Dagblaðið Vísir - DV - 28.12.1990, Page 26
34
FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1990.
Afmæli
Ámi Bjömsson
Arni Björnsson tónskáld, Hörgs-
hlíð 10, Reykjavík, varð áttatíu og
flmm ára 23. desember.
Starfsferill
Ámi er fæddur á Lóni í Keldu-
hverfi og var í Tónlistarskólanum í
Reykjavík 1930-1935. Hann lauk
burtfararprófi í píanóleik 1935 og
var í framhaldsnámi í Royal Manc-
hester College of Music í Englandi
1944-1946, aðalnámsgreinar flautu-
og píanóleikur en var auk þess í
námi í stofutónlist, undirleik, tón-
fræði og tónsmíðar. Lauk hann
þriggja ára námi á tveimur árum
og útskrifaðist sem ARMCM. Árni
var kennari í Tónlistarskólanum í
Rvík 1946-1952 og lék með Útvarps-
hljómsveitinni 1946-1950, Sinfóníu-
hljómsveitíslands 1950-1952 og
Lúðrasveit Reykjavíkur. 1952 varð
hann fyrir miklu áfalli sem hefti
starfsgetu hans og hefur hann verið
sjúklingur síðan. Árni er heiðurs-
félagi Tónskáldafélags íslands og
varð heiðursfélagi Bandalags ísl.
lúðrasveita 1988. Hann lék við guðs-
þjónustur á Landspítalnum fram á
vorið 1990.
Meöal helstu tónsmíða Árna eru:
Hljómsveitarsvítan upp til fjalla;
Hljómsveitarverkiö Tilbrigði viö
frumsamið rímnalag; Tónlist við
Nýársnóttina, leikrit Indriða Ein-
arssonar, 1950; Rómönsur fyrir fiðlu
og píanó; Pínósónata; Lítil svíta fyr-
ir strengjasveit; Fleiri hundruö
sönglög, fyrir einsöngvara, karla-
kóra og blandaða kóra. Einnig ligg-
ur eftir Árna fjöldinn allur af mörs-
um fyrir lúðrasveitir og hefur hann
í tvígang unniö til verðlauna á þeim
vettvangi eftir að hann varð fyrir
slysinu, bæði hérlendis og erlendis.
Fjölskylda
Árni kvæntist 2. júlí 1941 Helgu
Þorsteinsdóttur, f. 26. ágúst 1913.
Foreldrar Helgu eru Þorsteinn Jó-
hann Jóhannsson, kaupmaður í
Rvík, og kona hans, Katrín Guð-
mundsdóttir. Dætur Árna og Helgu
eru: Katrín Sigríður, f. 30. maí 1942,
fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit-
inni og fiðlukennari, sambýlismað-
ur hennar er Reynald Þ. Jónsson
byggingatæknifræðingur, sonur
Katrínar er Árni Jón Eggertsson, f.
11. maí 1970, sölumaður og söng-
nemi og einn af félögunum í Radd-
bandinu; og Björg, f, 2. júlí 1947, leik-
kona, leiklistarkennari ogleiks-
stjóri í Haslemere í Surrey í Eng-
landi, gift Andrew Cauthery, fyrsti
óbóleikari við Ensku þjóðaróperuna
(ENO). Synir Bjargar og Andrew
eru: David Harald, 1. janúar 1976,
nemi í Yeudi Mehnuynskólann í
Englandi, ogGunnar Atli, f. 17. júlí
1981.
.Systkini Árna eru: Guðmundur,
f. 20. ágúst 1898, b. og hreppstjóri í
Lóni, kvæntur Friðriku Jónsdóttur;
Arngrímur, f. 5. september 1900, d.
12 janúar 1972, læknir í Ólafsvík,
kvæntur Þorbjörgu Jensdóttur; Sig-
urveig, f. 8. júní 1908, d. 10. desemb-
er 1946, gift Gunnari Jóhannssyni,
b. í Árnanesi, og Björg, f. 9. ágúst
1913, organistiíLóni.
Ætt
Foreldrar Árna voru Bjöm Guð-
mundsson, f. 5. júní 1874, d. 8. nóv-
ember 1954, b. og hreppstjóri í Lóni,
og kona hans, Bjarnína Ásinunds-
dóttir, f. 28. júlí 1874, d. 15. ágúst
1927. Faðir Björns var Guðmundur,
b. í Lóni. Bróðir Guðmundar var
Árni í Lóni, sem var giftur Önnu,
systur Bjargar, konu Guðmundar.
