Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1990, Side 16
16
FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990.
Iþróttir
NM í handbolta:
Ósigur í
fyrsta
leik
„Við töpuðum þessum leik á
síðustu þremur mínútunum í
fyrri liálfleik og fyrstu þremur í
seinni Mlfleik en þá misstu úti-
leikmenn okkar trúna á sjálfa sig,
við misstum boltann klaufalega
og Danir tryggðu sér sigunnn.
Það er greinilega meiri æfing
og vinna sem liggur á bak viö
hvern leikmann hjá Dönum en
okkur og við náum ekki betri
árangri fyrr en við lögum þetta
því við höfum nægan efnivið,“
sagði Gústaf Bjömsson, þjálfari
íslenska stúlknalanúsliðsins, að
Iokinni viðureign íslands og Dan-
merkur, sem var opnunarleikur
Norðurlandamóts stúlkna sem
fram fer i Hafnarfiröi þessa dag-
ana.
Leikur íslands og Danmerkur
var jafn raestallan fyrri Mlfleik-
inn en ura hann miðjan Mðu Dan-
ir tveggja marka forskoti, 6-8.
Langskyttan Auður Hermanns-
dóttir skoraði þá þrjú stórglæsileg
mörk í röö og náði að jafha leik-
inn, 9-9. Halia María Helgadóttir
kom síðan íslandi yör, 10-9, með
góöu marki eftir gegnumbrot.
Mjög slæmur kafli kom þá hjá ís-
lenskaliðinu, boltanum var kastað
klaufalega í hendur andstæðing-
,anna sem þökkuðu fyrir sig með
þvi að skora hvert markið á fætur
öðru úr hraöaupphlaupi.
í Mlfleik höfðu Danir nóð fjög-
urra marka forskoti, 10-14, og í
upphafi seinni háifleiks jókst mun-
urinn í 10-17.
Með miklu harðfylgi tókst ís-
lensku stúikunum, með Herdísi
Sigurbergsdóttur í broddi fylking-
ar, að minnka muninn í tvö mörk,
17- 19.
Nær hleyptu Dánir íslendingum
ekki og öruggur sigur þeirra,
20725, var staðreynd.
fslenska liöiö þarf nauösynlega
að bæta sóknarleikinn til muna en
mikið mæöir á útileikmönnum
liðsins en aöeins þrjú mörk voru
gerð úr hornunum. Vamarleikur
líösins er með miklum ágætum.
Liðið spilaði flata 6-0 vörn og gafst
hún vel en flest mörk Dana komu
úr hraðaupphiaupum eftir klaufa-
leg sóknarmistök íslenskú leik-
mannanna.
Mörk íslands skoruðu: Halla
María Helgadóttir 6, Herdis Sigur-
bergsdóttir 4, Auður Hermanns-
dóttir 4, Heiða Erlingsdóttir 2,
Hulda Bjarnadóttir 2, Laufey Sig-
valdadóttir 1 og Sigrún Másdóttir
1.
Þá sigruðu Svíar lið Norðmanna,
18- 16.
Næsti leikur íslenska liðsins er
í. dag gegn Svíþjóð og hefst hann
kl. 14 i Kaplakrika.
-HR
Fyrstu 20
sóknirnar
forgörðum
gegn Svíum
Sóknamýting íslenska liðsins
gegn Svíum í gærkvöldi var frek-
ar slök en samtals fékk íslenska
liðiö 57 sóknir og 22 þeirra end-
uðu með marki. Þetta gerir 38,6%
nýtingu.
Svíar fengu 55 sóknir og skor-
uðu 22 mörk og nýting heims-
meistaranna því 40,0%. Þess má
geta aö íslenska iiðið byrjaöi af-
leitlega gegn heimsmeistumnum
í gærkvöldi og 20 fyrstu sóknar-
lotur íslenska liðsins mnnu út í
sandinn.
Áhorfendur þurftu að bíða í
tæpar tuttugu mínútur eftir
fyrsta íslenska markinu.
-SK
Tíu stiga tap gegn
Dönum í Hólminum
- Danir unnu slaka íslendinga, 90-80
mjög góðan leik, sterka vörn og
pressuðu vel út um allan völl og gáfu
íslenska liðinu aldrei frið.
íslenska liðið var í mestu vandræð-
um með að setja upp, leikmenn
reyndu ótímabær skot og Danir skor-
uðu grimmt úr hraðaupphlaupum.
