Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1990, Qupperneq 10
10
FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990.
Nauðungaruppboð Eftirtaldar eignir verða boðnar upp og seldar, ef viðunandi boð fást, til lúkningar neðangreindum kröfum, á opinberu uppboði sem sett verður í dómsal embættisins, Strandgötu 52, Eskifirði, mánudaginn 7. janúar 1991 kl. 10.00 og síðan háð eftir nánari ákvörðun uppboðsréttar. Lambeyrarbraut 12, Eskifirði, þingl. eig. Ali Ragnar Mete. Uppboðsbeið- endur eru Magnús M. Norðdal hdl. Landsbanki Islands, Eskifirði, Veð- deild Landsbanka íslands og Búnað- arbanki íslands.
Lóð úr landi Bakkagerðis, Reyðar- firði, þingl. eig. Reynir Gunnarsson. Uppboðsbeiðendur eru Magnús M. Norðdal hdl. og Bjami G. Björgvins- son hdl.
Réttarholt 2, 2.h. t.h„ Reyðarfirði, þmgl. eig. Jón Hreiðar Egilsson. Upp- boðsbeiðendur eru Magnús M. Norð- dal hdl. og Veðdeild JÁndsbanka ís- lands.
Bleiksárhlíð 61, miðhæð, Eskifirði, þingl. eig. Ólafúr Gunnarsson. Upp- boðsbeið. er bæjarsjóður Eskiijarðar.
Borgarland 7 (Hraungerði), Djúpa- vogi, þingl. eig. Byggingafélag verka- manna. Uppboðsbeiðendur eru Magn- ús M. Norðdahl hdl., Islandsbanki og Gjaldheimta Austurlands. Búðavegur 34, Búðahreppi, þingl. eig. Guðlaugur Einarsson. Uppboðsbeið- endur eru Gjaldheimta Austurlands, íslandsbanki hf. og Veðdeild Lands- banka íslands. Bkólabraut 16, Stöðvarfirði, þingl. eig. Steinar Guðmundsson. Uppboðsbeið- andi er Magnús M. Norðdahl hdl.
Skólabrekka 9, Fáskrúðsfirði, þingl. eig. Birgir Kristmundsson. Uppboðs- beiðendur eru íslandsbanki hf., Bún- aðarbanki íslands og Magnús M. Norðdahl hdl.
Strandgata 14 b, Eskifirði, þingl. eig. Benni og Svenni hf. Uppboðsbeiðend- ur eru Iðnlánasjóður, Byggðastofhun og Gjaldheimta Austurlands. Tjamarbraut 17, Egilsstöðum, þingl. eig. Guðrún Margrét Tryggvadóttú. Uppboðsbeiðendur em Trygginga- stofnun ríkisins og Veðdeild Lands- banka Islands.
Fiskvinnsluhús í skálahverfi, Reyðar- firði, þingl. eig. Reynir Gunnarsson. Uppboðsbeiðandi er Magnús M. Norðdahl hdl.
Grjótárgata 6, Eskifirði, þmgl. eig. Davíð Valgeirsson. Uppboðsbeiðend- ur eru Hijóbjartur Jónatansson hdl. Guðjón Ánriarm Jónsson hdl., Sigríð- ur Thorlacius hdl, Tómas H. Heiðar lögfr., Klemens Eggertsson hdl. og Ásgeir Magnússon hdl. Hamrar 2, Djúpavogi, þingl. eig. Stef- án Gunnarsson. Uppboðsbeiðandi er Gjgldheimta Austurlands.
SÝSLUMAÐURINN í SUÐUR-MÚLASÝSLU BÆJARFÓGETINN Á ESKIFTRÐI
Útlönd
Austurhluti Þýskalands:
Glæpir og liðhlaup
sovéskra hermanna
Um þrjátíu glæpir, mest stuldir og
rán, eru nær daglega framdir af so-
véskum hermönnum á landssvæði
því sem áður var Austur-Þýskaland.
Þá eru liðhlaup sovéskra hermanna
þar tíð þar sem 15-30 hermenn
hlaupast daglega úndan merkjum.
Þessar upplýsingar eru hafðar eftir
foringja hjá glæpadeild þýsku lög-
reglunnar.