Þeirra sonur var Árni píanóleikari,
faðir Kristjáns menntaskólakenn-
ara og rithöfundar og afi Magneu
Matthíasdóttur rithöfundar. Guð-
mundur var sonur Kristjáns, b. og
hreppstjóra á Víkingavatni. Systir
Kristjáns var Kristjana, móðir
Sveins Víkings rithöfundar. Bróðir
Kristjáns var Óli, faðir Árna Óla
rithöfundar og afi Geirs Kristjáns-
sonar rithöfundar. Kristján var son-
ur Árna, umboðsmanns á Arnanesi,
Þórðarsonar, b. á Kjarna í Eyjafirði,
Pálssonar, ættföður Kjarnaættar-
innar. Meðal barna Þórðar voru
Páll, afi Friðriks Friðrikssonar
æskulýðsleiðtoga, Björg, langamma
Rögnvaldar Siguijónssonar píanó-
leikara, Þórdís, langamma Sæ-
mundar, fóður Þorsteins stjörnu-
fræðings, Þorbjörg, langamma Vil-
hjálms Hjálmarssonar, fyrrv.
menntamálaráðherra, Kristbjörg,
langamma Ragnars Halldórssonar,
stjórnarformanns ÍSALs, og Ingi-
björg, langamma Ingibjargar, móð-
ur Sigurjóns Péturssonar borgar-
ráðsmanns.
Móðir Kristjáns var Jóhanna,
systir Gunnars, langafa Gunnars
Gunnarssonar skálds. Jóhanna var
dóttir Skíða-Gunnars, b. á Ærlæk,
Þorsteinssonar. Móðir Guðmundar
var Sigurveig Guðmundsdóttir, b. í
Ærlækjarseli, Árnasonar. Móðir
Sigurveigar var Ólöf, systir Bjargar,
ömmu Jóns Sveinssonar, Nonna.
Önnur systir Ólafar var Guöný,
móðir Kristjáns Fjallaskálds. Ölöf
var dóttir Sveins, b. á Hallbjarnar-
stöðum, Guðmundssonar. Móðir
Björns var Björg, systir Petrínu,
ömmu Kristjáns Eldjárn forseta.
Önnur systir Bjargar var Oddný,
langamma Jóns Sen, fv. konsert-
meistara Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands, og Signýjar Sen, móöur Er-
lends Jónssonar heimspekilektors.
Ami Björnsson.
Petrína var dóttir Hjörleifs prests á
Skinnastað Guttormssonar og konu
hans, Guðlaugar Björnsdóttur, syst-
ir Önnu, langömmu Ragnars Hall-
dórssonar, sjórnarformanns ÍSALs.
Bróðir Guðlaugar var Stefán, afi
Stefaníu Guðmundsdóttur leik-
konu, móður Önnu Borg.
Móðir Áma, Bjarnína, var systir
Guðmundar læknis. Bjarnína var
dóttir Ásmundar, b. á Áuðbjargar-
stöðum, Jónssonar. Móðir Ásmund-
ar var Ása Jónsdóttir, b. í Ytri-
Tungu á Tjörnesi, Semingssonar,
bróður Marsibilar, móður Bólu-
Hjálmars. Móðir Bjarnínu var
Kristbjörg Amgrímsdóttir, b. á
Fellseli, Bjarnasonar, bróður Ein-
ars, langafa Valtýs Péturssonar list-
málara. Systir Arngríms var Margr-
ét, móöir Tómasar Johnson, ráð-
herra í Kanada. Önnur systir Arn-
gríms var Kristín, móðir Magnúsar
Kristjánssonar ráðherra.
Kristján Jónsson
Kristján Jónsson, b. á Óslandi í
Skagafirði, varð áttatíu og fimm ára
27. desember.
Kristján fæddist á Víðivöllum í
Fnjóskadal og ólst upp á Hólum í
Hjaltadal og Unastöðum í Kolbeins-
dal.
Starfsferill
Kristján varð búfræðingur frá
Hólum 1923 og dvaldi á Korita bún-
aðarskólanum á Fjóni í Danmörku
og Ási í Noregi við landbúnaðarnám
1929-1930. Hann var b. í Stóragerði
1932-1946 og á Óslandi 1946-1959 og
í félagi við tengdason sinn eftir það.
Kristján var í hreppsnefnd 1946-
1970 og oddviti Hofshrepps 1966-
1970. Hann var í stjóm Kaupfélags
Austur-Skagfirðinga 1950-1969 og
sýslunefndarmaður 1966-1974.
