Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Blaðsíða 2
2 LAU^AEDAGUR 19. JANÚAR 1991. Fréttir Skyggni ekkert við Heklu í gær: Hekla gamla lék á f orvitna ferðalanga - en aUmikiI umferð var á svæðinu Það sást lítið til gosstöðvanna við Heklu í gær. Hvemig sem rýnt var sást ekkert nema sortinn. Það eina sem sást var snjór sem var orðinn grár af ösku. Öðru hvoru heyrðust drunur úr íjallinu, Ef þær hefðu ekki heyrst heíði sem best verið hægt að telja sjálfum sér trú um að það væri alls ekkert að gjósa á þessum slóðum. Þeir sem komu að skoða Heklugos- ið urðu flestir fyrir miklum von- brigðum. Einn af þeim sem kominn var austur sagði við blaðamann: Maður lagði af stað í bjartsýniskasti því maður vildi ekki trúa því sem maður heyrði í tjölmiðlum að það sæist nákvæmlega ekki neitt. Klerkur einn, sem kominn var að skoða gosið, sagðist heldur ekki trúa því aö hann væri kominn fýluferð. Þegar við rákumst á hann sagðist hann vera búinn að vera á gangi í um klukkutíma og hann áætlaði að þaö væri enn um klukkutíma gangur þangað til hann væri kominn að gos- stöðvunum í sunnanverðu fjallinu. „Mér líður betur ef ég fer alla leið því þá verð ég endanlega sannfærður um að það sé ekkert að sjá. Ég vil ekki trúa því sem ég heyri,“ sagði guðsmaðurinn galvaskur. Þrír mennskælingar úr Reykjavík höfðu leigt sér bílaleigubíl til að aka á austur. Þeir voru staðráðnir í því að bíða viö rætur fjallsins eftir því að hann létti til. Einn þeirra sagði: „Við höfum nógan tíma, erum með teppi, svefnpoka og gott nesti. Viö getum því beðið hér alla helgina. Bílaumferð að svæðinu við rætur Heklu jókst nokkuð þegar líða tók á daginn í gær. Færð var sæmileg en töluverð hálka. Nokkuð bætti þó snjó á vegi á austanverðu svæðinu. Skyggni var fremur lélegt í gær og því þurfti að fara mjög nálægt gos- stöðvunum til að sjá eldsumbrotin. Jeppamenn söfnuðust saman á út- sýnisbrún við svokallaða Bjalla hjá Heklubraut en þar sást mjög vel til gossins í suðvesturhliðinni í fyrri- nótt. Umbrotin þar minnkuðu þó nokkuð í gær. Af Fjallabaksleið bár- ust hins vegar fregnir um að gosið væri kröftugt að austanverðu. Þang- að var ekki hægt aö komast nema á sérstaklega útbúnum jeppum. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli fóru sex rútur að gosstöðvunum í gær. Farþegarnir gengu nokkurn spöl að gossvæðinu. Umferð var ekki nærri eins mikil í gær eins og þegar mest lét' á fimmtudagskvöld og að- faranótt föstudagsins. Þá var nánast óslitin umferð á vegunum að Heklu hjá Landsveit og Rangárvöllum. Lög- reglan sagði undir kvöld að engin óhöpp hefðu orðið á svæðinu í gær. -Ótt/J.Mar Vísbendingar um að dregið haf i úr eldvirkni „Gosóróinn hefur verið stdpaður í allan dag. Það hefur verið nokkuð mikið um sprengingar í fjallinu sem gæti bent til að eldvirknin væri að færast á milli stáða," sagði Bryndís Brandsdóttir jarðeðlisfræðingur í gær. En hún ásamt Guðrúnu Sverridótt- ur jarðfræðingi fylgdist með gosinu frá bænum Selsundi. „Staðan er nokkuð óljós þar sem ekkert hefur sést til gosstöðvanna í dag. Það hefur líklega dregið úr krafti gossins í sunnanverðu fjallinu því það heyrast ekki jafnmiklar drunur úr fjallinu og gerði í fyrri- nótt,“ segir Guðrún. „Það eru á lofti vissar vísbendingar um að dregið hafi úr eldvirkninni, til dæmis minni drunur frá fjallinu og færri jarðskjálftar. En það er erf- itt að segja nokkuð um þetta með' vissu fyrr en sést almennilega til fjallsins," sagði Eysteinn Tryggva- son hjá Norrænu eldfjallastöðinni á fimmta tímanum í gærdag. -kaa/J.Mar Bryndís Brandsdóttir og Guðrún Sverrisdóttir fylgdust með gosinu í Heklu. Bryndís stjórnaði sérstöku tölvustýrðu tæki sem mældi óróa á gossvæðinu. DV-mynd GVA Vamarliðsmenn um stríðið við Persaflóa: Fréttaf lutningnum ber að taka með varúð - menn eru hræddir en búnir undir að deyja, segir Mark Benjamin „Það er of snemmt að segja neitt til um árangur. Það er lítið að marka það sem kemur fram í fréttum. Ég hef verið í hernum í 14 ár og tek öll- um fréttum af stríðinu með mikilli varúð. Að öðru leyti held ég að það sem forsetinn okkar er að gera núna sé réttlátt og hernum ber skylda til að fylgja skipun hans. Stríð er ljótur leikur en einhver verður að gera þetta,“ sagöi Mark Benjamin, her- maður hjá varnarhðinu á Keflavík- urflugvelli, við DV vegna stríðsins sem braust út við Persaflóa í vikunni. DV-menn tóku varnarliðsmenn tah og eiginkonur sem starfa á varnar- svæðinu. James Burt þyrluflugmað- ur, sem er hálfíslenskur, tók undir orð Marks