið að gera en
í fyrra. Þannig jókst jólasalan í Hag-
kaup, stærstu verslun landsins. Þá
bera Laugavegskaupmenn sig mjög
vel og ræða um mun meiri umferð
um miðbæinn en undanfarin ár.
Hagkaupsmenn ánægðir
„Við erum ánægðir með söluna
fyrir þessi jól. Hún fór frekar hægt
af stað en síðasta vikan fyrir jól var
mjög drjúg," segir Jón Asbergsson,
forstjóri Hagkaups.
Hann segir ennfremur að salan hjá
Hagkaup hafl verið meiri í magni en
í fyrra. „í matvælunum var þetta
svipað og í fyrra. En þetta voru
greinilega mikii bókajól enda bækur
hlutfallslega ódýrari en síðustu ár.“
Að sögn Jóns var einnig mikil sala
á fatnaði í Hagkaup. Verslunin tók
nýlega upp sölu á nýjum og aðeins
dýrari merkjum en boðiö hefur verið
upp á áður og var mikil sala í þeim
fatnaði. „Það hefur verið mikið um
mjúka pakka að þessu sinni.“
Laugardagurinn fyrir
Þorlák var metdagur
Aðalsöludagurinn í Hagkaup sem
annars staðar var laugardagurinn
fyrir Þorláksmessu. Líklegast var sá
dagur metdagur í Kringlunni frá
upphafi.
Bolli í Sautján
Bolli Kristinsson, eigandi verslun-
arinnar Sautján við Laugaveginn,
segist vera ánægður með jólavið-
skiptin og þær móttökur sem nýtt
verslunarhús, Sautján við Laugaveg-
inn, hefur fengið.
„Það var mjög góð sala í Sautján í
Kringlunni líkt og áður en hins vegar
mikil aukning hjá okkur við Lauga-
veginn sem vonlegt er.“
Bolli segir að margir viðskiptavina
sinna hafi haft á orði að mikil jóla-
stemning væri við Laugaveginn og
jiefði hún minnt á stemninguna í
gamla daga.
„Við erum ánægðir
við Laugaveginn"
Jón Siguijónsson, gullsmiður í
versluninni Jón og Óskar við Lauga-
veginn og stjórnarmaður í samtök-
unum um gamla miðbæinn, segir að
mun meira hafi verið af fólki í gamla
miðbænum nú en fyrir undanfarin
jól.
„Þetta kom fram í meiri jólasölu
en áður. Enda erum við ánægðir,
kaupmenn við Laugaveginn.“
Áberandi var að verslanir í gamla
miðbænum auglýstu meira en fyrir
undanfarin jól. Þá voru settir upp
bogar við Laugaveginn með auglýs-
ingaskiltum.
„Við höfum leyfi fyrir þessum bog-
um í þrjú ár. Engu að síður eru þess-
ir bogar byrjunin á því að viö Lauga-
vegskaupmenn byggjum yfir gang-
stéttirnar okkar.
Byggt yfir gangstéttir
við Laugaveg í sumar
Þegar í sumar ætlum við að byggja
yfir gangstéttimar á nokkrum stöð-
um. Byggingarmátinn verður með
mismunandi sniði til að hægt verði
að finna út hvemig yfirbygging fólki
finnst best. Við ætlum að finna bestu
lausnma með viðskiptavinunum
sjálfum áður en hafist verður handa
um sjálft aðalverkið.“
Að sögn Jóns hafa samtökin um
Gamla miðbæinn skipst í tvær deild-
ir, Kvosina og Laugaveginn.
„Kringlan býr við velgengni en ég
hef trú á því að í framtíðinni eigi
Laugavegurinn eftir að vinna mjög á
í verslun og sú þróun hafi byrjað um
þessi jól. Það var áberandi hvað fólk
hafði oft á orði að hin eina og sanna
jólastemning fengist fyrst og fremst
með því að sækja verslanir í gamla
miðbænum."
Olían hækkaði
um jólin
Á bankaráðsfundi í dag verður nýr bankastjóri Landsbankans ráöinn.
Vaxtahækkun hjá
Landsbanka?
Búist er við að bankaráð Lands-
bankans samþykki á fundi sínum í
dag að hækka nafnvexti lítillega. Á
sama fundi verður nýr bankastjóri
Landsbankans ráðinn.
Eyjólfur K. Sigurjónsson, formað-
ur bankaráðs Landsbankans, segir
aö vextimir verði fyrsta mál á dag-
skrá fundarins.
Hann segir að á síðasta fundi hafi
komið fram tillaga frá bankastjómn-
um um að hækka nafnvexti lítillega.
Afgreiöslu tillögunnar hafi hins veg-
ar verið frestað til fundarins í dag.
„Ég vfi engu svara um það hvort
tillaga bankastjóranna verði sam-
þykkt á fundinum í dag,“ segir Ey-
jólfur.
Landsbanki og Samvinnubanki
hafa ekki hækkað nafnvexti eins og
íslandsbanki, Búnaöarbanki og
Sparisjóðimir hafa gert að undan-
förnu.