Kristján var formaður skólanefndar
Hofshrepps og formaöur Búnaöar-
félags Óslandshlíðar.
Fjölskylda
Kristjánkvæntist20.júní 1932
Ingibjörgu Jónsdóttur, f. 1. apríl
1907, d. 20. september 1955. Foreldr-
ar Ingibjargar eru Jón Erlendsson,
b. á Marbæli í Óslandshlíð, og kona
hans, Anna Rögnvaldsdóttir. Börn
Kristjáns og Ingibjargar eru Margr-
ét, f. 7. ágúst 1933, starfsstúlka í
Sunnuhlíð í Kópavogi, var gift
Snoma Jónssyni, bifreiðarstjóra á
Akranesi, og eiga þau sex börn;
Þóra, f. 11. september 1936, skrif-
stofumaður, gift Jóni Guðmunds-
syni, b. og sveitastjóra á Óslandi,
og eiga þau sjö börn; Jón, f. 11. júní
1942, alþingismaður í Rvík, kvæntur
Margréti Einarsdóttur bankamanni
og eiga þau þrjú böm og Svava, f.
9. júní 1949, skrifstofumaður, gift
Pétri Jónssýni, byggingameistara á
Hvanneyri í Borgarfirði, og eiga þau
þrjú börn.
Systkini Kristjáns eru Þóra, f. 18.
september 1908, d. 1937, gift Friðriki
Guömundssyni, b. á Höfða á Höföa-
strönd, síðar tollþjónn í Rvik, sonur
þeirra er Þórir, f. 13. apríl 1937, ahnn
upp á heimili Kristjáns; Gestur, f.
14.júní 1916, d. 1989, viðskiptafræð-
ingur í Rvík, kvæntur Kristínu
Jónsdóttur, börn þeirra eru: Ófeig-
ur, bæjarstjóri á Blönduósi, Þóra,
iðjuþjálfi í Danmörku, og Sverrir,
kennari í Fellabæ. Fóstursystir
Kristjáns er Aðalbjpörg Guðmunds-
dóttir, f. 14. desember 1920, húsmóð-
ir á Bessastaðagerði í Fljótsdal.
Ætt
Foreldrar Kristjáns voru Jon Sig-
urðsson, f. 26. september 1870, d. 13.
febrúar 1944, smiðurogb. í Stóra-
gerði í Óslandshlíð í Skagafirði, og
kona hans, Níelsína Kristjánsdóttir,
f. 13. september 1881, d. 29. maí 1959.
Jón var sonur Sigurðar, b. í Gríms-
gerði í Fnjóskadal, Árnasonar, b. á
Draflastöðum, bróður Ingjalds á
mýri, fóður Margrétar, móður Har-
alds, afa Einars Jónssonar á Einars-
stöðum. Árni var sonur Jóns, b. á
Mýri, Halldórssonar, ættfóður Mýr-
arættarinnar. Móðir Sigurðar í
Grímsgerði var Kristín, systir Jóns,
alþingismanns á Gautlöndum, afa
Steingríms Steinþórssonar forsæt-
isráðherra og langafa Jóns Sigurðs-
sonar viðskiptaráðherra. Kristín
var dóttir Sigurðar, b. á Gautlönd-
um, Jónssonar, bróður Árna á
Draflastöðum. Annar bróðir Sigurð-
ar var Kristján, afi Kristjáns Fjalla-
skálds. Móðir Kristínar var Bóthild-
ur Þorkelsdóttir, systir Elínar,
ömmu Kritjáns Fjallaskálds. Bróðir
Bóthildar var Björn, faðir Bóthildar,
móður Valdimars Ásmundssonar
ritstjóra, foður Laufeyjar og Héðins.
Móðir Jóns í Stórageröi var Frið-
rika Kristjánsdóttir, b. á Böðvars-
nesi, Guðlaugssonar, b. á Böðvars-
nesi, bróöur Þórðar á Kjarna í Eyja-
firði, ættfóður Kjamaættarinnar,
langafa Friðriks Friðrikssonar,
æskulýðsleiðtoga og föður Þorbjarg-
ar, langömmu Vilhjálms Hjálmars-
sonar, fyrrv. menntamálaráðherra.
Guðlaugur var sonur Páls, b. á
Sörlastöðum, Ásmundssonar. Systir
Páls var Herdís, kona Davíðs Ind-
riðasonar, b. á Stóruvöllum í
Bárðardal, foreldrar tveggja Ingi-
Kristján Jónsson.
bjarga er báðar voru ömmur Krist-
ins, föður-Jakobs fræðslumálstjóra
og Hallgríms og Sigurðar, fortjóra
SIS. Bróðir Páls var Gísli, faðir Ás-
mundar, föður Einars, alþingis-
manns í Nesi. Gísh var einnig langa-
langafi Arnórs Sigurjónssonar rit-
höfundar.