Vítahittni íslenska liðsins var afar
döpur en hins vegar var vítahittni
Dananna góð.
íslendingar eiga að geta mun betur
og fá þeir tækifæri í næstu tveimur
leikjum til að hefna ófaranna í gær-
kvöldi. Magnús Matthíasson og Teit-
ur Örlygsson voru góðir í fyrri hálf-
leik en hurfu gjörsamlega í síðari
hálfleik. Pétur Guðmundsson sýndi
ágætan kafla í síðari hálfleik og eins
Pálmar Sigurðsson. Aðrir léku undir
getu.
„Ég er eins og gefur að skilja ósátt-
ur með leikinn í heild. Liðið virtist
ekki verið tilbúið í þennan leik. Við
eigum að geta gert mun betur en
þetta og Danir sleppa ekki eins vel
frá hlutunum í leiknum í Njarðvík í
kvöld," sagði Torfi Magnússon
landsliösþjálfari í samtali við DV í
gærkvöldi.
Um 300 áhorfendur fylgdust með
leiknum þrátt fyrir aftakaveður í
bænum í gærkvöldi og var nánast
ófært innanbæjar um tima. Helgi
Bragason og Kristinn Óskarsson
dæmdu leikinn.
• Stig íslands: Pétur Guðmunds-
son 20, Magnús Matthíasson 18, Teit-
ur Örlygsson 13, Guðjón Skúiason 11,
Pálmar Sigurðsson 8, Sigurður Ingi-
mundarson 4, Guðmundur Bragason
2, Jón Arnar Ingvarsson 2, Albert
Óskarsson 2.
• Flemming Danielsen var stiga-
hæstur Dananna með 22 stig.
-JKS
Rikharður Hrafiikelsson, DV, Stykkishólnii:
íslendingar biðu ósigur fyrir Dön-
um í landsleik í körfuknattleik í
Stykkishólmi í gærkvöldi. Lokatölur
leiksins uröu 80-90 eftir að Danir
höfðu haft eins stigs forystu í hálf-
leik, 44-45. Þetta var fyrsti leikur
þjóðanna af þremur en annar leikur-
inn verður í Njarðvík í kvöld og sá
þriðji á Hlíðarenda á laugardaginn.
Fyrri hálfleikurinn í gærkvöldi var
nokkuð jafn og um tíma náðu íslend-
ingar fimm stiga forystu og var það
besti leikkafli íslenska liðsins í leikn-
um. Þá barðist liðið vel í vöminni
og eins var sóknarleikurinn sterkur.
í byijun síðari hálfleiks skoruðu
Danir þrettán stig á þriggja mínútna
leikkafla á meðan íslendingar skor-
uðu aðeins þrívegis. Segja má að
þetta hafi gert út um leikinn og náðu
Islendingar aldrei að minnka þetta
bil að ráði. Danir sýndu á köflum
• Teitur Örlygsson skoraði 13 stig fyrir íslendinga gegn Dönum í gærkvöldi.
Svartur risi til
liðs við Haukana
Urvalsdeildarlið Hauka í
körfuknattleik fær í dag
góðan líðsauka en þá
kemur til félagsins nýr
erlendur leikmaður í stað Mike
Noblets sem lék með liöinu fyrri
hluta keppnistímabilsins.
Hér er um að ræða Bandarískan
svertingja, Damon Vance að nafni
og er hann 25 ára garaall. Vance
er 2,05 metrar á hæð og hefur ieik-
ið með mjög sterkum liðum í
bandaríska háskólakörfuknatt-
leiknum. Þar má nefna lið St. Lou-
is og Kaliforníu.
Damon Vance lék í fyrra með hði
í 1. deild í Finnlandi og þótti standa
sig afburðavel í þeirri sterku deild.
Skoraði hann að meðaltali 15 stig
og hirti að meðaitali jafnmörg frá-
köst. Haúkar vænta mikils af þess-
um sterka leikmanni og verður
hann löglegur með liði Hauka í
fyrsta leik liðsins eftir áramót sem
er gegn íslandsmeisturum KR.
