Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1991, Síða 3
3
rÍÁWi'ÁRöÁbuii
Fréttir
Strætisvagnar Reykjavíkur:
Svefndrukknir
og þreyttir vagn-
stjórar undir stýri
- vaktafyrirkomulagið stenst ekki lög að mati Vinnueftirlitsins
Vinnueftirliti ríkisins hefur borist
ábending frá vagnstjórum SVR um
að vaktafyrirkomulag þeirra stangist
á við gildandi vinnuverndarlög. í
bréfi sem nokkrir þeirra skrifuðu og
öryggistrúnaðarmaður þeirra af-
henti Vinnueftirbtinu 5. desember
síðastbðinn er bent á að um helgar
bði jafnvel.innan við fimm klukku-
stundir frá því að vakt lýkur þar til
þeir verði að hefja akstur á ný.
í bréfinu segja þeir einnig að það
sé í blóra við lögin að unnið sé í 11
daga samfellt án frídags. Það sé þeim
hins vegar gert að gera. Aukinheldur
þurfi þeir að skba minnst 13 vöktum
á tímabihnu.
Samkvæmt lögum frá 1980 um að-
búnað, hohustuhætti og öryggi á
vinnustöðum er kveðið á um að
starfsmönnum sé tryggð minnst 10
tíma hvíld á dag. Varðandi vakta-
vinnufólk sérstaklega segja lögin að
hægt sé að semja um styttri hvíldar-
tíma, eða niður í allt að 8 tíma. Styttri
hvíldartími er einungis löglegm: í
undantekningartbvikum og þá ein-
ungis ef sérstakar aðstæður koma
upp.
Að sögn Jónasar EngUbertssonar
vagnstjóra er mjög brýnt að vakta-
fyrirkomulaginu hjá SVR verði
breytt. Hann segir ástæðuna ekki
einungis vera þá að vernda vagn-
stjórana. Einnig vegi þungt að mikið
vinnuálag og þreyta hjá vagnstjórum
skapi umtalsverða hættu fyrir aðra
vegfarendur. Máb sínu tU stuðnings
bendir hann á að í umferðarlögum
sé kveðið skýrt á um að ökumenn
skub vera aUsgáöir og óþreyttir þeg-
ar haldið er út í umferðina.
Að sögn Guðmundar Eiríkssonar,
debdarstjóra hjá Vinnueftirbti ríkis-
ins, virðist það ljóst að vaktafyrir-
komulagið hjá SVR falh ekki sem
skyldi að vinnuverndarlögunum.
Hann segist hafa vakið athygh for-
svarsmanna SVR á þessu og fengið
þau svör þaðan að starfsmannastjóri
borgarinnar myndi leita leiða til úr-
bóta.
„Það eru yfir 20 ár síðan þetta fyrir-
komulag var tekið upp, áðm- en nú-
gildandi vinnuverndarlög tóku gUdi,
og síðan þá hefur margt breyst. Þá
vUdu menn þjappa vinnunni sem
mest saman og fá lengri frítíma þess
á mibi. Nú er þessu hins vegar öfugt
farið, segir Guðmundur."
Á fimdi sem Jón G. Kristjánsson,
starfsmannastjóri Reykjavíkurborg-
ar, átti í gær með aðUum þessa máls,
segir hann að menn hafi skipst á
upplýsingum. „Það varð engin niður-
staða enda var það ekki æfiunin.
Annar þeirra sem skrifaði bréfið tU
Vinnueftirbtsins hefur reyndar sagt
upp og málflutningur þeirra er á
misskbningi byggður. En það verður
unnið í málinu áfram,“ segir Jón.
-kaa/ns
KJúklingaborgari
Heimsborgari, broddborgari, hamborgari
eða almennur borgari. Nei, nú er það kjúkl-
ingaborgari á Kentucky Fried sem er aðal-
borgarinn. Hann er úr mjúku bringukjöti, í
sesambrauði, iceberg og tómötum.
Nýjung á Islandi sem sameinar
hollt og gott.
Kgntucky
Fried
GMcken
KJúklingastaAurlnn
Hjallahraupi 15, s. 50828
Faxafeni 2, s. 680588.
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1 -3, Reykjavík, sími 686633
REJVAULT
Fer á kostum