Níelsína var dóttir Kristjáns, b. í
Krossnesi í Eyjafirði, Gíslasonar, b.
í Pétursborg í Glæsibæjarhreppi
Bjarnasonar, b. í Skjaldarvík, Hah-
grímssonar. Móðir Kristjáns í
Krossnesi var Soffia Þorláksdóttir,
b. í Pétursborg, Guðmundsdóttir, og
konu hans, Rósu Friöfinnsdóttur,
b. í Stóra-Gerði í Hörgárdal, Lofts-
sonar.
Móðir Níelsínu var Margrét Hálf-
dánardóttir, b. á Krossanesi, Hálf-
dánarsonar, b. í Grenivíkurkoti í
Höfðahverfi, Hallgrímssonar, b. í
Grýtubakka, Bjömssonar, b. og
hreppstjóra í Hléskógum, Hall-
grímssonar, b. á Hóh í Kinn, Bjöms-
sonar, b. á Breiðumýri í Reykjadal,
Pétursoanr, b.é Skáldastöðum í
Eyjafirði, ættföður Skáldastaðaætt-
arinnar. Móðir Margrétar var Kiist-
ín Snorradóttir, b. á Böggvisstöðum
í Svarfaðardal, Flóventssonar, og
konu hans, Guöríðar Benediktsdótt-
ur.
Kristján dvelur nú á Dvalarheim-
ili aldraðra á Sauðárkróki.
HUGSUM FRAM A VEGINN
gJUMFBRÐAR
Til hamingju
með afmælið
80 ára
Guðrún Guðmundsdóttir,
Hraunbæ 44, Reykjavík.
70 ára
Bjami Friðriksson,
Noröurgaröi 17, Keflavik.
Guðrún S. Þorsteinsdóttir,
Glaðheimum 14, Reykjavik.
60 ára
Svavar Konráðsson,
Gmndargerði 38, Akureyri.
Þráinn Þórarinsson,
Skólavegi90, Fáskrúðsfirði.
50 ára
Auður Anna Konráðsdóttir,
Dalseli 25, Reykjavik.
Lóa Guðmundsdóttir,
Háengi 10, Selfossi.
Þórný Guðbjörg Oddsdóttir,
Útskálum 3, Hellu.
40ára
Tryggvi Tryggvason,
Árholtil,ísafiröi.
Sigurður Ómar Hauksson,
Hólavegi 41, Siglufirði.
Margrét R. Jóhannsdóttir,
SmárahUð 5E, Akureyri.
Skúli Guðmundsson,
Holtsgötu 35, Sandgerði.
Guðbj örg Sigurðardóttir,
Kirkjubraut 52, Höfn i Homarfiröi.
Þórdís Eygló Sigurðardóttir,
Kvisthaga 21, ReykjaVík.
Svava A. Júlíusdóttir,
Grettisgötu 44, Reylcjavík.
Sæm undur H, Jóhannesson,
Mýrarbraut 13, Vík í Mýrdal.
Eiríkur Brynjólfsson,
Bergstaðastræti33A, Reykjavík.
Birna H. Gunnlaugsdóttir,
Hlíðarvegi 35, Siglufirði.
Sviðsljós
Ekkert lát á vinsæld-
um JohnWayne
Þrátt fyrir að nokkuð sé nú um lið-
ið frá þvi að John Wayne lést njóta
myndir hans enn gifuriegra vin-
sælda.
Myndir John Wayne njóta enn
mikiUa vinsælda þrátt fyrir að leik-
arinn góðkunni sé nú kominn yfir
móðuna miklu. í Bretlandi hafa
selst yfir 250 þúsund eintök af kvik-
myndinni The Quiet Man sem sett
var á myndband. í umræddri mynd
leikur Wayne írskan slagsmála-
tiund sem reynir fyrir sér í Banda-
ríkjunum en snýr á heimaslóðir
um síðir þar sem hann byijar nýtt
líf. Myndin hefur ávallt átt miklum
vinsældum að fagna hjá fólki, sem
á ættir sínar að rekja til írlands,
og Noröur-Ameríka, Ástralía og
Suður-Afríka eru þau landsvæði,
auk Bretlands, þar sem ekkert lát
virðist vera á vinsældunum.