Eftir sanmeiningu þýsku ríkjanna
breyttist staða þessara sovésku her-
sveita mjög. Áður voru þær nánast
óhagganlegar en í dag ræður sið-
ferðisbrestur og agaleysi ríkjum hjá
þeim hersveitum sem verða á brott
úr Þýskalandi að þremur árum liðn-
um.
Meðal afbrota sovésku hermann-
anna eru innbrot og rán frá heimil-
um fullum af vestrænum vörum sem
keyptar voru inn eftir sameiningu
þýsku ríkjanna. Þá munu sovéskir
hermenn hafa orðið valdir að mörg-
um umferðarslysum þar sem þeir
hafa ekið herbílum á ofsahraða á
vegum. Sumir sovésku liðhlaupanna
hafa náðst og verið afhentir sovésk-
um heryfirvöldum. Þau viðurkenna
að liðhlaup eigi sér staö í auknum
mæli en ekki að um alvarlegt vanda-
mál sé að ræða.
Þetta ástand á sovésku hersveitun-
um hefur vakið andúð almennings í
austurhluta Þýskalands en andúðin
var töluverð fyrir eftir 40 ára her-
setu. Sú öryggistilfinning, sem her-
sveitirnar áttu að veita, hefur snúist
upp í andstæðu sína. Verða sovéskir
hermenn því fyrir aðkasti og alls
kyns niðurlægingu á götum úti.
Reuter
Það voru snor handtok slokkviliðsmanns sem bjorguðu lífi 19 ára stúlku sem ætlaði að fyrirfara sér með þvi að
stökkva fram af 15 hæða byggingu í Hong Kong í gærdag. Foreldrar og önnur skyldmenni stúlkunanr höfðu árang-
urslaust reynt að telja henni hughvarf og viðþolslaus spenna var orðin allsráðandi á þakbrúninni og niðri á göt-
unni. Þá kom slökkviliðsmaðurinn til skjalanna. Honum tókst að komast nær alveg aftan að stúlkunni, stökk á hana
og dró hana með sér inn á þakið. Þegar hættan var afstaðin harðneitaði stúlkan lyfjameðferö og neitaði einnig
alfarið að segja hvers vegna hún vildi sytta sér aldur. Myndirnar sýna stúlkuna á þakbrúninni og siðan hvernig
slökkviliðsmaðurinn gómaði hana.
Reuter
ísraelskur ráðherra:
Páfinnviður-
kenni ísrael
Avner Shaki, ráöherra trúmála í
ísrael, sagði í viötah við ísraelska
sjónvarpstöð í gær að tími væri kom-
inn til að páfinn í Róm viðurkenndi
Ísraelsríki.
„Eftir 43 ár frá stofnun Ísraelsríkis
og framkvæmd trúfrelsis er sannar-
lega tími til kominn að páfinn viður-
kenni okkur,“ sagði Shaki.
Vatíkanið hefur neitað að koma á
stjómmálatengslum við israel. Páf-
inn hefur krafist þess að Palestínu-
arabar fengju heimaland og að Jerú-
salem yrði alþjóðleg borg. Shaki
sagði hins vegar að ísrael væri stað-
reynd sem ekki yrði hnikað.
„Á tímum þegar milljónir gyðinga
frá Sovétríkjunum flykkjast til ísra-
els er ómögulegt að horfa fram hjá
ísrael sem hinni eilífu ættjörð sem
gyðingar sneru aftur til.“
Nálægt 200 þúsund gyðingar hafa
flust til ísraels á þessu ári og á næsta
ári er búist við að þeir verði ein millj-
ón.
Reuter
Skothríðá
Guðföðurnum
Ungur maður lést af völdum
skotsára og þrír særðust í skot-
hríö i kvikmyndahúsi í New York
á annan dag jóla. Verið var aö
sýna myndina Guöfaðirinn III
þegar rifrildi tveggja hópa kvik-
myndahúsagesta hófst vegna
þess hve hátt annar hópurinn
talaöi undir myndinni.
Rifrildið hófst þegar tuttugu
mínútur voru liðnar af sýning-
unni og endaði í heilmikilli skot-
hríð með fyrrgreindum afleiðing-
um. Um 700 manns flúðu ótta-
slegnir úr troðfullu kvikmynda-
húsinu.
Byssumennimir hurfu í látun-
um sem urðu og höföu ekki náöst
þegar síðast fréttist. Myndin
gengur þó enn fyrir fullum hús-
ura um öll Bandaríkin.
Reuter
68 55
22
H