-SK/GH
-íslendingarger
Það hefur töluvert oft komið fyrir á liðni
árum að landsliðið íslenska í handknattk
hafi komið manni gersamlega á óvart. En alc
ei eins og í Höllinni í gærkvöldi. Einn einker
ilegasti landsleikur sem fram hefur farið héi
landi og aðeins hreint hroðalegur klaufaskap
okkar manna kom í veg fyrir að heimsmeist;
amir, sem mættu til leiks með sitt sterka:
lið, færu ekki mjög niðurlútir af velli í lokii
Það var líkiega eingöngu vegna þess að mað
var í vinnunni að maður gekk ekki út í byrji
Þvílíka martröð hefur íslenska landsliðið ei
boöið upp á síðustu árin og verður að fara lar
aftur til að finna hliðstæðu. Svíarnir komus
0-8 og það var sama hvernig færi okkar me
fengu, allt fór forgörðum. Og Steingrímur Hi
mannsson forsætisráðherra, sem var á mei
áhorfenda, hefði örugglega skorað úr mörgi
þeirra dauðafæra sem strákarnir fen;
Kannski þó ekki mörgum, því Tomas Svenss
í marki Svía var hreint ótrúlegur á þessum tíi
Opið bréf til íþróttasíðu D V frá Carli J. Eiríkssyni:
Stjórn Skotsambandsins hef ur ákveðið...
Þegar íþróttamaður ársins í skot-
fimi var valinn nú í desember 1990
kom eftirfamadi yfirlýsing frá stjóm
Skotsambands íslands: „Að þessu
sinni hefur stjórn Skotsambandsins
ákveðið að útnefna skotmann ársins
úr röðum skammbyssumanna".
Með þessari snilidarlegu ákvörðun
útilokaði stjórn Skotsambandsins að
íþróttamenn úr öðrum greinum skot-
fimi en skammbyssuskotfimi kæmu
til greina við val á skotmanni ársins,
enda þótt miklu betri íþróttaárangra
væri þar að finna, t.d. í riffilskotfimi,
á árinu.
Svona ákvörðun, einmitt á því ári
þegar að minnsta kosti tveir árangrar
í öðram greinum en skammbyssu-
skotfimi voru áberandi bestir, hlýtur
að teljast afar ósanngjöm gagnvart
þeim íþróttamönnum sem þar eiga í
hlut.
En með þessu er ekki öll sagan sögð.
Ef það hefði nú einhverra hluta vegna
verið óhjákvæmilegt að ógilda og
ómerkja öll mót í skotfimi á árinu
1990 nema skammbyssumótin þá
stendur eftir þessi staðreynd: Á öllum
skammbyssumótum á árinu, nema
íslandsmeistaramótinu í staðlaðri
skammbyssu, vom árangrar miklu
betri en besti árngur þess manns sem
kosinn var skotmaöur ársins 1990.
Hér skal bent á dæmi: Á Reykjavík-
urmeistaramótinu í staðlaðri skamm-
byssu 19. maí 1990 hlaut Björn Birgis-
son 550 stig. Besti árangur Björns er
556 stig. Besti árangur þess manns
sem valinn var skotmaður ársins 1990
er 526 stig. íslandsmetið er 564 stig.
Til samanburðar má benda á að
neðstu þrír keppendur á síðasta
heimsmeistaramóti í staðlaðri
skammbyssu hlutu 546 stig, 540 og 530
stig. Stöðluð skammbyssa er ekki
ólympíugrein og þess vegna er hvorki
tii samanburður við ólympíuleika né
heimsmeistaramót.
Stjórn Skotsambands íslands hefur
ákveðið að íslandsmeistaramótið í
loftskammbyssu 1990 skuli haldið 30.
desember. Með þessari snjöllu
ákvörðun hefur stjórninni tekist að
útiloka að árangur, sem þar kynni að
nást, kæmi til greina við útnefningu
skotmanns ársins, enda munu líkleg-
ustu sigurvegarar í loftskammbyssu,
sem er ólympíugrein, ekki vera í náð-
inni hjá stjórninni.
Á árinu 1990 er vitað um þrjú mót
sem haldin hafa veriö í loftskamm-
byssu. Á tveimur þessara móta var
íslandsmetið bætt og er metið nú 566
stig. Sá árangur er svipaður og 555
stig í staðlaðri skammbyssu. Þegar
þetta met var sett hlaut annar kepp-
andi 561 stig á sama mótinu en það
er svipaður árangur og 548 stig í staðl-
aðri skammbyssu. Ekki hlutu þessi
árangrar heldur náð fyrir augum
stjórnar Skotsambands íslands þótt
stjórnin hefði ákveðið að veita titilinn
manni „úr röðum skammbyssu-
manna“.
Carl J. Eiríksson