Spáð „er nokkurri hækkun verð-
bólgunnar í janúar en að hún lækki
afturífebrúar. -JGH
Verð á olíu og bensíni hækkaði á
erlendum mörkuðum um jólin.
Hækkunin var að jafnaði um 8 doll-
arar á unnum olíuvörum, eins og
bensíni og gasolíu. Hækkunin er hins
vegar rétt um 1 dollar á hráolíunni.
Þegar mörkuðum var lokað síðast-
hðinn föstudag var tonniö af súper-
bensininu 256 doharar en var í gær
komið í um 264 dollara. Verðið á blý-
lausu bensíni var á föstudag um 246
dollarar tonnið og var í gær komið í
254 dollara.
Síðustu tíu dagana hefur verð á
Menn ársins í viðskiptalífinu verða
útnefndir í dag af Frjálsri verslun og
Stöð 2. Þetta er í þriðja skiptið sem
þessi útnefning fer fram.
í fyrra fengu eigendur útgerðarfyr-
bensíni og gasolíu hækkaö um næst-
um 20 dollara tonnið. Mikil spenna
ríkir um framvindu mála viö Persa-
flóa. Því meiri líkur sem eru á stríði
eftir 15. janúar, daginn sem Öryggis-
ráð Sameinuðu þjóðanna vill að Irak-
ar verði búnir að yfirgefa Kúvæt,
þeim mun meira hækkar verð á olíu
og bensíni enda þótt miklar birgðir
af bensíni og olíu séu til á Vestur-
löndunum. Auknar líkur á friðsam-
legri lausn lækka hins vegar verðið.
-JGH
irtækisins Samherja hf. á Akureyri
þessa útnefningu. Þar áður voru það
eigendur bílafyrirtækisins Brim-
borgar sem er með umboð fyrir
Volvo og Daihatsu. -JGH
Menn ársins
Herrahúsið
Heimir Bergmann, verslunarmað-
ur í Herrahúsinu við Laugaveginn,
segir að engin spuming sé um það
að miklu meiri umferð hafi verið í
gamla miðbænum en undanfarin ár.
„Við erum ánægðir. Salan fór síðustu
dagana fram úr björtustu vonum."
-JGH
Peningamarkaöur
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 2-3 ib
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2,5-3 Allir
6 mán. uppsögn 3,5-4 nema Bb ib.Sb
12mán.uppsögn 4-5 Ib
18mán. uppsögn 10 ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Bb
Sértékkareikningar 2-3 ib
Innlan verötryggö Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5 Allir
6 mán. uppsögn 2.5-3.0 Allir
nema ib
fnnlán með sérkjörum 3-3,25 Ib
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 6,5-7 Ib.Lb
Sterlingspund 12-12,5 Sb
Vestur-þýsk mörk 7-7.6 Sp
Danskar krónur 8,5-9 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 12,25-13,75 ib
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 12,5-14,25 Lb
Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 16-17.5 Allir
Útlán verðtryggð • nema ib
Skuldabréf 7,75-8,75 Lb.Sb
Útlántilframleiðslu
isl. krónur 12,25-13,75 Lb.Sb
SDR 10,5-11,0 Ib.Bb
Bandarikjadalir 9,5-10 Allir
Sterlingspund 15-15,25 nema Sb Sb
Vestur-þýsk mörk 10-10,7 Sp
Húsnæðislán 4.0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 21,0
MEÐALVEXTIR
Óverðtr. des. 90 13,2
Verðtr. des. 90 8.2
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitalajan. 2969 stig
Lánskjaravísitala des. 2952 stig
Byggingavísitala jan. 565 stig
Byggingavisitala jan. 176,5 stig
Framfærsluvisitala des. 148,6 stig
Húsaleiguvisitala óbreytt 1 .okt.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5,245
Einingabréf 2 2.841
Einingabréf 3 3.449
Skammtímabréf 1,761
Auðlindarbréf 1,021
Kjarabréf 5,156
Markbréf 2,747
Tekjubréf 2,039
Skyndibréf 1,535
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,516
Sjóðsbréf 2 1,790
Sjóðsbréf 3 1,746
Sjóðsbréf 4 1,505
Sjóðsbréf 5 1,053
Vaxtarbréf 1,7735
Valbréf 1,6630
islandsbréf 1.088
Fjórðungsbréf 1,063
Þingbréf 1,088
Öndvegisbréf 1,079
Sýslubréf 1,095
Reiöubréf 1,070
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 688 kr.
Eimskip 585 kr.
Flugleiðir 259 kr.
Hampiðjan 180 kr.
Hlutabréfasjóður 183 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 193 kr.
Eignfél. Alþýðub. 145 kr.
Skagstrendingur hf. 420 kr.
islandsbanki hf. 143 kr.
Eignfél. Verslunarb. 143 kr.
Olíufélagið hf. 610 kr.
Grandi hf. 230 kr.
Tollvörugeymslan hf. 112 kr.
Skeljungur hf. 670 kr.
Ármannsfell hf. 245 kr.
Útgerðarfélag Ak. 360 kr.
Olís 210 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Bb= Búnaðarbankinn,
lb= Islandsbanki Lb = Landsbankinn,
Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast í DV á limmtudögum.