Beiyamin um að frétta- flutningi beri að taka mjög með var- úð: „Fréttamenn búa stundum til frétt- ir eftir vafasömum heimildum. Þegar ófriður var í Lýbíu árið 1986 voru fréttir fluttar af skipinu sem ég var á. Frásagnimar áttu ekkert skylt viö það sem við vorum að gera,“ sagði James. Mark sagði að ekkert á fyrstu dögum stríðsins segði til að sigur væri í augsýn: „Síðustu atburðir eru bara byrjun- arástand. Viö verðum því bara að bíða og sjá hvað setur. Flestir þeirra sem ég þekki th í vamarliðinu hér á íslandi em sömu skoðunar. Þetta er bara byrjunin." Mark sagðist vera sammála George Bush forseta. „Ég trúi að Persaflóadeilan snúist ekki um stríð helduffrelsÍT Ég trúi heldur ekki að Bandaríkjastjóm sé að gera neitt sem hún væri ekki tilbúin th að gera annars staðar í heiminum eins og í Norður-Evrópu. Mark segist eiga vini í bandaríska hemum í Persaflóa: „Ég hef fengið bréf frá þeim. Þeir vom óþohnmóðir að bíða áður en stríðið skah á. En ég er viss um að þeim finnst núna að biðin hafi verið þess virði. Þeir em ahir hræddir. Hver sá sem segist ekki vera hræddur í bardaga segir ekki satt. Allir vinir mínir segjast vera hræddir við að deyja. En þeir vom undir það búnir að deyja. Stríð hefur mikil áhrif á menn. Enginn vill berjast en einhveijir veröa samt að gera það,“ sagöi Mark Benjamin. Erin Turok, sem á eiginmann í varnarliðinu, segir að mjög óþægi- legt sé aö vera á íslandi og geta ekki fylgst með stríðinu nema með augum fréttastöðvarinnar CNN. Rebekah Whitacre segist hafa átt marga ættingja sem féhu í Víetnam- stríöinu. Hún telur sig vera mjög öragga og heppna að vera hér á ís- landi en telur stríðiö óumflýjanlegt. „Það verður einhver aö stööva þenn- an bijálaða mann,“ sagði Rebekah. -ÓTT Frá vinstri Erin Turok, James Burt, sem er hálfíslenskur, Rebekah Whit- acre og á stóru myndinni Mark Benjamin 34 ára varnarliðsmaður með 14 ára reynslu af herþjónustu. Hann segir vini sina við Persaflóa vera mjög hrædda við að deyja. DV-myndir BG Ríkisstjómin: ónumvariðí Ríkissfjórnin hefur samþykkt að veija þremur mhijónum króna til áróðursherferðar þar sem brýnt verður fyrir fyrirtækjum og einstaklingum aö takmarka bensín- og olíunotkun. Veröur áróðursherferðinni hleypt af stokkunum strax eftir helgi en búast má við eidsneytisskorti ef stríðið við Persaflóa dregst vem- lega á langinn. Jón Sigurðsson, starfandi utan- ríkisráðherra í fjarveru Jóns Baldvins Hannibalssonar, gerði ríkisstjórninni grein fyrir stöð- unni í Persaflóastríðinu í gær- raorgun. Að sögn Steingríms Her- mannssonar forsætisráöherra vom ekki teknar ákvarðarúr um sérstök viðbrögð við ástandinu sem lýst var sem mjög alvarlegu eftir eldflaugaárás íraka á ísrael. -hlh Menntamálaráðherra: Rýmri reglur varðandi þýð- ingarskyldu Svavar Gestsson menntamála- ráðherra hefur sett nýja reglu- gerð um þýöingarskyldu sjón- varpsstöðva og hefur hún þegar tekiö gildi. Samkvæmt henni fær Stöð tvö að halda áfram óþýddum og ótextuðum útsendingum frá CNN. Hér eftir mun nægja að láta útskýringar fylgja á þeim timum sem ætlaðir eru til auglýsinga. -kaa konungs minnst Ólafur V. Noregskonungur var einlægur vinur íslands og ís- lensku þjóðarinnar. Þegar leiðir okkar lágu saman erlendis lét hann það einatt í Ijós og rifjaöi upp hve allar stundir, sem hann haföi dvaliö á íslandi, væru gleöi- ríkar í mínningunni. Hann var af þessari sterku ræktarsömu aldamótakynslóö, sem þakklát- lega hefur litið til þess að marg- vislegir draumar og hugsjónir hennar hafa ræst, og æðraðist hvorki né lét bugast þótt móti blési. Sú kynslóð ræktaði af sömu umhyggju land, þjóð og frænd- garð. Mér fannst ætíð sem Ólafi konungi fyndist hann vera í innri frændgarði þegar hann ræddi við Islending um málefrú þjóöanna tveggja, hinnar norsku og ís- lensku. Ólafur konungur kom íjórum sinnum th íslands. Hið fyrsta sínn sem krónprihs Noregs þegar hann á Snorrahátið í Reykholti áriö 1947 afhjúpaði styttu af Snorra Sturlusyni sem Norð- menn gáfu islendingum. Síðasta sinni árið 1988 þegar hann kom einnig færandi hendi með stór- gjöffrá Norðmönnum til Snorra- stofu í Reykholti. Þá tók landið á móti þessum bjartleita hötðingja í sólskini og gróðurskrúða og þjóðin fagnaöi honum af djúpri vináttu. Við Íslendíngar minnumst Ól- afs V. Noregskonungs með virð- ingu og hlýju og vottum Haraldi konungi V., sem tekið hefur við afföður sínum, konungsfjölskyl- dunni og norsku þjóöinní allri innlegan samhug okkar. Vigdís Finnbogadóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.